Tíminn - 28.06.1986, Blaðsíða 13
Tíminn 13
Laugardagur 28. júní 1986
SKÁK
Mestel sigraði í bresku
skákdæmakeppninni
Skákþrautasmíð er merkilegt
fyrirbæri sem hefur verið lítill gaum-
ur gefinn hér á landi. Það er helst
Guðmundur Arnlaugsson sem hald-
ið hefur merki skákþrautarinnar á
lofti í fjölmörgum útvarps- ogblaða-
þáttum. Eftir hann liggur auk þess
lítið kver um þessa hliðargrein skák-
listarinnar. í A-Evrópu, þó einkum
Sovétríkjunum, eru höfundar skák-
þrauta í miklum metum enda eru
dæmi frægustu höfundanna eins og
Trotzky þar í miklum metum. í
V-Evrópu halda Englendingar mikið
upp á skákþrautir og er mér t.d.
minnisstætt á mínu fyrsta skákferða-
lagi að enskir unglingspiltar á því
móti áttu í fórum sínum sæg skák-
dæma af hinni fjölbreytilegustu
gerð. Áhugi Englendinga er skiljan-
legur þegar haft er í huga að þeirra
fremstu skákmenn koma flestir úr
stétt háskólamanna og þeirra bestu
skákmenn flestir hverjir stærð-
fræðingar líkt og Guðmundur Arn-
laugsson. Margir þeirra nota
skákdæmin sem léttvæga hvíld frá
erfiðari viðfangsefnum eins og t.d.
stærðfræðingurinn Hardy sem kvað
upp úr bók sinni Málsvörn stærð-
fræðings, að helsti galli skákþrautar-
innar væri sá hversu ómerkileg og
innihaldslaus hún væri. Hefur mér á
stundum fundist Guðmundur viðra
svipaðar skoðanir.
Skákdæmið nálgast skáklistina
sjálfa ekki á neinn hátt. í harðri
kappskák bætast við þeir þættir sem
gera þessa hugarins list svo skemmti-
lega og sérstæða, sálfræðin, innsæið
og einsemd langhlauparans. Fals og
prettir vinna þar aldrei sigur.
Bretar hafa um nokkurt skeið
haldið meistaramót sitt þar sem
fundinn hefur verið meistari í því að
leysa skákdæmi á sem skemmstum
tíma. 3200 manns hófu keppni í ár.
Úrslitin fóru fram með þeim hætti að
keppendur höfðu samtals 2'/2 klst. til
að leysa dæmi sfn sem voru hin
margvíslegustu. Sigurvegarinn varð
annað árið í röð, Jophn Mastel, einn
hinna ensku stórmeistara og stærð-
fræðinga. Hann hlaut 23 stig af 30
mögulegum. Hann hefur yfirleitt
sigrað á þessu móti eða lent í öðru
sæti á eftir John Nunn. Pessir tveir
munu áreiðanlega vera í liði Eng-
lands sem tekur þátt í úrslitum
heimsmeistaramótsins í Póllandi á
þessu ári.
Lítum nú á nokkur dæmi. Lesend-
ur geta spreytt sig á sama hátt og
þátttakendur:
Hvítur mátar í 2. leik.
Margir flöskuðu á þessu, því gefn-
ar voru aðeins 8 mínútur.
Hvítur mátar í 2. leik. Þetta er
aðeins léttara og tíminn til lausnar
eru fjórar mínútur.
Hvftur mátar í 4. leik. Tími: 24
mínútur. Aðeins Mestel gat leyst
þetta.
Hvftur leikur og vinnur. Tími: 35
mínútur. Gamalt dæmi eftir Rúss-
ann Petrov. Eftir 8 mínútur hafði
Mestel fundið lausnina.
Svanhvít Egilsdóttir og Charl-
es Spencer halda námskeið fyrir
söngvara og undirleikara í sal
Tónlistarskólans í Reykjavík,
Laugavegi 178 1.-13. júlí. Nám-
skeiðinu lýkur með tónleikum í
Norræna húsinu.
Svanhvít kenndi söng við tón-
listarskólann í Vínarborg frá
1961. Hún hefur líka haldið
sumarnámskeið fyrir söngvara
við óperuna í Vasa í Finnlandi í
mörg ár og einnig í Japan.
Hvítur á að máta í fimm leikjum
(hjálparmátl). Hjálparmát er slung-
ið þema. Svartur á að leika fyrst.
Keppendur áttu að finna tvær lausn-
ir. Önnur er ekkert sérstaklega erfið
en enginn fann þá síðari.
Lausnir birtar í næsta þætti.
Leiðrétting
Af einhverjum ástæðum féll út
partur af síðasta skákþætti. Það
vantaði niðurlagið í skák Karpovs
og Ljubojevsic.
IIN - iív #491111 iNlllll
■y ■ JVS
III! l! ilAlll IHIII
su lllll ll 1,01 ■ H
91 111 1111
Staðan eftir 41. léik svarts. Það er
Karpov sem stýrir hvítu mönnunum:
42. Dc4
(Hér fór skákin í bið. Umframpeðið
tryggir hvítum auðveldan sigur.)
42. .. Hb6
43. Ba3 Da7
44. Bg2 Ha6b
45. Db2 Ha4
46. Db3 Ha5
47. Hc6 Ha6
48. Dc4 Ha2
49. Db5 Ha5
50. Db3 Dd7
51. Dc4 Rd8
52. Hc7 Df5
53. Kgl Re6
54. Be4 Df6
55. Hc6 Dd8
56. Bc3Ha3 -
57. Db5 Dd7
58. Bxe5 Bxe5
59. Dxe5 Hxd3
60. Dxh5 Kg8
61. De5 Hdl-
62. Kg2 Hd2
63. h5 gxh5
64. Dxh5
- og hér gafst svartur upp.
Charles Spencer starfar við
tónlistarskólann í Vínarborg
sem undirleikari. Hann hefur
haldið sumarnámskeið fyrir
ljóðasöngvara og undirleikara
við alþjóðlega sumarháskólann
í Salzburg og verið undirleikari
heimsfrægra söngvara. Þau
Svanhvít og Spencer héldu hér
sams konar námskeið síðastliðið
haust við góðar undirtektir.
Námskeiðið er opið til hlust-
unar.
Óperu og
Ijóðanámskeið
laðbera
vantar
í eftirtalin hverfi.
í Hafnarfjörð
og
Garðabæ
Tímlnn
SIÐUMULA 15
©
686300
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshluti'í allar gerðir
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjurogfæribandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP h/f
Sími641045
Til sölu
notaðar
dráttarvélar
MF-130 árg. ’65
MF-35 X árg. ’62
Zetor-6945 4x4 árg. ’79
Zetor-4911 árg. ’80
Zetor-4911 árg. ’80
m/ ámoksturstækjum
Zetor-7211 árg. ’85
Góð greiðslukjör
wðMysmHF
Jámhálsi 2 Simi 83266 TIORvk.
Pósihólf 10180
Fóstrur
Fóstra óskast í heilt starf við leikskóla frá 25. ágúst
nk. eða eftir samkomulagi. Hlutastarf kemur einnig
til greina. Góð vinnuaðstaða. Nánari upplýsingar
veita forstöðumenn í síma 93-2663. Skriflegar
umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist undirrituðum fyrir 10. júlí.
Félagsmálastjóri
Kirkjubraut 28
300 Akranesi sími 93-1211
Höfum opnað lögfræðiskrifstofu að
Skipholti 50 c.
Guðmundur Ágústsson hdl.
Gísli Gíslason lögfr.