Tíminn - 16.08.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.08.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn S.U.F.- þing Sambandsþing SUF hiö 21. veröur haldið í Hrafnagils- skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986. Dagskrá: Föstudagur 29. ágúst. 1. kl. 16:00 Mæting 2. kl. 17:00 Þingsetning, Finnur Ingólfsson formaður SUF. 3. kl. 17:15 Kosning starfsmanna þingsins: a. Þingforsetar(2) b. Þingritarar(2) c. Kjörnefnd(8) 4. kl. 17:20 Skýrsla stjórnar a. Formanns b. Gjaldkera 5. kl. 17:45 Ávörp gesta 6. kl. 18:00 Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma. a. Staða Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum. b. Niðurstöðurþjóðmálakönnunar SUF c. Megináherslur Framsóknarflokksins í stjórnmálum næstu árin. 7. kl. 19:00 Kvöldverður 8. kl. 20:00 Kynning á drögum að ályktunum. a. Stjórnmálaályktun b. Megináherslur Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum næstu árin. 9. kl. 20.30 Almennarumræður 10. kl. 22:30 Kvöldvaka Laugardagur 30. ágúst. 1. kl. 8:00 Morgunverður 2. kl. 8.30 Nefndarstörf a. Stjórnmálanefnd b. Flokksmálanefnd 3. kl. 12:00 Hádegisverður 4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund 5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og afgreiðslamála. 6. kl. 17:30 Kosningar 7. kl. 18:00 Önnurmál 8. kl. 19:30 Þingslit 9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun. Sunnudagur 31. ágúst 1. kl. 10:00 Morgunverður 2. kl. 12:00 Lagt af stað frá Hrafnagilsskóla. Stjórnin Nýr lífsstíll Breytt þjóðfélag Ráðstefna í Glóðinni í Keflavík laugardaginn 13. septembernk. Allirvelkomnir. Nánarauglýstsíðar. Landssamband framsóknarkvenna Vesturland Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Vestur- landskjördæmi verður haldið í Borgarnesi dagana 5. til 6. september nk. Stjórnin Héraðsmót Hiö árlega héraösmót framsóknarmanna í Skagafirði verður haldiö í Miðgaröi laugardaginn 30. ágúst. Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi. Dagskrá nánar auglýst síöar. Nefndin Vestfirðir Kjördæmaþing framsóknarmanna á Vestfjöröum verður haldiö á Reykhólum 5,-6.september n.k. Nánar auglýst síöar. Stjórnin lllllllllllllllll DAGBÓK llllll Messur: Minnst 200 ára afmælis Reykjavíkur Árbæjarpreslakall Guðsþjónusta í safnaðarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 11 árdegis. Ingólfur S. Sveinsson læknir varaborgarfulltrúi flytur stólræðuna. Guðrún Ágústsdóttir borg- arfulltrúi flytur ávarp í lok messunnar. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmund- ur Þorsteinsson. Áskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi predikar og Elfn Ólafsdóttir varaborgarfulltrúi les ritningarorð. Kristín Sigtryggsdóttirsyng- ur einsöng. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns- son. Bústaðakirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 með þátt- töku borgarfulltrúanna Jónu Gróu Sig- urðardóttur, Júlíusar Hafstein og Páls Gíslasonar sem flytur stólræðuna. Ein- söngvari Ingibjörg Martcinsdóttir. Söng- stjóri Guðni Þ. Guðmundsson organleik- ari. Sr. Ólafur Skúlason. Dómkirkjan Hátíðarmessa kl. 11. Frú Katrín Fjcld- sted læknir og borgarfulltrúi predikar. Borgarfulltrúar lesa ritningartexta en Dómkirkjuprestarnir þjóna fyrir altari. Sr. Þórir Stephensen. Hátíðarmessa kl. 14. Biskup íslands hr. Pétur Sigurgeirsson predikar. Dóm- kirkjuprestarnir og dómprófastur sr. Ólafur Skúlason vígslubiskup þjóna fyrir altari ásamt biskupi. Sr. Þórir Stephen- sen. Landakotsspítali Kl. 10. Messa í Landakotsspítala. Org- anisti Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. Fella- og Hólakirkja Guðsþjónusta k'l. 14. Skírn og altaris- ganga. Ræðuefni: „Undrið að heyra og sjá“. Stólvers, Lofsöng eftir Beethoven. syngur Ágústa Ágústsdóttir sópransöng- kona. Fríkirkjukórinn syngur. Söngstjóri og organisti Kjartan Sigurjónsson í fjar- vcru Pavels Smid. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja Hátíðarmessa kl. 11. Ritningarlestur annast Egill Skúli Ingibergsson fyrrv. borgarstjóri og Birgir IsleifurGunnarsson fyrrv. borgarstjóri flytur ávarp. Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sr. Karl Sig- urbjörnsson. Háteigskirkja Messa kl. 11. Guðrún Zöega varaborg- arfulltrúi flytur ritningarorð. Sr. Tómas Sveinsson. Kópavogskirkja Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árdegis. Sr. Árni Púlsson. Laugarnesprestakall Laugardag 16. ágúst. Guðsþjónusta í Hátúni 10 b 9. hæð kl. 11. Sóknarprestur. Landspítalinn Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Langholtskirkja Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Orgel- og kórstjórn Örn Falkner. Davíð Oddsson borgarstjóri predikar. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Miðvikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sig- hvatur Jónasson. PrcsturSr. SólveigLára Guðmundsdóttir. Fréttatilkynning Akstur vagna SVR 18. ágúst 1986 Vagnarnir aka eftir tímaáætlun virka daga fram til kl. 13.00, en síðan eftir áætlun helgidaga. Með því fyrirkomulagi eru vagnarnir best í stakk búnir að gegna hlutverki sínu 18. ágúst. Aukavagnar verða til taks eftir þörfum til að flytja þátttakendur í hátíðarhöldun- um að og frá ntiðborginni. Athygli er vakin á að víkja verður frá venjulegum aksturslciðum. Frá kl. 13.00 til kl. 19.00 aka vagnar á leiðum 2,3,4 og 5 Skúlagötu og Tryggva- götu í vesturátt, með viðkomu við Toll- stöðina. Leiðir 15 A og 17 verða með endastöð á Hverfisgötu gegnt Þjóðleikhúsi til kl. 01.00. Ekið verður á hálftíma fresti á leið 15 A frá kl. 13.00-01.00 þennan dag. Leiðri 6,7,13 og 14 aka Aðalstræti, Hafnarstræti og verða með endastöð við Tollstöðina. Frá kl. 19.00 verður brevting á akstri vagnanna frá því sem var um miðbik dagsins. Leiðir 2,3,4 og 5 aka Laugaveg, Ing- ólfsstræti og Hverfisgötu og verður enda- stöð við Hverfisgötu austan Ingólfsstrætis (gegnt Safna- og Þjóðleikhúsi). Vagnar á Ieið 2,3, og 4 á vesturleið fá endastöð við Tollstöð. Vagnar á leiðum 5,6,7,13 og 14 aka eftir kl. 19.00 um Fríkirkjuveg, Vonar- stræti og Suðurgötu og verður endastöð þeirra í Vonarstræti. Athygli er vakin á að eftir kl. 19.00 rofnar akstur vagna á leiðum 2,3,4 og 5 þannig. að vagnar á austurleið verða með endastöð á Hverfisgötu gegnt Þjóðleik- húsi, en á vesturleiö við Tollstöð, nema leið 5 sem verður með endastöð í Vonar- stræti á leið sinni í Skerjafjörð. Ókeypis verður ■ vagnana allan daginn. Sunnudagsferðir F.í. 1. kl. 08.00: Þórsmörk - dagsferð, en ntöguleikar á ntismunandi langri dvöl í Skagfjörðsskála. 2. Kl. 10.00: Frá Hjaröarholti í Kjós á Skalatind að Mógilsá. Nýstárleg gönguferð yfir Esju. 3. Kl. 10.00 Reykjavík og nágrenni - söguferð í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Fararstjóri Páll Líndal. Ath. breyttan brottfarartíma, - en engin ferð er nú kl. 13.00. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bfi. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Útivistarferðir Ferrtafe,aR ,s,ands- ásunnudag 17. ágúst Kl. 10.30 : Lækjurbotnar - Ártún - Elliðaárdalur - Grófin. Gamla Þjóðleiðin lá um Reiðskarð hjá Ártúni. Hægt er að styíta leiðina til 13.30 við Elliðaárstöðina en þá fer rúta þaðan. Kl. 13.00: Ganila þjóðleiðin um Kcykjavík. Gengið frá Elliðaánum neðan Ártúns um Bústaðaholt, Öskjuhlíð, Skólavöruholt og Arnarhól í Grófina. Frítt fyrir börn mcð fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu, 10 mín. fyrir auglýst- an tíma úr Grófinni (Grófartorgi). Geng- ið elstu þjóðleið landsins í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Málverkasýning í Listamannaskálanum í Hveragerði Finnsku listmálararnir Elína Sand- ström og Jultani Taivajárvi halda mál- verkasýningu í Listmannaskálanum í Hveragerði 15.-24. ágúst. Þau hafa haldið sýningar árlega hér á landi um langt skeið. Á þessari sýningu hefur Elína 20 vatns- litamyndir og nokkrar smámyndir málað- ar með olíu- og akryllitum. Margar þeirra eru af íslensku landslagi. Vatnslitamynd úr Þórsmörk eftir Elinu Sandström, sem sýnir nú í Listamanna- skálanum í Hveragerði ásamt Juhani Taivajarvi. (Pétur tók myndina nmmludag kl. 14.00) Júhani hefur einnig íslenskt stef fyrir sínar myndir í þetta sinn. Hann hefur alls 12 olíumálverk með á sýningunni. Þá eru einnig með nokkrar myndir eftir Paula Sychold og Arto Aalto. Paula hefur sýnt áður hér og hún málar oftast fuglamyndir. Arto Aalto sýnir í fyrsta sinn á fslandi, og hefur hann sex vatnslita- myndir á sýningunni. Sýningin byrjar föstudaginn 15. ágúst og stendur fram til 24. ágúst. Laugardagur 16. ágúst 1986 Sveppanámskeið, sveppatínsluferð Eins og undanfarin ár mun hið íslenska Náttúrufræðifélag halda námskeið í greiningu sveppa. Aðaláherslan verður lögð á greiningu sveppa til matar, en einnig verða kynntir sveppir sem ber að varast. Námskeiðið verður haldið mið- vikudagskvöldið 20. þessa mánaðar í húsi Líffræðistofnunar að Grensásvegi 12 (3. hæð). Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu eru beðnir að skrá sig í síma Náttúru- fraðistofnunar (29822) fyrir 19. ágúst. 1 tengslum við námskeiðið verður farin sveppatínsluferð í Skorradal sunnudag- inn 24. ágúst. Lagt verður af stað í ferðina frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10 árdegis. Leiðbeinandi verður Eiríkur Jensson. Torfhleðslunámskeið í Vatnsmýrinni um helgina Torfhleðslunámskeið verður haldið í Vatnsmýrinni um næstu helgi, laugardag ogsunnudag 16.-17. ágúst kl. 10.00-18.00 báða dagana. Hleðslumenn Sveinn Ein- arsson og Tryggvi Hansen leiðbeina í Vatnsmýrinni. Þeir hafa saknað að ekki skuli fleiri garðyrkjumenn og garðarki- tektar koma og kynna sér torfhleðslu þeirra. því hún kemur að miklum notum við uppbyggingu og skipulagningu garða. Gróðureyðing og endurheimt landgæða Þetta er bæklingur, sem gefinn er út af námsgagnastofnun í ár. Höfundar eru Ingvi Þorsteinsson og Sigurður Blöndal. Fyrsta grein heitir Gróðureyðing á jörð- inni. sú næsta Náttúrulegt gróðurfar Is: lands fjallar um umhverfisþætti. sem móta góður landsins og eru margar falleg- ar myndir í þcirri grein. Áhrif beitar skýrir frá beitarrannsóknum hér á landi og þeim áhrifum, sem ofbeit hefur á landið. Þá er grein um Aðgerðir gegn eyðingunni og önnur sem nefnist Endur- heimt horfinna landgæða. Skrifað er um: Ræktun, Votlendi, Uppgræðslu ógróins lands og að síðustu Horft til framtíðar. Káputeikningu gerði Áslaug Sverris- dóttir og aðrar teikningar í bökinni Aðal- heiður Valgeirsdóttir. Margir eru höfund- ar Ijósmynda, en flestar ljósmyndir eru eftir Sigurð Blöndal. Útgefandi að Stefni er Samband ungra- sjálfstæðismanna. en ritstjóri Þór Sigfús- son. Ritstjórnargrein fjallar um ástand mála að loknu sveitarstjórnarkosningum, Þá er skrifað um „Stjórnarsamstarf eftir kosningar". Það eru þeir Guðmundur Magnússon, Birgir ísleifur Gunnarsson, Friðrik Sophusson og Halldór Blöndal, sem skrifa um þctta efni. Óli Björn Kárason blaðamaður skrifar: Hugleiðing- ar um ráðherraefni Sjálfstæðisflokksins. Geir H. Haarde varar í grein sinni við „Nátttröllum nútímans". „Kristin trú og sambyggjan" heitir grein eftir Þór Sigfús- son. Framsýni Sakharovs er heiti greinar eftir Sigurð M. Magnússon kjarneðlis- fræðing og formann utanríkismálanefnd- ar SUS. Ljóð eru í ritinu eftir Tómas Guðmundsson skáld í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur. Róttæk byggða-' stefna heitir grein eftir Einar K. Guð- finnsson stjórmálafræðing. Margt fleira er í blaðinu sem er um 50 bls.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.