Fréttablaðið - 14.02.2009, Blaðsíða 78
54 14. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. langar, 6. klaki, 8. sjór, 9. fugl, 11.
ekki heldur, 12. geðvonska, 14. gort,
16. í röð, 17. hyggja, 18. ennþá, 20.
mergð, 21. snöggur.
LÓÐRÉTT
1. mælieining, 3. ryk, 4. jarðbrú, 5.
viður, 7. fíkinn, 10. eyrir, 13. nytsemi,
15. uppurið, 16. húðpoki, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vilt, 6. ís, 8. mar, 9. lóa,
11. né, 12. ólund, 14. grobb, 16. hi,
17. trú, 18. enn, 20. úi, 21. snar.
LÓÐRÉTT: 1. kíló, 3. im, 4. landbrú,
5. tré, 7. sólginn, 10. aur, 13. not, 15.
búið, 16. hes, 19. na.
Egill Sæbjörnsson
Aldur: 35 ára.
Starf: Mynd- og tónlistarmaður.
Stjörnumerki: Krabbi með rísandi
ljón.
Fjölskylda: Ég á kærustu og er
barnlaus.
Búseta: Mest í Berlín, svo í Rio de
Janeiro og Reykjavík.
Egill er nú að ljúka við plötu með Memp-
hismafíunni, þá fyrstu síðan plata hans
Tonk of the Lawn kom út árið 2000.
Undirbúningur er hafinn að útgáfu tímarits-
ins Berlin Grapevine í höfuðborg Þýskalands.
Þeir Hörður Kristbjörnsson, einn af stofnendum
Reykjavik Grapevine, og lögfræðingurinn Eirik
Sørdal standa að verkefninu með aðstoð Reykjavik
Grapevine.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær blaðið kemur
út og vildi Hörður, sem er búsettur í Berlín, lítið
tjá sig um málið þegar Fréttablaðið ræddi við
hann. „Við erum að setja þetta saman og reyna að
koma þessu í gang,“ sagði hann.
Jón Trausti Sigurðarson, markaðsstjóri Reyka-
vik Grapevine, segir að Hörður hafi átt hug-
myndina að þessu systurblaði í Berlín. „Við heima
komum sáralítið nálægt þessu. Við leggjum til
nafnið og útlitið og hugmyndavinnuna,“ segir Jón
Trausti. „Blað eins og Grapevine virkar eflaust
betur í stærri borg en þetta er enn þá í einhverju
ferli. Þetta gengur út á að þeir nái í auglýsinga-
tekjur, sem gæti verið erfitt eins og ástandið er
núna.“
Alls hafa 89 tölublöð af hinu ensk/íslenska
Reykjavík Grapevine verið gefin út síðan það
fyrsta kom út sumarið 2003. Blaðið kemur út átján
sinnum á ári í þrjátíu þúsund eintökum þar sem
sviðsljósinu er beint að innlendri menningu. Mark-
hópurinn er fyrst og fremst enskumælandi fólk
hér á landi, þar á meðal ferðamenn. - fb
Berlin Grapevine í deiglunni
GRAPEVINE-MENN Jón Trausti Sigurðarson og Hilmar Steinn
Grétarsson starfa hjá tímaritinu Reykjavik Grapevine.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við höfum lagt fram öll okkar
rök, öll okkar gögn og iðnaðar-
ráðuneytið er sammála okkur um
að þetta sé hið besta mál,“ segir
Helga Margrét Reykdal, fram-
kvæmdastjóri viðburðafyrirtæk-
isins True North.
En, kvikmyndagerðarmenn eru
orðnir langeygir eftir aðgerðum
Össurar Skarphéðinssonar og iðn-
aðarráðuneytisins hvað varðar
hugsanlega hækkun á prósentu
endurgreiðslu framleiðslukostn-
aðar til erlendra kvikmyndafram-
leiðenda sem taka myndir sínar
hér. Einkum horfa menn í kvik-
myndageiranum nú til risakvik-
myndar sem Baltasar Kormákur
er með í farvatninu, víkingamynd,
sem á að gerast að mestu á Íslandi
en einnig á Írlandi. Að sögn Balt-
asars ráða framleiðendur hvar
myndin er tekin. Og þeir horfa til
þess að Írar bjóða 28 prósenta end-
urgreiðslu hér er það 14 prósent.
„Ég átti fund með Össuri fyrir jól
og hann tók mér vel,“ segir Balt-
asar. Víkingamyndin verður stór
í sniðum og undirbúningur þegar
hafinn. Karl Júlíusson verður með
leikmynd og helmingur þess liðs
sem var í Braveheart Mel Gibsons
verður með. „Það þarf að æfa leik-
arana í marga mánuði. Og hesta-
þjálfarinn Horst Wrangler þarf
að þjálfa hesta í nokkra mánuði,
kenna þeim að detta og svo fram-
vegis. Ég var að koma frá Írlandi
og fann þar marga frábæra töku-
staði,“ segir Baltasar.
True North mun annast þjón-
ustu við kvikmyndagengið sem
vonandi kemur til starfa hingað
til lands upp úr og með haustinu.
Helga Margrét segir mikið hags-
munamál að fá í gegn hækkun
endurgreiðslu. „Kvikmyndagerð
hefur víðtæk afleidd áhrif. Skapa
störf í þjónustu; hótel, flug, smið-
ir … þetta er það sem við þurfum,“
segir Helga og vonast eftir svör-
um frá iðnaðarráðuneyti á næstu
dögum. Hún vill ekki beint segja
ráðuneytið draga lappirnar vegna
vendinga umbrota í stjórnmálum.
En True North átti fund með Öss-
uri í janúar og er farið að lengja
eftir svörum. „Hver dagur sem
líður er okkur dýrkeyptur,“ segir
Helga og vísar til þess að tækifær-
in séu að renna úr greipum. Ýmsir
eru áhugasamir um að koma hing-
að til að taka kvikmyndir sínar.
„Við umreiknuðum störf sem
sköpuðust í tengslum við mynd-
ina Flags of our Fathers árið 2005
[mynd Clint Eastwoods] og reikn-
uð ársverk voru 46. Bara mynd
Baltasars gæti verið umtalsvert
stærri. Hækkun endurgreiðslu
þýðir einfaldlega aukin verkefni,
meiri vinnu og meiri gjaldeyri.“
Ekki náðist í Össur en Valgerð-
ur Sverrisdóttir, fyrrverandi iðn-
aðarráðherra, segir málið gríð-
arlega mikilvægt. Hún veit ekki
hvað dvelur orminn langa. „Hann
er kannski kominn með hugann í
utanríkisráðuneytið? Ef til vill er
ekki pólitískur vilji fyrir þessu.
Ég man að við börðumst fyrir því
á sínum tíma að hækka hlutfall-
ið úr tólf í fjórtán. Þá stóð íhald-
ið mjög gegn því. Þeir sáu bara
peningaaustur út en ekki tekjurn-
ar. Það var loks að Einar Oddur
[heitinn Kristjánsson, þá formað-
ur fjárlaganefndar] sá að þetta
var atvinnuskapandi að þetta fór
að ganga betur.“
jakob@frettabladid.is
HELGA MARGRÉT REYKDAL: HVER DAGUR SEM LÍÐUR ER DÝRKEYPTUR
Víkingaskip Balta til Írlands
KVIKMYNDA-
GERÐ Í LIMBÓI
Víkingamynd Baltasars
hefur tekið stefnuna til
Írlands í tökur en Írar
bjóða umtalsvert betri
endurgreiðslu framleiðslu-
kostnaðar en Ísland. Helga
Margrét Reykdal bíður
svara Össurar Skarphéð-
inssonar. Karl Júlíusson
vinnur að leikmynd
myndarinnar.
Hvað er að frétta? Ég er á fullu að æfa söngleik, við erum
að setja upp Harry Potter-söngleik með MS og við frumsýn-
um 17. febrúar, það er bara allt í gangi.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Blankur menntaskólanemi.
Fjölskylduhagir: Ég bý hjá foreldrum mínum ásamt eldri
bróður og kærustunni hans, en svo á ég tvö eldri hálfsystk-
ini.
Hvaðan ertu? Úr Grafarvogi.
Ertu hjátrúarfullur? Nei, það er ég ekki.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Dexter og Arrested devel-
opment.
Uppáhaldsmaturinn: Grillaður humar og nautasteik.
Fallegasti staðurinn: Ég á erfitt með að gera upp á milli
staða en Capri á Ítalíu, Hesteyri og Skorradalur eru fallegir.
iPod eða geislaspilari: Plötuspilari.
Hvað er skemmtilegast? Að leika í Harry Potter-söngleikn-
um.
Hvað er leiðinlegast? Að mæta á staði sem mig langar ekki
að vera á.
Helsti veikleiki: Einhverjir segðu að ég væri hrokafullur
sem er náttúrlega rangt því ég er fullkominn.
Helsti kostur: Ég er umburðarlyndur, duglegur og
bjartsýnn.
Helsta afrek: Að leika Harry Potter í söngleiknum
og taka miðstigspróf í klassísku píanónámi.
Mestu vonbrigðin? Að hafa ekkert komist á
bretti í vetur, það er búið að vera svo mikið að
gera.
Hver er draumurinn? Að meika það.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Vinir mínir,
þeir eru fyndnir.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk
ber ekki virðingu fyrir hvað öðru.
Hvað er mikilvægast? Fjölskyldan, vinir og að
vera heiðarleg og góð manneskja.
HIN HLIÐIN ALBERT HAUKSSON, NEMI Í MENNTASKÓLANUM VIÐ SUND
Harry Potter ætlar að meika það
05.09.1989
Bjarni Haukur leikhúsfrömuður
ætlar að efna til áheyrnarprufu fyrir
Grease í Loftkastalanum 9. mars.
Sá háttur verður þó ekki
hafður á að prufurnar
verði opnar þannig að
stefni í öngþveiti heldur
ætlar Bjarni að auglýsa
eftir umsóknum sem
svo verður valið
úr. Úti í sal til að
mæla út þá sem
til greina koma
munu svo sitja
þau Selma Björnsdóttir leikstjóri,
danskennarinn systir hennar Birna
og Þorvaldur Bjarni sem mun
stjórna tónlistinni.
Elva Dögg Mel-
sted, lottómær og
fyrrverandi Ungfrú
Ísland.is, heldur upp
á þrítugsafmæli sitt í
kvöld. Hamingjan
er ekki minni á
bænum fyrir þær
sakir að Elva á einn-
ig von á sínu þriðja
barni í sumar með
eiginmanni sínum
Magnúsi Þór Gylfa-
syni, framkvæmdastjóra borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Sigurðarson, gítarleikari í
Mínus, og belgíski tónlistarmaður-
inn Milow sluppu með skrekkinn
þegar bíll þeirra fauk út af veginum
skammt frá Vík í Mýrdal á fimmtu-
dag og fór tvær veltur. Þrír aðrir
voru í bílnum og sakaði þá ekki.
Hópurinn var á leið til Víkur til að
taka upp nýtt myndband Milows,
sem er vinsæl poppstjarna í Belgíu.
Í bílnum voru einnig kvikmynda-
græjur fyrir tugi milljóna
en þær skemmdust
ekki. Milow kenndi
sér reyndar meins í
bakinu eftir slysið og
var Bjarni fenginn til
að hlaupa í skarðið
fyrir hann í einu
atriði í mynd-
bandinu.
-jbg, jma, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
T
B
W
A
\R
e
yk
ja
ví
k
\
S
ÍA
\
0
9
4
1
9
7
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Gísli Jökull Gíslason
2 153 tonn
3 Jóhann Friðgeir Jóhannsson