Tíminn - 28.06.1986, Side 8

Tíminn - 28.06.1986, Side 8
8 Tíminn Laugardagur 28. júní 1986 lllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR 111111111 lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll I II - Illlllllillllllllllllllllllllllllllllilllli Gunnur Gyllason vcður hcr í gegnum vörn FH og skýtur í stöng. Hættulegt færi en Blikar áttu fleiri slík en FH. Mynd Pétur íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild: Naumur sigur Blika - Þorsteinn Hilmarsson kom inná sem varamaður og skoraði sigurmarkið undir lokin gegn FH Blikarnir tryggðu sér sigur á FH á síðustu stundu í viðureign liðanna á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Þor- stcinn Hilmarsson sem kom inná sem varamaður undir ■ lok leiksins var réttur maður á réttum stað en Gunnar Straumland markvörður FH missti frá sér boltann á nokkuð klaufalegan hátt og renndi boltanum í netið. Þetta gerðist á lokainínútu leiksins. Þetta reyndist sigurmark Blika 2-1 í jöfnum Ieik sem hvorugt liðið átti skilið að sigra. En svona er knattspyrnan. Það sein gildir er að koma knettinum í nctið. STAÐAN Staðan í 1. deild: Fram .............. 8521 17-4 17 ÍBK................ 9 5 0 4 10-12 15 ÍA................. 8 4 2 2 15-6 14 Valur............ 8 4 2 2 9-4 14 Þór................ 9 4 2 3 14-16 14 KR ................ 8 3 4 1 11-5 13 Breiðabl............... 9324 8-12 11 FH ................ 9 3 15 13-16 10 Viðir.............. 8 2 2 4 3-9 8 ÍBV................ 80 1 7 5-21 1 Víðir er hér reiknað tapa gegn ÍBK sem gæti breyst. Markahæstir: Guðmundur Torfason, Fram .............8 Ingi Björn FH.........................6 Valgeir Barðason, ÍA..................5 Jón Þórir Jónsson, Blikum.............5 Kristjón Kristjánsson, Þór ...........5 Blikar voru aðgangsliarðari í fyrri hálfleik og áttu þau örfáu færi scm talandi er um. Gunnar Gylfason átti skot yfir úr ágætu færi eftir enn betri sókn þar sem boltinn gekk manna á milli. Undir lok hálfleiksins komust Guðmundur Valur, besti maður Blika, og Jón Þórir cinir í gegn cn klikkuðu í ágætum færum. Það var síðan á 44 mínútu sem Jón Þórir, hver annar, skoraði fyrsta mark leiksins. Hann pikkaði knettinum í nctið úr þvögu sem myndaðist við FH-markið eftir þunga sókn Blik- ana. Þannig var staðan í leikhlé 1-0 en Blikar höfðu verið aðgangsharð- ari. FH-ingar byrjuðu betur í þeim síðari og Ingi Björn, hver annar, jafnaði leikinn á sjöttu mínútu hálf- leiksins eftir að Benedikt hafði klikkað illa á vítapunkti. Ingi renndi tuðrunni í netið 1-1. Eftir þetta mark voru FH-ingar aðgangsharðari í leiknum án þess að skapa sér afgerandi færi. Blikarnir voru hins- vegar hættulegri í upphlaupum stn- um og úr einu slíku átti Gunnar Gylfason skot í stöng úr ágætu færi. Jón Þórir óð upp völlinn í eitt sinn en lagði boltann út á Guðmund Val sem skaut beint á Gunnar. Sigur- markið kom síðan eins og fyrr segir undir lok leiksins er Gunnar, sem spilað hafði vel í markinu, missti boltann klaufalega frá sér og Þor- steinn var á réttum stað til að renna honum í netið. Jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit í þessunt leik en Blikarnir áttu þó hættulegri færi allan leikinn og tókst að nýta tvö þeirra sem dugði. Guðmundur Valur var þeirra bestur. Duglegur og mataði sína menn á góðum sendingum. Vörnin stóðfyrir sínu en Benedikt þyrfti að vanda sig betur í háskalegum skriðtæklingum. Vörn FH var þokkaleg með Guð- mund og Henning báða góða. Víkingssigur Fyrir utan viðureign KA og Njarðvíkur þá voru tveir aðrir leikir í 2. deild: Víkingar fóru erfiða ferð en ánægjulega til Siglufjarðar og unnu heimainenn 2-0 og Einherjar gerðu ekki síðri ferð til Húsavíkur og unnu heima- menn þar 1-0. VÍKINGAR NÁÐU AÐ NÝTA SER tvö varnarmistök Siglfirð- inga í leiknum á Siglufirði. Mis- skilningur á milli varnarmanna og markvarðar olli því að Atli Einarsson kom Víkingum í 1-0 eftir 15 mínútna leik. Liðin skipt- ust annars á að sækja og áttu heimamenn ekki minna í leikn- um. Síðari hálfleikur var hinsveg- ar varia byrjaður er Jón Bjarni náði að nýta sér önnur mistök í vörn Siglfirðinga og skora annað markið 2-0 og sigur Víkinga var ■ höfn. Þeir eru nú efstir í 2. deild ásamt KA. EINHERJAR UNNU SÆTAN SIGUR á sterkum Völsungum á Húsavíkurvclli. Það var Páll Björnsson sem skoraði eina mark leiksins. Völsungar sóttu mjög í leiknum en þeim tókst ekki að vinna á sprækum og leikglöðum Einherjum. í 3. deild sigraði ÍK lið Ár- manns á gervigrasinu 4-2 en hefði getað unnið stærra. Jóhann Páls- son og Gunnar Guðmundsson skoruðu tvö mörk hvor. Seinna mark Gunnars var af 20 m færi í vinkilinn. Smári Jósafatsson og Ari Torfason gerðu mörk Ármanns. lsland-Færeyjar2-0 Kvennalandsleikur á Akranesi sem íslendingar unnu 2-0 með mörkum frá Erlu Rafnsdóttur og Ástu Maríu Rcynisdóttur. STADAN Staðan í 2. deild: KA ................ 8 4 4 0 25-6 16 Víkingur........... 8 5 1 2 26-8 16 Selfoss............ 74 3 0 13-3 15 Einherji........... 8422 11-12 14 Völsusngur......... 8 3 2 3 12-8 11 UMFN .............. 8 3 2 3 15-19 11 KS................. 8 2 3 3 13-12 9 ÍBÍ ............... 7 15 1 11-11 8 Þróttur............ 7 0 2 5 5-18 2 Skallar............ 7 0 0 7 3-37 0 Markahæstir: Tryggvi Gunnarsson, KA..............13 Andri Marteinss., Víkingi ...........9 Jón Gunnar Bergs, Selfoss............6 íslandsmótið í knattspyrnu - 1. deild: Kristján með tvö og Þórsarar unnu - Lögðu Keflvíkinga að velli í Keflavík 3-2 í spennandi leik Frá Frímanni Óiafssyní á Suðurnesjum: Þórsarar frá Akureyri gerðu góða ferð í Keflavík í gærkvöldi. Þeir íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild: Oruggur sigur KA Frá Gylfa Krístjónssyni á Akureyrí: Tryggvi Gunnarsson markakóng- ur f 2. deild var sannarlega á skot- skónum 1 gærkvöldi er KA sigraði Njarðvíkinga heldur auðveldlega 4-0 í 2. deild á Akureyrarvelli. Hann skoraði þrívegis í leiknum og hefur nú gert 13 mörk í 2. deild - Leikurinn var einstefna allan tím- ann og voru liðin nánast sem svart og hvítt. KA spilaði nokkuð vel og var sigur þeirra sanngjarn. Þeir eru nú í efsta sæti 2. deildar en hvort þeir halda því veltur á frammistöðu spútnikliðs Selfoss á ísafirði í dag. Tryggvi skoraði fyrst á 29. mínútu eftir fyrirgjöf Árna Freysteinssonar og hann bætti við keimlíku marki á 34. mínútu en nú var það Haraldur Haraldsson sem sendi knöttinn fyrir markið. Tryggvi á réttum stað sem fyrr. Friðfinnur Hermannsson skoraði þriðja markið á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir að Árni og Hinrik höfðu komið boltanum til hans. Árni var síðan enn á ferðinni með fyrirgjöf í síðari hálfleik og enn var Tryggvi á réttum stað og skoraði þriðja mark sitt. Leikurinn var aldrei spennandi. Til þess voru yfirburðir KA heldur miklir. Lið með markaskorara eins og Tryggva er líka alltaf til alls líklegt. Tryggvi skoraði fimm mörk í síðasta leik gegn Sköllunum og nú stefnir allt í að hann verði marka- hæstur í 2. deild. Njarðvíkingar hafa byrjað mótið betur en búist var við en þeir áttu einfaldlega ekkert svar við leik KA í gær. hirtu þar þrjú stig í spennandi og fjörugum leik. Keflvíkingar höfðu verið óstöðvandi flugi í deildinni sem nú var stöðvað skyndilega af frískum Þórsurum. Lokatölur urðu 2-3 og gerði Kristján Kristjánsson tvö af mörkum Þórs. Fyrri hálfleikur var baráttuhálf- leikur. Liðin skiptust á að sækja og marktækifæri voru ekki ýkja mörg. Skúli Rósantsson fékk þó opið færi á markteig en skaut yfír. Það voru síðan Þórsarar sem náðu forystunni rétt fyrir lok hálfleiksins. Kristján Kristjánsson skoraði þó með góðu skoti eftir að hann og Hlynur Birgis- son höfðu vaðið upp völiinn. Þannig var staðan í leikhlé 0-1. Keflvíkingar komu ákveðnir til leiks en Þórsarar drógu sig aðeins til baka. Skúli átti góða fyrirgjöf fyrir Þórsmarkið á 56 mínútu og Einar Ásbjörn kom æðandi úr öftustu vörn og skallaði knöttinn í slána og inn. Vel gert og staðan 1-1. Það tók Þórsara ekki nema fimm mínútur að jafna leikinn. Enn var Kristján Kristjánsson að verki eftir góðan samleik Hlyns og Halldórs Áskels- sonar. Kristján skaut yfir Þorstein í ÍBK - markinu 1-2. Nú færðust Keflvíkingar aftur í aukana og enn drógu Þórsarar sig til baka. Það var síðan Freyr Sverrisson varnarmað- urinn sterki, sem jafnaði enn á ný fyrir heimamenn. Hann skallaði inn fyrirgjöf Rúnars Georgssonar, 2-2. Undir lokin skiptust liðin á að sækja og Nói Björnsson fékk þann heiður að tryggja Þórsurum sigri í leiknum á 86. mínútu með marki af stuttu færi, 2-3 og þar við sat. Liðsheildin hjá Þór var sterkari en einstaklingsframtak Keflvíkinga í þessum leik. Vörn Norðanmanna stóð fyrir sínu og þeir Kristján og Hlynur ógnuðu vel frammi. Einar Ásbjörn var yfirburðarmaður í liði ÍBK sem annars var ekki alveg uppá sitt besta í þessum leik.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.