Tíminn - 06.08.1986, Síða 1
Ungliðahreyfingar Atiokk
annánafa ákveöio að eFna til sameigin-
legrar skemmti- og rabbferðar á Þingvöll
um næstu helgi. Hér er um tilraun beggja
ungliðasamtakanna um samstarf að
ræða, samstarf sem gæti með tímanum
orðið víðtækara, að sögn Gísla Þórs
Guðmundssonar starfsmanns Æskulýðs-
fylkingar Alþýðubandalagsins. Gísli saqði
að hjá ungliðahreyfingunni spillti fortíðin
og gamlar erjur ekki fyrir slíku samstarfi.
Hann sagði að forysta flokkanna hefði
tekið vel í hugmyndir þessar og er
fyrirhugað að í förinni verði forystumenn
úr báðum flokkum.
Umferðarátak sem er nú nýlega
hafið og beinist gegn hraðakstri og ölvun-
arakstri gengur vel og vill Umferðarráð
þakka landsmönnum eindreginn stuðning
við átakið sem lýsti sér í hóflegum hraða
og almennri notkun bílbelta og Ijósa nú
um verslunarmannahelgina, mestu um-
ferðarhelgi ársins. Jafnframt hvetur ráðið
landsmenn til að halda áfram á þessari
braut umferðarmenningar og spenna nú
einriig beltin i þéttbýlisumferðinni.
Bíll brann til kaldra kola í Miðfirði
um helgina. Bíllinn var frá Eskifirði og
voru nokkur ungmenni á ferð í Miðfirðin-
um þegar gat kom á bensíntankinn.
Þegar vart var við lekann var brugðið á
það ráð að troða tyggigúmmí í gatið. Til
að ganga úr skugga um að vel væri frá
gengið brá viðgerðarmaðurinn kveikjara-
Ijósi að til að sjá betur. Bíllinn fuðraði upp
á svipstundu.
Suður-afríski biskupinn Des-
mond Tutu sakaði í gær leiðtoga Banda-
ríkjanna, Bretlands og Vestur-Þýskalands
um að verja stjórn hvíta minnihlutans í
Suður-Afríku og hvatti til aukinna alþjóð-
iegra refsiaðgerða gegn stjórninni í Pret-
oríu. „Snúi alþjóðlega samfélagið sér
ekki að því að styðja réttlæti og frelsi í
Suður-Afríku verður stutt í lokaorustuna í
landinu."
Sovéska sjónvarpið sýndi í gær frá
popptónleikum í Tsjernóbíl sem haldnir
voru til að skemmta þeim verkamönnum
sem eftir voru til að hreinsa staðinn eftir
kjarnorkuslysið mikla í þessu kjarnorku-
veri í Úkraínu í apríl. Inn í dagskrána var
síðan skotið . myndum af fjölskyldum
sumra verkamannanna þar sem þær
slöppuðu af í sumarfríum sínum við
Svartahaf.
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands lagðist inn á sjúkrahús í
gær til uppskurðar á hægri hönd hennar.
Hún fór inn á King Edvard VII sjúkrahúsið
í Lundúnum vegna smáuppskurðar er
taka átti um klukkustund. Fréttir herma að
Thatcher sé ekkert gefið um að fara í
næstu kosningar án þess að hafa sterkan
hægri arm. Skorið var upp vegna áráttu
litla fingurs að færast inn í lófann.
KRUMMI
„Þetta virðast hálf
kvalafullar samn-
ingaviðræður! “
Viðræður Halldórs Ásgrímssonar og Baldridge:
Reyna að forðast
frekari árekstra
- en lausn lætur standa á sér
Fundi Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra og Malcolm
Baldridge viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna í gær um hvalveiði-
deilu landanna Iyktaði án þess að
nokkur niðurstaða fengist. Seint í
gærkvöldi voru í gangi óformlegar
þreifingar unt það hvort eða með
hvaða hætti viðræöunum skykli
framhaldið.
„Þetta voru all langar viðræður
og við fórunt yfir málin frant og til
baka. Það voru ræddar á fundinum
hugsanlegar leiðir til þess að kom-
ast út úr málinu án þess að það
kænti til t'rekari árekstra milli land-
anna. Við ákváðum að vera í
sambandi núna næstu klukkutím-
ana til þess að ákveða um fram-
haldið," sagði Halldór Ásgrímsson
í samtali við Tímann í gærkvöld
þegar hann var spurður um árangur
af fundi hans og Baldridge við-
skiptaráðhcrra í Washington í gær.
Halldór vildi ekki tjá sig um
hvaða leiðir hér væri unt að ræða.
Halldór ræddi við Dr. Calioéinn
aðal samningamann Bandaríkja-
stjórnar í fyrrakvöld, cn sá fundur
hafði ekki verið áformaður í
dagskrá sjávarútvegsráðherra. Eft-
ir fundinn með Dr. Calio þótti Ijóst
að talsvert bar á milli í þessari deilu
og var haft eftir fréttamönnum í
Washington að Bandaríkjamenn
vildu setja úrslitaskilyrði unt að
íslendingar veiddu ekki meira en
75 hvali í ár. Halldór Ásgrímsson
vildi ekki staðfesta þetta þegar
Tíminn bar það undir hann í gær
og sagðist ekkert geta sagt um
þetta að svo stöddu þar sem málið
væri á ntjög viðkvæmu stigi.
Aðspurður um hvort hann væri
bjartsýnni á viðunandi laust eftir
fund sinn með Baidridge heldur en
hann var fyrir fundinn sagði
Halldór: „Ég hef hvorki verið
bjartsýnn né svartsýnn og það
hefur í sjálfu sér ekki mikið breyst
við að sitja þennan fund.“
-BG
Úlfar Jónsson og Steinunn Sæinundsdóttir urðu sigurvegarar í meistaraflokki karla og kvenna á glæsilegu
landsmóti í golfi sem lauk á Hólmsvelli í Leiru á laugardaginn. Úlfar er aðeins 17 ára og yngsti
Íslandsmeistari í golfi frá upphali en Steinunn bætti golftitli í safn íslandsmeistaratigna í skíðaíþróttum.
Tíinamynd: - Sverrir.
Norðmenn
sleppa við
þvinganir
Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti hefur ákveðiö að Norðmenn
skuli ekki beittir viðskiptaþvingun-
um, þrátt fyrir að Malcolm Baldridge
viðskiptaráðhcrra hali í síðasta
mánuöi úrskurðað aö hvalveiðar
Norðmanna brytu gegn samþykkt-
um Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Ákvörðun Bandaríkjaforseta er
byggð á yfirlýsingu norsku ríkis-
stjórnarinnar frá 3. júlí þarsem því
er lýst yfir að Norðmenn hyggist
hætta hvalvciðum i viðskiptaskyni
eftir hvalvertíð næsta ársog að þcir
muni minnka kvóta veiddra dýra,
til innanlandsnotkunar en áöur
höfðu þeir ráðgert að vciöa 400
hvali i því augnamiði.
Það hefur hinsvegar ekki komið
frarn hversu mikiö Norðmcnn ætla
að draga saman veiðarnar og sam-
kvæmt upplýsingum norska sendi-
ráðsins hér á landi hefur ákvörðun
þar að lútandi ckki verið tekin enn.
„Ég byggi ákvörðun mína á
þcirri forsendu að Norðmenn hefji
ekki altur hvalveiðar í viðskipta-
skyni eftir 1987. nema þá breyttar
reglur hvalveiðiráðsins leyfi slíkt,"
er hatt eltir Bandaríkjaforseta í
fréttaskeyti frá Reuter. phh
Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps:
Vill að varnarsamningurinn
verði tekinn til athugunar
- sem og sérréttindi NATO í hreppnum, í kjölfar hótana Bandaríkjanna
Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps hefur sent frá sér
ályktun þar sem afskiptum Banda-
ríkjanna af hvalveiðum íslendinga
er harðlega mótmælt.
Telur hreppsnefndin að hótanir
Bandaríkjamanna unt viðskipta-
þvinganir beri vott unt drottnunar-
girni og yfirgang gagnvart smáþjóð
og sé bein ögrun við sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétt íslendinga.
Það sé ekki háð lögsögu eða í
valdsviði Bandaríkjanna að ákv-
eða hvernig fslendingar nýta auð-
lindir sínar eða hverjum þeir selji
afurðir sínar.
Þá skorar hreppsnefndin á ríkis-
stjórnina að mótmæla yfirgangi
Bandaríkjanna harðlcga og taka til
athugunar samvinnu og samskipti
fslands við Bandaríkin, þar á með-
al varnarsamninginn.
Hreppsncfndin minnir á að
Atlantshafsbandalagið á hernað-
armannvirki og verulegar fasteign-
ir í Hvalfirði og hefur Iagt undir sig
jörð til þeirra hluta. Af þessum
fasteignum eru engin gjöld grcidd
til hreppsins og nýtur NÁTO þann-
ig sérréttinda í hreppnum. Þá segir
að þar sem Bandaríkin ætli nú að
leggja aðalatvinnuveg hreppsins í
rúst, cr óverjandi að líða slík
sérréttindi lengur. Skorar hrepps-
nefndin á ríkisstjórnina að gera
ríkisstjórn Bandaríkjanna grein
fyrir þessu og taka þessi mál til
endurskoðunar og úrbóta.
phh
Dauðaslys
í Langadal
Dauðaslys varð á bænum
Geitskarði í Langadal síðdeg-
is á föstudag, þegar dráttarvél
sern 22 ára Vestur-fslendingur
ók, hafnaði í ánni Blöndu.
Maðurinn var að vinna við
heyskap þegar holbakki gaf sig
með þeim afleiðingum að
dráttarvélin valt í ána og varð
maðurinn undir henni.
Enginn sjónarvottur var að
slysinu, en gufustrókur sent lagði
upp úr ánni á slysstað vakli
athygli heintamanna á því sem
gerst hafði. Maðurinn reyndist
látinn þegar að var komið.
Hinn látni hét Keith Morris
Scott og var frá Kanada. -BG