Tíminn - 26.08.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 26.08.1986, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 26. ágúst 1986 Tíminn 7 í 200 ar Líkan al' Grjótaþorpi fyrri Til vinstri á myndinni sést slökkvidæla, árgerð 1912 sem Slökkviliðið notaði lengi en til hægri er hinsvegar valtarinn „Bríet Knútsdóttir“. A sýningunni „Svipmyndir mannlífs og byggðar“, á Kjar- valsstöðum gefst áhorfendum kostur á að skoða sögu Reykja- víkurborgar og fylgjast með þróun hennar síðastliðin 200 ár, eða frá fyrstu merkjum um var- anlega byggð. Sýningin er yfir- gripsmikil og fróðleg og ýmsir gamlir munir eru dregnir fram í dagsljósið sem hafa ekki komið fyrir augu almennings fyrr. Hún stendur til 28. september nk. og er opin alla daga frá kl. 14.00 til 22.00. Myndir og texti: Gísli Egill Hrafnsson Líkan af báti með Engeyjarlagi en slíkir bátar urðu allsráðandi í Reykjavík um 1870 og urðu við tilkomu þeirra mikil framför. Seglbúnaður þeirra var m.a. þannig endur- bættur að hægt var að sigla beitivind. Meginþáttur sýningarinnar eru ljósmyndir sem margar hverjar hafa ekki birst opinber- lega áður. En þareð saga ljós- myndunar er ekki jafnlöng sögu borgarinnar er sá tími brúaður með skjölum, uppdráttum, mál- verkum og líkönum. í salnum hefur verið komið fyrir krambúð, eins og þær tíðkuðust um aldamótin og ekki allfjarri getur á að líta „breskan hermann“ bakvið sandpoka og gaddavírsflækju. Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gíslason hafa tekið saman hálftíma leikþátt um sögu borgarinnar og er hann sýndur fram í miðjan september á fimmtudags- og föstudagskvöld- um klukkan 21.00 og á laugar- dögum og sunnudögum klukkan 16.00. Seinustu tvær vikurnar verður einungis sýnt á sunnu- dögum klukkan 16.00, hinn 21. og 28. Margt merkilegra mynda er á sýningunni. Þessa mynd af öldruðum verkamanni í bæjar- vinnu tók Carl Nielsen. tel'öSii Margt er gert til að endurskapa stemmningu liðinna ára. Hér hefur „breskur hermaður“ komið sér fyrir í sandpokabyrgi á miðju gólfí með gítar að vopni. Á sýningunni er rekin krambúð eins og þær tíðkuðust um aldamótin. Seldur er brjóstsykur og nýmalað kaffi eftir vigt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.