Tíminn - 08.08.1986, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 8. ágúst 1986
Blaðberar
óskast STRAX
/ eftirtalin hverfi.
Melabraut, Skólabraut
Ármúla, Síðumúla
Kópavogsbraut,
Meðalbraut, Hlíða-
braut, Hraunbraut
Meistaravelli, Kapla-
skjólsveg,
Karfavog, Skeiðarvog.
Afleysingar í ágúst
Grettisgötu, Njáls-
götu, Granda og víðs-
vegar íaustur og vest-
urbæ og Garðabæ.
Ttmmn
SIÐUMÚLA 15
S
686300
A
Deiliskipulag
Kópavogi
Samkvæmt skipulagsreglugerð auglýsist deili-
skipulag á lóð Ríkisspítalanna í Kópavogi, nánar
tiltekið á reit, sem afmarkast af Hafnarfjarðarvegi
að austan, Kópavogsbraut að norðan, Urðarbraut
að vestan og strandlengju Kópavogarins að
sunnan.
Breyting er frá áður samþykktu skipulagi vegna
væntanlegrar byggingar verndaðra íbúða fyrir
aldraða á lóð hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar.
Skipulagsuppdráttur ásamt tillöguuppdráttum að
II. áfanga Sunnuhlíðar liggur frammi á tæknideild
Kópavogs í Félagsheimilinu Fannborg 2, 3. hæð
frá 8. ágúst til 8. september 1986. Athugasemdir,
ef einhverjar eru, skulu hafa borist bæjarverkfærð-
ingi Kópavogs skriflega fyrir hádegi mánudaginn
15. september nk.
Bæjarverkfræðingur.
m
Ttvímælalaust
HAGSTÆÐUSTU KAUPIN
Besta verðið - Bestu kjörin
Lang ódýrasta
dráttarvélin
á markaðnum
Velaborg
Bútækni hf. Sími 686655/686680
FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
Fóstrur og starfsfólk óskast að dagheimilinu
Stekk við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Um er
að ræða heilsdags og hálfsdags stöður.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Stekkjar í síma
96-22100 frá kl. 10.00-11.00 árdegis og 13.30-
14.30 síðdegis.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
UMSVIF BANDARÍSKA
HERSINS Á MIÐ-
NESHEIÐIERU MIKIL
Endurnýjunarkostnaður mannvirkja, tæki og birgðir fyrir 1985
metin á um 109 milljarða króna
Vegna þeirra deilna sem upp hafa
risið milli íslenskra og bandarískra
stjórnvalda um hvalveiðar íslend-
inga, hafa ófáir orðið til þess að
benda á að Bandaríkjamenn eigi
ekki lítilla hagsmuna að gæta hér á
landi þar sgm herstöðin á Keflavík-
urflugvelli er. Síðasta dæmið um
kröfur um að varnarsamstarfið verði
tekið til endurskoðunar er ályktun
Hvalfjarðarstrandarhrepps sem birt-
ist í Tímanum.
f>ví er ekki úr vegi að skoða ögn
hversu mikil umsvif Bandaríkjahers
eru hér á landi, þó þtð sé ekki nema
í krónum talið.
í skýrslu Matthíasar Á. Mathiesen,
utanríkisráðherra til Alþingis eru
gefnar upp nokkrar áhugaverðar
tölur fyrir árið 1985. Þar segir að
heildarkostnaður við mannvirki,
sem nú eru í notkun hjá „varnarlið-
inu“, nemi 285,8 millj. dollara eða
um 11 milljörðum og 717 millj.
króna. Endurnýjunarkostnaður
þessara mannvirkja miðað við nú-
virði er áætlaður 1,303 millj. dollara
eða 53 milljaðar 428 milljónir króna.
Tæki varnarliðsins, þar með taldar
flugvélar þess, eru metin á 1.140
millj. dollara eða 46 milljarða og 740
milljónir króna og birgðir af elds-
neyti og fleiru eru metnar á 215,5
milljónir dollara eða 8 milljarða 835
milljónir kr.
Samtals nemur endurnýjunar-
kostnaður mannvirkja, kostnaður
vegna tækja, tóla og birgða því 2
milljörðum og 658 milljónum dollara
eða 108 milljörðum 978 milljónum
íslenskra króna. Þessi tala er fyrir
árið 1985 en til samanburðar má
geta þess að greidd gjöld A-hluta ríkis-
sjóðs sama ár námu alls um 29 milljörð-
um og 200 milljónum króna.
Þá greiddi bandaríski herinn á
árinu 1985 samtals um 3 milljarða og
180 milljónir króna til íslenskra
fyrirtækja og einstaklinga vegna
launa, verktöku, vörukaupa og
þjónustu.
í>að eru því ósmáir fjármunir f
spilinu þar sem herinn á Miðnesheiði
á í hlut. phh
Halldóra Ragnarsdóttir, Tölvuritun, afhenti Erling ávísun að upphæð 150 þúsund kr. Aðrir á myndinni eru:
Sólveig Jónsdóttir, Tölvuritun, Kjartan Ólafsson, Búvörudeild, Hörður Einarsson, Aðalbókhaldi og Helgi
Pétursson, blaðafulltrúi.
Sambandið styrkir Stúdentaleikhúsið
Stjórn Menningarsjóðs Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
ákvað á fundi sínum fyrir skömmu
að veita Stúdentaleikhúsinu styrk
að fjárhæð eitt hundrað og fimmtíu
þúsund krónur. Nokkrir starfs-
menn Sambandsins í Reykjavík
aflientu Erling Jóhannessyni,
gjaldkera leikhússins styrkinn fyrir
hönd sjóðsins.
Erling sagði að styrkurinn yrði
notaður til þess að grynna á skuld-
um Stúdentaleikhússins og eins að
styrkja leikhúsið til þátttöku í
Norrænu menningarhátíðinni.
iNorrænir þjóðfræðingar þinga á íslandi:
FYRIRLESTUR UM
NÚTÍMA ÞJÓDTRÚ
I Þing Norrænna þjóðfræðinga
verður haldið í Reykjavík dagana
10-16 ágúst nk. Verður það 24. þing
þjóðfræðinganna og er búist við að
urn 50 manns sæki þingið í allt, þar
af um 30 erlendir fræðimenn.
Á þinginu verður ekki tekið fyrir
neitt ákveðið þema, en þess í stað
verða haldnir fjölbreyttir fyrirlestrar
um ýmis efni sem fyrirlesararnir
hafa sjálfir vali. Alls verða flutt hátt
á annan tug fyrirlestra og fjalla þeir
um jafnmörg efni og má t.d. nefna
erindi um sagnir í forníslenskum
Bokmenntum, tröllasögur og nútíma
þjóðtrú á íslandi, og hugmyndina
um fiskinn í íslensku samfélagi.
Þing norrænna þjóðfræðinga var
skiplagt af undirbúningsnefnd sem í
áttu sæti Ragnheiður Þórarinsdóttir
borgarminjavörður f.h. Árbæjar-
safns, Hallfreður Örn Eiríksson f.h.
Árnastofnunar, Hallgerður Gísla-
dóttir f.h. Þjóðminjasafns, og Jón
Hnefill Aðalsteinsson f.h. Háskóla
íslands. Árbæjarsafn hafði forgöngu
um undirbúning og skipulagningu.
Þjóðfræði er tiltölulega ung vís-
indagrein hér á landi þó fræðimenn
úr öðrum greinum hafi látið við-
fangsefni þjóðfræðinnar til sín taka
á umliðnum áratugum, og bera þar
hæst nöfn þeirra Sigurðar Nordal og
Einars O. Sveinssonar. Nú er svo
komið að á allra síðustu árum hefur
greinin verið kennd í Háskóla
Islands, og að sögn Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar er ein megin hug-
myndin bak við það að halda þing
norrænna þjóðfræðinga hér á íslandi
sú að hvetja til frekari rannsókna á
þessu sviði hér á landi, en þeir
þjóðfræðingar sem starfandi eru í
dag eru dreifðir á hinar ýmsu stofn-
anir, einkum þær sem fulltrúa áttu í
undirbúningsnefndinni.
Þjóðfræðin sem fræðigrein leggur
stund á alhliða menningarrannsókn
bæði í nútíð og fortíð, og skiptist í
þrjú megin rannsóknarsvið, þjóð-
sagnafræði, þjóðhætti og þjóðlíf.
Ráðstefnan hefst sem fyrr segir
mánudaginn 10. ágúst, en þá mun
fulltrúi menntamálaráðherra setja
hana kl. 10 á Hótel Esju. -BG