Tíminn - 04.07.1986, Qupperneq 7

Tíminn - 04.07.1986, Qupperneq 7
Föstudagur 4. júlí 1986 Tíminn 7 Páll Pétursson, formaöur þingflokks Framsóknarmanna „Þeir sem sof na í svínastí- 1 Þjóðviljanum í fyrradag var viðtal við Pál Pétursson þingflokks- formann framsóknarmanna um málefni Alberts Guðmundssonar iðnaðarráðherra. Þar er m.a. haft eftir Páli: „Ef Albert Guðmundsson væri ráð- herra Framsóknarflokksins myndi ég kalla saman þingflokksfund og gera tillögu um að hann viki úr starfi." Tíminn hafði samband við Pál og innti hann frekar eftir því á hvaða forsendum hann myndi hafa gert slíkt. „Ég er ekki að gera tillögu um að Albert Guðmundsson segi af sér embætti. Hins vegar er ég þess fullviss að ef hliðstætt ástand hefði skapast hjá einhverjum af ráðherr- um Framsóknarflokksins, þá hefði hann beðist lausnar og hefði ég verið í sporum Alberts Guðmunds- sonar hefði ég beðist lausnar frá embætti. - Nú liggja engar sannanir fyrir um sekt Alberts Guðmundssonar. Af hverju ætti hann þá að láta af embætti? „I Skandinavíu er til máltæki sem hljómar eitthvað á þá leið að „Þeir sem sofna í svínastíunni, hætta á það að vakna aftur með lús." Óskandi væri að Albert Guðmundsson tengdist þessu Haf- skipsmáli ekki með neinum hætti og ég vona að tengsl Alberts við þessa Hafskipsherra séu á þann veg að hann komist jafn góður frá þeim. Þá tel ég einnig að þótt Albert segði af sér, fælist ekki í því nein sektarviðurkenning frá hans hendi, heldur það, að hann vildi ekki varpa neinum skugga á ríkis- stjórnina." - Þingflokkur sjálfstæðismanna virðist hafa aðra skoðun á þessu máli en þú. Er annað siðferðismat hjá framsóknarmönnum en hjá sjálfstæðismönnum? „Ég reikna með því að það sé nokkuð annað. Við framsóknar- menn hugsum sem betur fer nokk- uð öðruvísi en töluverður hluti sjálfstæðismanna og það getur ver- ið að þeim finnist það allt í lagi siðferðislega það sem okkur finnst ekki við hæfi. Alþýðubandalagsmenn deila mjög opinskátt um það sama. Sum- um þar á bæ þykir það í lagi sem öðrum þykir ýmislegt athugavert við. Ég held að það sé mikilvægt að menn séu vandir að virðingu sinni, hvar sem þeir eru í flokki.“ - Nokkuð hefur verið rætt um það hvort forsætisráðherra eigi að víkja Albert Guðmundssyni úr ríkisstjórninni og sú skoðun hefur heyrst að sjálfstæðismenn séu að bíða eftir aðgerðum af hans hálfu. Hver er þín skoðun á því atriði? „Afstaða Steingríms, að halda að sér höndum, er hárrétt. Það er alveg ljóst að Albert starfar sem trúnaðarmaður Sjálfstæðisflokks- ins í ríkisstjórninni og er þar á þeirra ábyrgð. Sjálfstæðisflokkur- inn valdi hann til setu í ríkisstjórn- inni ásamt öðrum ráðherrum sín- um og það er þeirra að svipta hann trúnaði ef þeim finnst ástæða til. Það má vera að þeir hafi engan annan sem þeim finnst hentugri til að gegna þessu ráðherrastarfi og ef það er þeirra mat þá verða þeir að gera það upp við sjálfa sig. Ef hins vegar ráðherra Fram- sóknarflokksins væri í stöðu Alberts, þá held ég að hann væri ekki flokknum til prýði og það væri heppilegra að hann gegndi ekki trúnaðarstöðum, meðan sakleysi hans væri að sannast." - Heldur þú að þetta mál komi til með að óbreyttu að skaða stjórn- arsamstarfið? „Því hef ég ekki neina trú á.“ - Svo vikið sé að öðru. Telurðu líkur á að kosið verði til Alþingis í haust? „Ég er ekki trúaður á kosningar í haust. Þær væru ekki haldnar af öðru tilefni en að Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra kæmi ekki saman fjárlögum. Mér fyndist það óskaplegur ósigur fyrir hann ef honum tækist það ekki og ég hef ekki trú á öðru en að hann leggi höfuðkapp á að standa sig í sínu embætti og leggi fram raunhæf og sómasamleg fjárlög. Það er auðvitað hægt að hugsa sér að Sjálfstæðisflokkurinn komi með hugmyndir sem sneiða nærri velferðarríkinu. Við framsóknar- menn hljótum að standa vörð og munum standa vörð um velferðar- kerfi okkar sem búið er að byggja upp á áratugum og við höfum verið fremstir í flokki að reisa. Við förum ekki að láta rífa það niður nú í haust, það er alveg íjóst. Hins vegar er ég ekki trúaður á að Þorsteinn komi með niður- skurðartillögur sem eru óaðgengi- legar fyrir okkur. Það er hins vegar ljóst að ekki má eyða nteiru en aflað er. Vilhjálmur Egilsson hefur barist fyrir haustkosningum. Hann sendi í fyrra Þorsteini Pálssyni forskrift af því hvernig fjárlög eiga að vera. Það verða ekki svoleiðis fjárlög sem við sættumst á. Vilhjálmur Egilsson verður ekki í stöðu til að senda Þorsteini þannig minnisblað aftur og þá ekki Þor- steinn í þannig stöðu að geta tekið við því.“ unni hætta á það að vakna aftur með lúst( Þórarinn Þórarinsson: Lífið allt Flestir kannast við gamla orð- tækið, að tvisvar verður gamall maður barn. Ég vil ekki kannast við, að þetta gildi um mig, a.m.k. ekki enn sem komið er. Hins vegar les ég mér oft til dægradvalar endurminningar ýmsra mætra manna frá uppvexti þeirra. Við það rifjast margt upp frá uppvaxt- arárunum, sem var mér gleymt eða hálfgleymt, og mér finnst gott að minnast. Nýlega hefi ég lokið lestri á einu slíku ritverki, sem er að mínum dómi í algerum sérflokki. Mér varð að orði eftir lesturinn, að þessar bækur hefði ég viljað lesa á barnaskólaárum mínum, því að þá hefði mér orðið margt ljósara í umhverfi mínu og ég vitað betur hvílíkt undraríki það var í raun og veru. Þetta ritverk eru þrjár bækur sem Sigurður Gunnarsson frá Skógum hefur skráð og fjalla mest um fugla- og dýralíf í æskuhéraði hans, Öxarfirði. Þessar bækur hef- ur Sigurður Gunnarsson skrifað á árunum 1978-1985 eða eftir að hann lét af kennslustörfum, en jafnhliða hafði hann mörg járn önnur í eldinum, t.d. verið annar af helstu forustumönnum í Sam- tökum aldraðra, ásamt Hans Jörg- enssyni. Það hefur þó síður en svo orðið þess valdandi, að Sigurður hafi slegið slöku við endurminning- ar sínar. Fyrsta bókin heitir: Ævintýrin allt um kring, og segir einkum frá fuglalífi í Öxarfirði. Hér er ekki um neina þurra frásögn að ræða, því að Sigurður hefur valið henni það form, að láta átta ára tvíburasyst- kin leggja spurningar fyrir frænda sinn, sem svarar þeim á auðskilinn og lifandi hátt. Önnurbókin heitir: Ævintýra heimar og segir frá dýra- lífi í Oxarfirði, þarsem m.a. ísbirn- ir koma við sögu. Þriðja og síðasta bókin í þessu ritverki heitir: Lífið allt er ævintýr , og kemur þar fram hver höfundurinn er. Inn í frásagn- ir af fjölbreyttu fugla- og dýralífi á þessum norðlægu slóðum, blandar sögumaður ýmsum skemmtilegum atburðum frá æsku sinni, ásamt upprifj un ýmsra þátta úr sögu lands og þjóðar. Eitt megineinkenni þessara bóka er létt og lifandi frásögn, þar sem forðast er að vera með málaleng- er ævintýr Sigurður Gunnarsson ingar, heldur er efnið gert sem fjölbreyttast og auðveldast ungum lesendum til skemmtunar og fróð- leiksauka. Einhverjir kunna að segja, að hér sé verið að lýsa að verulegu leyti heimi, sem er að hverfa, sökum breyttrar byggðaskipunar og tæknivæðingar. Fugla- og dýra- lífið, sem bókin lýsir, heldur þó áfram, og vonandi verður þeirri skipan komið á að borgarbörn fái tækifæri til að kynnast því og fræðast um hvernig lífið var hjá afa og ömmu og öðrum forfeðrum þeirra. Lestur þessara bóka tengir les- andann við þjóðina og landið á auðskilinn og eftirminnilegan hátt. Það er því ráð mitt til kennara, sem vilja kynna fróðleiksfúsum ungum nemendum sínum merkan þátt í tengslum við landið og söguna, að hvetja þá til að lesa þessar bækur Sigurðar. Það væri vænlegt til að auka áhuga þeirra á einu mikilvæg- asta námsefninu, umhverfinu og sögunni. Lestur þeirra myndi vafalaust verða hvatning til áhugasamra nemenda um að kynna sér um- hverfi sitt og náttúrulíf líkt og frændi hefur gert og frásögn hans ber vott um. Það er hverjum hollt að gerast eigin náttúruskoðari í einni eða annarri mynd. Ég vil svo að lokum rifja það upp, sem raunar mórgum er kunnugt, að Sigurður Gunnarsson er einn af merkustu skólamönnum, sem þjóðin hefur átt. Eftir að hafa kennt við barnaskólana í Borgar- nesi og á Seyðisfirði, var hann skólastjóri barnaskólans á Húsavík í tuttugu ár, en síðan í nær önnur tuttugu ár æfinga- og kennslufræði- kennari við Kennaraskóla íslands, sem nú heitir Kennaraháskóli fslands. Á þessum árum gegndi hann fjölda trúnaðarstarfa á vegum ýmissa félagasamtaka og gerir það raunar enn, þótt kominn sé yfir sjötugsmörkin. Ótalin eru svo ritstörf hans, en hann hefur þýtt ekki færri en 54 barnabækur, sem gefnar hafa verið út, en auk þess lesið í útvarp 13 þýðingar á bókum, sem ekki hafa • verið gefnar út. Merkasti þátturinn í ritstörfum hans eru þó vafalaust bækurnar þrjár, sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni og verðskulda það að vera lesnar af uppvaxandi kynslóðum í nútíð og framtíð. Grein þessari vil ég ljúka með orðum Sigurðar sjálfs og mér finnst einkenna alla frásögn hans: Lífið 1 allt er ævintýr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.