Tíminn - 05.07.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 5. júlí 1986
Laugardagur 5. júlí 1986
Tíminn 11
iiiiiiiiiiii
iiiiiiiiiiiiii
ÍÞRÓTTIR 11!
ÍÞRÓTTIR
Heimsmeistaramótið í körfuknattleik:
Sovétmenn álitnir
sigurstranglegastir
- Bandaríkjamenn ógna þeim ásamt fleirum - Mótið hefst í dag
Í dag hefst í Madrid á Spáni
heimsmeistarakeppnin í körfuknatt-
leik (áhugamanna?). Sovétmenn eru
nú þegar álitnir sigurstranglegastir
en helstu keppinautar þeirra eru
Bandaríkjamenn, Júgóslavar og
heimamenn Spánverjar. Sovétmenn
sýndu styrk sinn á æfíngamóti um
daginn er þeir unnu Spánverja í
úrslitaleik 102-85 þrátt fyrir aö aðal-
maður þeirra, Arvidas Sabonis, væri
ekki með. „Þeir eru sterkasta liðið
þó þeir séu án Sabonis“ scgir þjálfari
Spánverjanna Antonio Diaz Miguel.
Sovétmenn hafa unnið þrjá heims-
meistaratitla í köríuknattleik. Síðast
árið 1982 er þeir unnu Bandaríkja-
menn með körfu á síðustu sekúndu.
Þá fór keppnin fram í Kólumbíu.
Liðin áttu síðan að mætast á Ól. í
L.A. en ekkert varð úr vegna fjar-
veru Sovétmanna frá leikunum.
Bandaríkjamenn hafa verið með
frekar léleg lið í HM-keppnunum til
þessa og aðeins einu sinni unnið.
Það var árið 1954 í Brasilíu. Hins-
vegar varð Iiðið í öðru sæti í Kólum-
bíu og sigraði síðan á Ól. i Los
Angelcs. Bandaríska liðið verður
eingöngu skipað leikmönnum frá
háskólaliðunum þar sem atvinnu-
menn (sic) eru bannaðir í keppnum
á vegum FIBA. Helsta stjarna liðsins
er miðherjinn David Robinson sem
spilar með háskólaliði sjóhersins og
hefur þegar ákveðið að fara ekki í
NBA-atvinnumannadeildina fyrr en
hann hefur lokið námi og herskyldu.
Júgóslavar munu treysta mjög á
Drazen Petrovic, sem er 21 árs
bakvörður og talinn sá snjallasti í
Evrópu. Mörg lið í NBA hafa verið
á eftir honum en hann má ekki fara
frá Júgóslavíu fyrren hann er27 ára.
Körfuknattleikur er orðinn næst
vinsælasta íþróttagrein á Spáni á
eftir knattspyrnunni. Spánverjar
urðu í öðru sæti á Ól. í L.A. og í
fjórða sæti á HM í Kólumbíu. Liðið
leikur á heimavelli og verður að fá
góðan stuðning til að bæta upp hæð
leikmanna. Hæðin er helsti galli
spænskra.
Eins og fyrr segir þá hefst keppni
í dag og verður spilað í riðlum. í
undanúrslitin komast síðan 12 lið og
verða þau spiluð í Barcelona og
Oviedo en úrslitin sjálf verða í
kringum 17.-20. júlí í Madrid.
Archibald áfram
hjá Barcelona
Skoski landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu, Steve Archibald,
hefur skrifað undir nýjan samn-
ing til fjögurra ára við spænska
stórliðið Barcelona. Þessi samn-
ingsgerð kemur nokkuð á óvart
þar sem Barcelona hefur þegar
fest kaup á tveimur enskum mið-
herjum. Þeim Mark Hughes og
Gary Lineker. Samningur Archi-
balds var hinsvegar gerður fyrir
kaupin á Lineker.
„Við verðum fjórir „útlending-
ar“ hjá Barcelona á næsta keppn-
istímabili. Fyrir utan mig verða
Hughes, Lineker qg Schuster.
Það er ekkert víst að Schuster sé
á förum," sagði Archibald við
fréttamenn í London í fyrradag."
Það verður hörð keppni um sæti
í liðinu okkar á milli því reglurnar
á Spáni heimila liði aðeins að
spila tveimur erlendum leik-
mönnum í einu. Þetta ætti að
halda mönnum við efnið og það
þýðir lítið að slaka á. Eg lít
björtum augum á næsta keppn-
istímabil með Barcelona. Ég verð
ekki öruggur með sæti í liðinu en
hinsvegar mun ég berjast fyrir
því af bestu getu, sagði Archibald
sem svo sannarlega mun eiga við
ramman reip að draga þar sem
cru Lineker og Hughes.
David Robinson (nr.50) er helsta von Bandaríkjamanna á HM ■ körfu. Hér
er hann í baráttu við tvo leikmenn Duke Háskólans.
Við höfum fengið nýtt símanúmer
696600
Ath. neyðarvakt lækna er í sama númeri.
Hann hafði ástæðu til að fagna í gær hann Bjarni Jónsson hjá KA. Fallegt skallamark hans kom KA í efsta sæti 2. deildar en Víkingar eru niðurlútir því gervigrasið
kom ekki að notum. Tímamyndir Pétur
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild:
íslandsmótið í knattspyrnu - 2. deild:
Dýrmætur sigur
KA á Víkingum
Unnu þá 1-0 á gervigrasinu og eru á toppi 2. deildar fyrir leikina í dag
KA skaust í efsta sætið í 1. deild í
gærkvöldi með sanngjörnum en
nokkuð óvæntum sigri á Víkingum á
gervigrasinu í Laugardal í gær.
Norðanmenn skoruðu eina mark
leiksins eftir rúmlega 20 mínútna
leik og héldu því síðan með kjafti og
klóm þar til slakur dómari leiksins
flautaði af. KA er því efst í 2. deild
fyrir leikina í dag.
KA byrjaði betur í gærkvöldi og
áttu færi strax í upphafi leiksins en
Tryggvi skaut framhjá. Víkingar fóru
síðan að koma inní myndina og voru
með boltann töluvert í fyrri hálfleik
en gekk afar illa uppvið markið.
Vörn KA hélt afar vel eins og
reyndar allan leikinn. Markið kom
síðan úr sakleysislegri hornspyrnu á
23. mínútu. Bjarni Jónsson stökk þá
hæst í þvögu og sendi tuðruna rétta
boðleið, 0-1. KA var síðan hættu-
Nú bendir allt til þess að ekkert
verði af svokallaðri Bretlandskeppni
í knattspyrnu sem átti að verða á
milli sterkustu félagsliðana á Eng-
landi, í Skotlandi, Wales, írlandi og
N-írlandi. Það var formaður Evert-
on og forseti samtakadeildarliðanna
í ensku knattspyrnunni, Phil Carter,
sem lagði þetta til. Nú hefur knatt-
spyrnusambapd Englands hinsvegar
vn
legra ef eitthvað var. Á 35. niínútu
fengu þeir vítaspyrnu eftir að
knötturinn hafði hrokkið í hendi
Jóhanns Þorvarðarsonar inní teig.
Tryggvi Gunnarsson tók spyrnuna
en Jón Otti henti sér í rétt horn og
varði. Tryggvi fékk þó boltann aftur
en skaut nú vfir. Aðeins fimm mínút-
um síðar var dæmd óbein auka-
spyrna á Jóhann innvið vítapunkt.
Víkingarnir röðuðu sér á línuna en
Erlingur Kristjánsson skaut í varnar-
vcgginn og síðan framhjá eftir að
hafa fengið knöttinn til baka. Þarna
fóru tvö dauðafæri forgörðum hjá
KA-mönnum. Þeir leiddu þó í hléi
1-0.
Víkingar komu ákveðnir til leiks í
síðari hálfleik og áttu leikinn til að
byrja með. KA-menn virtust sætta
sig við að verjast og trcysta síðan á
skyndiupphlaup meðTryggva fremst-
lagst á móti þessari keppni og því er
nokkuð víst að ekki verður af henni.
Hún var hugsuð sem einhverskonar
uppbót fyrir ensku liðin sem ekki
komast í Evrópukeppni vegna
UEFA.
„Það er ekki minnsti möguleiki á
því að þessi keppni verði að veru-
leika,“ sagði aðalritari knattspyrnu-
sambandsins Ted Croker.
an f flokki. Á meðan Víkingar
gátu ekki fundið eina einustu glufu
á varnarmúr Norðanmanna þá
komst Tryggvi einn í gegn en lét
verja frá sér fyrst en náði boltanum
aftur og skaut. Þá björguðu Víkingar
hinsvegar á línu. Smá saman fjaraði
leikurinn út í rifrildi leikmanna við
hverr. annan og dómarann. Alveg
furðulegt hversu leikmcnn láta allt
fara í taugarnar á sér og líta á sig sem
„stóra karla“. KA-menn fóru því
með þrjú dýrmæt stig 'norður til
Akurcyrar.
Eins og fyrr greinir þá fór þessi
leikur fram á gervigrasinu á meðan
tveir leikvcllir í Laugardalnum
standa ónotaðir iðagærnir og tilbúnir
til að láta spila á sér. Furðuleg
ákvörðun að nota gervigrasið er
annað og betra býðst.
Staðan í 1. deild:
Fram .... 10 7 2 1 22-6 23
Valur .... 9 5 2 2 10-4 17
IBK 9 5 0 4 10-12 15
ÍA 10 4 2 4 18-10 14
Þór 9 4 2 3 14-16 14
KR 9 3 4 2 12-7 13
FH 10 4 1 5 15-17 13
UBK 9 3 2 4 8-12 11
VíÖir 10 2 2 6 6-14 8
lBV 9 1 1 7 8-23 4
Staðan i 2. deild:
KA 9 5 4 0 26-6 19
Selfoss . . . 8 5 3 0 16-4 18
Vikingur . 9 5 1 3 26-9 16
Einherji . . 8 4 2 2 11-12 14
Völsungur 8 3 2 3 12-8 11
UMFN . . . 9 3 2 4 15-19 11
KS 8 2 3 3 13-12 9
ÍBÍ 8 1 5 2 11-13 8
Þróttur . .. 9 2 2 5 14-20 8
Skallagr. . 8 0 0 8 4-46 0
Engin keppni
- milli sterkustu félagsliða Bretlandseyja
FH-ingar unnu sigur
á döprum Víðismönnum
Stigabaráttan setti svip sinn á viðureignina - FH sigraði með tveimur mörkum gegn einu
FH-ingar nældu sér í þrjú stig í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi
þegar þeir sigruðu Víði frá Garði með
tveimur mörkum gegn einu á nýslegnum en
ósléttum Kaplakrikanum í Hafnarfírði. Bar-
ist var um hvern bolta í leiknum en daprar
sendingar og oflítil hreyfíng án bolta olli því
að lítið var um hnitmiðaðarog árangursríkar
sóknaraðgerðir.
Páll afgreiddi UMFN
Páll Ólafsson reyndist Þrótturum
betri en enginn í viðureigninni við
Njarðvíkinga í 2. deild í Njarðvíkum í
gærkvöldi. Hann skoraði sigurmarkið
í leiknum er liðið var á síðari hálfleik.
Hvorugu liðinu hafði þá tekist að skora
en Páll gerði gæfumuninn eins og
honum er lagið. Þetta er annar sigur
Þróttar í 2. deild og hefur Páll verið
með í báðum.
Fylkirvann Grindavík
Fylkismenn gerðu góða ferð til
Grindavíkur í 3. deild í gærkvöldi. Þeir
lögðu heimamenn að velli í spennandi
leik 2-1. Fylkir var á undan hvassri
golu í fyrri hálfleik og skoruðu tvívegis.
Gústaf Vífílsson og Rúnar Vilhjálms-
son gerðu mörkin. í síðari hálfleik
tókst Grindvíkingum aðeins að skora
úr víti er Hjálmar Hallgrímsson tók af
öryggi.
Heimaliðið byrjaði betur og lék á köflum
skemmtilega á milli sín úti á vellinum,
sérstaklega þar sem Ólafarnir Hafsteinsson
og Jóhannesson voru nálægir. Víðismenn
fengu þó gott marktækifæri strax á 10.
mínútu, hinn hættulegi Helgi Bentsson var
þá felldur fyrir utan teig. Hann var snöggur
að hugsa, sendi boltann á frían samherja en
ekkert varð úr góðu skoti.
Lítið markvert gerðist annars í fyrri
hálfleiknum, má þó minnast á skalla Inga
Björns eftir aukaspyrnu Magnúsar Pálsson-
ar, boltinn fór rétt framhjá og liðin því jöfn
í hálfleik 0-0.
Fyrri hluti síðari hálfleiks var lélegur,
einhver stigaspenna í leikmönnum sem náðu
sér ekki á strik. Ólafur Hafsteinsson náði sér
þó á strik á 65. mínútu er hann lék á nokkra
Víðismenn og gaf á Inga Björn sem skaut að
marki, boltinn hálfvarinn afGísla markverði
og þaðan barst hann út í teig og skoppaði í
hendi Björns Vilhelmssonar. Víti dæmt eftir
dulítið samtal Ólafs Lárussonar dómara og
línuvarðar hans. Spennan mikil en Guð-
mundur Hilmarsson öruggur og skoraði í
bláhornið. 1-0.
Aðeins tíu mínútum síðar skoraði svo
Kristján Gíslason annað mark FH-inga með
skoti innan út teig eftir hreint frábæran
undirbúning Ólafs Jóhannessonar sem fékk
aðstoð annarra FH-inga við að fara í gegnum
vörn Víðis með stuttu þríhyrningsspili.
Nú vöknuðu Víðismenn upp við vondan
draum og fóru að sækja í fyrsta sinn með
nógu marga menn. Þær sóknaraðgerðir báru
árangur á 79. mínútu þegar Helgi Bentsson
skoraði af stuttu færi eftir að Mark Duffield
hafði skallað boltann fyrir fætur hans. Stuttu
síðar björguðu FH-ingar á línu.
Leikur FH-inga var köflóttur. Ólafur
Jóhannesson og Ólafur Hafsteinsson áttu
góða kafla á miðjunni og mikið lifnaði yfir
Pálma Jónssyni í síðari hálfleik, oft meiri
spurning um vilja en getu hjá honum.
Vörnin, þeir Guðmundur Hilmarsson,
Henning Henningsson, Magnús Pálsson og
Leifur Garðarsson var góð í heild, Leifur
efnilegur leikmaður.
Víðismenn léku án Daníels Einarssonar
og munar um minna. Verra umhugsunarefni
fyrir hina tryggðu áhangendur liðsins var þó
að leikmennirnir léku illa sem heild. Þrátt
fyrir spretti Helga Bentssonar, styrk Mark
Duffields og dugnað Guðjóns Guðmunds-
sonar vantar heildarsvip yfir liðið. Áhang-
endurnir bíða líka sjálfsagt eftir því að
Grétar Einarsson fari að sýna sama form og
gerði hann að einum athyglisverðasta fram-
herja íslenskrar knattspyrnu í fyrra.
hb
Heimsmetsjöfnun
A-þýska stúlkan Heike Drechsler
jafnaði heimsmet sitt í langstökki á
móti í A-Berlín í fyrradag. Hún flaug
7,45 metra og jafnaði metið sem hún
setti í Tallinn í síðasta mánuði.
Drechsler jafnaði einnig heimsmetið í
200 m hlaupi fyrir stuttu síðan og
sannaði með því að hún er einhver
fremsta íþróttakona A-Þýskalands um
þessar mundir.
LANDSBANKASÝNING
100.ARA AFMÆLI LANDSBANKA ÍSL ANDS OG ÍSUENSKRAR Si BLAÚTCiÁFU
28.JÚNÍ—20.JÚLÍ í SEÐLABANKAHÚSINU
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár
rr
| tilefni 100 ára afmælis Landsbankans og
[ | íslenskrar seðiaútgáfu hefur verið sett upp
Js vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við
Kalkofnsveg. Þarerm.a. rakin saga gjaldmiðils
á Islandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgrelðsla
bankans endurbyggð, skyggnst inn i
framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar
vélar og fylgst með hvernig penlngaseðlll
verður tll.
rr
sýningunni verða seldir sérstakir
mlnnlspenlngarog frímerkl, þarer vegleg
verðlaunagetraun og léttur útlbúalelkur
og daglega eru sýndar kvlkmyndlr um
Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og
myntútgáfu.
Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta
sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu
listmálara þjóðarinnar.
Veltlngasala er á sýningunni og lelksvæðl
fyrirbörn.
ýningin er opln virka daga frá
kl. 16.00-22.00 og frá 14.00-22.00
um helgar.
Við hvetjum alla til þess að sjá þessa
stórskemmtilegu sýningu.
Aðgangur er ókeypis.