Tíminn - 06.06.1986, Qupperneq 4

Tíminn - 06.06.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn: SPEGILL lllllillllllllll Rainier prins, pabbi hennar, er dolfallinn yfir þcssu. Hann vill helst að hún fari nú að gifta sig einhverjum verðugum ungum manni. Stefan „Lill-Lövis“ Johansson, 28 ára kappakst- urshetja af sænskum ættum er búsettur i Monaco, er sá sem Rainier prins helst sæi sem eiginmann dóttur sinnar, en þau hafa átt vingott um tíma. Það er þó ýmislegt sem mælir á móti því að svo fari, því að Stephanie segist eiga eftir að skemmta sér miklu meira áður en hún festi sig í hjónabandi, - og Stefan er víst búinn að fá sér nýja vinkonu. Stephanie prinsessu er margt til lista lagt, og nú ræður hún sér sjálf og ætlar að prófa sitt af hverju. Það nýjasta er að hún hefur sungið inn á plötu. „Allt sem éggeri viröist vera stórkostlegt fréttaefni. Ég spyr oft sjálfa mig: Hvers vegna? Hreinskilnislega sagt, þá hef ég alltaf undrast þaö hvers vegna fólkerekkiorðið hundleitt á aö glápa á mig. Stephanie vill syngja rokk - og pabbi hennar fékk sjokk! Stephanie prinsessa í Mónakó í nýlegu amerísku blaði voru ýmis ummæli liöfð cftir frægu fólki um lífið og tilveruna. Stephanie prinsessa í Mónakó lét þá hafa eftir sér það sem hér að ofan birtist, og er það skiljanlegt að hún velti því fyrir sér, hvers vegna hún sé eftirsótt fréttaefni, aumingja stúlkan. En það er bara svona, - allt sem hún gerir virðist stórfréttir. í blaðinu sem ummæli Stephanie birtast í er líka löng grein um að nú sé hún orðin 21 árs og því fjárráða. Hún er sögð hafa beðið spennt eftir sjálfstæði sínu, og nú ætli hún að halda áfram að sýna sjálf á tískusýningum baðföt, hönnuð af henni sjálfri. En því varð hún að hætta vegna banns föður hennar, sem fannst það ekki samboðið prinsessu að striplast framan í sýningargestum. Ekki nóg með það, heldur hefur Stephanie lýst því yfir, að hún ætli að syngja inn á plötu! Hún er mikill aðdáandi söngkonunnar Madonnu, og á hún að vera fyrirmyndin. Listanafn Stephanie er sagt að eigi að vera „Princess" - og þar hafi hún í huga hinn fræga rokksöngvara Prince og eigi hennar nafn að vera hliðstæða hans. Lagið, sem Stephanie ætlar að syngja inn á plötu var sérstak- lega gert fyrir hana af ítölskum lagasmið og nefnist lagið „Hurricane" (Hvirfilvindur) Prinsessan segist varla getið beðið eftir að platan komi út, en hún hefur þegar sungið inn á hana í París. Áætlað er að platan komi líka út í Bandaríkjunum, en þar á hún víst að heita „Irresistible“ (Hin ómótstæðilega). Stephanie segist langa til að flytjast til New York, a.m.k. um tfma. Hún segist vera orðin leið á Monaco og París. WiUiam prins, 3ja ára gamall, skálmar uni borö í herskip í opin berri heimsókn. Heiðurs- vörður fyrir ungan herramann Hinn ungi Bretaprins, William, sonur Karls krónprins og Diönu, kemur þarna í fyrsta sinn í heim- sókn um borð í breskt sjóherskip, HMS Brazen. Þar heilsuðu honum yfirmenn með heiðurskeðju, og sjóliðar flautuðu meðan hinn þriggja ára snáði gekk um borð, ákveðinn á svip og alvarlegur eins og sjóliðsforingi. Hann er reyndar - ef honum endist líf og heilsa - tilvonandi hæstráðandi yfir öllum breska sjóhernum! Föstudagur 6. júní 1986 lllllllllll ÚTLÖND llllllHí FRÉTTAYFIRLIT VÍNARBORG — Embætt- ismaður frá Austur-Evrópu sagði að tilboð um verulega fækkun hinna hefðbundnu herja í Evrópu yrði lagt fram á fundi Varsjárbandalagsins sem hefst í Búdapest í næstu viku. STOKKHÓLMUR Sænskir bændur mótmæltu geislunarmagni því sem barst í vörur þeirra í kjölfar kjarn- orkuslyssins í Tsjernóbíl, með því að stafla upp illa lyktandi og geislavirku heyi fyrir utan skrifstofu Ingvars Carlssonar forsætisráðherra Svíþjóðar. VÍNARBORG — Sovésk yfirvöld hafa enn ekki látið Alþjóða kjarnorkuráðið vita af geislavirkni fyrir utan hættu- svæðið í kringum Tsjernóbíl kjarnorkuverið. HAMBORG — Kjarnorku- andstæðingar í Vestur-Þýska- landi skipuleggja nú einar stærstu mótmælaaðgerðir síð- ustu ára. Þær eiga að fara fram um helgina og tilgangurinn er að reyna að stöðva gangsetn- ingu nýjasta kjarnaofnins þar í landi. JÓHANNESARBORG — Nóbelsverðlaunahafinn Desmond Tutu strengdi þess heit í gær að virða að vettugi bann stjórnvalda í Suður-Afr- íku á samkomur og kirkjufundi þann 16. júní næstkomandi. Þann dag eru tíu ár liðin frá upþþotunum í blökkumanna- borginni Soweto. MEXÍKÓBORG — Allt var kyrrt í Mexíkóborg í gærdag enda hundruð lögreglu- manna á götum úti. Þeirra verk er að koma í veg fyrir endur- tekningu á ofbeldinu er braust út síðastliðið þriðjudagskvöld en þá meiddust rúmlega 200 manns og 80 voru handteknir. Margir óttast þó, að eftir eigi að koma til átaka næstkomandi laugardag er landslið Mexí- kana mætir liði Paraguay í öðrum leik þess í heimsmeist- arakeþþninni í knattspyrnu. MANILA — Corazon Aquino forseti Filippseyja sagði skæruliða kommúnista hafa til- nefnt fulltrúa til undirbúnings- viðræðna um vopnahlé í land- inu. Hún sagðist ætla að til- nefna fulltrúa sinn innan 48 klukkustunda og vonaðist til að viðræðurnar gætu hafist mjög bráðlega. Tilgangur viðræðn- anna er að binda enda á 17 ára ófrið á Filippseyjum. BEIRÚT — Hersveitir í Lí- banon og lögregla reyndu að koma einhverri reglu á í Vest- ur-Beirút í gær. Þar hafa staðið yfir verstu átök milli andstæðra fylkinga múhameðstrúar- manna síðasta hálfa árið. AUSTUR-BERLÍN Ekkert samkomulag virtist vera á leiðinni í gær milli Sovétríkj- anna og bandamanna þeirra í síðari heimsstyrjöldinni, Bretlands, Bandaríkjanna og Frakklands. Deilan sem snýst um ákvörðun austur-þýskra stjórnvalda að embættismenn áðurnefndra þriggja ríkja verði að sýna vegabréf þegar þeir fara yfir landamæri borgarinn- ar, hefur staðið í tíu daga.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.