Tíminn - 06.06.1986, Qupperneq 3
Föstudagur 6. júní 1986
Tíminn 3
Kristján Jóhannsson syngur íslensk lög á plötu:
Mörg íslensk lög
líkust óperuaríum
„Þetta á að geta orðið meiríháttar
plata. Á henni syngur Kristján rjóm-
ann af íslenskum sönglögum." „Mér
er óhætt að lofa því að platan verður
eins umdeild ef ekki umdeildari en
platan sem Kristján söng inn á fyrir
þrem árum.“ „íslensk lög eiga það
sameiginlegt með mörgum ítölskum
lögum að það eru ekki nema góðir
söngvarar sem geta skilað þeim frá
sér. Mörg íslensk lög eru líkust
óperuaríum."
Þetta eru tilvitnanir í Þorstein
Hannesson óperusöngvara, Jón
Karlsson og Kristján Jóhannsson,
óperusöngvara á fréttamannafundi
þar sem þeir kynntu útkomu nýrrar
plötu á hausti komanda, þar sem
Kristján hyggst syngja úrval af fall-
egustu og vinsælustu sönglögum
margra hinna þekktustu íslensku
tónskálda. En Kristján kvaðst
undanfarið ár hafa lagt sérstaka
áherslu á að kynna sér íslensk söng-
lög og túlkun þeirra.
Þorsteinn Hannesson
óperusöngvari hefur valið lögin í
samráði við Kristján og annast list-
„Hjá Lundúna sinfóníunni kom mönnum mjög á óvart að íslendingar ættu
svo fallega mússík,“ sagði Kristján Jóhannsson, sem hér er lengst til vinstri
ásamt konu sinni Sigurjónu Sverrisdóttur. Aðrir á myndinni eru: Björgvin
Halldórsson, Þorsteinn Hannesson, Jón Karlsson frá Strandhöggi og Jónas
Ólafsson.
Tímamynd Gísli Egill.
Leikári Þjóðleik-
hússins að Ijúka:
í sumar
Leikári Þjóðleikhússins fer nú
senn að Ijúka. Síðustu sýningar á í
deiglunni, eftir Arthur Miller verða
fimmtudaginn 12. júní og laugardag-
inn 14. júní. í deiglunni, fjallar sem
kunnugt er um galdraofsóknir sem
áttu sér stað í Bandaríkjunum í lok
17. aldar, en sem gott leikrit höfðar-
það einnig til annarra tíma og að-
stæðna.
Síðustu sýningar á Helgispjöllum,
eftir Peter Nicols, verða 11., 13. og
14. júní. Það er Benedikt Arnason
sem hefur þýtt leikritið og er hann
jafnframt leikstjóri.
Engin sýning verður á vegum
Þjóðleikhússins um næstu helgi, því
' þá verða sýningar Dramaten frá
Stokkhólmi, á Fröken Júlíu á vegum
Listahátíðar.
Starfi Þjóðleikhússins er þó ekki
lokið þar með, því í lok júní verður
farið í leikför með gamanleikinn
Með vífið í lúkunum, um Vesturland
og Vestfirði.
ræna ráðgjöf og umsjón við gerð
plötunnar. Jón Þórarinsson tónskáld
útsetur lögin sérstaklega fyrir plötu-
na, en Sinfónfuhljómsveit Lundúna
annast undirleik. Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar verður Karsten Ander-
sen. Tæknilega umsjón við gerð
plötunnar og milligöngu við erlenda
aðila mun Björgvin Halldórsson
annast. Útgefandi er Strandhögg.
Kristján Jóhannsson kvaðst löngu
bókaður út allt þetta ár og raunar
meira og minna mörg ár fram í
tímann. Innan skamms mun hann
syngja í Tosca í Ohio í Bandaríkjun-
um. Þaðan mun hann fara beint til
Lundúna til hljómplötuupptökunnar
í ágúst n.k. Síðan er komið að
stórum áfanga er Kristján syngur
Mikilvægum áfanga í uppbyggingu
fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
var náð fyrir skömmu, er Ragnhildur
Helgadóttir heilbrigðisráðherra
opnaði formlega nýja geðdeild. Um
er að ræða legu og göngudeild í
tæplega 600 fermetra húsnæði. 10
sjúklingar rúmast í sólarhringsvist-
un. Miðað er við að deildin sinni
öllum sem þurfa á bráðri sjúkrahús-
aðalhlutverkið í New York City
Opera í La Boheme með Maria
Spacanna undir stjórn Nicola Re-
signo. New York City Opera fór
þess síðan á leit fyrir skömmu að
Kristján syngi aðalhlutverkið í Faust
undir stjórn Nello Santi í október
n.k. og er hann nýlega búinn að
skrifa undir samning þar að lútandi.
Strax að loknum sýningum í New
York heldur Kristján til Milwaukee
og syngur Tosca með Valery Pop-
ova.
í nóvember kemur Kristján til
Islands til að syngja Tosca í Þjóð-
leikhúsinu. í janúar heldur hann
síðan til Chicago til æfinga á aðal-
hlutverkinu í Grímudansleiknum,
sem hann mun syngja þar á móti
Luciano Pavarotti.
vist að halda vegna geðrænna eða
félagslegra vandamála. Frá því í
desember 1985 og fram í febrúar
1986 er hluti deildarinnar var tekinn
í notkun, með geðræna erfiðleika
vistaðir á handlæknisdeild, og út-
skrifuðust 53 sjúklingar á þeim tíma.
Heildarkostnaður við hönnun og
uppsetningu hinnar nýju geðdeildar
er um 18 milljónir króna. Yfirlæknir
er Sigmundur Sigfússon, en alls eru
14 stöðugildi við deildina.
Bridgesveit
Samvinnuferöa:
Vann mót
í Hollandi
Bridgesveit Samvinnuferða/Land-
sýnar gerði góða ferð til Hollands
síðustu viku jregar hún vann sérstakt
þriggja sveita mót sem í tóku þátt
kvennalandslið Hollands og landslið
yngri spilara .
Samvinnuferðasveitin vann fyrst
kvennalandsliðið með yfirburðum,
111-9 eða 25-0. Yngra liðið var yfir
í hálfleik gegn Samvinnuferðum,
13-48 en síðari hálfleik unnu fs-
lendingarnir 38-0 og leikinn 16-14.
Mótið var haldið í Kempervennen
en þar dvaldi sveitin í sumarhúsum.
f sveitinni spiluðu Aðalsteinn Jörg-
ensen, Jón Baldursson, Sigurður
Sverrisson og Valur Sigurðsson.
GSH
Eldur í tvílyftu timburhúsi á Seyðisfirði:
Bjargaðist
naumlega
Eldurinn breiddist út með leifturhraða
Elín Frímann var hætt komin er
eldur kom upp í íbúð hennar á
annarri hæð í tvílyftu timburhúsi á
Seyðisfirði á miðvikudagskvöldið.
Grunur leikur á að kviknað hafi í
út frá rafmagnshitapoka og barst
eldurinn með málningu með leift-
urhraða um húsið. Elín var að tala
við tengdason sinn í síma er hún
varð eldsins vör og hljóp þegar til
dyra. Þegar hún kom á dyrapallinn
kom Einar Harðarson á móti
henni, en hann hafði verið að
vinna við hús handan götunnar og
orðið eldsins var. Þá hafði eldur
læðst í hár Elínar en Einari tókst
að slökkva hann.
Þegar slökkviliðið kom að hús-
inu var mikill eldur inni í einu
herbergi og tókst því fljótlega að
slökkva hann. fbúar á neðri hæð-
inni fluttu meirihlutann af innbúi
sínu út úr húsinu en miklar
skemmdir urðu af vatni og reyk í
húsinu.
Elín brenndist á baki og Einar
lítillega á höndum, en fleiri slys
urðu ekki á fólki. -gse
Akureyri:
Ný geðdeild við sjúkrahúsið
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
Athygli símnotenda er vakin á því að við útgáfu
nýrrar símaskrár 1986 verða gerðar númerabreyt-
ingar hjá nokkur hundruð símnotendum sem
tengdir eru við símstöðvarnar á Seltjarnarnesi,
Árbæjarhverfi og í Garðabæ.
Númerabreytingarnar sem tengjast símstöðvun-
um á Seltjarnarnesi og Árbæjarhverfi verða fram-
kvæmdar föstudaginn 6. og laugardaginn 7. júní
1986.
Númerabreytingar sem tengjast símstöðinni í
Garðabæ verða framkvæmdar laugardaginn 14.
júní 1986.
Enn eru ótengd símanúmer hjá um 100 handvirk-
um símnotendum í Skagafirði og um 120 handvirk-
um símnotendum í Öxarfirði þær breytingar verða
framkvæmdar síðar.
Þá verður símaskráin 1986 að fullu komin í gildi.
Eru símnotendur hvattir til að nota skrána vegna
fjölmargra breytinga frá fyrri skrá.
Sérstök athygli er vakin á því að símanúmer
Borgarspítalans er nú 68-12-00.
Á blaðsíðu 3 í nýju símaskránni á að vera nýtt
símanúmer fyrir neyðarvakt lækna í Reykjavík,
Kópavogi og Seltjarnarnesi 68-12-00 fólk er beðið
um að breyta þessu í símaskránni strax.
Póst- og símamálastjórnin
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við heilsu-
gæslustöðvar eru lausar til umsóknar nú þegar:
Dalvík, ein staða hjúkrunarfræðings
Keflavík, ein staða hjúkrunarfræðings.
Sandgerði, ein staða hjúkrunarfræðings.
Húsnæði á staðnum
Egilsstaðir, sumarafleysingar frá 1. júlí til 31. ágúst
1986.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
2. júní 1986.
Notaðar dráttarvélar
MF 265 m/moksturstækjum, aldrif, IHC 574 hydro,
Ford 3000, IHC 444, IMT 577 m/aldrifi, MF 185
multipower m/moksturstækjum, Zetor 4911, o.m.fl.
Búvélar, Sigtún 7, s. 687050
Laus staða
Staöa bókavarðar í Landsbókasafni íslands er laus til umsóknar. Til
greina kemur aö ráöa í tvær hálfar stööur.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa
borist Menntamálaráöuneytinu fyrir 25. júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 4. júní 1986.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
Sigríðar J. Thoroddsen
Kvigindisdal
fyrir hönd aðstandenda
Fríða Guðbjartsdóttir og
Valur Thoroddsen