Fréttablaðið - 14.02.2009, Qupperneq 50
6 matur
Shawarma er e i n s ko n a r arabísk sam-
loka ættuð frá Mið-
Austurlöndum en er
líka svipuð og gyros
frá Grikklandi og guss í Írak. Sig-
ríður Þóra Árdal, grafískur hönn-
uður og nemi í vöruhönnun, ákvað
að elda þennan kryddaða rétt fyrir
okkur í tilefni af degi elskenda.
„Mín uppáhalds matreiðslubók
er Google en ég vil helst ekki elda
það sama tvisvar, nema sushi. Með
Google-leitarvélinni hefur maður
aðgang að ótakmörkuðu magni
uppskrifta,“ segir Sigríður en upp-
skriftina fann hún þegar hún leit-
aði að grísku gyros. „Ég er bara
með tölvuna við hliðina á eldavél-
inni og slæ inn það sem hugurinn
girnist og lendi einhvers staðar á
skemmtilegum stað. Eina breyt-
ingin sem ég gerði núna var að
hafa heila kjúklinga og fjórfaldaði
ég uppskriftina þar sem ég bauð
svo mörgum í mat,“ segir Sigríð-
ur áhugasöm en hún er mikill mat-
gæðingur.
„Þetta er réttur sem bragð er af
og ætti að vekja upp heitar tilfinn-
ingar. Hann er því kjörinn sem
rómantískur og spennandi réttur
sem kemur blóðinu á hreyfingu
og er gaman að borða hann með
fingrunum. Svolítið subbulegur
en skemmtilegur,“ segir Sigríður
glettin og bætir við: „Fátt er betra
en að elda fyrir þá sem maður elsk-
ar þannig að leiðin að hjartanu er
líklega í gegnum magann.“ - hs
Sigríður Þóra Árdal er mikill matgæð-
ingur en vill helst aldrei elda það sama.
KJÚKLINGUR
1 msk. mulinn kóríander
1 msk. mulið cumin
1 msk. muldar kardimommur
1 msk. chili duft
1 msk. reykt paprikukrydd
1 msk. grillkrydd eða kjúklinga-
krydd
Safi úr hálfri sítrónu eða lime
1 stórt hvítlauksrif, marið eða
fínsaxað
5 msk. jómfrúarolía (3 msk. í
kryddblöndu og 2 msk. í steik-
ingu)
4 skinnlausar kjúklingabringur
eða einn heill kjúklingur
GRÆNMETI
1 stór laukur, saxaður
1 rauð paprika, söxuð
1 gul paprika, söxuð
BRAUÐ
4 pítubrauð, helminguð eftir
endilöngu
Olía
Sjávarsalt
TSATSIKI-SÓSA
2 bollar jógúrt
1 gúrka, fræ fjarlægð og skorin
mjög smátt
2-3 hvítlauksrif, marin/söxuð
¼ bolli mynta (ef til)
½ tsk. salt eða meira
Öllu hráefni í tsatsiki-sósuna er
blandað saman og hún sett í
ísskáp.
Hitið ofninn. Blandið kryddi í skál
og setjið sítrónu- eða limesafa,
hvítlauk og um þrjár matskeiðar
af jómfrúarolíu saman við. Hrærið
þar til orðið er að mauki. Dreifið
kryddblöndunni jafnt yfir kjúkl-
inginn. Ef þið eruð með bringur
er gott að grilla þær í 6-7 mínútur
á hvorri hlið, þar til þær eru eld-
aðar í gegn. Ef þið eldið heilan
kjúkling setjið hann þá í ofninn
og eldið við 180 gráður í rúman
klukkutíma. Kjúklingurinn er lát-
KJÚKLINGA-SHAWARMA OG AÐRAR KRÆSINGAR
Fyrir 4
Heitir litir, sterk krydd og súrsætt lime kveikja óneit-
anlega upp í líkamanum og á degi elskenda hentar
þess háttar samsetning fullkomlega. Sigríður Þóra Ár-
dal eldar fyrir þá sem hún elskar og nýtur þess í botn.
Leiðin að hjartanu
Eldað
af ást
Hef fl utt starfssemi mína í
lækninga og fræðslusetur
Forvarna ehf. Lágmúla 5
Reykjavík
Viðtöl og ráðgjöf fyrir einstaklinga,
pör og fjölskyldur. Fyrirlestrar og
námskeið innan fyrirtækja.
Ólafur Árnason Hjónabands –
og fjölskylduráðgjafi .
Forvarnir, Lágmúla 5. 4 hæð 108 Rvk.
Tímapantanir virka daga milli 10-12
í síma 590-9290, annars í síma
695-4000. www.forvarnir.net
oli@forvarnir.net
ódýr!
NÝTT KORTATÍMABIL
HÁRSPREY
MARGIR LITIR
TTIS
KÍKTU Á ÚRVA
LIÐ
ÖSKUDAGINN
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
A