Fréttablaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 28
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is Flug til Kaupmannahafnar gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta. Vildarklúbbur Reykjavík – Kaupmannahöfn frá 14.900 kr. Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er allt að 4 sinnum á dag. MÍN Miðbærinn Hoopers – Uppáhaldskaffihúsið okkar. Góðir réttir í hádeginu, geggjað stórt „nachos“ sem er gaman fá sér með vinum + bjór. Á kvöldin um helgar er tveir fyrir einn á kokeilbarnum. Góður staður til að fá sér hressingu í rólegu en „töff“ andrúmslofti. Heidi´s – Bar í hliðargötu við Strikið. Andrúmsloftið og umgjörðin eiga að minna á Týról og Alpana. Þjónustu- stúlkurnar í þýskum „Oktoberfest“ búningum. Stór bjór á 40 DKK en oftast góð tónlist og frábær stemning hvort sem maður vill sitja við borð eða dansa á fullu. Papas – Mexíkóskur, ódýr staður. Ágæt stemmning og góður matur. Christianshavn Þarna er gaman að rölta um og skoða falleg hús og notaleg hverfi. Hef brugðið mér í skoðunarsiglingu um Christianshavn kanal; skemmtileg tilbreyting að sjá Kaupmannahöfn frá nýju sjónarhorni. Eiffelbar – Lítill, ódýr og skemmti- legur staður í Christianshavn, innréttaður í frönskum stíl. Flöskubjór kostar 16 DKK eftir kl. 17:00 og þar er reykt inni. Norðurbrú Sankt Hans Torv, rétt hjá Nørregade, er skemmtilegt svæði á Norðurbrú þar sem er hellingur af börum, veitingastöðum og kaffihúsum. Kvöldið á Sankt Hans Torv byrjum við með upphitun á Mexibar, kíkjum síðan á Quattro Fontane og endum á nokkrum „öllurum“ á Laundromat! Mexibar – Frábær, ódýr kokteilbar með mexíkósku þema. Lítill staður og alltaf troðinn en samt tekst manni oftast að fá sæti. Bestu „frozen strawberry daiquiri“ í N-Evrópu. Kokteilar á um 35–40 DKK. Uppáhaldsstaðurinn okkar! Það er „happy hour“ á milli kl. 19:00–23:00 og þá er kostar tvöfaldur sama og einfaldur. Allir ánægðir. Quattro Fontane – Ódýr, ítalskur veitingastaður. Góðar pizzur á sanngjörnu verði. Rust – Næturklúbbur, bar og tónleikastaður á nokkrum hæðum á Norðurbrú. Útivist, garðar og afþreying Ég mæli með Frederiksberg Have sem er stór garður í Frederiksberg. Það tekur um 10 mín. að hjóla þangað frá miðbænum. Þar er líka Dýragarðurinn í Kaupmannahöfn. Gaman er að fara í lautarferð í Frederiksberg Have í góðu veðri, mikið mannlíf, fólk að hlaupa, hjóla, viðra hundana sína eða sjálft sig. Í garðinum er flott höll, Frederiksberg Slot, sem gerir garðinn enn meira sjarmerandi. Amager Strandpark Nauthólsvík Hafnarbúa var nýlega gerð upp. Þarna er troðið af fólki í góðu veðri en líka ágætt að fara í garðinn á veturna ef veðrið er ekki alveg vonlaust. Neðanjarðarstöð við hliðina og stutt að hjóla frá miðbæn- um, eitthvað um 15 mín. Dyrehave – Ég hef stundum farið að hlaupa í Dyrehave. Þetta var einkagarður og einkaveiðisvæði kóngafólksins í gamla daga. Enn er þar mikið af hjartardýrum, sem ganga „villt“ og á rölti um garðinn er maður alltaf að mæta spökum dádýrum. Við hliðina á Dyrehave er Dyrehavsbakk- en eða Bakken, skemmtigarðurinn vinsæli þar sem hægt er að hrista úr sér skógarstemninguna í ótal tívolítækjum. Tívolí – Alltaf klassískt og alltaf gaman að fara í Tívolí, um jólin, á hrekkjavöku (kvöldið fyrir Allra heil- agra messu) eða á sumrin. Hellingur af afþreyingu og nóg af veitinga- stöðum. Á sumrin eru oft „þekktir” tónlistarmenn með tónleika í Tívolí. FCK – Aðalklúbburinn í Köben. Gaman að sjá alvöru handknattleik á veturna þar sem Arnór Atla er í fararbroddi. Istedgade Borgaryfirvöld segjast vera búin að hreinsa mikið til við þessa götu sem var alræmd þegar danska klámbylgjan reis sem hæst á árum áður. Enn má þó samt finna einhverjar leifar frá gamla tímanum. Það á ekki við um efri hlutann af Istedgade, nær járnbrautar- stöðinni, þar sem allt er í sómanum. Þar er gatan bæði snyrtileg og skemmtileg. Mikið af „töff“ kaffi- húsum, börum og verslunum. Jolene – Barinn þeirra Dóru Dúnu og Dóru Takefusa á „kjötmarkaðnum”, kjötiðnaðarsvæði við hliðargötu út frá Istedgade. Þetta er „spes“ bar. Hann er innréttaður eins og Takefusa hafi farið í „Góða hirðinn“ og fengið öll húsgögnin þaðan — engir tveir stólar eins, og húsgögnin ekki yngri en 25 ára. Mjög mismunandi andrúmsloft þarna inni, annaðhvort góð stemmn- ing eða hræðileg. Íslendingar hittast þarna oft. Karriere – Bar við hliðina á Jolene. Gott að kíkja þangað líka ef maður er á Jolene. Ritz – Ódýr skemmtistaður í „minimum-stíl“ við hornið á Istegade og Viktoríugötu. Oftast fullt hús, snúðurinn spilar elektrótónlist og drykkirnir bornir fram í plastglösum. Ekkert snobb hérna. KÖB Flug og gisting í 2 nætur frá 47.900 kr. á mann í tvíbýli á Dgi-byen *** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Geranium Veitingastaðurinn Geranium er ekki aðeins talinn á meðal bestu „lífrænu“ matsölustaðanna í Kaupmannahöfn heldur er hann líka á fallegum stað í Kongens Have, garðinum við Rosenborgarhöll. BioM Þetta er lítill veitingastaður á Austurbrú. Jafnvel málningin á veggjunum er úr náttúruvænum efnum. Á matseðlinum eru léttir réttir eins og salöt og samlokur en einnig eru í boði seðjandi aðalréttir, súpur og eftirréttir. Cap Horn Í Nýhöfninni er einn af fyrstu „lífrænu“ matsölustöðunum í Kaupmannahöfn. Á sumrin er hægt að sötra „lífrænan“ bjór eða borða máltíðina úti á stórri verönd og virða á meðan fyrir sér gömlu viðarfleyturnar á Nýhafnarsíkinu. Café Chill Out Café Chill Out er á Friðriksbergi og „lífræna“ kaffið sem þar er á boðstólum er svo sannarlega peninganna virði. Isværket Ný, „lífræn“ ísbúð var opnuð á Norðurbrú í maí 2008. Ísinn er fluttur inn frá ísverksmiðju Thorkils Boisens á Borgundarhólmi og öll framleiðslan er „lífræn“. Boisen-ís hefur unnið til ýmissa viðurkenninga í Danmörku. Huks Fluks Þessi notalegi veitingastaður er sólarmegin við Grábræðratorg. Chr. 4's Køkken Ef fólk langar að fá sér hefðbundinn danskan málsverð í hádeginu, smurt brauð, snafs og öl, er Eldhús Kristjáns IV. kjörinn staður. „LÍFRÆNIR“ VEITINGA- STAÐIR Í KAUPMANNA- HÖFN Gourmandiet Gourmandiet opnaði lostætis- og kjötbúð á Austurbrú sumarið 2007. Hægt er að kaupa bragðgóða rétti og eftirrétti til þess að taka með sér eða snæða á á MadBar (matarbarnum) sem er bakatil í búðinni. Løgismose Sælkerabúð sem býður gott úrval af vínum, ostum, ísum og súkkulaðið margrómaða „Summerbird“. Meyers Deli Danski sjónvarpskokkurinn og matgæðingurinn Claus Meyer opnaði Meyers Deli árið 2005. Þetta er sambland af íburðarlausum matsölustað, sælkera- verslun, kaffibar og matsölu með rétti sem hægt er að taka með sér. Emmerys Hér má fá bragðgóð brauð og kökur úr „lífrænu“ hráefni, te af öllum gerðum, súkkulaði, vín, olíur, hrísgrjón, pasta og fleira þess háttar. Í tengslum við Emmerysbúðina í Hellerup er veitingastaður þar sem eru bornir fram heitir réttir. Verde Food & Coffee Þetta er sælkeraverslun sem var nýlega opnuð við Nørre Farimagsgade þar sem „lífrænt“ vottuð vara skipar öndvegi, kaffi, salöt og samlokur. Þarna er tilvalið að gæða sér á nýpressuðum ávaxtasafa eða ískaffi. Klovnbarinn Vinstue 90, Gammel Kongevej 90 Dönsku háðfuglarnir í Klovn hafa skemmt mörgum Íslendingnum í sjónvarpi og hafa reyndar fullyrt sjálfir að þeir eigi Íslendingum „heimsfrægðina“ að þakka. Það er því ekki úr vegi að benda á eina af kránum sem koma allnokkuð við sögu í sjónvarpsþáttunum, Vinstue 90 við Gammel Kongevej. 01 02 07 03 04 05 06 08 09 10 11 12 13 Hjalti Rafn Gunnarsson, námsmaður í Köben
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.