Tíminn - 08.08.1986, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 8. ágúst 1986
Enn er Liz ástfangin
Að undanförnu hefur það sést
víða í blöðum að þau séu alltaf
saman, Elizabet Taylor og leikar-
inn George Hamilton. Sjálf hafa
þau ekkcrt gefið út á það og svarað
spurningum blaðamanna um sam-
band sitt á þá leið „við erunt bara
vinir“. Víst er það, að þau hafa
verið vinir í langan tíma. Upp á
síðkastið hefur Liz verið nokkuð
einmana - þó það hljómi ótrúlega
- og þá kom vinurinn George
Hamilton til skjalanna og bauð
henni út og var fylgdarmaður henn-
ar og förunautur við mörg tækifæri.
En George vissi hvað hann söng
þegar hann kynnti þau Elizabeth
og Sir Gordon White. Hamilton
bauð þeim í samkvæmi heima hjá
sér í Hollywood snemma í vor - og
það fór svo vel á með þeim að
síðan hafa þau varla skilið.
Sir Gordon White er 62 ára
enskur milljónamæringur. Hann
er tvígiftur og skilinn, og hefur átt
heima í Kaliforníu og stundað sín
viðskipti þaðan.
„Gordon er dásamlegur“, sagði
Liz nýlega. „Hann er einmitt mað-
urinn sem ég var að bíða eftir. Það
virðist sem vinur minn George
Hamilton þekki mig betur en ég
sjálf geri, því hann segist hafa
verið viss um að við Gordon yrðum
góðir vinir ef við kynntumst. Það
fyndna við þetta var, að blöðin
kepptust um að gera kærustupar úr
George og mér á meðan vinskapur
okkar Gordons blómstraði upp!“
Þau Liz og George Hamilton eru gamlir vinir og hann vissi hvað
vinkonunni kom best!
Elizabeth Tayior með hinum nýja vini sínum, Sir Gordon White, sem er
10 árum eldri en leikkonan, - en hún segist alltaf hafa verið hrifin af sér
eldri mönnum.
FRÉTTAYFIRLIT
GENF — Afgansstjórn hefur
krafist í friðarviðræðunum sem
Sameinuðu þjóðirnar standa
fyrir að um 115 þúsund so-
véskir hermenn, sem eru f
landinu, verði þar f næstum
fjögur ár í viðbót. Þetta var haft
eftir heimildum innan stjórn-
málaheimsins.
DYFLINNI — Einn helsti
stjórnmálamaður Norður-(r-
lands var handtekinn á írlandi
er hernaðarsinnar úr hópi
mótmælenda ruddust yfir
landamærin til að sýna fram á
slaka öryggisgæslu við þau.
BAHREIN - Ali Al-Khalifa
Al-Sabah olíumálaráðherra
Kuwait sagði að Samtök olíu-
framleiðsluríkja (OPEC)
myndu jafnvel ákveða að auka
framleiðslu sína upp í 18 til 19
milljónir tunna á dag eftir okt-
óbermánuð.
ALEXANDRÍA — Hussein
Jórdaníukonungur og Hosni
Mubarak forseti Egyptalands
luku sólarhringsviðræoum sín-
um um hugsanlegarfriðarleiðir
fyrirbotni Miðjarðarhafs. Engar
fréttir var hægt að fá af við-
ræðunum.
BAGHDAD — Stjórnvöld í
írak sögðu flugher sinn hafa
gert miklar loftárásir á olíu-
stöðvar og orkuver f íran til að
hefna fyrir árás á landa-
mærabæ í írak þar sem 74
manns létu lífið.
TEHERAN — Stjórnvöld í
iran sögðu flugher sinn hafa
skotið niður frakska herflugvél
er gert hafði árás á borgina
Isfahan þar sem nokkrir borg-
arar létu lífið.
ISLAMABAD - Najibullah
leiðtogi Afganistan sagði til-
raunir til að fá fleira ungt fólk í
herinn hafa mistekistog margir
hermenn hefðu hlaupið á bott
frá herdeildum sínum.
MOSKVA — Pravda, dag-
blað sovéska kommúnista-
flokksins, sagði friðartillögur
þær, sem George Bush vara-
forseti Bandaríkjanna kom
fram með á nýlegri ferð sinni til
Mið-Austurlanda, vera óað-
gengilegar fyrir Arabarikin.
NÝJA DELHI — Björgunar-
menn á Norður-lndlandi náðu
til þeirra síðustu sem komust
af f járnbrautarslysinu í fyrra-
dag þar sem 45 manns létu
lifið.
HELSINKI — Sovéskur her-
maður sem bað hælis í Finn-
landi mun mæta fyrir rétti
vegna brota sem hann á að
hafa framið í Finnlandi, þar
meðtalin er ásökun um að hafa
farið yfir landamærin á ólögleg-
an hátt.
Tennisstjarnan John McEnroe
og leikkonana
Tatum
O’Neal
giftu sig
um sl. helgi
Föstudaginn 1. ágúst gengu þau í hjónaband
tennisstjarnan John McEnroe og hin unga leikkona
Tatum O’Neal. Þau voru gefin saman á Long Island.
New York að viðstöddum fjölskyldum þeirra og
nánustu vinum.
Þau John og Tatum höfðu fyrst hist í nóvember 1984,
og voru saman sem kærustupar upp frá þvl. Þau
eignuðust soninn Kevin í maímánuði sl..
McEnroe er 27 ára. Hann hefur verið nteð bestu
tennisleikurum í heinti frá 1981. Hann hefur nýlega
tekið sér nokkra hvíld frá tennisleik, en kemur aftur
fram í tenniskeppni um þessar mundir í Stratton
Mountain í Vermont eftir 7 mánaða frí. Hann hefur
þrisvar unnið á Wimbledon og fjórum sinnum orðið
Bandaríkjameistari í einliðaleik í tennis.
Brúðurin, Tatum O’Neal er22ára, dóttir leikarans
Ryan O’Neal og Joanna Moore. Hún vann til
verðlauna fyrir leik sinn í „Pappfrstungl" þegar hún
var lOára og hefur leikið í fjölmörgum myndum síðan.
Þessi my nd af John
McEnroe og
Tatum O’Neal er
frá því þau voru að
byrja að vera
saman fyrir um það
bil tveimur árum.