Fréttablaðið - 14.02.2009, Síða 48
● heimili&hönnun
Spegill eftir Kenneth Wingard.
Loftljós eftir Tom Raffield.
BEINT ÚR ALPAFJÖLLUM Pour les Alpes kallast samstarfsverkefni hönnuðanna
Annina Gähwiler og Tina Stieger. Þær hanna óvenjulega listmuni og húsgögn og sækja
innblástur í óútreiknanlega náttúru Alpanna. Kommóðan sem hér sést kallast Ehrfurcht
og er úr línunni Echos, eða Bergmál. Svart lakkað yfirborðið er mikil andstæða ljóss innra
byrðisins sem kemur í ljós þegar kommóðan er opnuð við stóra sprungu sem gengur í
gegnum húsgagnið. Sjá vefsíðuna www.pourlesalpes.ch.
N ýju veggklukkurnar frá Oras eru svo sannarlega augnayndi
en þær fást í ferns konar mynstri
og einnig er hægt að velja á milli
fjögurra lita í vísunum: appelsínu-
guls, perugræns, bleiks og túrkis-
litar. Klukkurnar eru leysiskornar úr
náttúrulegri hnotu og lakkaðar með
glæru lakki. Hönnun Oras er innblás-
in af mynstrum og geometrískum
formum og oft nálgast þeir hönnun
og híbýli á ferskan, nútímalegan og
skemmtilegan máta. Klukkurnar eru
lýsandi dæmi um það auk þess að
gefa upp hvað tímanum líður. Sjá
www.orasdesigns.com/clocks.html.
Líðandi stund í
sígildri hönnun
H ann fangar augað, spegillinn eftir hönnuðinn Kenneth Wing-
ard. Heiti spegilsins, Large Sunburst
Wall Mirror, vísar til útlitsins; miðjan
líkist sólinni og út frá henni liggja 64
brot sem minna á sólargeisla, sem
fanga og endurvarpa birtu. Bakvið
kúluna er svo haganlega útskorið
viðarandlit. Sjá www.moderndose.
com.
Tom Raffield hannaði loftljósið að
ofan sem er frá fyrirtækinu Cornwall.
Ljósið, sem kallast Ribbon/pendant,
er bæði fáanlegt úr aski og í hvítlakk-
aðri eik. Sjá www.markproduct.com.
Augnakonfekt
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
1
8
7
GRÆDDU Á GEYMSLUNNI
Notað og Nýtt > Mörkinni 1 > sími: 517 2030
Suðurlandsbraut
Sk
eið
av
og
ur
Miklabraut
Gnoðavogur
Mörkinni 1
>
Opnunartími:
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Sunnudaga 13-16
Tökum á móti vörum utan opnunartíma,
upplýsingar í síma 517-2030
>
Tökum á móti vörum í umboðssölu.
> Húsgögn > Húsbúnaður > Ljós > Veiðivörur
> Rafmagnsvörur > Golfvörur > Önnur verðmæti
14. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR4