Tíminn - 29.08.1986, Blaðsíða 15
Tíminn 19
Föstudagur 29. ágúst 1986
llllllllllllllllB HELGIN FRAMUNDAN
Kristín G. Magnús, leikkona, ásamt eigendum og starfsliði
Ferðaleikhússins.
LIGHT NIGHTS
Síðustu sýningar
á þessu sumri
Sýningum Ferðaleikhússins á
LIGHT NIGHTS fer nú senn að
ljúka. Síðustu sýningarkvöld eru
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld, og
hefjast sýningar kl. 21.00 í Tjarn-
arbíói við Tjörnina í Reykjavík.
Þetta er 17. árið sem Ferða-
leikhúsið er með LIGHT NIGHTS-
sýningar.
Sýningar þessar eru sérstak-
lega færðar upp til skemmtunar
og fróðleiks enskumælandi ferða-
mönnum. Efnið er allt íslenskt, en
flutt á ensku, að undanskildum
þjóðlagatextum og kveðnum
lausavísum. Stærsta hlutverkið í
sýningunni er hlutverk sögu-
manns, sem erleikið af Kristínu G.
Magnús. Ferðaleikhúsið starfar
einnig undir nafninu The Summer
Theatre. Stofnendur og eigendur
eru Halldór Snorrason og Kristín
G. Magnús. Uppsetning og stjórn-
un á ljósum og audio-visual-tækni
annast Magnús S. Halldórsson.
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
yUMFEROAR
RÁD
Þessi mynd er á sýningunni „WORLD PRESS PHOTO ’86“ í Lista-
safni ASÍ. Hún sýnir björgun 7 ára stúlku frá mannræningja.
Mannræninginn var reyndar faðir stúlkunnar, sem hafði haldið
fjórum börnum sínum í 6 klukkutíma með hótunum um ofbeldi,
vegna þess að móðir þeirra hafði yfirgefið hann. Þetta gerðist í
Marysville í Kaliforníu og blaðaljósmyndari á staðnum tók mynd-
ina, sem þykir lýsa vel þeirri hræðslu og spennu sem alltaf er til
staðar þegar mannrán eru annars vegar. í þessu tilviki fór allt vel,
þannig að ekki kom til blóðsúthellinga.
Listasafn ASÍ - Grensásvegi 16:
WORLD PRESS PH0T0 ’86
Laugardaginn 30. ágúst kl. 14.00 verður fréttaljósmyndasýningin
World Press Photo ’86 opnuð í Listasafni ASÍ, Grensásvegi 16. Á sýning-
unni eru um 180 myndir, er hlutu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni
blaðaljósmyndara. Myndunum er skipt í efnisflokka svo sem fréttir, dag-
legt líf, listir, vísindi og tækni, náttúra o.fl. Sýningin verður opin til 14.
september, virka daga kl. 16.00-20.00 ogum helgar frá kl. 14.00-22.00.
Dagskráratriði á sýningunni verða kynnt sérstaklega.
Úr sýningunni „Flensað í MalakofP’ á Kjarvalsstöðum,
REYK JAVÍKURSÝNINGIN ER VEL SÓTT
Um fimmtán þúsund manns hafa
nú séð Reykjavíkursýninguna á
Kjarvalsstöðum. Aðsóknin er mest
um helgar en einnig er margt um
manninn í miðri viku einkum þó
þegar leikþátturinn Flensað í
Malakoff er á dagskrá. Þótt leik-
þátturinn sé ekki langur gefur hann
skemmtilega mynd af Reykjavík
fyrri daga og hefur fengið frábærar
viðtökur sýningargesta. Fram í
miðjan mánuð verður leikurinn
sýndur í tjaldinu á Kjarvalsstöðum
á fimmtudags- og föstudagskvöld-
um klukkan níu og klukkan fjögur
á laugardögum og sunnudögum.
Seinustu tvær helgarnar í septem-
ber verður bara ein sýning hvora
helgi, á sunnudögum og er sérstök
ástæða til þess að benda fólki á að
drífa sig sem fyrst ef það vill ekki
missa af þessari skemmtilegu sýn-
ingu því sýningar verðaekki fleiri.
Leikþátturinn Flensað í Malakoff
er tekinn saman af Brynju
Benediktsdóttur og Erlingi Gísla-
syni en tónlist er ýmist samin eða
útsett af Finni Torfa Stefánssyni.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. Helstú hlutverk eru í hönd-
um Erlings Gíslasonar, Eddu Þór-
arinsdóttur, Sögu Jónsdóttur,
Grétars Skúlasonar og Karls
Ágústs Úlfssonar. Þá taka þátt í
sýningunni ungmenni sem annars
leiðbeina gestum um sali Kjar-
valsstaða.
ÞRJU NAMSKEIÐI
VATNSMÝRINNISUNNAN
VIÐ N0RRÆNA HÚSIÐ
Um helgina fara fram þrjú at-
hyglisverð námskeið í Vatnsmýr-
inni. Eitt þeirra er nám í hinum
fomu byggingaraðferðum, að
hlaða hús úr torfi. Það kemur nú-
tímamanninum vel til góða í garði
sínum eða við sumarbústaða-
gerð.
Þess má geta að næsta sumar
kemur hópur ferðamanna að læra
þetta til að byggja sér kjamorku-
byrgi úr lífrænum efnum. Leið-
beinandi er Tryggvi Hansen.
Annað námskeið er í svokall-
aðri „kúluhúsagerð", ogfertorfið
mjög vel saman með því. Leið-
beinandi er Einar Þorkelsson.
Þriðja námskeiðið er í grímu-
gerð. Andlit em mótuð í móinn.
Það námskeið er opið börnum
jafnt sem fullorðnum.
Skráning á ÖU námskeiðin fer
fram í Vatnsmýrinni kl. 10.00 á
laugardag. AUir veUtomnir.
BBC GERIR
HEIMILDAMYND
UM TORFHLEÐSLU
Nú um mánaðamótin kemur tU
landsins hópur þáttagerðar-
manna frá bresku sjónvarpsstöð-
inni BBC. Ferðin er farin tU að
framleiða efni fyrir vikulegan þátt
„TOMORROWS WORLD" í
breska rUdssjónvarpinu. Kvik-
myndað verður á MosfeUsheiði og
í Vatnsmýrinni. Sýnt hvemig torf
er rist og skorið að hefðbundnum
hætti, óbreytt um aldir, og hvern-
ig þessar aðferðir varðveitast og
tengjast byggingum nútímans og
garðamenningu.
Tryggvi Hansen er að undirbúa
sýningu í toríbyggingum og torf-
skúlptúr. Sýningin verður í sept-
ember og ber heitið FOLD.
Úr leikritinu „Hin sterkari” eftir
Strindberg, sem enn er sýnt í
Myndlistarsal Hlaðvarpans.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
HLAÐVARPINN
Tvær aukasýningar verða um
helgina á einþáttungi Strindbergs
„Hin sterkari" sýndar í myndlist-
arsal Hlaðvarpans þar sem Helga
EgUsdóttir sýnir olíumálverk.
Sýningarnar verða 29. ágúst,
föstud. kl. 21.00 oog sunnudaginn
31. ágúst kl. 16.00.
Fyrir sýningar leikur Szymon
Kuran einleik á fiðlu. Upplýsingar
um miðasölu em í síma 19560 frá
kl. 14.00.
EINN FREMSTI
MYNDLISTAR-
MAÐUR SVÍA
sýnir í Norræna
húsinu
Sunnudaginn 31. ágúst kl. 15
verður opnuð sýning í Norræna
húsinu á verkum sænska
myndlistarmannsins Ulfs
Trotzigs. Á sýningunni em 22
málverk, gerð á árunum 1983-86
og verða þau sýnd í
sýningarsölum og grafíkverk, sem
sýnd verða í anddyri Norræna
hússins.
Sendiherra Svíþjóðar, Gunnar-
Axel Dahlström opnar sýninguna
sem er hingað komin á vegum
Norræna hússins og sænska
sendiráðsins. Ulf Trotzig og kona
hans, rithöfundurinn Birgitta
Trotzig verða viðstödd opnunina.
Prófessor Sven Sandström,
listfræðingur talar um Ulf Trotzig
og list hans í Norræna húsinu á
sunnudag kl.16 og sýnir
litskyggnur til skýringar máli
sínu.
Birgitta Trotzig les úr verkum
sínumáþriðjudagskvöldkl. 20.30,
en bók hennar Dykungens dotter
var lögð fram til
bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs í ár. Ulf Trotzig
er einn þekktasti
myndlistarmaður Svíþjóðar. Hann
er fæddur 1925. Hann nam við
Valands listaskólann í Gautaborg
1946-51 hjá Nils Nilson og Endre
Nemes og síðar í París hjá Atelier
Friedlánder 1955-57. Settist að í
Paris 1955ogbjóþarásamt konu
sinni til ársins 1969, er þau fluttu
aftur til Svíþjóðar og hafa búið
síðan í Lundi.
Ulf Trotzig hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum í Svíþjóð,
Danmörku, Frakklandi og
Bandaríkjunum. Myndir hans em
m.a. í eigu listasafna í Stokkhólmi,
Árósum, París, New York,
Washington og Nýju-Delí.
Hefur það
bjargað þer
_______