Fréttablaðið - 14.02.2009, Side 55
LAUGARDAGUR 14. febrúar 2009 31
FRAMHALD AF SÍÐU 26
sem markaðsvænt indí, en ég er
ekki alveg á því,“ vill einn meina.
„Hjaltalín smellpassar inn í krútt-
ímyndina og þeir í Sprengjuhöll-
inni eru bara hreinræktaðir popp-
arar.“
Ofannefndar grúppur virðast
þó hafa sterk tengsl við artí-liðið.
Til dæmis spila Borko, Hjaltalín
og Múm-liðar saman fótbolta einu
sinni í viku.
Sólgleraugu innandyra
Þegar rýnt er í 101-klíkurnar
kemur raunar í ljós að þær virð-
ast nánast allar tengjast saman
á einhvern máta, enda „Ísland of
lítið til að gengin geti ísólerað sig
mjög mikið“.
Þannig eiga fulltrúar rokks-
ins í 101, eins og Singapore Sling,
Evil Madness, Kimono og Hud-
son Wayne, sína bestu vini innan
artí-hópsins. „Þetta er frekar lítill
hópur í kringum Singapore Sling
og helst að Jakobínarína hafi dott-
ið inn í þeirra ímynd. En sú ímynd
er líka mjög sterk, þröngar buxur
og sólgleraugu innan dyra,“ segir
einn. „Lítil klíka en ótrúlega stíli-
seruð og mjög áberandi í bæjarlíf-
inu. Þau vilja vera gríðarlega svöl
en eru ósköp fín inn við beinið.
Siggi Maggi í Singapore Sling er
nokkurs konar brú frá rokkliðinu
yfir í artí-liðið. Hann hefur unnið
mikið með krúttunum.“
Tískutechno
Gleðitechno er heiti sem einn við-
mælenda gefur sveitum eins og
Gus Gus, Hair doctor. Sometime,
Bb and Blake og jafnvel FM Belf-
ast. „Tískuliðið og hommarnir
fíla þetta stöff.“ Steed Lord fell-
ur líka undir þessa skilgrein-
ingu. „En þau eru einhvern veg-
inn alveg sér á parti og hafa lítil
tengsl við önnur bönd. Ég er ekki
viss um að öllum finnist flott að
hljómsveit hafi sína eigin fata-
línu.“
Klíkukúltúr í rappinu
„Klíkupælingin er auðvitað einna
sterkust í rappinu. Innan hverr-
ar klíku eru kannski fimm undir-
klíkur og þær gera mikið af því
að hjálpa hver annarri, til dæmis
með því að gerast gestarapparar
á plötum og slíkt, en kúltúrinn
skilar sér stundum líka í „beefi“
milli aðila,“ segir viðmælandi um
hip-hop heiminn á Íslandi. Annar
bætir við: „Þarna er oft um mikla
samvinnu að ræða, til að mynda
kom nánast hver einasti rappari
sem maður kannast við á landinu
á nýju plötunni hans Adda Intro,
en svo eru þeir dálítið gjarnir á
að fara í einhvern hip-hop leik í
fjölmiðlum, samanber rifrildið
milli Poetrix og Móra.“
Flestir eru sammála um að
rappið hafi horfið kirfilega undir
yfirborðið fyrir nokkrum árum.
Markaðurinn hafi hreinlega mett-
ast í kringum 2002 þegar gefn-
ar voru út um þrettán íslenskar
rappplötur fyrir ein jólin. „Það
er nóg í gangi undir niðri, og er á
hraðri leið upp á yfirborðið.“
Nokkrir minnast á að ekki hafi
orðið neinar breytingar á lykil-
leikmönnum í rappheiminum síð-
ustu ár. „Þetta virðist eiginlega
vera nákvæmlega sama liðið og
fyrir átta árum. Erpur ennþá ríf-
andi kjaft við alla.“
Margir álistgjafa lofa hip-hop
heiminn fyrir mikla samheldni,
til dæmis mæti alltaf sami 500-
600 manna kjarninn þegar eitt-
hvað sé að gerast. Annar er ekki
svo viss. „Það er eins og allir séu
vinir á yfirborðinu, en undir niðri
kraumar alltaf eitthvað. En menn
leggja sig reyndar fram um að
sýna hver öðrum virðingu.“
Eftirtaldir rýndu í hina ýmsu kima
tónlistarheims höfuðborgarinnar:
Arnar Eggert Thoroddsen
gagnrýnandi
Atli Bollason gagnrýnandi
Ágúst Bogason útvarpsmaður
Páll Hilmarsson gagnrýnandi
Dóri DNA blaðamaður
Heiða Eiríksdóttir gagnrýnandi
Helga Þórey Jónsdóttir gagnrýnandi
Hildur Maral Hamíðsdóttir
gagnrýnandi
Sigvaldi Kaldalóns (Svali)
útvarpsmaður
Steinþór Helgi Arnsteinsson
umboðsmaður
Viðmælendur
ROTTWEILERHUNDAR
FM BELFAST
SINGAPORE SLING
HELLYHANSEN.COM