Tíminn - 28.06.1986, Page 1

Tíminn - 28.06.1986, Page 1
f H ^ _ STOFNAÐUR1917 litntnti ^irva^Pf^ SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. KÍNVERJAR hafa boöiö Stein- grími Hermannssyni forsætisráðherra í opinbera heimsókn og hefur Steingrímur þekkst boðið. Farið verður í heimsóknina síðari hluta októbermánuðar í haust. HELGARÞJÓNUSTA fyrir bændur hefst hjá Búnaðardeild Sam- bandsins að Ármúla 3, og verður frá þeim degi varahlutaverslun deildarinnar opin á laugardögum frá kl. 10.00 til 14.00. Véla- deild KEA á Akureyri býður einnig upp á slíka þjónustu. Þjónustusími Búnaðar- deildar fyrir landsbyggðina er 91-39811 og er það bein lína í varahlutaverslun. PÁLL J. LÍNDAL hefur verið skipaður deildarstjóri í iðnaðarráðuneyt- inu frá 1. júlí nk. SIGURÐUR GEIRDAL hefur verið formlega ráð- inn framkvæmda- stjóri Framsóknar- flokksins og mun hann taka við stöð- unni um miðjan ágúst. Sigurður hefur verið fram- kvæmdastjóri UMFÍ í rúm 16 ár en útskrifaðist sem viðskiptafræðingur um síðustu ára- mót. Hann er kvæntur Ólafíu Ragnarsdóttur og eiga þau fimm börn. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í Reykjavík hefur hætt við að halda sér- stakan félagsfund um mál Guðmundar J. Guðmundssonar, heldur var samþykkt í stjórn félagsins að formanninum, Guðna Jóhannssyni, falið að fylgja þessum mál- um eftir innan æðri stofnana flokksins, eins og það var orðað. SKILAFRESTUR áhandritum í unglingaskáldsögusamkeppni Stórstúku íslands hefur verið framlengdur fram að næstu áramótum af sérstökum ástæðum. Áður var auglýstur skilafrestur til síðustu áramóta. Verðlaun fyrir bestu skáldsög- una eru 100.000 krónur auk venjulegra ritlauna. Handritum á að skilatil Stórstúku Islands, Templarahöllinni í Reykjavík undir dulnefni. RIKI EB (Evrópubandalagsins) náðu ekki að koma sér saman um efnahagsleg- ar refsiaðgerðir gegn Suður-Afríkustjórn á ráðstefnu bandalagsins sem lauk í Haag í gær. Leiðtogar ríkjanna tólf sam- þykktuþó tillögu þar serr sagt var að viðskiptapvmgunarleiðir.yt )i tekin upp að nýju og rædd að þremur mánuðum lionum. Margrét Thatcher forsætisráð- herra Bretlands og Helmut Kohl kanslari V-Þýskalands voru fremst í flokki þeirra sem andmæltu efnahagslegum refsiað- gerðum. NORSK ferja og sænskt flutninga- skip rákust á norður af Danmörku í gær og var átta manns saknað eftir árekstur skipanna. Þar með talin voru tvö börn. Allir þeir sem saknað var voru um borð í sænska skipinu en farþegar ferjunnar voru allir ómeiddir. Þyrla og önnur skip hófu þegar leit að hinum týndu farþegum. KRUMMI „Ætli Kínverjarnir bjóði ekki upp á hrí s grj ónagr aut þegar Steingrímur kemur í heimsókn? “ Járnöld í Öskjuhlíð í gær sýndi finnski leikhópurinn Hongon Harrastajateatteri leikrit- ið „Járnöldina" í Öskjuhlíðinni. Höfundur verksins er Paavo Ha- avikko, en efnið er byggt á hinu fræga finnska sögukvæði Kalevala. Mikilúðlegir leikarar fluttu há- dramatískt efni, um morð og ástir sifjaspell og dauða, auð, baráttu og hetjuskap af fádæma krafti og með miklum tilþrifum. Umhverfi, búningar, föðrun og leikhljóð hjálpuðu síðan til við að skapa eftirminnilega sýningu, enda var leikurum lengi klappað lof í lófa að henni lokinni. Tímainynd-Pctur Bréf Guðmundar Einarssonar til forsætisráðherra: Dauðaslys íKjós Kona lést í mjög hörðum árekstri nokkrum mctrum norð- an við brúna á Brynjudalsá f Kjós í gær. Nokkur slys urðu á því fólki sem var í hinum bílnum, meðal annars handleggsbrotnaði barn og aðrir hlutu minni háttar meiðsl og skrámur. Tilkynnt var um slysið til Hafn- arfjarðarlögreglunnar um kl. 18^50 og fór sjúkrabifreið þegar á staðinn. Rannsókn slyssins stóð enn yfir hjá rannsóknarlögregl- unni seint í gærkvöld. -BG Ekki lagalegur grundvöllur - til að krefjast afsagnar Alberts Forsætisráðherra hefur sent Guðmundi Einarssyni alþingis- manni svar við bréfi hans, þar sem hann fór fram á að Steingrímur Hermannsson krefðist þegar af- sagnar iðnaðarráðherra. I bréfi sfnu segir Steingrímur. „Eftir að hafa kynnt mér eftir föngum tengsl iðnaðarráðherra við svonefnt Hafskipsmál, hef ég kom- ist að þeirri niðurstöðu að ekki sé á þessu stigi lagalegur grundvöllur til þess að ég krefjist afsagnar iðnaðarráðherra. Rétt er að vekja athygli á því að ég gerði formanni Sjálfstæðisflokksins grein fyrir allri vitneskju minni um málið og hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fjallað um það og tekið til þess afstöðu. Það er eðlileg málsmeð- ferð þar sem Albert Guðmundsson er tilnefndur til setu í ríkisstjórn af þeim flokki. Niðurstaða þing- flokksins hefur komið fram í við- tölum við formann hans.“ Bréfið var sent Guðmundi Ein- arssyni alþingismanni í gær. -ES Aðalfundur Arnarflugs: Frestað vegna formgalla Aðalfundi Arnarflugs, sem halda átti í gær var frestað á síðustu stundu, en á fundinum átti m.a. að kjósa í nýja stjórn félagsins og þeir sem gefið hafa skuldbindandi hlutafjárloforð að taka yfir félagið. Þegar komið var að boðuðum fundartíma í gær, var Ijóst aö ýmsir af forsvars- mönnum hinna nýju hluthafa voru ekki mættir. Hörður Einars- son, sem hefur verið orðaður við stjórnarformennsku í nýrri stjórn, tilkynnti að sá hópur sem hefur skuldbundið sig til hluta- fjáraukningar upp á 95 milljónir treysti sérekki til að láta fundinn fara fram. Ástæðan var sú, að síðdegis í gær uppgötvaðist aö farist hafði fyrir að tilkynna innan tilskilinna tímamarka til firma- skrár, að hlutafé Arnarflugs hafi verið fært niður í 10% af nafn- virði. Formlega var því ákvörðun hluthafafundar um þetta frá því fyrir u.þ.b. einum og hálfum mánuði fallin úr gildi. Hópurinn sem hefur nú skuldbundið sig til 95 milljón króna hlutafjáraukn- ingar hefði því tæknilega getað lent í minnihluta á aðalfundinum sem halda átti í gær. Því var aðalfundinum frestað til 17. júlí, en fyrir þann sama dag verður haldinn hluthafafundur þar sem niðurfærsla núverandi hlutafjár í 10% af nafnvirði verður sam- þykkt aftur. -BG Forsætisráðherra: Eingöngu aðild Alberts - sem ég kynnti mér „Ríkissaksóknari taldi sér rétt og skylt að gera dómsmála- ráöherra, og hann í framhaldi af því. mér grein fyrir þessu máli Að því er varðar meinta aðild eins ráðherra eingöngu. Þetta tcl ég að hafi verið rétt og ég tel það skylt að fylgjast með slíkum ásökunum sem bornar eru á ráðherra í ríkisstjórninni. Það hlýtur að vera skylda mín að gera mér sem greinabesta mynd af því sem rétt er í þessu sambandi," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við Tímann í gær. Á félagsfundi Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík sem hald- inn var á fimmtudagskvöldið kom fram sú skoðun að það væri óeðlilegt að formenn stjórnarflokkanna leituðu eftir upplýsingum rannsóknaraðila í málum sem Hafskipsmálinu, og hefðu með því haft áhrif á gang mála. Steingríniur Hermannson sagði það alrangt að hann hefði á nokkurn hátt leitast við að hafa áhrif á gang málsins. „Ég hef hvorki spurt um málið eða óskað eftir því að verða upp- lýstur um það hvernig rann- sóknarlögreglan hugsar sér að halda á málinu, heldur ein- göngu fengið upplýsingar um ásakanir á hcndur iðnaðarráð- herra,“ sagði Steingrímur. -ES

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.