Tíminn - 16.08.1986, Qupperneq 1
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986 - 184. TBL. 70. ÁRG.
DROTTNINGARMÓÐIRIN
breska var flutt á sjúkrahús í Aberdeen
meö þyrlu í gærenhún
kvartaoi yfir óþægind-
um eftir aö hafa snætt
fisk í fyrrakvöld: Drottn-
ingarmóöirin dvaldi í
kastala í Skotlandi í
leyfi. Hún er nú 86 ára
gömul. Læknarneituðu
aö segja hver líðan
hennar var í gær.
GUÐSÞJÓNUSTUR sunnu-
daginn 17. ágúst hefjast allar kl. 11.00
fyrir hádegi og verður þess minnst í öllum
kirkjum og messustöðum Reykjavíkur aö
höfuðborgin er aö veröa 200 ára. Borgar-
fulltrúum hefur verið boöiö aö taka þátt í
messuflutningi og munu þeir flytja ávörp
eöa lesa lexiur og bænir dagsins. Kl.
14.00 er síðan biskupsmessa í Dómkirkj-
unni og mun biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson prédika.
ÓKEYPIS verður í strætó á mán-
udaginn í tilefni 200 ára afmælisins.
Akstursleiðir munu breytast í samræmi
viö þau svæði þar sem hátíöahöldin fara
fram. Fram til kl. 13.00 aka vagnarnir eftir
áætlun virkra daga en síðan eftir áætlun
helgidaga, en aukavagnar veröa til taks
eftir þörfum til aö flytja þátttakendur í
hátíöahöldum aö og frá borginni. í dagbók
Tímans má sjá breytingar á akstursleiö-
um.
VENJULEG SOVÉSK stúlka
vill eignast mann sem er siövandur,
myndarlegur, umhyggjusamurog sterkur.
Starf hans skiptir nánast engu máli. Þetta
kom fram í könnun sem gerð var í
kennaraskóla einum þar í landi. Hinn góði
eiginmaður átti aö mati flestra stúlknanna
aö vinna sem þræll, elska fjölskyldu sína
og drekka bara pínulítiö. Vikublaðið
Nedelya sem birti niðurstöður skoöana-
könnunarinnar sagði kvenfólkið setja
markiö alltof hátt og flestar þeirra myndu
vafalaust verða fyrir vonbrigöum með
veröandi eiginmenn sína.
VERÐBÓLGA í Bretlandi var
2,4% í júlímánuði og hefur aldrei veriö
lægri síöan áriö 1967. Þetta voru nánast
einu góöu fréttirnar af efnahagslífinu í
Bretlandi þar sem gríöarlegt atyjnnuleysi
heldur áfram aö tröllríöa húsum.
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR hafa
enn ekki gengið frá samningum viö
Húsnæðisstofnun um skuldabréfakaup
eins og áætlaö var aö þeir geröu fyrir 15.
ágúst. En sjóðirnir bíða enn eftir að
samkomulag náist um lánskjör þau er
lífeyrissjóðunum standi til boða, sem
Húsnæöisstofnun ætlar félagsmálaráð-
herra og fjármálaráöherra aö semja um
sín í milli.
OKURMÁLSDÓMUM gæti
seinkað á meöan Hæstiréttur metur dóm-
inn sem Sakadómur Reykjavíkur kvaö
upp í vikunni. Þar var sakborningur sýkn-
aður af fjórum ákæruatriöum á þeirri
forsendu að Seðlabankinn heföi ekki
auglýst hæstu lögleyföu vexti allan síöari
hluta árs 1984, og síðan var stór hluti
sektardóms skilorösbundinn á þeirri for-
sendu að sakborningur gæti ekki innleyst
ávísun sem hann fékk í tryggingu frá
Hermanni Björgvinssyni. Þessi dómur er
talinn hafa fordæmisgildi fyrir aöra dóma
í okurmálinu og því mun málinu sennilega
verða flýtt gegnum dómskerfið svo niöur-
staða faist sem fyrst.
KRUMMI
Hvernig ætli lykill-
inn að borgarhliðinu
líti út...?
Ókyrrö meöal starfsmanna Arnarflugs:
Ovissa með áfram-
haldandi rekstur
-og endurráöningar- „Ófremdarástand,“ segir varaformaöur starfsmannafélagsins
„Þetta er auðvitað ófremdarást-
and, þvf er ekki hægt að neita. Það
sem gerir það þolanlegt er að menn
vinna hér dag og nótt og eru svo
önnum kafnir að svona áhyggjur
gleymast,“ sagði Guðmundur Haf-
steinsson, varaformaður Starfs-
mannafélags Arnarflugs í samtali
við Tímann í gær.
Öllu starfsfólki Arnarflugs var
sagt upp 1. júlí og rennur uppsagn-
arfresturinn út 1. október. Mun
starfsfólk farið að gerast órólegt
um sinn hag, því vitað er að stjórn
félagsins hefur ekki í hyggju að
endurráða alla fyrri starfsmenn.
„Þessir menn hafa aldrei dregið
neina dul á það að starfsfólki verði
eitthvað fækkað, við vitum hins
vegar ekki hversu mikil sú fækkun
verður né heldur hverjir verða
endurráðnir. Það er mjög erfitt að
segja til um hversu mikla fækkun
starfsfólks við getum sætt okkur
við, því eins og er vitum við ekkert
hvaða rekstri verður haldið
áfram.“
Þá sagði Guðmundur að ekki
bætti úr skák að nánast allir for-
svarsmenn starfsmannafélagsins,
að honum undanskildum væru er-
lendis, og því erfitt að samræma
allar aðgerðir. Hefði stjórn Arnar-
flugs lofað að skýra stöðuna fyrir
starfsmönnum nú um miðjan mán-
uðinn og væri beðið eftir þeirri
yfirlýsingu. „En starfsmannafélag-
ið mun í öllu falli funda um málið
í byrjun næstu viku,“ sagði Guð-
mundur.
„Það er mesta furða hvað menn
eru rólegir,“ sagði Hörður Einar-
sson stjórnarformaður Arnarflugs,
í gærkvöldi. Þá var í þann mund að
hefjast stjórnarfundur, en Hörður
sagði að engin ákvörðun yrði tekin
á þeim fundi varðandi áframhald-
andi rekstur félagsins eða manna-
ráðningar.
phh
Reykjavík 200 ára:
Hátíð
í bæ
-ítilefniafmælisins
Ef marka má Ijóskastarana sem kumið hefur verið fyrir á pallinum á Lækjartorgi, verður afmælisdagskrá
Reykjavíkur býsna skrautleg. (Tímamynd-Gbii t.eiii)
Hlið að Austurvelli
Ármann Guðnason afhendir hér Davíð Oddssyni hliðið að Austurvelli
sem gjöf til Reykjavíkur á 200 ára afmælinu. (Tímamynd Pétur)
Reykjavík fékk í gær hlið að
gjöf í tilefni 200 ára afmælisins.
Það var Ármann Guðnason kola-
kaupmaður í Reykjavík sem af-
henti Davíð Oddssyni borgar-
stjóra hliðið að gjöf, en um er að
ræða gamla smíðajárnshliðið sem
var á girðingunni í kringum Aust-
urvöll. Hliðið hefur Ármann
varðveitt í um 50 ár því hliðið var
fjarlægt af Austurvelli um þær
mundir sem Gúttóslagurinn var í
Reykjavík. Ástæðan fyrir því að
hliðið var fjarlægt var sú að
lögreglan óttaðist að teinar þess
yrðu notaðir sem vopn í slagnum.
Hliðinu var þá hent á haugana
sem hverju öðru drasli en Ár-
mann var framsýnn maður og
áttaði sig á því að hliðið kæmi til
með að hafa gildi fyrir sögu
Reykjavíkur og tók það því í sína
vörslu, þar til nú að hann afhenti
borginni aftur að gjöf hliðið sem
hún einu sinni átti.
ABS
Á 200 ára afmæli borgarinnar á
mánudaginn verður ýmislegt í boði
fyrir þá sem leggja leið sína í
miðbæinn. Forseti Islands, Vigdís
Finnbogadóttir kemur kl. 10:00 í
opinbera heimsókn til borgarinnar.
Kl. 13:00 leggja skrúðgöngur af
stað frá Hagaskóla og Hallgríms-
kirkju og munuskátar.lúðrasveitir
og leikhópurinn „Veit mamma
hvað ég vil“ leiða göngurnar.
Fjölskylduskemmtun verður síð-
an í Lækjargötu þar sem afmælis-
terta og hátíðadrykkur verða á
boðstólum, í Hljómskálagarði
verður dýragarður, skemmtigarð-
ur, þrautagarður og dansgarður
ásamt 25 metra útigrilli, í Vonar-
stræti verður föndurgarður, rokk-
garður verður við Miðbæjarskól-
ann og taflmót verður á Hallæris-
plani. Skemmtun þessi verður frá
kl. 14:00 til 18:00.
Um kvöldið verður hátíðadag-
jSkrá við Arnarhól þar sem forseti
borgarstjórnar Magnús L. Sveins-
son setur hátíðina og forseti íslands
flytur ávarp. Hátíðarverkið „Minni
Ingólfs" eftir Jón Þórarinsson verð-
ur flutt og „Skúli fógeti og upphaf
Reykjavíkur", leikverk eftir Kjart-
an Ragnarsson verður einnig sýnt.
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
flytur gömul og ný lög, og flug-
eldasýning undir stjórn Hjálpar-
sveitar skáta í Reykjavík verður
þegar líða tekur að miðnætti. Þá
mun einnig Davíð Oddsson borg-
arstjóri ávarpa gesti hátíðarinnar.
Haldið verður áfram að leika tón-
list á Arnarhóli fram til hálftvö
aðfararnótt þriðjudagsins.
Búist er við tugþúsundum
manna á hátíðarhöldin, sérstak-
lega á mánudaginn. í Helgarblaði
Tímans er dagskrá hátíðarhald-
anna í heild, svo og hátíðarhalda á
ísafirði og Eskifirði. GBS