Tíminn - 27.11.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT,
WASHINGTON — Edwin
Meese yfirmaöur bandaríska
dómsmálaráöuneytisins sagöi
mögulegt að fleiri væru flæktir
í málið sem tengdist sending-
um á peningum, er Bandaríkja-
stjórn fékk fyrir vopnasending-
arnar til (rans, til skæruliða i
Nicaragua. Hann sagöi þaö þó
alveg vera Ijóst að engir af
hæstsettu embættismönnum
Bandaríkjastjórnar væru viö-
riðnir þetta mál. Líklegt var
talið aö Reagan forseti myndi
setja á stofn nefnd er rannsaka
ætti þetta mesta hneykslismál
í stjórnartíð hans.
MANILA — Skæruliðar
kommúnista sögðust ætla að
skrifa undir samkomulag í dag
við stjórn Corazonar Aquino
forseta Filippseyja um sextíu
daga vopnahlé sem gengur í
gildi þann 10. desember. Þetta
er fyrsta vopnahléið í sautján
ára stríði skæruliða við stjórn-
arherinn. Rúmlega átta þús-
und manns hafa látið lífið í
stríði þessu síðan í janúar á
síðasta ári.
JÓHANNESARBORG -
Svört ungmenni börðust við
lögreglu í Soweto eftir að yfir-
völd höfðu fyrirskipað niðurrif
um hundrað kofaskrifla í þess-
ari byggð svertingja í grennd
við Jóhannesarborg.
GENF — Sovésk stjórnvöld
sögðu Bandaríkjastjórn eiga
sök á litlum framgangi í þriðju
umferð viðræðna stórveldanna
um kjarnorkuvopnatilraunir.
Kremlverjar sögðu Bandaríkja-
stjórn neita að semja um algjört
bann við tilraunasprengingum.
NÝJA DELHI - Lögregla
vopnuð kylfum barði niður mót-
mæli í Nýju Delhi, höfuðborg
Indlands, sem beint var að
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
toga og afskiptum Sovét-
manna af innanlandsmálefn-
um Afganistan. Gorbatsjov og
Rajiv Gandhi forsætisráðherra
Indlands héldu áfram viðræð-
um sínum í gær en Sovét-
leiðtoginn er nú í opinberri
heimsókn í landinu.
BEIRÚT — Walid Jumblatt
leiðtogi drúsa hótaði að senda
liðsmenn sína í bardaga gegn
Palestínumönnum í búðar-
stríðinu svokallaða í Líbanon.
Fimmtudagur 27. nóvember 1986
UTLÖND
lillllIIHI
Vopnasala Bandaríkjastjórnar til írans:
Forsetinn skipar
rannsóknarnefnd
ísraelsstjórn þvær
hendur sínar af pening-
asendingum til skæru-
liða í Nicaragua - Blöð
í Vestur-Evrópu flest
sammála um að mál
þetta hafi verulega veikt
stöðu Reagans - Var
Lufthansa beðið um að
flytja vopn?
Reuter
Reagan Bandaríkjaforseti skipaði
í gær John Tower fyrrum öldunga-
deildarþingmann til að leiða rann-
sókn á þætti starfsliðs Þjóðaröryggis-
ráðsins (National Security Council)
í hinni leynilegu vopnasölu til írans.
Það mál er nú orðið að mesta
hneykslinu sem upp hefur komið í
stjórnartíð Reagans og ógnar vin-
sældum hans og áhrifum verulega.
í tilkynningu frá Hvíta húsinu í
gær var skýrt frá því að Edward
Muskie fyrrum utanríkisráðherra og
Brent Scowcroft, flugliðsforingi á
eftirlaunum, myndu aðstoða Tower
í rannsókn sinni á þessu máli.
Skipan rannsóknarnefndarinnar
fylgir í kjölfar afsagnar John Poind-
exters, helsta öryggismálaráðgjafa
Reagans, og brottvikningar Olivers
North ofursta úr starfi sem lykil-
manns innan Þjóðaröryggisráðsins.
Þessir menn máttu taka hatt sinn
eftir að upp komst að peningar sem
Bandaríkjastjórn fékk fyrir vopna-
söluna til írans voru lagðir inn á
reikning í Sviss sem skæruliðar í
Nicaragua höfðu aðgang að.
ísraelsstjórn tengist einnig þessu
máli en í gær neitaði Símon Peres
forsætisráðherra að stjórn sín hefði
vitað um að ágóðinn af vopnasöl-
unni, en ísraelar sigldu með vopnin
til Teheran, hefði runnið til Contra
skæruliðanna í Nicaragua. Peres
þvoði hendur sínar af þessu máli og
sagði stjórn sína hafa samþykkt að
flytja vopnin einungis til að hjálpa
Bandaríkjastjórn og bjarga lífi
bandarískra gísla í Líbanon.
Svissnesk stjórnvöld létu einnig í
sér heyra vegna þessa máls í gær.
Talsmaður dómsmálaráðuneytisins
þar í landi tók fram að svissnesk lög
hefðu ekki verið brotin er peningar
streymdu í gegnum svissneskan
bankareikning, frá Bandaríkjastjórn
til skæruliða í Nicaragua. Talsmað-
urinn sagði málið einungis vera á
milli írana og Bandaríkjamanna,
svissnesk stjórnvöld hefðu ekkert
með þetta að gera.
Blöð í Vestur-Evrópu voru flest
sammála um það í gær að vopnasalan
til íransstjórnar og peningaflæði til
skæruliða í Nicaragua í því sambandi
myndi verulega veikja stjórn Reag-
ans Bandaríkjaforseta. Flest blað-
anna fóru þó varlega í að spá hvort
áhrifin myndu verða varanleg þau
tvö ár sem forsetinn á eftir af síðasta
kjörtímabili sínu.
„Hneyksli" og „pólitísk sprengja“
voru algeng orð sem notuð voru til
að lýsa vopnaviðskiptunum og
minntu bæði sænska blaðið Dagens
Nyheter og ítalska blaðið II Tempo
á Watergatemálið í þessu sambandi.
í dag mun svo vestur-þýska blaðið
Express birta frétt þar sem banda-
rísk stjórnvöld eru sögð hafa reynt
að fá flugfélagið fræga Lufthansa til
að fljúga með vopn til írans.
Mál þetta hefur eins og áður sagði
verulega skaðað ímynd Bandaríkjaf-
orseta og stjórnar hans og virðist að
auki hvergi nærri vera lokið.
Nú skamma margir gamla manninn í Hvíta húsinu en hann lætur sem ekkert
sé, gluggar bara í skýrslur með Nancy sinni því það verða forsetar stundum
að gera.
Vestur-Þýskaland:
Kanslari upp á kant
við Sovétstjórnina
Bonn - Reutcr
Helmut Kohl kanslari Vestur-
Þýskalands hafði í gær að engu
kólnandi viðmót Sovétstjórnarinnar
í garð hans og gagnrýndi að nýju
mannréttindabrot Kremlverja og
nágrannaríkja þeirra.
Kohl sagði í harðorðri ræðu á
þingi að austurblokkin myndi ekki
þagga niður í honum þrátt fyrir
augljósar tilraunir í þá átt. Hann
sagðist þó enn fylgja þeirra stefnu að
bæta samskiptin við ríki Austur-
Evrópu.
„Við munum ekki hætta að benda
á að í Varsjárbandalagsríkjunum er
fólk ofsótt vegna stjórnmálaskoðana
sinna og trúarsannfæringar, að það
eru tvö þúsund pólitískir fangar í
Austur-Þýskalandi," sagði Kohl
Sovétstjórnin hefur frestað eða
aflýst nokkrum fyrirhuguðum heim-
sóknum embættismanna sinna til
Vestur-Þýskalands að undanförnu
og er ástæðan viðtal sem tímarit átti
við Kohl nýlega. Þar jafnaði kanslar-
inn saman þeim Gorbatsjov Sovét-
leiðtoga og Jösef Göbbels áróðurs-
meistara nasista.
Sovéskir embættismenn hafa látið
í veðri vaka að stjórn þeirra krefjist
þess að Kohl komi fram með form-
lega afsökunarbeiðni vegna þessa
máls. Slíka afsökun hefurkanslarinn
hinsvegar forðast að koma fram með
og segir einungis að tímaritið hafi
rangtúlkað orð sín.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐUR
Kohl kanslari var harðorður í garð Sovétstjórnarinnar í ræðu á þingi í gær.
Leiðtogi ETA:
„Þeir verða að
drepa okkur öll“
Txomin hótar áframhaldandi ofbeldisaðgerðum
Bilbao - Reuter
ETA, samtök baskneskra að-
skilnaðarsinna, munu halda áfram
ofbeldisaðgerðum sínum nema
spænska ríkisstjórnin samþykki
skilmála samtakanna fyrir samn-
ingaviðræðum. Það var leiðtogi
EtA sem gaf út þess yfirlýsingu í
gær.
„Ef þeir samþykkja ekki skil-
mála okkar mun ekkert stöðva
þjóðfrelsishreyfinguna. Þeir verða
að drepa okkur öll“, sagði Dom-
ingo „Txomin“ Iturbe Abasolo í
viðtali við baskneska dagblaðið
Egin.
Blaðið sagðist hafa átt viðtal við
á Spáni
Txomin í Alsír þar sem hann
dveldist í útlegð.
Kröfur ETA eru meðal annars
þær að Baskahéruðum Spánar
verði gefið fullt sjálfsstjórnarvald.
Ríkisstjórn sósíalista hefur hins-
vegar neitað öllum samningavið-
ræðum við fulltrúa ETA og segist
ekki semja við skæruliða.
Txomin hvatti fólk í Baska-
héruðunum til að kjósa Herri Bata-
suna, pólitískan arm ETA, í hér-
aðskosningunum á sunnudaginn
kemur. Þessi flokkur vann nærri
15% atkvæða í síðustu héraðskosn-
ingum árið 1984.
Sovétríkin:
Læknar
hækka í
launum
Moskvu - Reutcr
Sovésk stjórnvöld hafa ákveðið
að hækka laun þarlendra lækna
og annars sjúkrahússtarfsliðs en
margir læknar eru nium verr
launaðir en verkamenn. Launa-
hækkunin nemur uni 30% að
meðaitali og kemur til fram-
kvæmda í þessum mánuði. Það
var sovéska fréttastofan Tass sem
skýrði frá þessu í gær.
Tass sagði stjórnvöld hafa gert
sér grein fyrir launamismuninum
milli þeirra sem ynnu við fram-
leiðslustörf og þeirra sem störf-
uðu við þjónustu, heilsugæslu og
annað slíkt. Fréttastofan, sagði
kennara og þá er ynnu að rann-
sóknum einnig fá launauppbót
innan tíðar.
Fullmenntaður læknir hefur
fram að þessu getað þénað um
100 rúblur á mánuði eða sehi
samsvarar um 5800 íslenskum
krónum. Það er um helmingur
venjulegra launa þeirra sem
vinna við iðnaðarstörf.
Opinberir fjölmiðlar í Sovét-
ríkjunum hafa oft gagnrýnt þjón-
ustuna á sjúkrahúsum þar eystra
og skýrði eitt blað frá því nýlega
að hjúkrunarkonur sinntu varla
þeim sjúkiingum sem ekki gæfu
þeim þjórfé.