Tíminn - 08.07.1986, Síða 16
Tíminn
lllfært skipum
vegna hafísa
Tveir togarar brutust í gegn um landfastan ís
í gærmorgun bárust þær fréttir að
hafís væri enn að nálgast iandið að
norðanverðu og að sæist til hans úr
landi frá Hombjargsvita. Landhelgis-
gæslan flaug þvf strax um morguninn
í ískönnunarleiðangur til að kort-
leggja hafísröndina umhverfis Vest-
firði.
Skyggni var slæmt fyrir vestan
Vestfirði en það mátti greina á ratsjá
að ísinn þakti stórhafsvæði. Þokunni
létti er norðar dró, en þá varð ljóst
að ísinn var gisinn og sléttur og við
það að bráðna. Hann er þó illfær
skipum og gæslumenn mæla ekki
með skipaferðum frá Óðinsboða
úti fyrir Geirólfsgnúp og austur að
Gjögri, en þar á milli er landfastur
ís varhugaverður og ekki fær nema
kunnugum, beiti þeir lagni í sléttum
sjó og góðu skyggni.
Aðstæður í gær voru góðar til
athugunar á hafísnum á þeim svæð-
um sem hann nær að landi, skyggni
ágætt og ládauður sjór. Tveir togar-
ar, Björgúlfur frá Dalvík og Ólafur
Bekkur frá Ólafsfirði, tókust þar á
við ísinn og tókst að brjótast í gegn
um hann undir leiðsögn flugvélar
Landhelgisgæslunnar sem vísaði
þeim til besta vegar í austurátt.
Fleiri skip sáust og sum við veiðar
í ísnum og við rönd hans en þau voru
ekki stödd í hættu.
Á Veðurstofunni er talið, að með
suðvesturáttinni sem var í gær, muni
ísinn hörfa og jafnvel berast með
straumum fram hjá landi og bráðna
með hlýindum. Ekki er talið líklegt
að skipaleið austur fyrir Horn lokist
til langframa.
Þj
Guðmundur
til ríkiS'
saksóknara
Lokið er rannsókn fyrsta
anga Hafskipsmálsins. Ríkissak-
sóknara var í gær sent mál Guð-
mundar J. Guðmundssonar, þar
sem rannsókn var lokið.
Hallvarður Einvarðsson ríkis-
saksóknari sagði í samtali við
Tímann í gær að ákvörðunartöku
um málið yrði hraðað, en ekki
var farið að skoða það sérstaklega
í gærdag þegar haft var samband
við Hallvarð.
Guðmundur óskaði sérstak-
lega eftir því á sínum tíma að
rannsókn málsins yrði hraðað.
- ES
Sjö íslensk - fimm færeysk
íslenskt og færeyskt sundfólk var ■ stuði á íslandsmótinu í sundi sem fram fór um helgina í Laugardalslauginni. Sjö íslandsmet voru sett á mótinu
en fimm færeysk met. Systkinin úr Þorlákshöfn voru mjög áberandi en Eðvarð Þór Eðvarðsson vann þó besta afrek mótsins. Sjá íþróttir bls. 8-9
Tímamynd-Pétur
Pólverjarnir fóru úr landi á fimmtudag:
Fóru með Norrænu á laun
- dveljast hjá skyldmennum utan Póllands
Pólverjarnir tveir, sem struku af
hafrannsóknarskipi sem lá í Reykja-
víkurhöfn, fyrir viku síðan, eru
komnir til ættingja annars þeirra
sem búa utan Póllands.
Mennirnir tveir gáfu sig fram við
útlendingaeftirlitið fljótlega eftir að
þeir fóru frá borði. Leituðu þeir eftir
aðstoð lögreglunnar, við að komast
til ættingja annars þeirra utan
Póllands. Að sögn Böðvars Braga-
sonar lögreglustjóra voru fullyrðing-
ar mannanna kannaðar og reyndust
á rökum reistar. „Þeir leituðu ekki
eftir pólitísku hæli,“ sagði Böðvar.
Þegar ljóst var orðið að mennirnir
ættu ættingja utan Póllands, sem
vildu taka við þeim, voru þeir sendir
með Norrænu ferjunni frá Seyðis-
firði síðastliðinn fimmtudag. Það
var síðan í gærmorgun sem lögregl-
unni bárust upplýsingar um að
mennirnir hefðu komist heilu og
höldnu á áfangastað, sem lögreglan
heldur leyndum. Ástæða þess að
upplýsingar um málið lágu ekki fyrir
á föstudag, var að lögregla vildi fyrst
fá vitneskju um hvort mennirnir
kæmust heilu og höldnu. Báðir eru
þeir giftir konum í Póllandi og eiga
þar börn.
Böðvar Bragason sagði í samtali
við Tímann í gær að dómsmálaráðu-
neytið hefði fallist á beiðni mann-
anna um aðstoð. Hann tók jafnframt
fram að ekki hefði heyrst til pólskra
yfirvalda, vegna málsins.
-ES