Tíminn - 08.07.1986, Síða 4
4 Tíminn
/
Þriðjudagur 8. júli 1986
BROOKE
SHIELDS
er oröin 21 árs - og þá....?
J, það er staðreynd, - leikkonan
Brooke Shields er yfirlýst jómfrú, og'
hún hefur meira að segja klausu um það
í samningi sínum að hún ætli að varðveita
meydóminn þartil húner21 árs(a.m.k.)!
Nú nýlega (31. maí) varð stúlkan 21
árs, svo úr þessu má fara að búast við
öllu. Brooke var spurð í blaðaviðtali
hvers vegan hún hefði verið með þessar
yfirlýsingar um skírlífi sitt.
Hún svaraði því til, að í fyrsta lagi gæti
hún ekki hugsað sér „sex“ án innilegrar
ástar, og hún hefði enn ekki orðið svo
ástfangin.
- Eg get orðið hrifin af strákum og ég.
fer út að skemmta mér, en svo segi ég
„hingað og ekki lengra" og þeir vita að
ég meina það sem ég segi.
Blaðið sem viðtalið var í fékk tvo lækna
til að segja álit sitt á skírlífsheiti leikkon-
unnar. Annar þeirra sagði: „Fyrir eins og
30 árum hefði þetta ekki vakið athygli. Þá •
var stúlkum kappsmál að varðveita mey-
dóminn. Ef til vill kemur ungfrú Shields
aftur af stað „skírlífshreyfingu“ og það er
timum
aldrei nema af hinu góða, nú
kýnsjúkdóma og lausungar.“
Hinn doktorinn sagði: „Þegar stúlkan
hefur svona staðfastlega haldið sig við
jómfrúrdóminn, er hætt við að hún hafi
haldið tilfinningum sínum svo í skefjum,
að erfitt verði hjá henni - í fyrstu a.m.k.
- að lifa eðlilegu ástalífi. Hún er eiginlega
stödd í nokkurs konar „einskismanns-
landi“. Allt getur þetta auðvitað farið
vel,“ bætti hann svo við.
Brooke Shields hefur verið ljósmynda-
fyrirsæta frá barnæsku og 11 ára lék hún
barnunga gleðikonu í New Orleans í
myndinni „Pretty Baby“. Svo hefur hún
leikið hálfnakin í myndunum Bláa lónið
(Blue Lagoon) og „Endless Love“ og
auglýsingamyndir af henni í níðþröngum
gallabuxum vöktu upp mikla mótmæla-
öldu í Bandaríkjunum hjá þeim siða-
vöndnu. Þrátt fyrir þetta hefur Brooke
Shields verið fyrirmyndin „gegn lauslæti,
eiturlyfjum, reykingum og drykkjuskap,
en hún mælir með að ungt fólk venji sig
á að vinna mikið og að ákveðnu takmarki
og stundi kirkjugöngur.
Sálfræðingur bandarískur sem einnig
sagði álit sitt á viðtalinu, lét í ljósi þá
skoðun, að svona mikil fyrirmyndar-
stúlka sem hefði skapað sér algjört „sið-
prýðisálit" almennings væri svo hátt uppi
í skýjunum, að venjulegir ungir menn
þyrðu ekki að nálgast jómfrúna fögru.
Frægasta jómfrú
í heimi
í gallabuxna-auglýs-
ingunni þótti Bro-
oke „óleyfilega
sexr
„Hingað og ekki
lengra“ hefur verið
viðkvæðið hjá
Brooke, en nú er
hún orðin 21 árs - og
kannski bankar ástin
bráðum uppá hjá
henni.
„Pretty Baby“ og
hún Brooke var
sannarlega „fallegt
barn“ 11 ara
ÚTLÖND llllllllilllllllllli
FRETTAYFIRLIT
MOSKVA — Francois Mitt-
errand Frakklandsforseti og
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi hófu viðræður sem vonast
er til að muni bæta sambúð
austurs og vesturs og gefa
afvopnunarviðræðum byr und-
ir báða vængi.
JÓHANNESARBORG
— Stjórnvöld í Suður-Afríku
sögðust hafa aflétt bönnum
þeim sem baráttukonan Winn-
ie Mandela hefur þurft að lúta
að mestu síðustu 24 árin. Þá
tilkynntu námuyfirvöld að 15
svartir gullnámuverkamenn
hefðu látið lífið um helgina í
því sem þau kölluðu ættflokka-
bardaga.
LUNDÚNIR — Sir Geoffrey
Howe utanríkisráðherra Bret-
lands frestaði för sinni til Suð-
ur-Afríku en samkvæmt til-
kynningu utanríkisráðuneytis
breska áætlar Howe að fara
síðar í ferð þessa.
WELLINGTON - Stjórnir
Frakklands og Nýja Sjálands
hafa komist að samkomulagi
um að tveir franskir leyniþjón-
ustumenn verði fluttir til
franskrar eyju í Kyrrahafinu.
Leyniþjónustumennirnireru nú
í fangelsi á Nýja Sjálandi
vegna þátttöku sinnar í að
sökkva skipi Grænfriðunga
Rainbow Warrior.
Það voru Sameinuðu þjóð-
irnar sem komu fram með
þessa málamiðlunartillögu.
BEIRÚT — Öryggissveitir frá
bæði Sýrlandi og Líbanon
hertu effirlit sitt í Vestur-Beirút.
Enn jókst ósamkomulagið milli
leiðtoga múslima og Amin
Gemayel forseta Líbanon.
BRÚSSEL — Fjármálaráð-
herrar ríkja Evrópubandalags-
ins (EC) hófu vikulangar við-
ræður þar sem reynt verður að
ná samkomulagi um útgjöld
þandalagsins fyrir árið 1986
og afstýra fjárhagskreþpu.
JERÚSALEM - Alþjóða
gyðingaráðið lagði fram ný-
uppgötvaða nasistaskýrslu þar
sem kemur fram að leyniþjón-
ustudeild sú sem Kurt Wald-
heim starfaði fyrir í stríðinu
skipaði svo fyrir að 2500 grískir
gyðingar yrðu fluttir til Ausc-
hwitz útrýmingarbúðanna.
LUNDÚNIR - Margrét
Thatcher forsætisráðherra
Bretlands sendi samúðar-
kveðjur til fjölskyldna Ástral-
íubúanna tveggja sem hengdir
voru í Malajsíu fyrir heróín-
smygl. Samkvæmt tilkynningu
frá skrifstofu forsætisráðherr-
ans vonast hún til að refsingin
verði öð.rum til viðvörunar.
Annar Ástralíubúanna var
fæddur í Bretlandi.
LEIMEN. V-Þýskaland
— Mikill viobúnaður var í bæ
þessum og fánar dregnir að
húni til að fagna heimkomu
frægasta bæjarbúans Boris
Beckers sem um helgina vann
Wimbledon tennismótið annað
skiptið í röð.