Fréttablaðið - 14.02.2009, Side 36
Tónskóli Sigursveins D. Kristins-
sonar heldur miðsvetrarhátíð
sem stendur til 18. febrúar.
„Við brjótum upp skólastarfið í
eina viku, byrjuðum á fimmtu-
dag og endum á miðvikudaginn
kemur,“ segir Sigursveinn Magn-
ússon, skólastjóri Tónskóla Sig-
ursveins. „Þá er ekki hefðbundin
kennsla heldur spila krakkarn-
ir fyrir hver annan,“ segir Sigur-
sveinn en tvennir stuttir tónleikar
verða á hverjum degi.
Slík miðsvetrarhátíð hefur verið
haldin í nokkur ár og ávallt mælst
vel fyrir. Hver hátíð hefur sitt stef,
í fyrra voru það íslensk þjóðlög en
í ár er það dans og barokk.
„Þetta er mjög vinsælt og for-
eldrar eru ótrúlega duglegir að
mæta,“ segir Sigursveinn en skól-
inn setur það markmið að allir
nemendur hans komi fram í þess-
ari viku. Það er ekki lítið afrek
enda eru nemendurnir um 550
talsins.
„Við reynum að gefa hverjum
tækifæri við sitt hæfi. Yngstu
nemendurnir koma fram í hópum
en þeir eldri einir eða í litlum
grúppum,“ segir Sigursveinn.
Nánari upplýsingar um tónleika
er að finna á www.tonskolinn.com
- sg
Dans og barokk
Allir 550 nemendur Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar koma fram á tónleikum á
miðsvetrarhátíðinni sem stendur fram á miðvikudag.
Gestir eru beðnir um aðstoð við
að finna út hvert myndefnið er á
ljósmyndum á sýningu í Minja-
safninu á Akureyri.
Á Minjasafninu á Akureyri verður
opnuð í dag sýning á 80 óþekktum
ljósmyndum úr eigu safnsins undir
yfirskriftinni Þekkir þú … áning-
arstaðinn? en óskað er eftir aðstoð
sýningargesta við að koma nafni
á áningarstaðina sem og andlit
þeirra sem þar áðu.
Á sýningunni má meðal annars
finna nokkrar litmyndir sem tald-
ar eru meðal þeirra elstu á landinu
auk þess sem hluti myndanna er úr
eigu Ferðafélags Akureyrar.
Sýningin er opin frá klukkan 14
til 16 allar helgar til 15. mars. - eö
Óþekktar
ljósmyndir
Þekkir þú … áningarstaðinn?
TANGÓMARAÞON verður haldið í Leikhúskjallaranum við
Hverfisgötu frá klukkan 11 til 3 svo dansinn dunar fram á nótt.
Sérstakur kvöldverður að hætti Sigga Hall verður í tilefni af Valent-
ínusardegi og er hægt að panta borð í síma 585 1295.
Hornfirskir áhugaljósmyndarar
opna sýningu í Pakkhúsinu á
Hornafirði í dag.
„Við ákváðum að auglýsa eftir
áhugasömum ljósmyndurum til
að búa til sýningu,“ segir Guðlaug
Pétursdóttir hjá Menningarmið-
stöð Hornafjarðar. Þar verður í dag
opnuð sýning á 340 ljósmyndum 39
áhugaljósmyndara.
Sendar voru inn yfir 500 mynd-
ir en Sigurður Mar ljósmyndari
var fenginn til að velja 27 myndir
sem settar voru í ramma. Yfir 300
myndum verður síðan varpað upp
á vegg af skjávarpa. „Þar eru þær
flokkaðar niður í þrjá flokka, mann-
líf, landslag og ýmislegt,“ útskýrir
Guðlaug.
Sýningin fer fram í Pakkhúsinu
sem er eitt af elstu húsum Hafnar
og var byggt laust eftir 1930. Pakk-
húsið var gert upp og opnað sum-
arið 1997 af forseta Íslands sem
sjóminjasafn með sýninga- og veit-
ingaaðstöðu.
Sýningin stendur yfir í þrjár
vikur. Opið verður um helgar og
einu sinni í viku að kvöldi.
„Við ætlum að reyna upp úr þessu
að virkja áhugaljósmyndara á svæð-
inu og stofna félag,“ segir Guðlaug
og segir hugmyndir uppi um að búa
til sölusíðu enda margir á svæðinu
með áhuga á ljósmyndun.
Myndin sem fylgir er eftir 17 ára
Hornafjarðarmær, Þórgunni Þórs-
dóttur. - sg
Myndir frá
Hornafirði
Falleg mynd eftir Þórgunni Þórsdóttur.
Langar þig að breyta mataræðinu til batnaðar
en veist ekki hvar þú átt að byrja?
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti D.E.T.
leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt það
er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
• Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum!
• Hvernig verðum við okkur úti um rétt næringarefni
• Hvernig við getum öðlast meiri orku og vellíðan
Þriðjudaginn 24. febrúar kl: 20 - 22 í Heilsuhúsinu í Lágmúla.
Mánudaginn 2. mars kl: 20 - 22 í Heilsuhúsinu á Akureyri.
Upplýsingar og skráning í síma: 899 5020 eða á eig@heima.is
Verð pr. mann: 3.500 kr.
Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?
Ebba Guðný kennir hvernig má búa til hollan og góðan
mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Meðal annars er farið
yfir á hvaða fæðutegundum er gott að byrja og hvenær.
Námskeiðið nýtist einnig vel þeim sem eru með eldri
börn. Nýjar uppskriftir fylgja með námskeiðinu og
verða nokkrir réttir og drykkir útbúnir á staðnum
og allir fá að smakka. Þeim sem sækja námskeiðið
býðst auk þess að kaupa bókina Hvað á ég að
gefa barninu mínu að borða? með 10% afslætti.
Þriðjudaginn 17. febrúar kl: 20 - 22 í Heilsuhúsinu í Lágmúla.
Upplýsingar og skráning fer fram í síma 694 6386 og á netfanginu
ebbagudny@mac.com. Verð pr. mann: 3.500 kr.
Hentugt, Hagkvæmt, Hollt og Gott!
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur með
meiru heldur matreiðslunámskeið í Heilsuhúsinu. Auður
mun sýna fram á hversu einfalt, fljótlegt og budduvænt
það er að útbúa gómsæta rétti úr heilsusamlegu hráefni.
Fimmtudaginn 26. febrúar kl: 19 - 21:30
í Heilsuhúsinu í Lágmúla.
Upplýsingar og skráning í síma 865 5576 eða á
heilsukokkur@gmail.com. Verð pr mann: 5.200 kr.
Innifalið er uppskriftamappa og sitthvað gott að smakka fyrir alla.
TILBOÐ 2 PÖR AF
LEÐURHÖNSKUM
4.590 KR.
YFIR 60 LITIR