Tíminn - 23.09.1986, Side 5

Tíminn - 23.09.1986, Side 5
Þriðjudagur 23. september 1986 Tíminn 5 Sauðárkrókur: DRANGEY LOKSINS HBMA NÝ - 6,6 METRUM LENGRI Á Sauðárkróki höfðu margir beðiö lengi eftir þessari sjón - togaranum Urangey koma siglandi til heimahafnar eftir 5 mánaöa endurbætur og breytingar úti í Þýskalandi, sem töl'öust síðan uiii meira en 2 inánuöi vegna gjaldþrots skipasmíöastöövarinnar scm annaöist verkiö. Fréttarítarí Tíman.s á Saudárkróki, G.Ó.: Sauðkrækingar fögnuðu komu togarans Drangeyjar SK 1 til heima- hafnar - um tveim mánuðum síðar en áætlað var - þann 16. sept. eftir gagngerar endurbætur og breytingar, m.a. 6,6 m lengingu í Þýskalandi. Byrjað var á verkinu þann 22. apríl í vor og samkvæmt samningi átti þeim að vera lokið þann 8. júlí. í stað 10. sept., sem raun varð á. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður verði alls um 150 millj. króna. Enn er beðið eftir að sama skipasmíðastöð, Bú- sumer Werft, ljúki við vélaskipti í togaranum Skafta, sem þangað fór eftir vélarbilun í júní í sumar og átti að vera lokið 3. ágúst. En vonir standa til að Skafti komi fyrir næstu mánaðamót. í Skafta verða einnig nýir gírar og togvindur. Togarinn Drangey var byggður í Japan árið 1972 fyrir Útgerðarfélag Skagfirðinga. Um áratug síðar ákvað stjórn Ú.S. að undirbúa endurnýjun á togurum félagsins. Endurbætur á bv. Hegranesi SK 2 fóru síðan fram hjá Slippstöðinni á Akurcyri, og tókust svo vel að verkið hefur síðan verið til fyrirmyndar um breytingar og endur- bætur á togurum af þeirri stærð. Áætlun um endurbætur á Drangey var samþykkt í scpt. 1984. Eftir samþykki Búnaðarbanka íslands og vilyrði um aígreiðslu Fiskveiðasjóðs íslands var hafist handa um val á vélum og tækjum og að semja um þau. Ákveðið var að kaupa Duvant- Crepelle aðalvél frá Frakklandi (sama og í Hegranesinu) og um endurnýjun á öllu togvindukerfi skipsins varsamið við Brusselle í Belgíu. Þá voru endur- bæturnar boðnar út. en þær fólust í 6,6 metra lcngingu á skipinu, skipti á stjórnpalli (brú) og niðursetningu véla og tækja. Alls 15 valdar skipasmíða- stöðvar í 5 löndum fengu útboðslýs- inguna, en lægsta tilboðið kom frá Kaarbös Mek. verkst. í Noregi. Það tilboð reyndist þó síðar óaðgengilegt bæði vegna langs vcrktíma og hækk- unar síðar. Miðað við verð og verktíma hjá öðrum var talið einsýnt að Búsumcr Werft í Þýskalandi væri hagstæðast. Upphaflega átti að byrja vcrkið í desember 1985, en óskýranlegur dráttur á afgreiðslu Fiskveiðasjóðs tafði byrjun framkvæmda, til 22. apríl sem fyrr segir. Öllum að óvörum var skipasmíða- stöðin síðan lýst gjaldþrota í júlímán- uði sl. og stjórnendur misstu burt frá sér starfslið scm nicst þurfti á að halda við tæknileg verk og vandasaman frágang. Þótt allmargar athugasemdir hafi verið gerðar um endanlcgan frágang stöðvarinnar eru llcstar þcirra smávægilegttr. Eftir er þó að setja upp frystitæki til hcilfrystingar á kari'a. grálúðu og rækju, scm áttu að vera með. En skipið var fullbúið til vciða að öðru leyti ojs er þcgar komið á miðin. Fáir bændur gátu nýtt tilboð Framleiðsluráðs Kortiö sýnir hina nýju línu, en innan hennar eru togveiðar bann- aðar. Vestfirðirog Breiðafjörður: Togveiðiheim- ildir rýmkaðar Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð um sérstök togveiði- svæði út af Breiðafirði og Vest- fjörðum. Samkvæmt reglugerð þessari eru togveiðar heimilaðar: A. Norðan 65° og utan fjögurra sjómílna frá línu. sem dregin er úr Öndverðarnesvita í Bjarg- tanga. Aðnorðan markastsvæðið af línu réttvísandi í vestur frá Bjargtöngum. B. Utan línu, sem dregin cr í átta sjómílna fjarlægð frá viðmiðun- arlínu. frá Iínu réttvísandi í vcst- ur frá Bjargtöngum að línu. sem dregin er 317 réttvísandi frá Ós- hólavita í ísafjarðardjúpi. Norð- an línu, sem er dregin 317° frá Óshólavita norður að 22° 40‘0 V eru togveiðar heimilaðar utan fjögurra sjómílna frá viðmiðun- arlínum. Breyting þessi tekur gildi 1. októbernk. oggildirtil áramóta. - um hærra verð dilkakjöts fyrstu 2 vikur september Sauöfjárslátrun er nú að komast í fullan gang alls staðar á landinu. Flest sláturhús hófu slátrun um og eftir 10. september, en sláturhúsin á Selfossi og á Hvolsvelli byrjuöu einna fyrst. Hvorki bændur né sláturhúsin voru tilbúin að hefja slátrun það snemma að hægt yrði að nýta tilboö Framleiðsluráðs um 8% hærra verð fyrir dilka sem slátrað væri fyrstu viku af september og 4% fyrir aðra viku af september. Slátrun hefst nú í haust á mjög svipuðum tíma og undanfarin haust, en sífellt er erfið- ara að manna sláturhúsin og einnig er alltaf að veröa crfiðara og crfiðara fyrir bændur að smala afréttir sínar sökum mannfæðar í svcitum. Á undanförnum árum hefur starfsfólk sláturhúsanna einkum verið bændur og lausráðið starfsfólk kauptúnanna og bæjanna, svo sem námsmenn. Tíminn hafði samband við slátur- hússtjóra á nokkrum stöðum á land- inu og höfðu þeir tlestir þessa sömu sögu að segja. Einna best standa þau sláturhús að vígi sem hafa fastráðiö starfsfólk allt árið um kring. Þá voru þeir einnig sammála um að það fé sem verið væri aö slátra þessa fyrstu daga væri vænna hcldur en í fyrra og umtalsvert fleiri skrokkar færu í annan flokk. O, helduren undanfar- in ár vegna hins nýja kjötmats sem vcrðfellir skrokka sem cru fitumiklir og holdgóðir. Til dæmis lenti fjórði livcr lambsskrokkur í O-flokki hjá einum bónda í Eyjafirði sökum hins nýja kjötniats. Það er hins vegar of snemmt að spá um mcðalvigt hausts- ins, þar scm gcra má ráð fyrir að vænstu dilkunum sé slátrað fyrst. Á Húsavík er áætlað að slátra um 50 þúsund fjár og nú þegar cr búið að slátra um 8000. Mcöalþyngd dilka cr betri en í fyrra, cn aö sögn sláturhússtjóra eru fyrirsjáanleg nokkur vandræði með starfsfólk við húsið þar sem skólafólk er á förum og bændur þurfa að sinna verkum heima fyrir. Rcynt er að fá fólk annars staðar aö af landinu en þaö fólk er flest óvant og því gæti sláturtíð dregist eitthvað á Ianginn og væntanlcga vcrður fullorðnu riðu- veikifé þá slátrað síðast. Á Egilsstöðum er cinnig crfitt aö fá fólk til starfa, cn þar er ekki búist við að sláturtíð dragist á langinn. ABS Alþjóða kirkjuráðið gegn Reaganstjórninni: Birgir Jónsson og Sólveig Eggerz listmálari með sýnishorn af myndum Sólveigar sem verða til sýnis og sölu í Gullna hananum. Reykjavíkurmyndir: Málverkasýning í Gullna hananum í tilefni 200 ára afmælis Reykja- víkur hefur Sólveig Eggerz listmál- ari opnað sýningu á málverkum sínum í veitingahúsinu Gullna han- anum. Myndirnar á sýningunni sýna flestar umhvcrfi og byggingar í Reykjavík. Myndirnar á sýningunni eru allar til sölu að þessu sinni en Sólveig hefur sýnt myndir sínar í Gullna hananum um nokkurt skeið og mun svo einnig verða um óákveð- inn tíma. „Sjálfstæði Nicaragua er ógnað" „Sjálfstæði Nicarasuabúa er skoðun sína fvrst oe frcmst á bcirri brióta í báea við alhióðalnu u...,,: ,a u:.-.i_.. „Sjálfstæði Nicaraguabúa ógnað." Þannig hefst yfirlýsing Al- þjóða kirkjuráðsins um ástand í Miðameríkuríkinu Nicaragua. Enn- fremur er talin upp ýmis skcrðing mannréttinda og sjálfsákvörðunar- réttur þjóðarinnar sem slíkrar er sagður lagður í hættu vegna tilrauna Bandaríkjastjórnar til að veikja stjórn Nicaragua í sessi. Byggja þeir skoöun sína fyrst og frcmst á þcirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að styrkja contraskæruliða aukalega mcð 100 milljónum dollara nú nýver- ið. Þá er og tekið fram að kirkjan í Bandaríkjunum hcfur lagst gegn styrkjum Reaganstjórnarinnar til skæruliða í Nicaragua, cn fyrir skömmu hafnaði stjórnin dómi Al- þjóðadómstólsins scm tclur styrkina brjóta í bága við alþjóðalög. Dcild Alþjóða kirkjuráðsins sem fjallaöi um málcfni Nicaragua gagn- vart Bandaríkjunum hér í Rcykjavík lýkur skýrslu sinni á því að heita stuðningi kirkjunnar við Nicaragua- búa í viðleitni þeirra til að „kjósa sér stjórn sem svarar til sögu þcirra og einstakrar menningar, sjálfstætt og án afskipta, með lýöræðislegum hætti og efnahagsstjórn til hjálpar bágstöddum." Einnig skorar Alþjóða kirkjuráð- ið á stjórnvöld að bcita áhrifum sínum svo efnahagsleg og hernaðar- leg íhlutun erlendra valda í Nicarag- ua Ijúki. þór

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.