Tíminn - 05.07.1986, Blaðsíða 20
feíiííó
meðVISA
FH-INGAR færöu sig af fallsvæði 1.
deildar i gærkvöldi meö 2-1 sigri á Víöi Garði.
Þessi sigur sendi Garösbúa jafnframt niöur í
hyldýpi botnbaráttunnar. í 2. deild var stórleik-
ur er Víkingar tóku á móti KA á gervimottunni
í Laugardal. Norðanmenn fóru meö sigur af
hólmi. Gerðu eina mark leiksins og eru nú á
toppi 2. deildar og verða nema aö Selfyssing-
um takist aö sigra Völsunga í dag.
Landsmótið á Hellu:
Fjölmenni á Rangárbökkum
- búist við 20 þúsund manns
Nú stendur yfir landsmót hesta-
manna á Hellu. Hestamenn fjölmenna
hvaðanæva af landinu og ekki nóg
með það, heldur sækir mótið mikill
fjöldi erlendra hestaáhugamanna,
sem leggja mikið á sig að komast á
mótsstað.
Að sögn Kjartans Ólafssonar,
framkvæmdastjóra mótsins hefur
verið unnið þrekvirki í undirbúningi
og framkvæmd mótsins og hefur
undirbúningur og skipulagning tekið
mörg ár. Við mótið starfa í sjálf-
boðavinnu nokkur hundruð manns og
er það óhemju fórnfúst starf,semþað
fólk lætur í té. Kjartan sagði að
aldrei hefði verið boðið upp á aðra
eins þjónustu, á mótsstað sem nú.
Aðspurður um ölvun sagði Kjartan
að hestamennska væri mikið að
breytast og að ekki bæri eins mikið
á ölvun nú og áður. Um hádegisleyt-
ið í gær var áætlaður fjöldi mótsgesta
um 5000, en búist var við 20.000
manns í dag og á morgun. Veður var
stillt og mótsgestir fylgdust með
ánægju með keppni gæðinga í A-
flokki.
Rögnvaldur Ingólfsson og Svan-
berg Reynir Gunnlaugsson voru
langt að komnir, Rögnvaldur frá
Bolungarvík og Svanberg frá Bakka
í Dýrafirði. Þeir voru ánægðir með
framkvæmd mótsins og aðstöðu alla.
Báðir eru þeir hestamenn miklir
og segja þeir hestamennskuna vera
sjúkdóm sem fylgi mönnum til ævi-
loka.
Jón Sigurbjörnsson leikari var
einn af þeim sem fylgdust spenntir
með keppni gæðinga í A-flokki.
Hann var á sama máli og þeir
Rögnvaldur og Svanberg með móts-
aðstöðuna. Jón kom á mótið strax á
miðvikudag og segist hafa séð mikið
af úrvals gæðingum, geltum og ógelt-
um. Sjálfur er Jón með einn hest á
sýningu.
Mótið hófst á miðvikudag með
dómsstörfum kynbótahrossa með af-
kvæmum. Á fimmtudag voru svo
dæmd kynbótahross, og gæðingar í
Tvær kynslóðir af þarfasta þjóninum
B-flokki, einnig fór fram keppni í
eldri flokki unglinga. Á föstudag
voru dæmdir stóðhestar og gæðingar
í A-flokki og keppni fór fram í yngri
flokki unglinga. Þá var kynning á
söluhrossum sem Félag hrossabænda
stóð fyrir. Um fimmleytið í gær kom
svo kaupstaðarferðin ríðandi yfir
Rangá með farteski sitt. Síðar um
kvöldið var farin hópreið um Rang-
árvelli og haldinn dansleikur í
Njálsbúð. í dag laugardag kl. 10,
setur Stefán Pálsson, formaður
landssamtaka hestamanna, mótið.
Sýnd verða kynbótahross með af-
kvæmum, sýndir verða A og B-
flokks gæðingar, unglingakeppni fer
fram, töltkeppni og kappreiðar og
loks verður kvöldvaka. Endapunkt-
urinn verður svo eins og í gærkvöld,
dansleikur í Njálsbúð. Á sunnudag
verða verðlaun veitt og mótinu síðan
Gustur frá Stormi sýnir.
Jón Sigurbjörnsson fylgist grannt með.
Tímamyndir- Gísli Egill.