Tíminn - 06.08.1986, Síða 12

Tíminn - 06.08.1986, Síða 12
12 Tíminn S.U.F.- þing Sambandsþing SUF hiö 21. verður haldið í Hrafnagils- skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986. Dagskrá: Föstudagur 29. ágúst. 1. kl. 16:00 2. kl. 17:00 3. kl. 17:15 4. kl. 17:20 5. kl. 17:45 6. kl. 18:00 7. kl. 19:00 8. kl. 20:00 9. kl. 20.30 10. kl. 22:30 Mæting Þingsetning, Finnur Ingólfsson formaður SUF. Kosning starfsmanna þingsins: a. Þingforsetar (2) b. Þingritarar(2) c. Kjörnefnd(8) Skýrslastjórnar a. Formanns b. Gjaldkera Ávörp gesta Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma. a. Staða Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum. b. Niðurstöður þjóðmálakönnunar SUF c. Megináherslur Framsóknarflokksins í stjórnmálum næstu árin. Kvöldverður Kynning á drögum að ályktunum. a. Stjórnmálaályktun b. Megináherslur Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum næstu árin. Almennarumræður Kvöldvaka Laugardagur 30. ágúst. 1. kl. 8:00 Morgunverður 2. kl. 8.30 Nefndarstörf a. Stjórnmálanefnd b. Flokksmálanefnd 3. kl. 12:00 Hádegisverður 4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund 5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og afgreiðsla mála. 6. kl. 17:30 Kosningar 7. kl. 18:00 Önnurmál 8. kl. 19:30 Þingslit 9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun. Sunnudagur 31. ágúst 1. kl. 10:00 Morgunverður 2. kl. 12:00 Lagt af stað frá Hrafnagilsskóla. Stjórnin Nýr lífsstíll Breytt þjóðfélag Ráðstefna í Glóðinni í Keflavík laugardaginn 13. septembernk. Allirvelkomnir. Nánarauglýstsíðar. Landssamband framsóknarkvenna Málefnanefnd SUF Fundur verður haldinn í málefnanefnd ungra framsóknarmanna miðvikudaginn 7. ágúst n.k. kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18. Allir velkomnir SUF Vestfirðir Kjördæmaþing framsóknarmanna á Vestfjöröum verður haldiö á Reykhólum 5,-6.september n.k. Nánar auglýst síöar. Stjórnin Miðvikudagur 6. ágúst 1986 lllllllilllllllllllllllll DAGBÓK 1111I1I1I1111111111111111II1IIII1II 6. ágúst kl. 20.00 Útivist í Heiðmörk Með Hólmahrauni - Hólmsborg. Létt kvöldganga í Heiðmörkinni. Brottför frá B.S.Í. kl. 20.00. (bensínsölu). Útivistarferðir - sumar- leyfisferðir 1) Lónsóræfí 2.-9. ágúst. Tjaldað við Illakamb. Kynnist óbyggðum austan Vatnajökuls. Hægt er að Ijúka ferðinni með dagsgöngu yfir Hoffellsdal. Farar- stjóri er Egill Benediktsson. 2) Hélendishringurinn 8.-17. ágúst. Fjöl- breytt hálendisferð: Sprengisandur - Gtesavatnaleið - Askja - Kverkfjöll - Snæfell - Mývatn. Tjöld og hús. Farar- stjóri er Björn Hróarsson. 3) Austfjaröaferðin 17.-24. ágúst. Fyrst farið í Mjóafjörð og síðan í Viðfjörð, en þar verður tjaldbækistöð með dagsgöngu- ferðum, m.a. á Barðsnes, Gcrpi, í Vaðla- vík og víðar. Gist í húsum. Tilvalin fjölskylduferð. Veiði, berjatínsla, hestar. Fararstjóri er Jón J. Elíasson. 4) Hornstrandir - Hornvík um verslunar- mannahelgina 31. júlí-5. ágúst. Tjaldað við Höfn. 5) Hornstrandir- Lónafjórður o.fl. 7.-14. ágúst. Góð Hornstrandaferð með nýju sniði. Fararstjóri: Gísli Hjartarson. Upp- lýsingar og farmiðar á skrifstofu Útivistar, Grófinni 1. Símar 14606 og 23732. Ferð Kvenfélags Bústaða- sóknar Kvenfélag Bústaöasóknar hefur ákveð- ið að fara í ferðalag laugardaginn 23. ágúst. Farið verður um uppsveitir Árnes- sýslu. Nánar auglýst síðar. Sumarleyfisferðir Ferðafélags- ins: 1) 6.-10. ágúst (5 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk. Gengið milli gönguhúsa. Fararstjóri: Jón Hjaltalín Ólafsson. 2) 6.-15. ágúst (lOdagar): Hálendishring- ur. Fararstjóri: Hjalti Kristgeirsson. 3) 8.-13. ágúst (6 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk. Fararstjóri: Sigurður Kristjánsson. 4) 9.-13. ágúst (5 dagar): Eyjafjarðardalir og víðar. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 5) 14.-19. ágúst (6 dagar): Fjörður - Hvalvatnsfjörður - Þorgeirsfjörður. 6) 15.-19. ágúst (5 dagar); Fjallabaksleiðir og Lakagígar. Gist f húsum. 7) 15.-20. ágúst (6 dagar): Landmanna- laugar - Þórsmörk: Gengið milli gönguhúsa F.L Farar- stjóri: Dagbjört Óskarsdóttir. Farmiða- sala og upplýsingar á skrifstofu Ferða- félagsins, Öldugötu 3. Ferðafélagið býður upp á ódýrar og öruggar sumarleyfisferð- ir. Skoðið landið ykkar með Ferðafélagi íslands. Ferðafélag íslands Helgarferðir 8.-10. ágúst: 1) Þórsmörk - gist í Skagfjörðsskála. 2) Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi F.í. í Laugum. 3) Hveravellir-Þjófadalir. Gist í sæluhúsi F.í. á Hveravöllum. 4) Nýidalur/Jökuldalur - Vonarskarð - Tungnafellsjökull. Gist í sæluhúsi Ferða- félagsins við Nýjadal. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsins, Öldugötu 3. Ferðafélag íslands Bokjoo Cho píanóleikari Píanótónleikar á Höfn í Horna- firði Fimmtudag 7. ágúst kl. 20.30 heldur Bokljoo Cho píanótónleika í Hafnarkirkju á Höfn í Hornafirði. Á efnisskránni er sónata í F-dúr eftir Haydn, sónata í fis-moll eftir Brahms, Le tombeau de Couperin eftir Ravel og Mefisto-vals eftir Liszt. Bokjoo Cho er fædd árið 1960 í S.-Kór- eu. Framhaldsnám hefur hún m.a. stund- að í Vínarborg hjá Paul Badura-Skoda, en eins og stendur nýtur hún leiðsagnar Prof. Gúnter Ludwig við tónlistarháskól- ann í Köln. Hún hefur haldið einleiks- og kammer- tónleika, bæði í Þýskalandi og heimalandi sínu og hefur líka komið fram með hljómsveitum. Bokjoo flytur þessa sömu efnisskrá í Logalandi í Borgarfirði mánud. 11. ágúst og í Norræna húsinu í Reykjavík mið- vikud. 13. ágúst. Menningarstofnun Banda- ríkjanna: Skopmyndasýning Menningarstofnun Bandaríkjanna til- kynnir, að skopmyndasýningin The New Yorker Exhibit hefur verið framlengd til fimmtudagsins 7. ágúst. Sýningin er í sýningarsal Menningar- stofnunar Bandaríkjanna á fyrstu hæð að Neshaga 16 og er opin daglega kl. 08.30- 17.30. Allir velkomnir. Mál og menning: Tvær nýjar Ijóðabækur Út eru komnar hjá Máli og menningu tvær nýjar ljóðabækur, Yatnaskil eftir Böðvar Guðmundsson og Veggfóðraður óendanleiki eftir fsak Harðarson. Yatnaskii er fjórða ljóðabók Böðvars Guðmundssonar. en hann hefur áður sent frá sér bækurnar Austan Elivoga (1964), í mannabyggð (1966) ogBurt reið Alexander (1971), auk þess sem hann hefur sungið eigin texta inn á stóra hljómplötu. Eftir Böðvar hefur einnig birst smásagnasafnið Sögur úr seinni stríðum (1978). Vatnaskil er því fyrsta ljóðabók Böðv- ars í 15 ár og á ýmsan hátt ólík hinum fyrri, lágmæltariogíhugulli.ogform ljóð- anna er ekki fast bundið. Yrkisefnin eru sígild og íslensk, ættjörðin, karlmennsk- an, heimasveitin, en sjónarhornið er iðulega óvænt. { bókinni eru 27 ljóð; hún er unnin í Brentsmiðjunni Hólum hf, en kápu gerði Hilmar Þ. Helgason. Isak Harðarson hefur áður sent frá sér bækurnar Þriggja orða nafn (1982), Ræflatestamentið (1984) og Slý (1985). Veggfóðraður óendanleiki er ljóðabók eins og þessar fyrri og all stór að vöxtum. röskar 90 blaðsíður. Ljóð Isaks eru nýstárleg og fjölbreytileg bæði að inntaki og formi, en stef bókarinnar er öðru fremur afdrif þess óendanleika, sem býr í manninum sjálfum, og birtist ekki síst í ljóðinu, á okkar tímum tölvustýringar og „hugtæknivæðingar“. Tónn bókarinnar er ekki bjartur en þó langt því frá að vera Þunglyndislegur, því Isak leikur sér víða skemmtilega að klisjum nútímans. Vegg- fóðraður óendanleiki er unnin í Prent- smiðjunni Hólum, en Teikn gerði kápu. Samtökin Lífsvon opna skrifstofu Lífsvon er samtök fólks sem telja sér skylt að standa vörð um líf ófæddra barna. Samtökin voru stofnuð fyrir rúmu ári og formaður þeirra er Hulda Jensdótt- ir, forstöðumaður Fæðingaheimilis Reykjavfkur. Síðastliðið ár hafa kraftar samtakanna að mestu farið í upplýsingastarfsemi og félagasöfnun, auk noíckurrar ráðgjafar, sem að mestu hefur verið á persónulegum grunni. Nú hafa samtökin opnað skrif- stofu að Auðbrekku 2 í Kópavogi og er hún opin kl. 15.00-17.00 alla virka daga og er síminn þar 44500. Þar eru veittar upplýsingar um samtökin auk þess sem þar er aðstaða til að sjá myndbandasafn sem samtökin eiga. Síðar mun stefnt að því að koma á ráðgjafaþjónustu á sama stað í þeirri von að fleiri börn fái að lifa, en líf þeirra verði ekki fljótfærni og vanhugsun að bráð. Stýrimann Annan stýrimann vantar á skuttogarann Sigurey ÍA-25 frá Patreksfirði. Upplýsingar í síma 94-1308 frá kl. 8-16 á daginn. t Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim sem sýndu okkur hluttekningu við fráfall og útför Guðmundar Óskars Guðmundssonar bónda Seljalandsbúinu, ísafirði Guðbjörg Jónsdóttir Bragi Líndal Ólafsson Lilja Eiríksdóttir Birkir Þór Bragason Reynir Freyr Bragason t Útför föður okkar Sigurjóns Arnarsonar bónda Pétursey fer fram frá Skeiðflatarkirkju Mýrdal föstudaginn 8. ágúst kl. 14.00. Börnin t Útför Þórðar Guðmundssonar Syðstu-Görðum fer fram frá Kolbeinsstaðakirkju laugardaginn 9. ágúst kl. 14.00. Lára Guðnadóttir og börn

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.