Tíminn - 28.06.1986, Page 3
Laugardagur 28. júní 1986
Tíminn 3
Stjórnvöld gagnrýnd í Fimmtudagsumræðu
fyrir lítinn stuðning við fiskeldið:
Erlend lán
allt að 67% af
fjármagnsþörf
- engin önnur atvinnugrein fengið slíkar heim-
ildir segir forsætisráðherra
Talsvcrð gagnrýni á stjórnvöld
kom fram í Fimmtudagsumræðunni
í útvarpinu í fyrrakvöld. Var talað
um að stjórnvöld hefðu lítið gert til
að styðja fiskeldið, sem nýja og
arðvæna atvinnugrein. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra var
spurður um þessa gagnrýni.
Hann benti á að sér fyndist það
vera viðtekið álit meðal embættis-
manna og sérfræðinga, að ekki væri
nægilega mikið gert og að það álit
næði ekki eingöngu til fiskeldisins.
„Það er ótrúlega hversu fljótt það
gleymist sem vel er gert.“
Hvað hefur verið gert?
„Fyrir 25 árum kom fram hópur
framsýnna manna sem stofnaði félag
áhugamanna um fiskeldi. Þessir
menn töluðu fyrir daufum eyrum
atvinnurekenda. Menn trúðu þá á
það eittað moka þorskinum, síldinni
og loðnunni upp úr sjónum. Það var
ekki fyrr en verulegur kippur kom í
sjávarafla ’82-’83 að menn vöknuðu
upp við þá staðreynd að aðrar
þjóðir, eins og Norðmenn voru
komnar langt fram úr okkur í
fiskeldi.
Að mínumati brugðust stjórnvöld
nokkuð fljótt við þegar þess er gætt
að við erum ekki með afgangsfjár-
magn, og við erum skuldug þjóð.
Arið 1984 var sérstakt fjármagn
lagt til hliðar, til þess að veita því í
fiskeldi. í öðru lagi ákvað ríkis-
stjórnin að veita fiskeldisfyrirtækj-
um miklu ríkari aðgang að erlendu
fjármagni, en öðrum atvinnugrein-
um. Þeir fengu heimild til þess að
taka 67 af hundraði lán erlendis frá
ekki bara í tækjakaup, heldur í allan
stofnkostnað og þar með rekstrar-
kostnað fyrstu tvö árin. Engin at-
vinnugrein önnur hefur fengið slíkar
heimildir.
í þriðja lagi þá var lögum um
Fiskveiðasjóð breytt þannig að hann
má veita ábyrgðir vegna erlendra
lána og hefur þegar veitt ábyrgðir
fyrir lánum að upphæð um fjögur
hundruð milljónir króna.
í fjórða lagi var ákveðið að ráð-
stafa 350 milljónum króna. nú í ár í
gegnum Framkvæmdasjóð, Byggða-
sjóð og Stofnlánadeild til útlána í
þessu sambandi. Líkur eru á að
ekki sé þörf á öllu því fjármagni.
Þegar búið er að afgreiða allar
umsóknir sem þykja lánshæfar þá er
afgangur af þessari upphæð.
í fimmta lagi, beitti ég mér fyrir
því 1984 að fimmtíu milljónum
króna yrði varið í sérstakan rann-
sóknarsjóð hjá Rannsóknarráði
ríkisins, og aftur sextíu milljónir á
þessu ári. Verulegur hluti af því
fjármagni hefur farið til styrkja
vegna rannsókna á sviði fiskeldis og
fiskræktar.
í sjötta lagi skipaði ég sérstaka
fiskeldisnefnd. Að tillögu hennar,
voru tvö frumvörp samþykkt á síð-
asta Alþingi. Annað um veðhæfni
fiska í eldisstöðvum, sem vonandi
leysir mikinn vanda í sambandi við
viðskiptabankana og rekstrarlán frá
þeim. Ég flutti frumvarp sem þessi
nefnd útbjó, en í því er gert ráð fyrir
sérstakri sjálfstæðri deild með til-
raunarstöð í meinafræðum að
Keldum, sem fjallar eingöngu um
fisksjúkdóma. Þetta tel ég vera eitt
stærsta málið, því með þessu er
ætlunin að koma á föstu eftirliti með
sjúkdómum og sjúkdómshættu og
vörnum gegn þeim í fiskeldisstöðv-
um.“
Hvenær er viðbúið að þessi stöð
verði tekin í notkun?
„Það tekur náttúrulega tíma að
koma upp þessari deild, ráða sér-
fræðinga og skapa henni aðstöðu, en
það er í fullum gangi eftir því sem ég
best veit.“
Menn hafa gagnrýnt undir hvaða
ráðuneyti þessi mál eigi að heyra?
„Það er að mínu mati algert
aukaatriði. Það þarf einhver stofnun
hér að veita leyfi þannig að stöðvarn-
ar verði ekki of þétt staðsettar. Þörf
er á stofnun sem gerir rannsóknir
með fiska og eldi á fiskum. Að mínu
mati er Hafrannsóknarstofnun lang-
best til þess fallin. Loks þarf að vera
aðili sem hefði sjúkdómaeftirlit á
sinni könnu. Sá aðili er til í landinu
og er að hluta undir Menntamála-
ráðuneytinu og að hluta undir Land-
búnaðarráðuneytinu. Það á ekkert
að gera til þó að mismunandi þættir
heyri undir hin ólíku ráðuneyti, ef
ráðuneytin eru ekki að togast á um
þetta og það á ekki að vera.“
-ES
Stórstúka fslands 100 ára:
Alþingi stuðli að
auknu heilbrigði
- segir í ályktun Stórstúkuþings
Stórstúka íslands á 100 ára afmæli
um þessar mundir. Haldið var Stór-
stúkuþing fyrr í þessum mánuði og í
tengslum við hann hátíðarfundur í
Alþingishúsinu en þar var Stórstúk-
an stofnuð 1886.
í ályktunum Stórstúkuþings er að
finna áskorun til Alþingis að beita
sér fyrir lagasetningu sem taki mið
af samþykktum alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna í áfengismálum og stuðla þann-
ig að minnkandi áfengisneyslu.
Undirstrikuð var nauðsyn þess að
hamla gegn fjölgun áfengisútsala og
skorað er á opinbera aðila að hætta
veitingu áfengra dirykkja í veislum.
Framkvæmdanefnd Stórstúkunnar
var falið að kynna og reka áróður
fyrir nýjum lífsstíl sem margir hafa
tileinkað sér og gengur undir kjör-
orðinu Heilbrigði-Hollusta-Bindindi
og lýst er yfir ánægju stofnunar
samtakanna V ímulaus æska sem sýni
að fólk hefur vaxandi áhyggjur af
vímuefnaneyslu unglinga.
ABS
Engin atvinnugrein hefur fengið aðra eins fyrirgreiðslu og fiskeidið, á sviði lántaka. Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að heimilt sé að taka að láni um 67 af hundraði fjárinagns erlendis frá.
VID ERUM FLUTT
■OG FÓLKIB FYLOm OKKUR!
Umfangið vexhjá ferðaskrifstofunni Polaris. Húsnæðiðí
Bankastrætinu var orðið allt ofiítið.
Þess vegna flytur Polaris í nýtt og rúmbetra húsnæði
íKirkjuhvoli, Kirkjustræti4. Þarfermun betur um alla og
viðskiptavinirnir njóta þess með okkur.
Nýja símakerfið okkarræður við álagið sem
varaðgeraútafvið það gamia.og nýja
símanúmerið er tjgfc Q22 011
í Kirkjuhvoli ernýtt tölvubókunarkerfi
og tryggirþað hraðaþjónustu og
öruggari bókanir fyrir allt áætlunarflug.
En mestu skiptir að við
flytjum reynslu og þekkingu
starfsfólksins með okkuríKirkjuhvol.
VLBOö
Polaris-persónuleg þjónusta
byggð á þekkingu og reynslu.
FERÐASKRIFSTOFAN
^Pantaðogesta°f%
§?t^“'Zuom°9