Tíminn - 16.08.1986, Side 4
4 Tímínn
SPEGILL
Hvað var
fólkið
að kalla?
„Koss!
Koss!!“
I enskum vikublöðum hefur
auðvitað verið uppfullt af
myndum úr brúðkaupi Andr-
ews prins og Söru Ferguson.
Petta er mjög vinsælt efni í
Englandi, þar sem fólk þekkir
á myndum alla meðlimi kon-
ungsfjölskyldunnar, allt ofan í
smábörnin og allir hafa gaman
af að skoða myndirnar og lesa
frásögn frá hátíðahöldunum.
í þessum blöðum var ein
sérlega skemmtileg mynd, þar
sem brúðhjónin eru komin út á
svalir til að veifa til fagnandi
mannfjölda og þau setja bæði
hönd við eyra eins og þau geti
alls ekki heyrt hvað kallað er
niður á torginu,-en þar heyrð-
ist kallað margraddað: „Koss!
Koss!!“ hvað eftir annað.
Loksins þóttust Andrew og
Sarah heyra og skilja hvað
fólkið vildi og þá stóð ekki á
kossinum.
„Nú, já, koss,
- ekkert
sjálfsagðara!“
J.R.
í sængur-
fata-
auglýs-
ingu!
að vekur nokkra furðu
manna, að sjá margmilljónera
eins og Larry Hagman - J.R. í
DALLAS - á síðum blaðanna
í auglýsingu. Hann er með
alhæstlaunuðu leikurum og
fastan samning, en mikið vill
meir, og aldrei fá sumir of
mikið af peningum og hér sjá-
um við hinn fræga J.R. sem,
eins og þeir segja í Ameríku:
allir elska að hata.
Yfirskriftin í auglýsingunni
var á þá leið, að hér mætti sjá
tvö þekktustu nöfn Ameríku
sænga saman: þ.e. J.R. og
Cannon sængurföt! Hetjan læt-
ur fara vel um sig í sérhönnuð-
um rúmfötum, sem heita
„Kaflar, rendur og þríhyrning-
ar“, og svo eru auðvitað nátt-
fötin í stíl.
Við höfum nokkrum sinn-
um séð J.R. í rúminu í
DALLAS - en aldrei í nátt-
fötum fyrr!
Laugardagur 16. ágúst 1986
llililllllll! ÚTLÖND lÍllllllllllll
Nýja Delhi — Rajiv Gandhi
forsætisráðherra Indlands
sagði þjóð sína vera ákveðna
í að hefja fertugasta sjálf-
stæðisár sitt með baráttu er
„binda myndi enda á hryðju-
verk“. Hann bætti því við að
senn yrði unnin bugur á ofbeld-
isaðgerðum öfgafullra síkha.
Lögreglan I Chandigarh um-
kringdi aðsetur landstjórans í
Punjabhéraði og handtók að
minnsta kosti 190 síkha til að
koma ( veg fyrir að óeirðir
brytust út í tilefni þjóðhátíðar-
dagsins sem var í gær.
Karachi — Stuðningsmenn
Benazir Bhutto leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar í Pakistan
grýttu lögreglu og komu fyrir
vegatálmunum til að mótmæla
handtöku leiðtoga þeirra.
Bhutto var haldið í fangelsi rétt
fyrir utan Karachi, stærstu borg
Pakistan.
Ankara — Tyrkneskar her-
flugvélar gerðu árás á staði í
írak þar sem skæruliðarKúrda
hafast við. Árásin var gerð
fjórum dögum eftir að tólf tyrk-
neskir hermenn létu lífið í átök-
um við landamærin.
Washington - Þrátt fyrir
reiði repúblikana og hótanir frá
Hvíta húsinu komst fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings nær
samkomulagi um varnarmála-
frumvarp fyrir árið 1987 sem
inniheldur áður óþekkt and-
mæli við varnarmálastefnu Re-
agans Bandaríkjaforseta.
Washington - Aiit virtist
benda til að öldungardeild
Bandaríkjaþings samþykkti
harðari refsiaðgerðir gegn
stjórn Suður-Afríku heldur en
Reagan Bandaríkjaforseti vill
að komið verði á. Öldungar-
deildin er þó hógværari í mál-
efnum Suður-Afríku en full-
trúadeildin þar sem nánast al-
gjört viðskiptabann var sam-
þykkt fyrir stuttu.
Beirút —Helsti hópur krist-
inna hernaðarsinna í Líbanon
hóf að draga menn sína frá
strætum Beirútborgar til að
stöðva skærur milli kristinna
herfylkja.
Bern — Svissnesk stjórn-
völd hafa sent harðorð mót-
mæli til utanríkisráðuneytisins
í Zambíu en fimm svissneskir
ferðamenn voru handteknir (
landinu fyrir rúmum hálfum
mánuði síðan á þeim forsend-
um að þeir væru njósnarar
Suður-Afríkustjórnar. Ferða-
mennirnir sögðust hafa mátt
þola margvíslegar pyndingar.
Manila — Búist er við að
svissneskir bankar skili ríkis-
stjórninni á Fillipseyjum ein-
hverjum hluta peninga þeirra
sem Marcos fyrrum forseti kom
fyrir skömmu áður en hann
"' 5i landið fyrr á þessu ári.