Tíminn - 13.07.1986, Side 19
Sunnudagur 13. júlí 1986
Tíminn 19
LÁNIÐ
LÉK VIÐ
KÍNVERJA
Hundruð eigenda happ-
drættismiða í Macao í Suður
Kína urðu fádæma lánsamir, er
þeir allir hlutu vinning, því að
stjórnin fyrirskipaði að öllum
skyldi greitt fyrir miða með
sama númerinu vegna prent-
villu.
Deild sú er skipuð er af stjórn-
inni og hefur yfirumsjón með
happdrætti og spilum ýmisskon-
ar í . portúgölsku nýlendunni
Macao gerðu spilafélaginu þann
kost að greiða um það bil 600
eigendum happdrættismiða sem
samsvarar 800 milljónum ís-
lenskra króna.
Hefði, eins og ráð var fyrir
gert, aðeins einn maður hlotið
vinningin hefði hann fengið í
sinn hlut rúmar 53.000 krónur.
Talsmaður spilafélagsins
sagðist ekki vilja liggja óbættur
hjá garði og fullyrti, að mál
þetta væri ekki útrætt við breska
prentara og tryggingarfélag
þeirra, en í Bretlandi höfðu
miðarnir verið prentaðir.
Brassar
iðnir yið
kolann
íbúatala Brasilíu jókst um
2,5% árlega síðastliðinn áratug.
Petta er mesta fjölgun innan
þjóðar meðal þeirra fjölmenn-
ustu í heimi, segir í nýútgefinni
alþjóðaskýrslu um staðreyndir.
Til viðmiðunar má taka dæmi,
svo sem fjölgun Kínverja um
],2%, Indverja um 2,1%, Sov-
étmanna um 0,8%, Bandaríkja-
manna um 0,7%, Indónesíubúa
um 2,0% og Japana um 0,8%.
Ástæða þess að Brasilía hefur
skotið öðrum þjóðum ref fyrir
rass í þessum efnum er sú, að
heilsuvernd og almennt heil-
brigði Brasilíumanna hefur
batnað til muna miðað við
hvað áður var og er nú meðalald-
ur þeirra kominn í 64 ár og spár
segja að hann verði kominn
upp í 68 ár um árþúsundamótin.
Kaflavíxl
í viðtali í síðasta Helgar-Tíma
við Björn Guðjónsson trompet-
leikara, urðu þau mistök að
kaflar víxluðust og hluti niður-
lags lenti framar en átti að vera.
Lesendur blaðsins og Björn
eru beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Karate:
DRÁPU FÉLAGA
SINN
í SKÍTUGUM GALLA
Nemendur í sjálfsvarnarskóla
Karate félags í Tokyo í Japan
spörkuðu félaga sinn til dauðs,
því að hann hafði ekki þvegið
búninginn sinn, sagði japanska
Iögreglan.
Tetsuya Mori, 19 ára gömul
Karate kempa, lést af innvortis
blæðingum og annar nemandi
slasaðist alvarlega í ryskingum
sem áttu sér stað í skólanum 1.
júlí sl. í einkaháskólanum Tak-
ushoku.
Lögreglan hefur handtekið
fimm nemendur sem munu hafa
staðið fyrir refsingunni.
Margar íþróttadeildir skóla í
Japan lúta mjög ströngum regl-
um og oft eru nemendur agaðir
á hinn voðalegasta hátt.
Stundum, eins og í þessu tilviki,
fer þjálfun nemenda úr bönd-
unum og sjálfsvarnartæknin
verður morðtæki í höndum óvit-
urra unglinga.
Öllum er fjálst að drepa sjálfan sig undir merki hollra iþrótta,
eins og íslenskur karategemlingur gerir heiðarlega tilraun til á
þessari mynd, en þegar þeir drepa hver annan skerst lögreglan
í leikinn. líniamynd: Árni Iljarna.
ISLENSKT SEMENT
HÆFIR ÍSLENSKUM ADSTÆDUM
Alltfrá upphafi hefur Sementsverksmiöja ríkisins kappkostað að
íslenskt sement hæfi sem best íslenskum aðstæðum.
FRAMLEIÐSLA
SEMENTSVERKSMIÐJARÍKISINSframleiðir:
Portlandsement í venjulega steinsteypu.
Hraðsement í steypu sem verður að harðna hratt.
Pozzolansement í steypu sem má harðna hægt en verður
að vera þétt og endingargóð. (Sérstaklega ætlað í stíflur,
brýr og hafnarmannvirki).
STYRKLEIKI
Portlandsementið erframleitt í samræmi við íslenskan
sementsstaðal IST 9.
Styrkleiki sements er aðaleiginleiki þess.
Styrkleiki íslensks Portlandsements:
Styrkleikikg/smzeftir 3daga 7daga 28daga
Portlandsement 250 350 500
Lágmarkskrafa IST 9 175 250 350
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR FYRIR
HÚSBYGGJENDUR
• Það er ekki alltaf hægt að treysta því að steinsteypa sé
gallalaus. Látið því kunnáttumenn framleiða og með-
höndlasteypuna.
• íslenska sementið er blandað varnarefnum gegn alkalí-
hvörfum, sölt steypuefni eða salt steypuvatn getur ónýtt
þessa vörn. Hvers konar önnur óhreinindi, svo sem sýrur
og fínefni í steypuefnum, geta valdið skemmdum í
steinsteypunni.
• Sparið vatnið í steypuna. Hver lítri vatns fram yfir það,
sem nauðsynlegt er, rýrirendingu hennar.
• Gerið steypuna þjála, þannig að hún þjappist vel í mótin.
Varist þó að auka þjálina með íblöndun vatns fram yfir
það sem steypuframleiðandinn gefur upp.
• Hlífið nýrri steypu við örri kólnun. Einangrið lárétta fleti
og sláið ekki frá mótum of snemma. Annars getur
steypan enst verr vegna sprungumyndana.
• Leitið ávallt ráðgjafar hjá sérfræðingum ef þið ætlið að
byggjahús eðaönnurmannvirki úrsteinsteypu. Betri
ending bætir fljótt þann kostnað.
SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS