Tíminn - 02.07.1986, Side 5

Tíminn - 02.07.1986, Side 5
Tíminn 5 Miðvikudagur 2. júlí 1986 llllllllll ÚTLÖND llllllll Ólga í Suður-Kóreu: Blóðug bylting ef ekki takast sættir - segir leiðtogi stjórnarandstöðunnar Seoul-Reuter Kim Young-Sam, einn af leiðtog- um stjórnarandstöðunnar í Suður- Kóreu, spáði því í gær að ef ekki næðist samkomulag milli stjórnvalda og stjórnarandstæðinga um nýtt kosningafyrirkomulag væri hætta á byltingu hersins eða blóðugum óeirðum. „Ef okkur tekst ekki að ná sam- komulagi um breytingu á stjórnar- skránni og breyta landinu á friðsam- an hátt í lýðræðisríki get ég sagt ..að annað hvort tekur herinn völd 5ða fólkið gerir blóðuga byltingu," sagði Kim á blaðamannafundi. Kim hvatti alla leiðtoga stjórn- málaflokka í landinu til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að afstýra áðurnefndum byltingum. Hann lagði til að fundur yrði haldinn milli Chun Doo Hwan forseta, Roh Tae-Woo leiðtoga stjórnarflokksins og stjórn- arandstöðuleiðtoga þar á meðal hans sjálfs og annars þekkts stjórnarand- stæðings, Kim Dae-jung. Kim Young-Sam og Kim Dae- jung eru í forystusveit helsta stjórn- árandstöðuflokks landsins, Demókr- ataflokki Nýju Kóreu (NKDP), sem samþykkti nýlega að vinna ineð stjórnarflokknum, Réttlætisflokki demókrata (DJP) og vinna að sáttar- tillögum í deilunni um kosningafyr- irkomulagið. Bilið milli flokkanna tveggja um hvernig eigi að kjósa til forseta er samt æði mikið. NKDP vill beina þjóðaratkvæðagreiðslu en DJP, flokkur Chuns forseta, heldur fast í núverandi tilhögun en þar kýs 500 manna kjörráð forseta landsins. Mikil ólga hefur verið í landinu að undanförnu og saka andstæðingar stjórnvalda þau um að halda um þúsund pólitískum föngum og einnig eru þau sökuð um pyndingar. Lee Min-woo (t.v) forseti NKDP og Roh Tae-woo formaður DJP takast í hendur á þessari mynd. Ekki eru þeir þó enn á sama máii um nýtt kosningafyrirkomulag í Suður-Kóreu. Þingkosningar í Japan: Stjórnar- flokknum spáð sigri Tokyo-Reuter Japanski stjórnarflokkurinn, Frjálslyndi demókrataflokkurinn (LDP), ætti að vinna auðveldan sigur í þingkosningunum næsta sunnudag ef eitthvað er að marka skoðanakönnun Jiji fréttaþjón- ustunnar. Samkvæmt skoðanakönnun- inni mun LDP fá að minnsta kosti 259 þingmenn kjörna í neðri deild þingsins en þar sitja 512 þingmenn. Raunar gæti LDP fengið alls 271 þingmann kjörinn ef 12 af þeim 21 kandídötum, sem berjast þurfa í héruðum þar sem úrslit verða tvísýn, hljóta kosningu. í efri deildinni mun flokkurinn líklegast fá hreinan meirihluta. Þar sitja 252 þingmenn. Skoðanakönnun Jiji sýndi einnig að ólíklegt er að Sósíalista- flokkurinn, helsti stjórnarand- stöðuflokkurinn, haldi fylgi sínu í þinginu þar sem nú sitja 110 sósíalistar. Filippseyjar: Marcos ásakaður um golfsvindl Manila-Reuter Ferdinand Marcos fyrrum leið- togi Filippseyja hefur skrifað opið bréf til dagblaðs eins í Manila þar sem hann neitar harðlega að hafa svindlað í golfi. Fjármáiaumsvif Marcosar hafa verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu og þykja vera vafasöm í meira lagi. Ekki nóg með það. Greinarhöfundurinn Dindo Gonzalez sem skrifar í dagblaðið „Viðskiptadagur“ hefur ásakað Marcos um að hafa oft og einatt svindlað í golfi. Marcos svaraði að augabragði og sagði Gonzalez dreifa „illum lygum um golfframmistöðu" sína. Einnig hvatti hann greinarhöfund- inn til að vanda betur stíl sinn. Gonzalez er 68 ára gamall og hefur leikið golf síðan hann var 14 ára og skrifað um golf í blöðum síðan 1938. Gonzalez lék mikið með forsetanum fyrrverandi og sagði hann kylfubera og örygg- isverði hans hafa oft og iðulega sparkað golfbolta forsetans útúr „röffinu" inná braut og forsetann sjálfan hafa gefið upp rangar tölur á skorkorti sfnu. Gonzalez minntist atviks er átti sér stað þann 3. desember 1978. Þá skilaði forsetinn fyrrverandi inn skorkorti er sýndi höggfjölda sem alþjóðlegir golf- meistarar hefðu verið hreyknir af. Skorkortið er enn til sýnis í golf- klúbbnum þar sem félagarnir fyrr- verandi léku. Singapúr: H/ESTA HÓTEL HEIMS ÚTLÖND Umsjón: Heimir Bergsson Bretland: Bretar fara með bandalagsstjórn Howe utanríkisráöherra mun sitja í forsetastóli Evrópubandalagsins næstu sex mánuðina - Sat fyrir svörum í gær Brússel-Reuter Bretar tóku við stjórn Evrópu- bandalagsins (EB) af Hollendingum í gær og sögðust bresk stjórnvöld ætla að vinna að enn meiri samein- ingu ríkja Evrópubandalagsins. Sir Geoffrey Howe utánríkisráðherra Bretlands, sem sitja mun í forseta- stóli bandalagsins næstu sex mánuð- ina, sagði hina sameiginlegu yfirlýs- ingu um Suður-Afríku, sem ríki bandalagsins samþykktu á nýafstað- inni ráðstefnu í Haag, sýna í verki vilja ríkjanna tólf til samvinnu. Howe sagðist fara til Suður-Afr- íku á næstunni til að kanna hvaða friðsamar leiðir væru færar til að binda enda á aðskilnaðarstefnu hvítu minnihlutastjórnarinnar í landinu. Utanríkisráðherrann sat fyrir svörum í Lundúnum en sjónvarps- tæknin sá fyrir því að fréttamenn í Brússel gátu einnig varpað spurning- um til Howe. Howe var varfærinn í svörum sínum að venju en sagði bresk stjórnvöld ætla að beita sér fyrir framgangi fjögurra mála á meðan þau hefðu með stjórn Evrópubanda- lagsins að gera. Fyrst nefndi hann samvirka stefnu á utanríkismálum, Sir GeofTrey Howe mun vera í forsvari Evrópubandalagsins næstu sex mánuðina þá umbætur á atvinnuleysi í ríkjun- viðskiptum og loks aukið eftirlit með um tólf, síðan aukningu á alþjóða- útgjöldum bandalagsins. Heilsan verri en gengur og gerist Hjartasjúkdómar algengir - Sígarettureykingar öflug sjálfseyöilegging Lundúnir-Reuter Singapúr-Reuter Samkvæmt heimsmetabók Guinn- ess er Westin Stamford hótelið í Singapúr hæsta hótel í heimi. Þetta 73 hæða hótel var opnað með mikilli viðhöfn f gær. Arkitektinn I.M.Pei teiknaði hót- elið sem er 226 metrar á hæð, sex metrum hærra en Westin Peachtree hótelið í Bandaríkjunum, nánar tii- tekið í Atlanta í Georgíufylki. Alls eru 1253 herbergi í þessu stærsta hóteli í Singapúr en þar er nú boðið upp á 40% afslátt sem er kominn til vegna færri ferðamanna og færri hótelgistinga ' í Singa- púr. Heilsufar á Bretlandi er verra en gengur og gerist í hinum ríku iðnað- arlöndum heims og hvergi annars- staðar deyja fleiri af völdum hjarta- sjúkdóma en einmitt í Bretlandi. Þetta kemur fram í skýrslu sem gefin var út í gær. Almenningssjúkdómadeild hins konunglega læknaháskóla gaf út þessa skýrslu og þar er einnig bent á að lungnakrabbameinstilfelli meðal kvenna fari fjölgandi. Dauði vegna leghálskrabbameins er næstum því eins mikill og hann var fyrir fimmtán árum á meðan dauðatilfelli vegna þess sjúkdóms væru almennt helm- ingi færri nú en fyrir fimmtán árum í flestum Evrópulöndum. í skýrslunni voru lífsmöguleikar fólks á aldrinum 45 ára kannaðir. Niðurstaðan var sú að karlmenn í Skotlandi gátu búist við að lifa í 26,5 ár í viðbót samanborið við 28 ár í Englandi. í mörgum öðrum Evrópu- löndum eru þessi ár orðin fleiri en þrjátíu. Barnadauði í Bretlandi hefur minnkað minna á síðustu 25 árum heldur en í flestum öðrum Evrópu- löndum. Einnig er það ítrekað í skýrslunni að um 100.000, já hundr- að þúsund dauðsföll megi rekja til sígarettureykinga sem einnig valda miklum sjúkdómum og dýrum fyrir þjóðfélagið. Samkvæmt skýrslunni valda sjúk- dómar á borð við mislinga, rauða hunda og kíghósta enn dauða í Bretlandi þrátt fyrir að hafa verið útrýmt í öðrum iðnaðarríkjum. Ekki skemmtileg skýrsla þessi fyr- ir Breta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.