Tíminn - 28.06.1986, Qupperneq 11

Tíminn - 28.06.1986, Qupperneq 11
10 Tíminn Laugardagur 28. júní 1986 Laugardagur 28. júní 1986 Tíminn 11 Landsfundur Samtaka um jafnrétti landshluta: Samtökin hafa yfir tíuþúsund félagsmenn - framboö til Alþingis ekki fyrirhugað Dagana 21-22. júní héldu Samtök um jafnrétti milli landshluta 2. landsfund sinn á Þingvöllum og Laugarvatni. Helstu umræðuefni fundarins voru innra skipulag og uppbygging Samtakanna, svo og hvort hyggja ætti að sérstöku fram- boði Samtakanna við næstu Alþing- iskosningar. A blaðamannafundi sem nýkjörin stjórn samtakanna boðaði til, kom m.a. fram að samtökin væru þver- pólitísk, og hcfðu verið stofnuð á þeim grunni að veita stjórnmála- flokkunum aðhald. Því hefði verið einróma álit fundarmanna að ekki skyldi boðið fram til Alþingis í nafni samtakanna. Hins vegar var lögð áhersla á að framkvæmdastjórn og landsnefnd samtakanna fylgist vel með störfum Alþingis og tækju öll mál til nákvæmrar athugunar er snertu meginmarkmið samtakanna, og sendu frá sér ályktanir um þau. Einnig hvöttu fundarmenn til þess að stjórnarskrárdrög samtakanna verði endurflutt strax í byrjun Al- þingis í haust. f stjórnarskrárdrögunum er m.a. lagt til að löggjafavald og fram- kvæmdavald verði aðskilið, landinu verði skipt í 5 fylki, og yfirstjórn hvers fylkis ásamt sveitarstjórnum hafi framkvæmdavald viðkomandi fylkis að mestu í sínum höndum, en Alþingi fari eftir sem áður með löggjafavaldiö. Ennfremur að fjár- magn það sem hvert sveitarfélags- skapar, verði notað til uppbyggingar heima fyrir í stað þess að fara fyrst í gegnum skömmtunarvélar stofnana á höfuðborgarsvæðinu. Það myndi hægja á og jafnvel stöðva þann gengdarlausa fólksflótta og fjár- magnsflutning frá landsbyggðinni til Reykjavíkur sem viðgengist hefur undanfarin ár. Samtökin telja að jafnvægi í byggð landsins sé sameig- inlegt hagsmunamál allra lands- Frá v. framkvæmdastjórn Pétur Valdimarsson, Helga Eiðsdóttir, og Árni Steinar Jóhannsson. manna, og brýnt sé að gott samstarf náist við sveitarstjórnarmenn um allt land. Því var ákveðið að stjórn samtakanna riti öllum sveitarstjórn- armönnum bréf og óski eftir sam- starfi við þá um stefnumörkun á sameiginlegum áhuga- og hags- munamálum. Innra skipulagi samtakanna verð- ur breytt mjög á næstunni í anda tillagna þeira um fylkjaskiptingu. Deildir samtakanna í einstökum kaupstöðum, hreppum eða sýslum verða grunneiningar, sem hver hefur sína stjórn. Fylkisþing fyrir allar deildir viðkomandi svæðis skal hald- ið ár hvert, og er opið öllum félags- mönnum. Á fylkisþingi skal kjósa 5-9 manna fylkisstjórn, og einn full- trúa í landsstjórn. Landsstjórn verð- ur því skipuð 1 fulltrúa úr hverju fylki, og formanni og framkvæmda- stjórn sem kosin eru á Landsfundi samtakanna. Landsfund skal halda í júnímánuði ár hvert og er opinn öllum félagsmönnum. Landsfundur 1987 verður haldinn í Borgarnesi. Samtök um jafnrétti milli landshluta telja nú ríflega 10 þúsund félagsmenn, og stöðugt ber- ast inn listar með nöfnum nýrra félagsmanna í kjölfar kynningarher- ferðar sem gerð hefur verið á undan- förnum mánuðum. Núverandi framkvæmdastjórn Samtaka um jafnrétti milli lands- hluta skipa. Pétur Valdimarsson, Akureyri formaður, Helga Eiðsdótt- ir, Akureyri, og Árni Steinar Jó- hannesson Reyn í Öngulstaða- hreppi. HIA/Akureyri ^Ht^X-LÆTUR HJÓUN SNÚAST Jörð til sölu Jörðin Gíslabær Hellnum (gistiheimili um árabil) á sunnanverðu Snæfellsnesi er til sölu. Land 64 ha. þar af ræktað ca 6,5 ha. íbúðarhús 174 fermetrar vel byggt á einni hæð. Véla og verkfærageymsla (verkstæði) 180 fermetrar með nýrri 62 fermetra fbúð í öðrum enda. Fiskverkunar- hús 200 fermetrar með vatni og rafmagni 3ja fasa. Mjög stutt er á gjöful fiskimið og hafnarmannvirki er á Hellnum. Einstök náttúrufegurð. Makaskipti koma til greina á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í síma 93-5777 Verslunarhúsnæði Kaupfélags Vestur Barðstrendinga á Krossholti, Barðaströnd er til sölu ásamt lager og innrétting- um. Upplýsingar gefur Jens H. Valdimarsson sími 94-1201. Kaupfélag Vestur Barðstrendinga Patreksfirði Bíóhúsið opnar Nýja bíó hefur nú fengið andlitslyftingu og heitir nú Bíóhúsið, en Árni Samúelsson, eigandi Bíóhallarinnar, er með húsið á leigu. Bíóhúsið verður rekið í samræmi við Bíóhöllina, þ.e. nýjar myndir verða frumsýndar þar en síðan fluttar í minni sali Bíóhallarinnar þegar aðsókn minnkar. Þessi mynd var tekin við opnun Bíóhússins af Árna Samúelssyni og konu hans Guðnýju Bjömsdóttur. Tímamynd Pétur Inottcivél þnrrkari IIKITf U ■ i ■ wi Nú er ekki eftir neinu að bíða, þú verslar í Rafbúð Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á 24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðið slík kjör — hvorki fyrr né síðar. Hafðu samband við Rafbúð Sambandsins strax — það er ekki eftir neinu að bíða. thomsoim • ZEROWATT • DSBQsGacsm^Bd: • Frigor • Westinghouse • Bauknecht • thomsoim • ZEROWATT • . Frigor • Westinghouse • Bauknecht •

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.