Fréttablaðið - 14.02.2009, Síða 37
LAUGARDAGUR 14. febrúar 2009 3
Um helgina geta safngestir
Bókasafnsins í Vestmannaeyj-
um fengið að láni poka með
rómantískum bókum.
„Við ætlum í tilefni Valentínus-
ardagsins að bjóða upp á ástar-
poka. Þá setjum við í pokana
tvær til þrjár bækur sem fólk
getur tekið með sér en það fær
ekki að vita hvaða bækur fyrr
en heim er komið,“ segir Kári
Bjarnason forstöðumaður Bóka-
safnsins í Vestmannaeyjum.
Þetta er í fyrsta sinn sem
boðið er upp á slíka ástarpoka í
Eyjum en Kári fékk hugmynd-
ina í fyrra þegar hann var
staddur á Valentínusardaginn
í dönsku bókasafni. „Þá fannst
mér vanta að draga fram þenn-
an dag á safninu.“
Bækurnar í pokunum eru af
ýmsum toga en alls ekki bara
Rauða serían. „Ástarbækur eru
til í svo mörgum litbrigðum,“
segir Kári en í pokunum geta
verið ljóðabækur og ástarsög-
ur og allt þar á milli. - sg
Ást í poka
Kári ætlar að bjóða Vestmannaeying-
um upp á ástarsögur og ljóð í poka
um helgina.
Hollenski mannspekilæknirinn
Aart van der Stel mun leiða kynn-
ingarnámskeið sem ber yfirskrift-
ina Nútímasjúkdómar á Sólheim-
um í Grímsnesi um helgina en
þar kynnir hann megináherslur í
mannspekilækningum (Anthrop-
osophical Medicine).
Á námskeiðinu verða tengsl
nútímasjúkdóma við líðan og lifn-
aðarhætti skoðuð og farið dýpra í
sjúkdóma eins og ofnæmi, offitu,
streitu og óútskýrða meltingar-
sjúkdóma. „Við reynum að svara
spurningum eins og hvers vegna
við verðum veik, hverjar hætturn-
ar séu, hvaða innri og ytri þætt-
ir hafi áhrif og hvað manneskjan
getur gert,“ segir Aart sem kemur
til Íslands nokkrum sinnum á ári
og heldur námskeið og fyrirlestra
ásamt því sem hann starfar sem
skólalæknir í Waldorfsskólanum
í Lækjarbotnum. Hann er læknir
að mennt en mannspekilæknir að
auki. Slíkar lækningar eru ávallt
framlenging á hefðbundnum lækn-
ingum og koma ekki í staðinn fyrir
þær. Í mannspekilækningum er
lögð áhersla á heildræna meðferð.
Sjónum er þá ekki eingöngu beint
að því að meðhöndla sjúkdóma
heldur manneskjuna alla.
„Það hafa á öllum tímum verið til
svokallaðir nútímasjúkdómar sem
fólk hefur ekki kunnað skýringar á
en síðar fundið orsök og lækningu
við,“ segir Aart. „Við erum meira
að velta því fyrir okkur hvað sjúk-
dómar séu og hvers vegna fólk fær
ákveðnar tegundir. Eitt af lykilorð-
um mannspekinnar er myndun eða
þróun. Ég trúi því að sumu fólki
sé ætlað að þróa með sér ákveðna
sjúkdóma sem svo leiða til þess að
það breytir lífi sínu. Fólk ætti auð-
vitað að forðast það að fá hættu-
lega sjúkdóma en þegar þeir eru
til staðar getur það litið á þá sem
tækifæri til að gera breytingar og
verða betri manneskjur.
Aart segir að vitaskuld séu not-
aðar hefðbundnar lækningar til
að meðhöndla alvarlega sjúkdóma
en að mannspekilækningar bæti
ýmsu við. „Meðferðin þarf ekki
alltaf að snúast um að fjarlægja
sjúkdóminn, þó að það sé auðvit-
að nauðsynlegt í alvarlegum tilfell-
um, heldur að fá manneskjuna til
að vinna á honum sjálf. Þetta snýst
því um að komast að rót vandans,
hvort sem um er að ræða sálræna
eða utanaðkomandi þætti, og gera
breytingar. Ef við meðhöndlum
sjúkdóma eingöngu með aðgerð-
um og lyfjum en komumst ekki að
rót vandans þá leiðir sjúkdómur-
inn ekki af sér neinar jákvæðar
breytingar, segir Aart.
Námskeiðið stendur alla helgina
og er fullt fæði og gisting innifalið
í námskeiðsgjaldi. Nánari upplýs-
ingar fást í síma 869-7673.
vera@frettabladid.is
Manneskjan öll undir
Námskeið sem ber yfirskriftina Nútímasjúkdómar verður haldið í Sólheimum í Grímsnesi um helgina.
Þar fjallar mannspekilæknir um það hvernig sjúkdómar geta leitt af sér jákvæðar breytingar og betra líf.
Á námskeiðinu verða tengsl nútímasjúkdóma við líðan og lifnaðarhætti skoðuð og
farið dýpra í sjúkdóma eins og ofnæmi, offitu, streitu og óútskýrða meltingarsjúk-
dóma. MYND/STEFÁN
FATASKÁPAR ÞVOTTAHÚS
ELDAVÉLAR - INNBYGGINGAROFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR - HÁFAR - UPPÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • www.friform.is
Mán. - föst.kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
OPIÐ
25% AFSLÁTTUR AF RAFTÆKJUM, ÞEGAR ÞAU ERU KEYPT MEÐ INNRÉTTINGU !
Við sníðum innréttingar að þínum óskum
ELD
HÚS
EINS OG ÞÚ
VILT HAFA ÞAÐ
PISA höldulaust hvítt háglans
Val um 32
hurðagerðir
Birki Duo
BAÐINNRÉTTINGARNAR
byggjast á einingakerfi 30, 40,
60 og 80 cm breiðra eininga.
Ótæmandi uppröðunarmöguleikar.
Við hönnum og teiknum fyrir þig.
Heilsteyptu vaskborðin eru vinsæl!
Breiddir: 60, 80, 90, 120,140, 160, 180 cm
PISA höldulaust háglans
Askur Facet
BETRA BAÐ
BETRI LAUSNIR - MEIRA ÚRVAL
NÚ BJÓÐUM VIÐ ÁKVEÐNAR GERÐIR ELDHÚS, BAÐ - OG ÞVOTTA-
HÚSINNRÉTTINGA, EINNIG FATASKÁPA TIL AFGREIÐSLU AF LAGER
( MEÐAN BIRGÐIR ENDAST) MEÐ 25% AFSLÆTTI.
AF LAGER
Á LÆGRA VERÐI
25%
Vegna breytinga á vöruvali seljum við nú einnig nokkrar sýningainnréttingar með 60% afslætti.
SÝNINGAINNRÉTTINGAR MEÐ 60% AFSLÆTTI
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið