Tíminn - 05.07.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
„Richard Clayderman er
prins rómantíkurinnar"
- segir Nancy Reagan
Annie
Lennox
- var kosin
„Kona vikunnar“
í bresku
kvennablaði
Söngkonan Annie Lennox hefur verið í
efstu sætum vinsældalista popplaga um
þriggja ára skeið eða lengur. f>að er alltaf
viss stíll yfir öllu sem frá henni heyrist og
Annie sjálf hefur líka vissan stíl eins og
meðfylgjandi mynd sýnir.
Á þessu ári hafa selst einhver ósköp af
plötum hennar í Bretlandi og var þar efst
á blaði Eurythmics-albúmið. Á þessu ári
lék Annie Lennox líka fyrst í kvikmynd.
En árið var ekki að öllu leyti gott hjá
Annie, því að á þessum sama tíma leystist
upp hjónaband hennar og eiginmannsins,
Radha Raman, sem tilheyrir Hare-
Krishna-söfnuði (hindúatrú). Þrátt fyrir
persónulega erfiðleika hefur Annie
Lennox mikinn meðbyr sem söngkona.
Og þó að eitt lagið hennar heiti „Hver er
þessi stúlka?" þá er það víst, að enginn
spyr svo um hana sjálfa. Allir þekkja
Ánnie Lennox, og nú hefur hún verið
kosin „Kona vikunnar“ í bresku útbreiddu
kvennablaði.
Annie Lennox - „Kona vikunnar“ í vikuritinu Woman.
Píanósnillingurinn Richard Clayderman er vinsæll víðar;.
en á Islandi. Sjálf Nancy Reagan hefur boðið honum að
spila í Hvíta húsinu og sæmt hann heiðursnafnbótinni
„prins rómantíkurinnar“! En hvernig heimilisfaðir er þessi
rómantíski prins?
Richard býr á rómantísku bóndabýli í útjaðri Parísar
með eiginkonu nr. 2, ungum syni þeirra og dóttur hans af
fyrra hjónabandi. Það má hártoga að Richard „búi“ á
þessum góða stað. Hann ferðast nefnilega um allar trissur
10 mánuði á ári, en þá tvo mánuði sem hann tekur sér frí
notar hann til að kynnast fjölskyldu sinni. Og hvert frí er
næstum eins og nýir hveitibrauðsdagar hjá þeim hjónum,
enda segir Richard að ástin hjá þeim sé eins ný og fersk og
fyrir 6 árum þegar þau kynntust!
Richard mælir sem sagt eindregið með því til að halda
lífinu í ástinni og rómantíkinni, að elskendur gefi sér gott
frí hvor frá öðrum, en slíti ekki upp tilfinningunum í
hversdagslegu amstri.
Richard Clayderman og Christine hafa verið saman í 6 ár en eru enn eins
og nýtrúlofuð. Enda eru þau aðskilin 10 mánuði á ári! Og börnunum
sínum þarf hann að ky nnast upp á nýtt í hvert skipti sem hann hittir þau.
Laugardagur 5. júlí 1986
llllllllllllllllllil ÚTLÖNID llillllllllllllllll1
FRÉTTAYFIRLIT
HARARE — Jimmy Carter
fyrrum Bandaríkjaforseti gekk
út er ráðherra Zimbabwestjómar
hélt ræðu í formlegu veisluboði
sem haldið var í Harare til að
minnast þjóðhátíðardags
Bandaríkjamanna. Ráðherr-
ann gagnrýndi í ræðu sinni
stefnu Bandaríkjastjórnar í
málefnum Suður-Afríku. Cart- •
er var greinilega hinn reiðasti
vegna ræðunnar og gekk út
ásamt fleira fólki.
NÝJA JÓRVÍK — Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti og
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti hittust vegna há-
tíðarhaldanna sem nú standa
yfir í Bandaríkjunum til að
minnast þess ao hundrað ár
eru liðin frá því að franska
þjóðin gaf Bandaríkjamönnum
frelsistyttuna. Forsetarnir
ræddu samskipti austurs og
vesturs og hvaða hugmyndir
Sovétmenn myndu líklegast
hafa fram að færa á næsta
leiðtogafundi stórveldanna
tveggja.
JÓHANNESARBORG -
Ríkisstjórnin sagði það jafn-
gilda sjálfsmorði fyrir hvita
minnihlutann í Suður-Afríku að
láta undan þrýstingi vestrænna
ríkja um breytingar að aðskiln-
aðarstefnunni. Vinna við fjórar
námur í eigu De Beers sam-
steypunnar lagðist að mestu
niður í gær vegna verkfalls
svartra námuverkamanna sem
krefjast þess að verkalýðs-
leiðtogar svertingja verði leyst-
ir úr haldi.
KUWAIT - Prinsinn í Kuw-
ait leysti upp þingið vegna
þess sem hann kallaði kreppu í
öryggis- og efnahagsmálum.
Hann skipaði nýja ríkisstjórn
sem hann sagði verða að tak-
ast á við áður óþekkta erfið-
leika.
BEIRÚT - Almennu verkfalli
sem boðað var til að mótmæla
borgarstyrjöldinni í Líbanon og
efnahagsvandamálum lands-
ins lauk í gær án þess að
nokkur teikn væru á lofti um að
tekist hefði að komast út úr
hinni stjórnmálalegu sjálf-
heldu sem ríkir í landinu. Verk-
fallið, sem stóð yfir í sólarhring,
naut mikils almenns
stuðnings.
OSLÓ — Norska ríkisstjórnin
var gagnrýnd bæði af andstæð-
ingum hvalveiða og stuðnings-
mönnum veiðanna í Noregi
eftir að hún tilkynnti um bann á
hvalveiði í gróðraskyni frá og
með næsta ári.
HELSINKI — Kommúnista-
flokkurinn í Finnlandi, einn sá
elsti í heimi, hefur klofnað og
hafa harðlínumenn úr hópi
Sovétsinna sótt um að bjóða
fram í þingkosningunum á
næsta ári sem aðskilinn hópur.
NICOSIA — Turgut Ozal
forsætisráðherra Tyrklands
lauk þriggja daga heimsókn
sinni til norðurhluta Kýpur með
þvi að lofa að styðja sjálfstætt
ríki Tyrkja á eynni.