Fréttablaðið - 14.02.2009, Side 4

Fréttablaðið - 14.02.2009, Side 4
4 14. febrúar 2009 LAUGARDAGUR Í frétt í blaði gærdagsins af broti Félags íslenskra stórkaupmanna gegn samkeppnislögum féll orðið ‚ekki‘ fyrir mistök úr setningu sem átti að vera á þessa leið: „FÍS segir þó að ásetningurinn hafi ekki verið að hindra samkeppni.“ LEIÐRÉTTING ALÞINGI Formaður viðskiptanefnd- ar Alþingis gerir ráð fyrir því að afgreiða frumvarpið um breyting- ar á yfirstjórn Seðlabankans úr nefndinni á þriðjudaginn næsta. Til stóð að gera það á mánudag, en vegna beiðni Seðlabankans um lengri frest til að skila um það umsögn er fyrirséð að það frestist um einn dag. Þetta sagði Álfheiður Inga- dóttir, formaður nefndarinnar, á fundi hennar í gær. Hú n sagði um umsögnina að nefndin ætti enn eftir að fá í hausinn „einhverja tíu síðna lang- loku frá Seðlabankanum“ sem myndi flækja málið frekar. Búist er við að umsögnin berist á mánudag. Eftir afgreiðslu úr nefndinni verð- ur málið tekið til annarrar umræðu í þinginu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi nefndinni umsögn um frumvarp- ið að fyrra bragði þar sem gerðar eru athugasemdir við ýmis atriði. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra á von á því að frumvarp- ið muni taka einhverjum breyting- um af þeim völdum. Helst mun vera til skoðunar að breyta reglum um hæfniskröfur, bæta við ákvæði um uppsagnarfyrirkomulag banka- stjóra, stytta skipunartíma og fækka fulltrúum Seðlabankans í svokallaðri peningastefnunefnd. Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, segir umsögn AGS kalla á að frum- varpið verði unnið aftur frá grunni. „Mér finnst augljóst að AGS er að gera athugasemdir við öll megin- atriðin í frumvarpi forsætisráð- herra,“ segir hann. Nauðsynlegt sé að taka mark á ábendingum sjóðsins í ljósi sérfræðiþekkingar hans. „Þetta er bara vitleysa,“ segir Lúðvík Bergvinsson, fulltrúi Sam- fylkingar, um þá skoðun Birgis að vinna þurfi frumvarpið upp á nýtt. „Stjórnarandstaðan er bara að reyna að beita einhverri tækni til að tefja málið. Hún hefur svo sem rétt á því og við virðum það,“ segir Lúðvík. Að sögn Lúðvíks þarf viðskipta- nefnd alls ekki að hlíta ábendingum AGS um breytingar á frumvarpinu frekar en nefndarmenn vilja. „Nei, nei, þetta er nú ekki svo stórt mál,“ segir hann. stigur@frettabladid.is Seðlabankafrumvarp úr nefnd á þriðjudag Til stendur að afgreiða Seðlabankafrumvarpið úr viðskiptanefnd á þriðjudag. Seðlabankinn tefur málið með því að heimta lengri frest til umsagnar. Umsögn AGS kallar á algera endurskoðun frumvarpsins, segir fulltrúi Sjálfstæðisflokks. LÚÐVÍK BERGVINSSON BIRGIR ÁRMANNSSON Seðlabankinn fór fram á það við viðskiptanefnd Alþingis að fá þrjár vikur til að veita umsögn um frumvarpið í stað þeirra tveggja daga sem viðskiptanefnd hafði veitt umsagnaraðilum. Enginn annar umsagnaraðili fór fram á lengri frest. Segir í bréfi Seðlabankans til nefndarinnar að tveggja daga frest- urinn sé óraunhæfur „ef undirbúa á eðlilega og faglega umsögn innan bankans“ og að í ljósi mikilvægis málsins óski bankinn eftir því að meginreglunni um allt að þriggja vikna frest til umsagnar verði fylgt. Viðskiptanefnd kallaði fulltrúa Seðlabankans á sinn fund í gær og óskaði eftir því að bankinn skilaði umsögn sinni fyrir fund nefndarinn- ar næsta þriðjudag. SEÐLABANKINN VILDI TÍFALDAN FREST ■ Skýrt ætti að vera kveðið á um það hvenær seðlabankastjóri er óhæfur eða við hvaða aðstæður hægt er að víkja honum frá. ■ Öllu jafna eru hæfniskröfur til bankastjóra ekki tiltekin menntun, heldur „viðurkennd þekking eða reynsla“. ■ Yfirleitt nýtur seðlabankastjóri aðstoðar eins eða tveggja aðstoðar- bankastjóra. ■ Skipunartími nefndarmanna í peningastefnunefnd er yfirleitt ekki skemmri en skipunartími þeirra sem þá skipa. ■ Gott gæti verið að skilgreina frek- ar hvernig fulltrúar Seðlabankans í peningastefnunefndinni eru valdir. ■ Skýrt ætti að kveða á um hæfnis- kröfur utanaðkomandi nefndar- manna í peninganefnd til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. AGS gerir einnig fjölda athuga- semda við núgildandi löggjöf um Seðlabankann. ÁBENDINGAR AGS UM FRUMVARPIÐ ÍSRAEL Enn ríkir óvissa um stjórnarmyndun í Ísrael. Ísra- elski herinn gerði hins vegar árás á Khan Younis á Gasasvæð- inu í gær, felldi þar einn mann og særði annan. Palestínumenn höfðu skotið nokkrum sprengjuflaugum yfir landamærin, án þess þó að valda manntjóni. Ísraelska dagblaðið Haaretz hafði eftir háttsettum félaga í Kadima-flokknum að svo gæti farið að Kadima gengi í stjórn undir forystu Benjamins Netany- ahu og Likud-flokksins. Kadima muni þó gera kröfu til þess að Tzipi Livni verði áfram utanríkisráðherra. - gb Óvissa um stjórnarmyndun: Loftárásir á Gasasvæðið FÁNABRENNA Á VESTURBAKKANUM Palestínskur mótmælandi fylgist með þegar ísraelski fáninn brennur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SIMBABVE, AP Roy Bennett, hátt- settur félagi í flokki Morgans Tsvangirai, var handtekinn í gær, stuttu áður en ráðherrar í nýrri ríkis- stjórn Tsvang- irais sóru emb- ættiseiða sína. Bennett átti að verða einn af aðstoðarráð- herrum stjórn- arinnar. Tsvangirai sór embættis- eið sinn sem forsætisráðherra á miðvikudag. Samkvæmt samkomulagi hans við andstæðing sinn, Robert Mugabe forseta, skipta flokkar þeirra með sér ráðherraembætt- um, þannig að hvor flokkur er með fimmtán ráðherra. Mugabe hugðist í gær einnig láta sjö aðstoðarráðherra úr sínum flokki sverja embættis- eiða, en samkomulagið hafði ekki gert ráð fyrir því. - gb Ráðherrar sverja eiða: Ráðherraefni sett í fangelsi MORGAN TSVANGIRAI Víggirðing fellur „Það er tákn um nýja tíma að girðing sem lokað hefur gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli er nú að falla. Girðingarnetið hefur verið fjarlægt á stórum kafla og nú standa bara staur- arnir eftir,“ segir á heimasíðu Kadeco, félagsins sem annast breytingu varnarsvæðisins við Keflavíkurflugvöll til borgaralegra nota. SKIPULAGSMÁL Styrkir til ferðaþjónustu 100 milljónum af byggðaáætlun 2006-2009 verður veitt til að styrkja uppbyggingu ferðaþjónustu á lands- byggðinni. Styrkirnir skiptast í tvo flokka, móttökuaðstöðu í höfnum fyrir farþega skemmtiferðaskipa og nýsköpun í ferðaþjónustu. Umsóknir skulu hafa borist til Ferðamálastofu, Akureyri, 6. mars. LANDSBYGGÐ VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 18° 5° 3° 1° 1° 5° 1° -3° 1° 1° 18° 5° 9° 26° -5° 4° 7° -2°Á MORGUN Allhvasst eða hvasst sunnan og vestan til með morgninum SUNNUDAGUR 3-8 m/s 4 4 2 3 0 1 1 6 3 5 -1 5 5 3 1 1 3 4 3 5 1 3 6 2 1 3 5 5 5 4 3 3 HÆGLÆTISVEÐUR Þær eru fínar veðurhorf- ur dagsins. Hæglætis- veður, hiti um og yfi r frostmarki og úrkomu- lítið, síst þó reyndar suðvestanlands. Á morgun kemur ný lægð upp að landinu með hlýindi og vætu og má búast við rigningu og súld sunnan og vestan til en hætt við að úrkoman verði slyddu- kenndari á landinu norðan og austanverðu, einkum til landsins. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur SKIPULAGSMÁL Júlíus Vífill Ingv- arsson, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, segir að ýmsar hug- myndir hafi verið ræddar við Austurhöfn, sem stendur að fram- kvæmdunum við Tónlistarhúsið, um það hvernig spara megi við framkvæmdirnar. Þeirra á meðal sé sú hugmynd að sleppa gesta- herbergjum eða viðhafnaraðstöðu fyrir heldri gesti. „Það er verið að skoða ýmislegt í þessum tilgangi en auðvitað er ekki verið að gjör- bylta neinu en líklega verða þessi herbergi ekki,“ segir hann. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra segir að ríki og borg muni í næstu viku gefa frá sér sameiginlega fréttatilkynningu þar sem greint verður frá því hve- nær hafist verður handa að nýju en framkvæmdir hafa legið niðri frá því fyrir áramót. Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingar, gagnrýndi meirihlutann í Fréttablaðinu í gær fyrir að taka ekki ákvörðun um málið á borgarráðsfundi á þriðju- dag en kalla þarf til aukafund- ar þar sem málið verður afgreitt af hálfu borgarinnar. Júlíus Víf- ill hefur nokkuð út á þann mál- flutning að setja. „Hann sagðist ekki vita hvort það hefði verið vegna ákvörðunarkvíða hjá okkur í meirihlutanum,“ segir hann. „Staðreyndin er sú að það var ekki síst að kröfu flokkssystkina hans að ákveðið var að ganga ekki frá málinu á þessum fundi.“ - jse Ríki og borg greina frá ákvörðun sinni um Tónlistarhús í næstu viku: Gestaherbergin líklega út TÖLVUMYND AF TÓNLISTARHÚSINU Niðurskurðarhnífurinn mun aðeins skafa af upphaflegum hugmyndum. STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Kolbrúnar Hall- dórsdóttur umhverfisráðherra um að fullgilda Árósasamning- inn. Hann fjallar meðal ann- ars um réttláta málsmeðferð í umhverfismálum. Ísland undirritaði samning- inn í Árósum árið 1998. Fjöru- tíu og eitt ríki, auk Evrópusam- bandsins, hafa fullgilt hann, þar með talið öll norrænu ríkin utan Íslands. Samningurinn fjall- ar meðal annars um kærurétt og geta aðildarríki valið hvort ákvarðanir um útgáfu leyfa verði lagðar fyrir úrskurðarnefndir eða fyrir almenna dómstóla. - kóp Kolbrún Halldórsdóttir: Fullgilda Árósa- samninginn GENGIÐ 13.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 182,8536 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,41 114,95 166,26 167,06 147,49 148,31 19,789 19,905 16,768 16,866 13,694 13,774 1,2482 1,2556 170,69 171,71 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.