Tíminn - 02.07.1986, Qupperneq 11
Miðvikudagur 2. júlí 1986
Tíminn 1
llillllllllllllllllll! MINNING ^ ^ ^
Pétur Lárusson
Keflavík
Fæddur 23. mars 1892
Dáinn 4. maí 1986.
Ef menn gefa sér tíma til að líta til
baka yfir nokkur ár, nokkra áratugi
að ekki sé talað um öld, fer ekki hjá
því, að ljósar verða þær miklu breyt-
ingar á lífsháttum manna og lífsvið-
horfum, sem orðið hafa, ekki síst nú
um sinn, frá því sem áður var
tíðkað, enda eru þær eins og hver
önnur söguleg staðreynd. Oft er
þess vegna talað um hreina byltingu
í þessu sambandi.
Með 20. öldinni fæðast nýir tímar.
Þúsund ára lífshættir sumir horfnir,
sem þrjátíu kynslóðir höfðu þó búið
við og nýir komið í staðinn. Tækni,
óþekkt á íslandi frá upphafi og til
síðustu aldamóta, ryður sér til rúms
um ísland allt. Húsakostur og híbýla
er endurnýjaður, ræktun jarðar og
búpenings tekur risastökk, að ekki
sé talað um vettvanginn utan fjöru-
borðs, skipaflotann sem áður var að
mestu opin róðrarskip, en er nú
búinn stórskipum sem fær eru í
flestan sjó ef svo vill verkast um
hvaða heimshaf sem er. Iðnaður og
hverskonar tækja-búnaður svo fjöl-
breytilegur að nýsmíðar tungunnar
hafa ekki við að gefa viðhlítandi
nöfn. Af öllu þessu hefur leitt al-
menna velmegun þjóðarinnar, hvað
sem úrtölum og barlómi líður. Að
sjálfsögðu þarf öllum nýjum fslend-
ingum að verða þetta ljóst eigi sfðar
en þeim sprettur grön, hinir ættu
þegar að vita það og viðurkenna. Og
þegar vel liggur á fólkinu, þ.e.
þjóðinni, þá grunar hana líka, að
óvíða eða jafnvel hvergi í heiminum
hafi átt sér stað sórfelldari bylting á
jafnskömmum tíma og á fslandi,
hljóðlát bylting, sem aldrei verður
nefnd í sögu mannkynsins, en er þó
staðreynd hinum fámenna hópi,
bylting frá örbirgð og úrræðaleysi,
til sæmilegra bjargálna. „Vér íslands
börn, vér erum vart of kát...“ sagði
eitt af þeim ágætu þjóðskáldum sem
lifðu síðustu aldamót, um leið og
það kvaddi til sóknar á nýrri öld.
Þjóðin tók undir.
Hin hlýju og traustu handtök
fjölda manna víðsvegar um landið
voru hljómbotninn, sem gaf tóninum
færi á að lyfta sér, hlý og traust
handtök fylgdu sókninni áfram fram
á þennan dag, hljóðlát staðreynd
eins og afl straumsins. Einn úr
fjöldanum var Pétur.
Pétur Lárusson fæddist 23. mars
1892 að Skarði við Sauðárkrók.
Foreldrar hans voru Lárus Stefáns-
son bóndi þar og kona hans Sigríður
Björg Sveinsdóttir. Þau eignuðust
12 börn, sem flest komust til fullorð-
insára, og var Pétur 3. í röðinni.
Pétur vann á búi foreldra sinna fram
yfir tvítugsaldur, en auk þess stund-
aði hann vinnu inni á Sauðárkróki
og víðar, eins og bræður hans og
systur, því ekki veitti af á svo stóru
heimili. Honum lærðist því snemma
að meta gildi og þýðingu vinnunnar,
iðjumaður alla tíð.
22. maí 1926 gekk Pétur að eiga
unnustu sína, mikla skapfestukonu,
Kristínu Danivalsdóttur frá Litla-
Vatnsskarði. Hún er fædd 3. maí
1905, og lifir hún mann sinn eftir
langa og farsæla sambúð.
Arið sem þau giftust hófu þau
búskap á Ingveldarstöðum á Reykja-
strönd, og ári síðar fluttu þau að
Steini í sömu sveit, þar sem þau
bjuggu til 1946. Þessi ár voru býsna
erfið tii búskapar eins og raunin
hafði oft orðið áður, heimskreppa
og verðfall á búsafurðum hjálpuðust
að. Þó búnaðist þeim hjónum vel,
byggðu upp og bættu jörðina eftir
föngum. Hyggindi, sparsemi og
nýtni greiddi þeim förina yfir hvern
hjallann af öðrum, enda bæði traust
og ábyggileg. Síðasta árið sem þau
bjuggu, kom reiðarslagið, þá urðu
þau að fella mestallan bústofn sinn
vegna mæðiveikinnar sem fór eins
og eyðandi eldur um sauðfj árbyggðir
landsins. Var þá ekki um annað að
ræða en hefjast handa á nýjum
slóðum, leita fyrir sér um nýtt
landnám, þreyta Drangeyjarsundið,
eins og margir fleiri urðu að gera
sem fluttu úr dreifbýli á Faxa-
flóasvæðið og Suðurnesin hér á árun-
um. Tindastóll, Drangey og önnur
djásn Skagafjarðar hlutu að verða
að baki. Þau fluttust með fjölskyldu
sína til Keflavíkur haustið 1946, og
byggðin við Faxaflóa tók þeim opn-
um örmum. Eftir rúmlega ársdvöl
hafði Pétur lokið við að reisa vandað
tveggja hæða íbúðarhús á Sólvalla-
götu 32 í Keflavík, þar sem þau hjón
bjuggu síðan, þar til nú fyrir sl.
áramót að þau fluttu í íbúðir fyrir
aldraða á Suðurgötu 15 í Keflavík.
Börn þeirra fæddust öll fyrir norðan.
Þau eru:
Hilmar f. 1926, bæjarfulltrúi og
fasteignasali, kvæntur Ásdísi Jóns-
dóttur.
Jóhann, f. 1928, stýrimaður,
kvæntur Ingibjörgu Elíasdóttur.
Kristján, f. 1930, deildarstjóri í
tollinum á Keflavíkurflugvelli, sam-
býliskona Ríkey Lúðvíksdóttir. Þau
eru öll búsett í Keflavík.
Páll, fiskiðnfræðingur f. 1940,
kvæntur Hallveigu Gunnarsdóttur
þau eru búsett í Canada.
Unnur, læknir, fædd 1943, maður
hennar er Snorri Þorgrímsson
læknir, þau búa í Washington.
Starfssaga Péturs Lárussonar eftir
að hann flutti suður er tvíþætt. Þessi
þrekmikli og hrausti maður hafði
alla tíð verið hneigðurtil smíða. Tók
hann því upp störf við skipasmíðar,
fyrst í Dráttarbraut Keflavíkur og
síðar Skipasmíðastöð Njarðvíkur.
Á báðum þessum stöðum vann hann
sér fljótt hylli samverkamanna og
yfirmanna fyrir afköst og verk-
hyggni, enda þótti þeim verkum vel
borgið sem í hlut hans komu. Um
eða upp úr 1960 skipti hann um
starf, tók þá að sér að sjá um
endurbætur og breytingar á elsta
skólahúsi bæjarins (byggðu 1911).
Upp úr því var hann ráðinn skóla-
umsjónarmaður í þessum skóla, og
því starfi gegndi hann þar til fyrir
fáum árum. Naut hann sérstakrar
hylli bæði kennara og nemenda fyrir
stjórnsemi og lipurð; mun hann líka
hafa litið á stofnunina á vissan hátt
sem sinn búgarð, þar sem allt viðhald
utan húss sem innan, auk daglegrar
umgengni skyldi bera því vitni að í
forsvari væri hirðumaður en ekki
slóði. Haft er eftir kennurum að
líklega muni fáir fara í föt Péturs í
þessum efnum. Pétur átti Iíka því
láni að fagna að ljúka sínum verkum
hver sem þau voru hverju sinni, án
áfalla og með sóma.
Þótt starfsdagar Péturs væru orðn-
ir margir þegar yfir lauk, og hver og
einn jafnan fullskipaður, virtist þessi
þrekmaður ekki þreyttur að kvöldi
æfinnar, heldur fagnaði hann lífinu,
þróun og framförum með þjóðinni
öll árin sem hann lifði, glaður á
yfirbragð, fríður sýnum, ræðinn og
félagslyndur. Hann var framsóknar-
maður frá stofnun þess flokks og
studdi hann alla tíð, bóndi, ófag-
lærður starfsmaður á hinum almenna
vettvangi. Hann var maður hinna
hlýju, traustu handtaka, sem öldin
hefur lifað á.
Þegar Pétur var rúmlega tvítugur
braust hann eitt sinn um hávetup
vestur yfir fjallakragann vestur af
Tindastóli áleiðis að Litla-Vatns-
skarði að vitja drottningarefnis síns,
sem hann naut síðan alla æfi og virti
af verðleikum. í þessari ferð lenti
hann í fangbrögðum við norðlenska
stórhríð inni á öræfunum, illvíga og
miskunnarlausa. Hann lá úti í tvo
eða þrjá sólarhringa, villtur, skíða-
laus og skólaus síðast. Náði á áfanga-
stað að lokum og ekki mikið kalinn.
Af þessari ferð er nokkuð sagt f
einum þættinum í „Göngum og
réttum“, en þar er lýst öræfagöngum
sem margur íslendingurinn hefur
orðið að þreyta á umliðnum árum
eða öldum í leit að Íífsbjörg, - eða
lífsfyllingu, manna sem ekki „urðu
úti“, heldur náðu settu marki, náðu
heim og - sigruðu.
Valtýr Guðjónsson
LA TTU
Tímann
EKKI FLJÚGA FRÁ ÞFR
ÁSKRIFTARSÍMI
686300
Á tímabilinu 1. maí til 30. sept.
Á tirnabilinu 1. júni til 31. ágúst
Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09 00
Frá Brjánslæk kl. 14.00
Til Stykkishólms kl. 18.00
fyrir brottför rútu til Rvk.
Fimmtudaga: Samatimataflaog
mánudaga.
Föstudaga:
Frá Stykkishólmi kl. 14.00.
eftirkomu rútu.
Viðkoma i inneyjum.
Frá Brjánslæk kl. 19.30
Til Stykkishólms kl. 23.00
Þriðjudaga: ’ Frá Stykkishólmi kl. 14.00
eftir komu rútu
Frá Brjánslæk kl. 18.00
Til Stykkishólms kl. 21.30
Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Sigling um suðureyjar.
Frá Brjanslæk kl. 15.00
Til Stykkishólms kl. 19.00
A timabilinu 1. juli til 31. ágúst
Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Frá Brjánslæk kl. 14.00
Til Stykkishólms kl. 18.00.
fyrir brottför rútu.
Viðkoma er ávallt i Flatey a báðum leiðum.
Bilaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara.
Frá Stykkishólmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkishólmi, s.: 93-8120
Frá Brjánslæk:
Hjá Ragnari Guðmundssyni
Brjánslæk, s.: 94-2020.
laðbera
vantar
/ eftirtalin hverfi.
Lindarbraut,
Miðbraut,
Vallarbraut.
Tímlnn
SIÐUMULA 15
686300
¥ÉlU®&
MDMUSmHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRerrt
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eða útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeðjur og aðra
undirvagnshlutiT allar gerðir -
beltavéla.
x Slitstál, skerablöð og
tannarhorn fyrir jarðýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jarðýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stærðir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aðra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeðjur og færibandakeðjur
fyrir verksmiðjur og
landbúnaðarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöðvar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðhólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP H*
Sími641045
Auslýsinsadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
— ± ' " ' ...■! ■■■■■■■■— ■■ .
Okeypis þjónusta