Fréttablaðið - 14.02.2009, Page 8
8 14. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
ERLENTP ÓFKJÖR
FRAMSÓKNARFLOKKUR
Einar Skúlason
býður sig fram í
fyrsta sæti Fram-
sóknarflokksins í
Reykjavíkurkjör-
dæmi suður.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
Ólöf Nordal hefur
ákveðið að taka
þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir býður sig
fram í annað sæti í
prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suður-
kjördæmi.
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra rannsakar nú
sölu á fjórum Dornier-skrúfuþot-
um úr þrotabúi íslenska eignar-
haldsfélagsins City Star Airlines
ehf. Flugvélarnar voru seldar
þýsku flugrekstrarfélagi, sem er
hluti af Lufthansa-samstæðunni.
Tvær umræddra véla voru í eigu
City Star Airlines en tvö rekstrar-
leigufyrirtæki áttu sitt hvora
hinna vélanna. Áætluð samanlögð
verðmæti vélanna fjögurra voru
talin allt að tíu til tólf milljónir
dollara, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins.
Hluthafar í City Star Airlines
voru hátt í níutíu talsins, bæði
félög og einstaklingar. Þeir voru
langflestir íslenskir en um tíu pró-
sent þeirra voru erlendir.
Félagið hóf rekstur með því að
yfirtaka innanlandsflug Íslands-
flugs síðla árs 2004, í kjölfar sam-
einingar Air Atlanta og Íslands-
flugs. Það hóf áætlunarflug frá
Aberdeen í Skotlandi í lok mars
2005. Það rak þá fjórar vélar. Fljót-
lega vatt reksturinn upp á sig og
níu flugvélar voru í rekstri félags-
ins. Það hafði lagt drög að kaupum
á þremur vélum til viðbótar þegar
keyrt var á eina af vélum þess á
Aberdeenflugvelli 25. nóvember
2006. Vélin stórskemmdist og í
kjölfarið fór að halla undir fæti í
rekstrinum. Félagið fór svo á hlið-
ina og er nú í gjaldþrotameðferð.
Það var Gunnar Þórarinsson
stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins City Star Airlines sem
kærði Atla Georg Árnason fyrr-
verandi stjórnarformann þess,
Rúnar Árnason fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra og einn til viðbótar;
fyrrum stjórnarformann félags-
ins. Þeir Atli Georg og Rúnar
voru meðal stofnenda, ásamt
fleiri athafnamönnum, meðal
annars í Grindavík. Gunnar kom
inn í reksturinn á síðari stigum.
Kæra hans varðaði meint fjársvik
og fjárdrátt í sambandi við sölu
og kaup fjögurra flugvéla, svo og
ólöglega meðferð fjármuna félags-
ins. Grunur leiki á að við sölu flug-
véla eignarhaldsfélagsins hafi
söluverð verið óeðlilega lágt miðað
við verðmæti. Efnahagsbrotadeild
hefur kallað eftir kaupsamningum
og fleiri gögnum. Málið er í dóm-
stólaferli.
Ekki náðist í Gunnar við vinnslu
fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir. Atli Georg kvaðst ekki
vilja tjá sig um málið á þessu stigi
að öðru leyti en því að Gunnar hafi
kært á eigin forsendum sem hlut-
hafi, þvert á vilja sitjandi stjórnar.
jss@frettabladid.is
Kærir sölu fjögurra
flugvéla úr þrotabúi
Stjórnarformaður íslenska eignarhaldsfélagsins City Star Airlines hefur kært til
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra sölu fjögurra flugvéla úr þrotabúi fé-
lagsins. Lögreglan hefur leitað til dómstóla til að fá kaupsamningana afhenta.
DORNIER-328 SKRÚFUÞOTA Ein af vélum City Star Airlines meðan reksturinn var í
blóma. Á þeim tíma rak félagið samtals níu flugvélar.
FÉLAGSMÁL Ekki hefur orðið
fjölgun á nauðungaruppboðum
á fasteignum hjá Sýslumannin-
um í Reykjavík. Í janúar voru 6
fasteignir seldar á nauðungar-
uppboði hjá embættinu. Skráðar
nauðungarsölubeiðnir vegna fast-
eigna voru 216.
Árið 2008 var 161 fasteign seld
nauðungarsölu í Reykjavík, en
nauðungarsölubeiðnir voru 2.227.
Það var fjölgun frá því árið 2007,
þegar 137 fasteignir voru boðnar
upp. Fjöldi beiðna 2007 var hins
vegar 2.482. Árið 2006 voru mun
færri eignir seldar, eða 91.
Alls komu 134 beiðnir um nauð-
ungarsölu bifreiða nú í janúar. Í
fyrra var 491 bifreið seld á upp-
boði hjá embættinu. - kóp
Sýslumaðurinn í Reykjavík:
Nauðungarsöl-
um fjölgar ekki
ATVINNUMÁL Slysið sem varð í
Akraneshöfn á sunnudag, þegar
tveir menn urðu fyrir súrefnis-
skorti af völdum rotnunargass frá
gulldeplufarmi, kallar á það að
gerðar verði sérstakar öryggis-
ráðstafanir, að mati Vinnueftir-
litsins.
Segir í tilkynningu frá eftirlit-
inu að veruleg slysahætta sé fyrir
hendi í lestum skipa, hráefnis-
geymum og -þróm þegar hrá-
efni sé farið að rotna. Þá myndist
hættulegar lofttegundir og súr-
efnisskortur geti orðið. Því þurfi
að tryggja að allir starfsmenn
sem vinna við slíkar aðstæður
séu upplýstir um hættuna. - sh
Ráðstafanir vegna slyss:
Allir þurfa að
vera upplýstir
AKUREYRI „Við vildum gera eitt-
hvað til að létta móralinn í þjóðfé-
laginu sem var orðinn mjög þung-
ur,“ segir Bryndís Óskarsdóttir
hönnunar- og viðskiptastjóri hjá
Stíl auglýsingastofu á Akureyri en
Bryndís er forsvarsmaður átaks-
ins Brostu með hjartanu.
Markmið átaksins er að sögn
Bryndísar að smita jákvæðni og
bjartsýni og fá fólk til að gera eitt-
hvað skemmtilegt. Grunnskólabörn
tóku þátt í verkefninu með því að
skrifa fallega texta á hjörtu sem
var dreift til fyrirtækja í bænum
auk þess sem Rafeyri, Becromal
og Norðurorka komu upp stóru
lýsandi hjarta í Vaðlaheiði.
„Viðbrögðin voru dásamleg.
Krakkarnir vildu ólm taka þátt og
höfðu gaman af því að geta smit-
að gleði og jákvæðni frá sér og við
gáfum svo hjörtun til þeirra fyrir-
tækja sem vildu vera með,“ segir
Bryndís. Hún segist ekki viss um
að álíka átak hefði fengið jafn góð
viðbrögð fyrir bankahrunið.
„Við erum eitthvað svo mátt-
vana gagnvart þessu öllu saman
og finnst við lítið geta gert. Ef við
getum glatt einhverja með falleg-
um orðum og minnt þannig á hvað
við höfum það í rauninni gott og
hvað við búum í dásamlegum bæ
þá léttir það aðeins lundina.”
Borgarbúar munu eflaust taka
eftir hjörtunum á næstum dögum
en ætlunin er að dreifa áfram þess-
um jákvæða boðskap. - iáh
Efnt til átaks til að létta móralinn í þjóðfélaginu og létta lund fólks:
Dreifa bjartsýni og jákvæðni
HJARTA Hjörtun í bænum eiga að hlýja
fólki um hjartaræturnar og kosta ekki
mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/INDÍANA
1. Hver er ritstjóri Lögreglu-
blaðsins?
2. Hvað seldi MS mikið af skyri
til Bandaríkjanna í fyrra?
3. Hvað heitir tónlistarmaður-
inn 7oi fullu nafni?
STJÓRNMÁL Evrópunefnd Sjálf-
stæðisflokksins er enn að störf-
um og vinnur að skýrslu sem lögð
verður fyrir landsfund flokksins.
Kristján Þór Júlíusson, sem leiðir
starf nefndar-
innar ásamt
Árna Sigfús-
syni, segir til-
lögu að máls-
meðferð verða
lagða fram á
fundinum.
„Ég held að
þetta verði
samt ekki sama
stóra málið
og stefndi í, einfaldlega vegna
þess hvernig ákvæði minnihluta-
stjórnarinnar gagnvart Evrópu
eru. Sjálfstæðisflokkurinn mun
ræða þessi mál eins og hann gerir
alltaf á landsfundum. Kristján
segir enn óákveðið hvort hann
gefi kost á sér sem formaður. - kóp
Evrópunefnd að störfum:
Skilar skýrslu
fyrir landsfund
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
ALÞINGI Birkir Jón Jónsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins,
vill skoða möguleikann á að
sparisjóðirn-
ir eignist ein-
hvern ríkis-
bankanna
þriggja, Nýja
Glitni, Nýja
Landsbank-
ann (NBI), eða
Nýja Kaup-
þing.
Í umræðum
um efnahagsmál sem fram fóru
á Alþingi í fyrradag sagði Birk-
ir Jón vera óþarfa fyrir ríkið að
standa í rekstri þriggja banka.
Taldi hann að tveir bankar væru
nóg.
Hann sagði að vel myndi fara
á því að „sparisjóðafjölskyldan“
tæki yfir rekstur eins bankanna
enda hefðu sparisjóðirnir sýnt
og sannað gildi sitt á umliðnum
árum. - bþs
Birkir Jón Jónsson:
Sparisjóðirnir
eignist banka
BIRKIR J. JÓNSSON
VEISTU SVARIÐ?