Tíminn - 06.06.1986, Qupperneq 16
Leit að bifreið er ók útaf brú á
Eldvatni í Skaftártungu á miðviku-
daginn hefur enn engan árangur
borið. Björgunarsveitarmenn hafa
dregið siæðara eftir árbotninum með
kröftugum vélum og gengið með
árbakkanum en ekki enn fundið
bílinn. Ýmislegt lauslegt úr bifreið-
inni hefur þó borist að bökkunum og
hefur það styrkt trú manna í því að
í bílnum hafi verið stúlka sem hcfur
verið saknað.
Það var um kvöidmatarleytið á
miðvikudaginn að ökumaður er ekið
hafði yfir brúna lét lögregluna á
Kirkjubæjarklaustri vita að brúar-
handriðið væri brotið og
svo virtist sem bíil hefði ekið fram af
brúnni. Leit hófst þegar og hefur
staðið síðan en leitarskilyrði eru
mjög erfið, áin er straumhörð og um
12 metra djúp og 100 metra breið
neðan við brúna. Leitarsvæðið nær
um 100 metra niður eftir ánni allt að
bugðu sem er lygnari en áin undir
brúnni.
Þaö hafa verið tíð umferðarslys
við þessa brú og oft mátt litlu muna
að bílar færu þarna fram af. 1
rigningu verður brúin mjög sleip en
hún er úr tré eins og handriðin en
þau eru nú fyrir löngu orðin fúin og
eru lítil fyrirstaða fyrir bíla á sæmi-
legri ferð.
-gse
Ráðherrar frá ríkjum EFTA-Fríverslunarsamtaka Evrópu hafa fundað af
krafti í Reykjavík síðustu tvo dagana. Á myndinni að ofan eru Albert
Guðmundsson iðnaðarráðhcrra og Per Kleppe aðalritari samtakanna í
þungum þönkum. Hinir líka.
ferslió
meðVISA
Sovétríkin -
Frakkland 1-1
Ítalía -
Argentína 1-1
Irminn
BHMH :.. mKHeá. sosu; ■. -■ v.1-. ‘J. ■
Endurskoðuð rannsóknaráætlun um hvali:
Engar href nur verða
veiddar þetta sumar
Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins hefst á mánudag
Á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins
sem hefst á mánudaginn í Malmö í
Svíþjóð munu Svíar og Svisslending-
ar endurflytja tillögu sína frá því í
fyrra um takmörkun á hvalveiðum í
vísindaskyni. Tillaga þessi fékk ekki
afgreiðslu í fyrra þar sem hval-
veiðiþjóðir þar á meðal íslendingar
hindruðu framgang hennar. Tillagan
setur ákveðnar skorður við veitingu
leyfa á hvalveiðunt í vísindaskyni,
og þar er einnig gert ráð fyrir að ekki
verði verslað með hvalaafurðir. Þó
hér sé um álytkun að ræða sem ekki
er bindandi fyrir aðildaþjóðirnar
væri það engu að síður áfall fyrir
Islendinga ef hún næði fram að
ganga.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði í samtali við Tímann
að hann gerði ráð fyrir að tekist yrði
á um þessa ályktun á fundinum í
Svíþjóð. Halldór sagði að fundi
vísindanefndar ráðsins væri nú Jokið
og undirbúningur í fullum gangi
sjálfan ársfundinn. Rannsóknaráætl-
un Hafrannsóknarstofnunar hefur
verið endurskoðuð nteð tilliti til
þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað
síðan hún var fyrst lögð fram og á
henni gerðar nokkrar breytingar.
Helstu breytingarnar eru þær að nú
er ekki gert ráð fyrir merkingum á
hrefnum árin 1986 og 1987, og hætt
hefur verið við að veiða í tilrauna-
skyni hnúfubak og stevpireyði. Þá
hefur verið ákveðið að auka við
ýmsar rannsóknir sem byggjast á
ljósmyndun og talningu hvala, bæði
úr flugvélum og skipum.
Enn hefur ekki verið gengið frá
því hvernig að hrefnuveiðunum
verður staðið þar sem vanhöld eru á
um hvernig vísindamönnum verði
best tryggður aðgangur að dýrunum
þegar komið er með þau að landi. ■
Þess vegna hafa engin hrefnuveiði-
leyfi verið gefin út og taldi Halldór
Ásgrímsson óvíst hvort það yrði gert
í sumar.
Rannsóknaráætlunin gerir áfram
ráð fyrir því að veiddar verði 80
langreyðar, 40 sandreyðar og 80
hrefnur á ári. Kostnaður við rann-
sóknirnar eru áætlaður rúmar 50
milljónir króna og munu íslendingar
standa straum af honum. -BG
Útihús brenna við Álfgeirsvelli í Skagafirði:
Óvátryggð útihús
brunnu í eldsvoða
Enginn slasaðist en fimm hænur og
kettlingur brunnu inni
Eldur kom upp í torffjárhúsi við
bæinn Álfsgeirsvelli í Skagafirði um
kvöldmatarleytið á miðviku-
dagskvöldið. Ekkert fé var í húsinu
þar sem því hafði verið hleypt út fyrr
um daginn. Eldurinn barst í véla-
geymslu og bragga sem er sam-
byggður henni. Slökkviliðið á Var-
malandi réð lítið við eldinn þegar
það kom á staðinn og eru þessi hús
að mestu brunnin niður.
Traktor er var í vélageymslunni
skemmdist mikið og ýmislegt annað
er þar var geymt. Enginn slasaðist í
brunanum en fimm hænur og kett-
lingur brunnu inni.
Þessi útihús voru ekki vátryggð
og því ljóst að bóndinn á bænum
hefur orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni.
-gse
Hátt á þriðja hundraö börn
fræddust í gær um leyndardóma
umferðarmenningar Islendinga
umferðarskóla lögreglunnar og
umferðarnefndar Reykjavíkur
sem haldinn er í samvinnu við
Umferðarráð.
I umferðarskólanuin eru 5-6
ára gömul börn og tekur hvert
námskeið tvo daga. Leiðbeinend-
ur eru lYlaría Jónsdóttir og Svavar
G. Jónsson.Þessi mynd var tekin
af barnahópnum í gær þar sem
hann sat og horfði á umferöar-
mynd. Tímamynd: - Sverrir.
Bíll ók útaf brúnni yfir Eldvatn í Skaftártungu:
Leit að stúlku
ber ekki árangur
Leitarskilyrði slæm vegna straumþunga og mikillar dýptar
EB og EFTA í hjónasæng?
Samstarfið við ríki Evrópubandalagsins var helsta málið
Líkur eru á enn auknu samstarfi
milli ríkja Evrópubandalagsins (EB)
og ríkja þeirra sem saman mynda
EFTA-Fríverslunarsamtök Evrópu.
Þessi vilji kom fram á fundi sem
ráðherrar EFTA-ríkjanna áttu með
Willy De Clercq, þeim meðlimi
stjórnnefndar EB sem ábyrgur er
fyrir utanríkistengslum og viðskipta-
stefnu. Fundur þessi fór fram í
Reykjavík í gær og var undir forsæti
Matthíasar A. Mathiesen utanríkis-
ráðherra.
Á fundinum var ákveðið að hefja
samningaviðræður strax í þessum
mánuði milli samtakanna tveggja.
Takmark þessara viðræðna er að
samræma og einfalda lög og reglur
þær sem gilda um viðskipti þessara
þjóða.
Vísindarannsóknir og samstarf
um þær voru einnig til umræðu á
fundinum en þar hefur samstarf
EFTA og EB verið einna árangursrík-
ast. Þá voru öryggisreglur í
kjarnorkuverum ræddar og áhersla
lögð á alþjóðlegt / samstarf undir
eftirliti Alþjóða kjarnorkuráðsins í
Vín.
EFTA eru samtök sjö lítilla
Evrópuríkja sem aðallega er umhug-
að um að afnema innflutningstolla
og aðrar hömlur í viðskiptum í
Vestur-Evrópu þó starfsemi samtak-
anna sé nú orðin víðtækari eins og fram
hefur komið. Þau ríki sem mynda
EFTA eru ísland, Austurríki, Nor-
egur, Sviss, Svíþjóð, Finnland og
Lichtenstein, sem raunar er í tolla-
bandalagi við Sviss.
Viðræður Willy De Clercq við
ráðherra EFTA fóru fram samfara
ráðherrafundi Fríverslunarsamtak-
anna. Sá fundur fór fram undir
forsæti Alberts Guðmundssonar iðn-
aðarráðherra, starfandi viðskipta-
ráðherra. hb
Ekki opið
á laugardögum
Opið til kl. 21.00 á föstudögum
Samkvæmt kjarasamningum opið verður á fimmtudögum til kl.
verslunarmanna eiga verslanir að 19.30.
vera lokaðar á laugardögum mánuð- Þær verslanir sem hafa opið á
ina júní, júlí og ágúst. Heimilt er öðrum tíma en um getur í kjara-
verslunum að hafa opið til kl. 21.00 samningum verslunarmannaeru að
á föstudögum og til kl. 20.00 á brjóta samninginn með því, en svo
fimmtudögum, en aðra daga vik- virðist sem einhverjir kaupmenn í
unnar til kl. 18.30. Reykjavík muni semja við starfs-
Stórmarkaðirnir í Reykjavík Hag- fólk sitt um að vinna á laugardög-
kaup og Mikligarður munu hafa um og með því móti hafa þeir
opnunartíma sinn samkvæmt verslanir sínar opnar á laugardög-
samningum þessum, nema hvað um í sumar. ABS