Tíminn - 28.06.1986, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 28. júní 1986
Upplagseftirlit
Verslunarráösins:
Mannlíf seldist
best árið 1985
Upplagseftirlit Verslunurráðs ís-
lands hefur birt upplýsingar um
upplag tímarita og bíaða fyrir 1985.
Það eru 9 þátttakendur í könnuninni
og af þeim er Mannlíf mest selda
tímaritið, hefur selst í 13.595 eintök-
um. Næst á eftir kemur Gestgjafin
með 9.961 eintak, Æskan með 6.223
eintök, Gróandinn með 5.676 ein-
tök, Heilbrigðismál með 5.582 ein-
tök og Skinfaxi með 1392 cintök en
Skinfaxi tekur nú í fyrsta sinn þátt í
könnuninni. Morgunblaðið hefur
selst að meðaltali í 44.194 eintökum
árið 1985 og Dagur í 4.852 eintökum
að mcðaltali. Upplagseftirlitið er
með nýjar tölur yfir fyrstu þrjá
mánuði ársins fyrir Morgunblaðið-
og Dag og hafa bteði blöðin aukið
sölu sína að meðaltali.
í næstu könnun Upplagseftirlitsins
verða Heimsmynd og Stefnir einnig
með, en vikublaðið Helgarpósturinn
og tímaritið Lopi og band hafa hætt
þátttöku.
ABS
Frá vinstri: Valgerður Matthíasdóttir arkitekt sem vinnur með samtökunum, Hermann Sveinbjömsson, ritari, Hans Kristján Arnason formaður, Skúli
Pálsson varaform., og fyrir aftan standa Jón Ottar Ragnarsson meðstjórnandi og Sæmundur Bjarnason frá Borgamesi, einn af væntanlegum aðila að
samtökunum. Tímamynd Sverrir
Aðalfundur Blaðamannafeálgs fs-
lands verður haldinn í Síðumúla 23
kl. 14.00 í dag og verður honum
lokið fyrir beina útsendingu frá HM
í Mexíkó. Á fundinum verða venju-
leg aðalfundarstörf.
Þjóðhagsstofnun:
Aukin umsvif í verslun,
samdráttur í þjónustu
Aukning hefur orðið í verslun og
hinum ýmsu vörugreinunt iðnaðar,
en samdráttur í þjónustu og
byggingavöruverslun fyrstu þrjá
mánuði ársins miðað við sama tíma
í fyrra. Þetta kemur fram í tölum
sem Þjóðhagsstofnun hefur sent frá
Aðalfundur
blaðamanna
sér og eru byggðar á söluskattsfram-
tölum.
Heildarveltan í smásöluverslun á
fyrsta ársfjórðungi 1986 nam rúmum
7,8 milljörðum og jókst um 37% frá
sama tíma í fyrra. í heildverslun
varð heildarveltuaukning 28,5% úr
tæpum 3,6 milljörðum í um 4,6
milljarða. Veltan í bifreiða og vara-
hlutaverslun var 1,3 milljarður eða
36% meiri en á sama tíma í fyrra. í
þjónustugreinum varð veltuaukn-
ingin 28% og nam 2,3 milljörðum á
fyrsta ársfjórðungi, og veltan í Vöru-
greinum iðnaðar var 4,9 milljarðar
sem er 38,5% aukning frá því í fyrra.
Aukna sölu á bifreiðunt má fyrst
og fremst rekja til tollalækkana í
kjölfar kjarasamninga í febrúar, en
áhrifa þeirrar lækkunar mun þó
trúlega gæta í ríkari mæli þegar
kemur fram á annan ársfjórðung.
Þessar tölur sem hér hafa verið
nefndar sýna heildarbreytingar, en
til þess að fá raunsannari mynd af
breytingu umsvifa þarf jafnframt að
skoða verðlagsbreytingar.
Vísitala vöru og þjónustu hækkaði
um 31% á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs miðað við sama tímabil í fyrra.
Ef tekið er tillit til þessara verðbreyt-
inga má ætla að veltan í smásölu-
verslun hafi aukist að raungildi um
4-4,5%, og um rúm 5,5% í vöru-
greinum iðnaðar. Hins vegar virðist
vera samdráttur í byggingavöru-
verslun og þjónustugreinum.
-BG
Dragháls:
Kastaðist
fram af
gilbarminum
Mesta mildi verður að teljast
að bílstjóri bifreiðar sem fór út af
veginum á Draghálsi á fimmtudag
slasaðist ekki stórlega. Bílstjór-
inn missti vald á bifreið sinni í
lausamöl við gilbarm uppi á háls-
inum með þeim afleiðingum að
bíllinn steyptist út af veginum,
áður en hann stöðvaðist. Bíllinn
sem var af VW rúgbrauð gerð,
rakst á barð rétt utan vegar og
kastaðist bílstjórinn þá út úr
bílnum, áður en bíllinn fór fram
af sjálfum barminum. Bílstjórinn
var fluttur á Heilsugæslustöðina í
Borgarnesi með smávægileg
meiðsl.
-BG
Iðnaður á Blönduósi:
Vilko-súpur koma
núna að norðan
Kf. Húnvetninga hefur keypt verksmiðjuna
Kaupfélag Húnvetninga keypti í
fyrrahaust verksmiðjuna Vilko í
Reykjavík. Félagið rak hana þar
syðra fram yfir áramótin, en síðan
voru tækin flutt ncðrur. Núna er
verksmiðjan rekin á Blönduósi í
húsakynnum kaupfélagsins.
Frá þessu er skýrt í nýútkomnu
hefti af Fréttabréfi samvinnufélag-
anna í Austur-Húnavatnssýslu. Þar
segir einnig að verksmiðjustjóri sé
Sigurður Sigurðsson, er gegnt hafi
starfinu í Reykjavík.
Eftir honum er haft í blaðinu að
framleiðslan gangi vel og eftirspurn
eftir Vilko-vörunum sé svo mikil
að varla sé hægt að fullnægja
henni. Þó starfa nú fleiri við verk-
smiðjuna en í upphafi var gert ráð
fyrir, eða sex manns auk forstöðu-
manns.
Fyrirtækið nýtur aðstoðar Iðn-
tæknistofnunar íslands við upp-
byggingu sína, og stefnt er að því
að þoka framleiðslunni smám sam-
an í fjölbreyttara horf en nú er.
Meðal annars er stefnt að því að
framleiða þar svokallaðar Mastro-
vörur, sem ekki hefur reynst mögu-
legt til þessa. Náist það takmark
mun starfsliði fjölga í 9-10 manns.
Núna er unnið til kl. 18 þrjá daga
vikunnar.
Einnig er í athugun að kaupa
nýjar pökkunarvélar fyrir Vilko,
en með þeim á að vera hægt að
framleiða mun ódýrari umbúðir
fyrir vörurnar en nú eru notaðar.
-esig.
Samtök um svæða-
sjónvarpsstöðvar
stofnuð á (slandi
Landssamtök íslensks svæðasjón-
varps voru stofnuð 26. júní. Þeir
aðilar sem annast sjónvarpssending-
ar til almennings og hafa tilskilin
leyfi til slíks geta gerst stofnaðilar að
samtökunum fram að næstu áramót-
um.
Hugmyndin með þessum samtök-
um er að hafa milligöngu um kaup á
tækjabúnaði, dreifa sjónvarpsefni
um allt land og vinna að öðrum
sameiginlegum hagsmunum aðila
samtakanna, ksvo sem auglýsinga-
málum, áskriftum, þýðingum, samn-
ingum við Póst og síma um dreifi-
kerfi í loftinu o.fl. Landinu er skipt
upp í svæði, líkt og ITV hefur gert í
Bretlandi. Meiningin er að einum
aðila á hverju svæði verði boðin
þátttaka í samtökunum, en mismun-
andi aðilar innan sama svæðis verða
síðan að koma sér saman innbyrðis.
Á sumum svæðunum eru nú þegar
til kapalkerfi og verða þau notuð
sem dreifikerfi þar sem þau eru fyrir
hendi en einnig er meiningin að
senda þráðlaust út í loftið. Aðilar
samtakanna munu hafa forkaupsrétt
að efni sem framleitt er af stöðvum
innan samtakanna.
fslenska sjónvarpsfélagið í
Reykjavík er upphafsaðili að Í.S.S.
og mun það hefja sendingar í
september í haust. Aðrir innan
Í.S.S. sem hefja munu sendingar
innan skamms verða trúlega í Borg-
arnesi og á Ólafsfirði, en þar eru nú
þegar kapalkerfi fyrir hendi sem
hægt er að senda út í. Með tilkomu
þessa verður því t.d. þriðju rásinni
bætt við í Ólafsfirði, þar sem fyrir er
íslenska sjónvarpið og Videóskann.
Ekki er enn vitað hver áskriftar-
gjöld þessara stöðva koma til með
að verða, en einn af stofnendum
sagði að ekki væri fjarri lagi að miða
við sama verð og kostaði að leigja
5-6 videóspólur á mánuði. Hluti
efnisins verður sendur út meö
auglýsingum þar sem áskriftargjald
verður ekki innheimt, en það efni
sem tekið verður áskriftargjald fyrir
verður sent út „brenglað", þ.e. aðe-
ins þeir sem borga áskrift fá „af-
brenglara" til þess að geta fylgst með
þeim útsendingum.
Stjórn um íslenskt svæðasjónvarp
skipa: Hans Kristján Árnason,
Reykjavík formaður, Skúli Pálsson,
Ólafsfirði, varaformaður, Hermann
Sveinbjörnsson, Akureyri, ritari,
Þórarinn Ágústsson, Akureyri,
gjaldkeri og Jón Óttar Ragnarsson,
meðstjórnandi frá Reykjavík og for-
maður íslenska sjónvarpsfélagsins í
Reykjjavík, en aðrir aðilar sem lýst
hafa yfir áhuga yfir að gerast aðilar
að samtökunum eru frá Húsavík,
Borgarnesi, Egilsstaðir, Höfn í
Hornafirði, Vestmannaeyjum,
Ólafsvík, ísafirði, Patreksfirði,
Sauðárkróki og Siglufirði.
ABS