Tíminn - 13.07.1986, Síða 4
4 Tíminn
Sunnudagur 13. júlí 1986
kvikmyndinni
Salvador
Kvikmyndin Salvador hefur
nú gengið í hálfan annan mánuð
í Austurbæjarbíói, en hún fjallar
um atburði í Mið-Ameríkurík-
inu E1 Salvador sem gerðust
fyrir nokkrum árum, og flestum
sem fylgjast með alþjóðavið-
burðum eru í fersku minni, þar
á meðal morðin á Romero erki-
biskupi og á hópi bandarískra
nunna. Myndin er annars beisk
ádeila á stefnu bandarískra
stjórnvalda í málefnum þessara
granna sinna, en höfuðpersónur
eru bandarískur blaðamaður og
stríðsfréttaritari og landi hans
sem er ljósmyndari. Þeir fylgjast
með átökunum í landinu og því
hlutverki sem þeirra eigin
stjórnvöld leika í þeim. í lokin
reynir blaðamaðurinn að smygla
unnustu sinni frá El Salvador úr
landi en það mistekst og þau eru
skilin að í myndarlok.
Pað hefur hins vegar ekki
verið á almannavitorði að ís-
lensk stúlka kemur nokkuð við
sögu í myndinni leikur eina af
nunnunum bandarísku, sem
myrtar eru og starfaði nokkuð
viðgerðmyndarinnar. Hún heit-
ir Sigríður Guðmundsdóttir og
stundar leiklistarnám við há-
skólann í Mexíkóborg.
„Myndin var tekin fyrir einu
ári hér í Mexíkó, í bænurn
Acapulco á vesturströndinni og
í nágrannafylki Mexíkóborgar,
Morelos. Ég á vinkonu sem
hefur verið að vinna í kvik-
myndastúdíói í Mexíkó og það
var í gegnum hana sem ég fékk
þetta hlutverk, sem er nú reynd-
ar afar smátt.
Eins og kemur frant í mynd-
inni þá styðst hún við sannsögu-
lega atburði. Handritshöfundar
eru tveir, Oliver Stone sem er
jafnframt leikstjóri og Richard
nokkur Boyle. Oliver Stone
hafði ekki leikstýrt áður en hann
stjórnaði Salvador, eri hann hef-
Helgar-Tíminn hefur uppi á ís-
lendingi í Mexíkó, sem leikið
hefur með John Savage m.a. og
undir leikstjórn handritshöfund-
ar Scarface!
Þessi Boyle er Bandaríkjamaður
af írskum ættum og hefur dvalið
víða. Hvarvetna þar sem hann
hefur getað fundið stríð þar
hefur hann verið; á írlandi, í
Beirút og í Víetnam til dæmis.
Hann hefur skrifað fræga bók
um Víetnam - stríðið sem heitir
The Flower and the dragon.
Hann lýsir sjálfum sér ekki sér-
staklega traustvekjandi í mynd-
inni, hann er í rauninni dálítið
blautur en þetta er ákaflega
indæll og skemmtilegur maður.
segja eftir því að Boyle hringdi
í ekkju hans í Bandaríkjunum
einu sinni þegar hann var stadd-
ur heima hjá mér í Mexíkóborg.
Hann hefur sjálfur upplifað
þetta mestallt. ”
Sigríður Guðmundsdóttir hef-
ur dvalið í Mexíkó í fjögur ár og
stundar leiklistarnám sitt við
þjóðarháskólann j Mexíkóborg.
Hún er annar íslendingurinn
sem stundar reglulegt nám við
þann skóla, hinn er Vífill Magn-
ússon arkitekt, en allmargir ís-
lendingar hafa numið við útlend-
ingadeild þessa skóla.„Ég á ætt-
ingja í Mexíkó,“ segir Sigríður,
„frænka mín býr hér með fjöl-
skyldu sinni. Ég kom hingað
upphaflega til að hitta þessa
ættingja mína og kynnast land-
inu um leið og svo fannst mér
eitt ár alls ekki nóg til þess og
svo fór að ég ílentist. Ég á eftir
að vera hér í nokkur ár í viðbót
áður en ég lýk námi og eftir það
er að ganga frá sínum pappírum,
það tekur allt sinn tíma í Mex-
íkó, allt er stórt og dálítið þung-
lamalegt í'sniðunum."
Þótt nú sé hásumar er Sigríður
á kafi í námi sínu og sumarfríi
hennar lokið, stúdentum var
reyndar gefið frí meðan á heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu stóð. Fæstir hafa þó not-
að fríið til að fylgjast með knatt-
spyrnu, Sigríður segir það af og
frá að háskólastúdentar hafi haft
efni á því að kaupa sig inn á leik,
það hefði ekki aðrir haft en
betur stætt millistéttarfólk og
fólk þaðan af hærra í þjóðfé-
lagsstiganum.
„Ég er í alhliða leiklistarnámi,
þó aðallega sviðsleik en fékk þó
þessa reynslu af kvikmyndum í
fyrra og hef leikið svolítið í
myndum sem hafa verið gerðar
hér innan skólans. Heini til
íslands, - guð má vita hvenær
það verður, ég hef ekkert ákveð-
ið um það og engar áætlanir.“
James Wood og John Savage í hlutverkum bandarískra blaðamanna fylgjast með stríðsátökum
í myndinni Salvador.
í aðalatriðum lýsir myndin
sönnum atburðum og raunveru-
legu fólki. Boyle var í E1 Salva-
dor þegar nunnurnar voru
drepnar og var vitni að því þegar
Romero var myrtur. Stúlkan frá
E1 Salvador, unnusta aðalsögu-
hetjunnar var einnig til og það
sama er um ljósmyndarann að
segja, þann sem leikinn er af
John Savage. Ég man meira að
ur gert handrit að góðum kvik-
myndum eins og t.d. Scarface og
Midnight Express.
Ég kynntist Richard Boyle
ágætlega, en hann er fyrirmynd-
in að söguhetju myndarinnar.
Islensk leikkona í
Einn af þeim atburðum sem vakti athygli umheimsins fyrir alvöru á ástandinu í El Saivador var Götubardagi í höfuðborginni San Salvador.
sá atburður, þegar bandarískum nunnum var nauðgað og þær síðan myrtar af hermönnum
stjórnarhersins. Þeim atburði eru gerð skil í myndinni Salvador.