Tíminn - 02.07.1986, Qupperneq 15
Miðvikudagur 2. júlí 1986
Tíminn 15
ÚTVARP/SJÓNVARP
llllllllllll!
í augum margra íslendinga var Reykjavík „hálfdanskt bæli“ á 19. öldinni.
Deilur voru þá uppi uin hvort Alþingi ætti aö halda á Þingvölluni eða í
Reykjavík.
Deilt um staðsetningu Alþingis:
REYKJAVÍK- ÞINGVELLIR
María Markan átti stórbrotinn
söngferil og oft hefur söngur henn-
ar heyrst í útvarpi. Hún er ein
þeirra íslensku flytjenda sem koma
viö sögu í útvarpsþættinum Hljóm-
ur horfíns tíma.
Hljómur horf-
ins tíma
- íslenskir flytjendur í
útvarpi 1937-1950
Kl. 21 íkvöldverðurfyrstiþáttur
af fjórum í útvarpi sem gefið hefur
verið nafnið Hljómur horfins tíma.
Þessir þættir eru í umsjá Guð-
mundar Gunnarssonar, koma frá
Akureyri og fjalla um tónlist.
„Hugmyndin með gerð þessara
þátta," sagði Guðmundur, „er að
rifja upp að einhverju ieyti fyrstu
kynni mín af tónlist sem urðu
aífarið fyrir tilstilli útvarpshlustun-
ar. Þetta reyni ég með því að
bregða undir nálina plötum með
nokkrum þeim lögum og flytjend-
um sem eru hér í minni úr útvarps-
dagskrá frá árabilinu 1937 og lang-
leiðina til 1950.“
Fyrsti þátturinn, sem fluttur
verður í kvöld eins og áður segir,
verður helgaður íslenskum
flytjendum frá þessum árum og
koma þar við sögu María Markan,
Sigurður Skagfield og fleiri.
Kl. 21.30 í kvöld verður fluttur
þriðji þáttur um sögu Reykjavíkur
í útvarpi og verður þar sagt frá
deilum um hvar Alþingi væri best
haldið í Reykjavík eða á Þingvöll-
um. Sumarliði ísleifsson hefurmeð
höndum umsjón þáttarins og lesari
með honum er Þóra Sigurðardótt-
í sjónvarpi í kvöld kl. 20.35
verður sýnt viðtal sem Bogi
Ágústsson fréttamaður átti fyrir
skemmstu í Kaupmannahöfn við
Margréti II. Danadrottningu.
Föstudaginn 4. júlí nk. koma
hingað til lands Margrét II. Dana-
drottning og maður hennar Hinrik
prins í einkaheimsókn til forseta
íslands Vigdísar Finnbogadóttur.
Heimsóknin stendur yfir til 7. júlí
og verður farið til Vestmannaeyja,
Skaftafells og Seyðisfjarðar.
Á fyrri hluta 19. aldar risu upp
deilur um það hvar samkomustað-
ur Alþingis ætti að vera. í þættinum
verður sagt frá þessum deilum og
síðan einnig bent á hugmyndir sem
fram hafa komið á þessari öld um
að flytja þingstaðinn aftur til Þing-
valla.
Það var árið 1981 sem Vigdís
Finnbogadóttir fór í opinbera
heimsókn til Danmerkur. íslenskir
sjónvarpsáhorfendur fengu þá að
sjá þátt, þarsem þjóðhöfðingjarnir
tveir svöruðu spurningum blaða-
manna og vildu Danir nefna yfir-
heyrsluna „krydsild". Þýðingin á
þessu orði misfórst eitthvað sem
kunnugt er, en sjónvarpsþátturinn
sá er mörgum minnisstæður fyrir
hlýlega og skemmtilega framkomu
forseta og drottningar.
Margrét Danadrottning og Hinrik prins eru að koma í heimsókn til íslands.
Margrét Danadrottning
Miðvikudagur
2. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Pétur
Pan og Vanda“ eftir J. M. Barrie
Heiðdís Norðfjörð les (3).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
9.45 Lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áöur sem Guðmundur Sæm-
undsson flytur.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Áðurfyrráárunum. Umsjón:Ágústa
Björnsdóttir.
11.00 Fréttir
11.03Samhljómur Umsjón: Guðmundur
Jónsson og Ýrr Bertelsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn - Börn og umhverfi
þeirra Umsjón: Anna G. Magnúsdóttirog
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Katrín", saga frá
Álandseyjum eftir Sally Salminen Jón
Helgason þýddi. Steinunn S. Sigurðar-
dóttir les (2).
14.30 Segðu mér að sunnan. Ellý Vil-
hjálms velur og kynnir lög af suðrænum
sióðum.
15,00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Á hringveginum - Suðurland
Umsjón: Einar Kristjánsson, Þorlákur
Helgason og Ásta R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: Tónlist eftir Jean
Sibelius. . Rakastava, svíta op. 14.
Kammersveitin í Helsinki leikur; Leif
Segerstam stj. b. Sinfónía nr. 3 í C-dúr.
op. 52. Fíiharmóníusveitin í Vín leikur;
Lorin Maazel stj.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Vern-
harður Linnet. Aðstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 ( loftinu Umsjón: Hallgrimur Thor-
steinsson og Guðlaug María Bjarnadóttir.
- Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Að utan Fréttaþáttur um erlend mál
efni.
20.00 Sagan „Sundrung á Flambard-
ssetrinu" eftir K.M. Peyton Silja Aðal-
steinsdóttir les (9).
20.30 Ýmsar hliðar Þáttur í umsjá Bern-
harðs Guðmundssonar.
21.00 Hljómur horfins tíma. Fyrsti þáttur
Gunnars Guðmundssonar af fjórum. (Frá
Akureyri).
21.30 Þættir úr sögu Reykjavíkur Þriðji
þáttur: Reykjavík eða Þingvellir, deilur
um þingstaðinn. Umsjón: Sumarliði Is-
leifsson. Lesari: Þóra Sigurðardóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljóð-varp Ævar Kjartansson sér um
þátt í samvinnu við hlustendur.
23.10 Djassþáttur-Tómas R. Einarsson.
Miðvikudagur
2. júlí
9.00 Morgunþáttur. Stjórnandur: Ásgeir
Tómasson, Kolbrún Halldórsdóttir og
Kristján Sigurjónsson. Inn í þáttinn flétt-
ast u.þ.b. fimmtán mínútna barnaefni
kl.10.05 sem Guðríður Haraldsdóttir
annast.
12.00 Hlé.
14.00 Kliður. Þáttur i umsjá Gunnars Svan-
bergssonar og Sigurðar Kristinssonar.
(frá Akureyri)
15.00 Nú er lag. Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að hætti hússins.
16.00 Taktar. Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill. Erna Arnardóttir sér um
tónlistarþátt blandaðan spjalli við gesti
og hlustendur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,10.0011.00,
15.00,16.00 og 17.00
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.15 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrennni - FM 96,5 MHz
Miðvikudagur
2. júlí
19.00 Úr myndabókinni - 9. þáttur. Barna-
þáttur með innlendu og erlendu efni.
Kuggur, myndasaga eftir Sigrúnu
Eldjárn, Fálynd prinsessa, Raggi ráða-
góði, Snúlli Snigill og Alli álfur, Ugluspeg-
ill, Lúkas, Alí Bongó og Alfa og Beta.
Umsjón: Agnes Johansen.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Margrét Danadrottning Viðtal sem
Bogi Ágústsson, fréttamaður í Kaup-
mannahöfn, átti við Margréti II. Dan-
adrottningu en hún er væntanleg til
islands á næstunni.
21.10 Hótel 20. Engum að treysta. Banda-
rískur myndaflokkur í 22 þáttum. Aðal-
hlutverk: James Brolin, Connie Sellecca
og Eva Gabor.Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.00 Bronsöldin(Bronsálderen) Sænsk
heimildamynd um bronsöld í Skandi-
navíu og fornminjar frá þeim tímum
(Nordvision-Sænska sjónvarpið).
22.55 Fréttir í dagskrárlok.
Havre-Fras 375 g
Lingonberry sulta
450 g
Cranberry sulta
RÚSSNESK 450 g
jjpaÍl^llSúkkuiaðikex 3oog
Vanillukex soog
Hazelnutkex 125 g
AA íva þvottaduft 2,3kg
Þvol þvottalögur 0,51
FRIGG Dún mýkingarefni 2,01
...vöruverÖ í I. ágmati :i
i 1
Tæknifræðingur
eða verkfræðingur
óskast til að gegna störfum byggingarfulltrúa á
Eskifirði.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunni í síma
97-6175.
Umsóknum með upplýsingum um fyrri störf og
menntun skal skila fyrir 20. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Eskifirði
Hestaþing Faxa 1986
Verður haldið að Faxaborg laugardag og sunnu-
dag 12. og 13. júlí.
Keppnisgreinar: 150 metra skeið, 250 metra
skeið, 250 metra unghrossahlaup, 300 metra
stökk, 800 metra stökk, og 800 metra brokk. A og
B flokkur gæðinga og unglingakeppni. Dómar
byrja kl. 10.00 laugardag 12. júlí og skráning er í
síma 93-5233. Og er skráningu lokið miðvikudag-
inn 9. júlí.
Framkvæmdanefndin
Hafnfirðingar
Fastir viðtalstímar bæjarstjóra Guðmundar Árna
Stefánssonar eru á þriðjudögum og miðvikudögum
frá kl. 10.00 til 12.00. Aðrir viðtalstímar eftir
samkomulagi.
Bæjarstjórinn Hafnarfirði