Fréttablaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 14. febrúar 2009 45
Leikkonan Jennifer Aniston
hefur fullan hug á að eignast
börn í framtíðinni. Hún segir að
hlutverk sitt sem hundaeigandi
í gamanmyndinni Marley & Me
hafi vakið upp í sér móðurtilfinn-
ingar.
„Mig langar að eignast börn.
Það er mitt markmið,“ sagði
Aniston, sem varð fertug fyrir
skömmu og hefur því ekki langan
tíma til að láta verða af áform-
um sínum. Hvort kærasti hennar,
tónlistarmaðurinn John Mayer,
sé á sama máli á aftur á móti
eftir að koma í ljós.
Aniston vill
eignast börn
JENNIFER ANISTON Vinurinn fyrrverandi
vill endilega eignast börn í framtíðinni.
„Ég er búin að vera kaupóð síð-
ustu árin og hefur alltaf langað
til að halda fatamarkað,“ segir
Pattra Sriyanonge sem held-
ur fatamarkað á veitinga- og
skemmtistaðnum Domo. Að öllu
jöfnu er staðurinn ekki opnaður
fyrr en klukkan 18, en í dag verð-
ur gerð undantekning og staður-
inn opinn fyrir fatamarkað milli
11 og 17. Pattra er í sambúð með
fótboltakappanum Arnari Gunn-
laugssyni sem er einn af eigend-
um Domo og mun hún ásamt vin-
konum sínum selja ný og notuð
föt á neðri hæð staðarins.
„Hanna Kristín Magnúsdóttir
og Annetta Rut Kristjánsdóttir,
vinkonur mínar, eru með mér í
þessu. Það verða alls konar flott-
heit í boði og þar sem við erum
allar í mismunandi stærðum geta
allir fundið eitthvað við sitt hæfi
á kreppuverði,“ útskýrir Pattra
sem lék nýverið í sjónvarpsþætt-
inum Rétti.
Aðspurð segist hún
íhuga flutninga til
útlanda og leggja
frekari stund á leik-
list. „Mig langar
mikið að flytja út og
fara í leiklistarnám
eða fá mér umboðs-
mann og stökkva bara
út í djúpu laugina.
Mig langar mikið
til Taílands þar
sem ég á fjöl-
skyldu og dvelja
þar í eitt ár, en
annars heilla
New York og Los
Angeles líka,“
útskýrir Pattra
sem vonast
til að sjá sem
flesta á Domo í
dag. - ag
Pattra heldur
fatamarkað
Safnplötupakkinn 100 íslensk-
ar ballöður er kominn út. Hann
hefur að geyma vinsælar íslensk-
ar ballöður allt frá árinu 1953
til dagsins í dag. Þarna er meðal
annars að finna lögin: Þó líði ár
og öld, Það er gott að elska, Þú
komst við hjartað í mér, Bláu
augun þín, Samferða, Skólaball
og Þú fullkomnar mig.
Pakkinn er hluti af einni vin-
sælustu safnplöturöð seinni ára,
100-seríunni en 100 íslenskar
ballöður er sú níunda í röðinni.
Vinsælustu
ballöðurnar
FÖT Á
KREPPU-
VERÐI
Pattra
heldur
fatamarkað
á Domo í
dag.
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Við óskum að ráða vélvirkja í dagvinnu og vaktavinnu hjá
Norðuráli á Grundartanga.
Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru yfir fimm hundruð talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa
m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafvirkjar,
vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu.
Hvaða kröfur gerum við?
● Sveinspróf í vélvirkjun og a.m.k. tveggja
ára starfsreynslu
● Áhugi, góð samskiptahæfni og geta til að
vinna sjálfstætt
● Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við
sambærileg störf er æskileg
● Kunnátta í ensku og almennri tölvunotkun
kemur í góðar þarfir
● Æskilegt er að umsækjendur séu búsettir
á Vesturlandi
Hvað veitum við?
Við bjóðum þér traust og gefandi starf hjá
nútímalegu fyrirtæki. Þú vinnur mikilvæg verk
með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á
móti þér. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a.
í viðhaldi, bilanaleit, endurnýjun og endurbótum
á tæknibúnaði Norðuráls, með aukinni áherslu
á fyrirbyggjandi viðhald.
● Starfsþjálfun og símenntun
● Nýtt mötuneyti á staðnum
● Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun
að hluta árangurstengd
● Fyrirtækið greiðir þér aukið framlag
í lífeyrissjóð
Hjá Norðuráli starfar öflugt starfsmannafélag
sem stendur reglulega fyrir ýmsum áhuga-
verðum uppákomum.
Nánari upplýsingar veita:
Einar F. Björnsson, viðhaldsstjóri, og Fjalar
Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðhaldssviðs,
í síma 430 1000.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína
fyrir 25. febrúar n.k. Þú getur sótt um á vef
fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn
þína á netfangið umsókn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina merkta: Vélvirki. Við
förum með umsókn þína sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Vélvirkjar
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið