Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917 SPJAIDHAGI allar upplýsmgar á einum stao J SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. SPMtfagf I Hg? u í STUTTU MALI ■■■ ALÞYÐUBANDALAGIÐ hélt siðari hluta forvals á Suðurlandi og í Norðurlandskjördæmi eystra um síðustu helgi. í Suðurlandskjördæmi varð Margrét Frímannsdóttir hlut- skörpust, en Ragnar Óskarsson mun skipa annað sætið. Þriðji varð Unnar Þór Böðvarsson. Á Norðurlandi eystra varð Stein- grímur J. Sigfússon hlutskarpastur, en Svanfríður Jónasdóttir hlaut annað sætið. Þriðja sætinu náði Sigríður Stefánsdóttir. ÞÓRÐUR Ásgeirsson hefur sagt upp starfi sínu sem forstjóri OLÍS, en stjórn fyrirtækisins á enn eftir að samþykkja uppsögnina. Nýlega keypti Óli Kr. Sigurðsson meirihluta hlutafjár í fyrirtækinu oa tók þá við forstjóraembætti samhliða Þórði, en Þórður hefur venð erlendis að undan- förnu. ALÞYÐUFLOKKSfélag ísafjarðar hefur mótmælt afskipTum formanns flokksins Jóns Baldvins Hannibalssonar og konu hans Bryn- dísar Schram af prófkjöri flokksins á Vestfjörðum, en formannshjónin studdu opinskátt Karvel Pálmason gegn Sighvati Björgvinssyni. Sighvatur fór jafnframt fram á við kjörnefndina að kannað yrði sérstaklega hvort ákveðin atkvæði í prófkjörinu væru lögleg, þar sem grunur léki á að menn hefðu kosið í prófkjörinu sem þegar hefðu kosið í prófkjörum annarra flokka. BÆNDUR fá ekki greitt fyrir mjólkurinnlegg sitt inn á reikninaa sína á morgun, eins og gert er ráð fyrir í lögum. Samtök afurðastöðva í mjólk- uriðnaði giska á að nú vanti að líkind- um kringum 130-140 milljónir króna upp á að mjólkurbúin standi við skuld- bindingar sinar. Stafar þetta af lækkun afurðalána viðskiptabankanna og seinkun á greiðslu útfutningsbóta frá ríkinu. ÞINGFLOKKUR flokksins ályktaði í gær Alþýðu- að nú sé nauðsyn að gera róttækar breytingar á íslenska bankakerfinu, sem mi5i að því að efla á íslandi bankakerfi þar sem efnahagsleg og viðskiptaleg sjón- armið séu í fyrirrúmi. Rétt sé að hið opinbera stuðli að því að hér á landi starfi fáir, allstórir viðskiptabankar, er veitt geti atvinnulífi og einstaklingum alhliða þjónustu. RIKISSTARFSMENN fá nú 2900 krónur í dagpeninga fyrir gistingu og fæði hvern sólarhring sem þeir ferðast á vegum ríkisins. Ferða- kostnaðarnefnd ákvað þetta fyrir stuttu. Fyrir gistingu einn sólarhring er greitt 1450 krónur og fyrir fæði hvern heilan dag á minnst 10 stunda ferða- lagi er einnig greiddar 1450 krónur. Fyrir hálfsdagsfæði á minnst 6 stunda ferðalagi eru greidda 725 krónur. BEITINGAMENN á Suður- nesjum eru enn í verkfalli, en boðaður hafði verið fundur hjá útgerðarmönn- um í gærkvöldi. Eins og greint var frá í Tímanum í gær hafa beitingamenn náð samningum við smábátaeigendur, en missagt var að þeir hefðu samið um 440 kr. á tímann. Hið rétta er að þeir ® sömdu um 440 kr. á bjóðið en í hverju bjóði eru um 420 krókar. Einnig var missagt að krafa beitingamannanna væri að fá 450 kr. á tímann, það átti að vera 450 kr á bjóðið. Yfirleitt tekur það um 1 1/2 klst. að beita eitt bjóð. í KRUMMI „Mér hefur nú alltaf fundist það vera frek- ar tragi-kómískt! “ n Sala Borgarspítalans veldur úlfúö í Sjálfstæöisflokki: Kómískt að vera sjálfstæðis' maður í dag - segir Auðunn Svavar Sigurðsson, „ungur sjálfstæðislæknir“ u “Það er kómískt að vera sjálf- stæðismaður í dag og hlusta á ræðu Ragnhildar Helgadóttur, sem var sósíalísk ræða. Við ungir sjálf- stæðislæknar höfum verið að berj- ast á móti þeim hugmyndum sem sjálfstæðismenn eru nú að fram- kvæma,“ sagði Auðunn SvavarSig- urðsson lækniráBorgarspítalanum m.a. í gær, en Ragnhildur Helga- dóttir heilbrigðisráðherra og Davíð Oddsson borgarstjóri máttu sitja undir harðri gagnrýni frá flokksmönnum sínum á fundi starfsmanna Borgarspítalans með alþingismönnum og borgarfulltrú- um Reykjavíkur í gær. Starfsmenn eru algerlega á móti sölu spítalans og telja nauðsynlegu sjálfstæði hans stefnt í voða ef af sölu verður. Heilbrigðisráðherra sagðist til- búin að ræða ýmsar leiðir til að tryggja sjálfstæði spítalans þó ríkið tæki yfir reksturinn. Ráðherrann taldi möguleika á aukinni vald- dreifingu þó ríkið tæki við rekstrin- um, auk þcss sem það tryggði aukið hagræði í rekstri. Á fundinum kom fram að borg- arfulltrúar hafa aldrei haft tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort ræða eigi við fulltrúa ríkisins um sölu Borgarspítalans. Þó hafa drög að samningi um söluna legið fyrir frá því á sunnudag og gert cr ráð fyrir að gengið verði frá sölunni innan fárra daga. Borgarfulltrúar lýstu yfir mikilli furðu á málsmeðferð borgarstjóra og að hafa ekki fengið tækifæri til að fjalla um málið. - HM Frjálshyggja óvinsæl: Islendingar vilja velferðarþjónustu Frjálshyggja, sem birtist í niðurskurði á heilbrigðiskerfi, skólakerfi, tryggingakerfi og fé- lagslegri þjónustu, virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá íslend- ingum samkvæmt niðurstöðum í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands sem birtist í nýútkomnu afmælishefti Vinn- unnar, blaði Alþýðusambands- ins. í greinargerð með þessum niðurstöðum sem Stefán Ólafs- son lektor skrifar kemur m.a. fram að íslendingar eru ckki eins óánægðir með skattbyrði sína og frændur okkar á Norðurlöndum og að íslendingar eru almcnnt ánægðir með eða vilja efla ýmsa þætti opinberrar þjónustu. Sjá nánar bls.5 - BG Virkar fullvirðisréttur sem fasteignamat bújarða? Bændur munu leita til dómstóla - bíða eftir að stjórn Stéttarsambandsins taki málið upp, ella fari einstakir bændur í mál sjálfir Bændur í Reykhólasveit sam- þykktu samhljóða, á fundi um síðustu helgi, tillögu um að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort fullvirðisréttur landbúnaðarafurða sé stjórnarskrárbrot að því er varð- ar friðhelgi einkaréttar. Fundarmönnum bar saman um það að fullvirðisrétturinn virki sem fasteignamat og jarðir séu nú metn- ar eftir honum. Þess vegna sé svo komið að margar góðar bújarðir séu verðlausar þar sem fullvirðis- réttur sé enginn eða svo lítill að vonlaust sé að framfleyta fjöl- skyldu á honum. Sveinn Guðmundsson Miðhús- um í Reykhólasveit var annar flutningsmaður að tillögunni og sagði hann í samtali við Tímann að tveir lögfræðingar sem skoðað hefðu mál þetta sitt í hvoru lagi hefðu komist að sömu niðurstöðu í meginatriðum. Þess væri nú beðið að stjórn Stéttarsambands bænda taki þetta mál upp, en geri hún það ekki, geri einstakir bændur það, því hagmunamálum bænda sé svo komið að óhjákvæmilegt sé að láta á það reyna, hvort um réttmæt vinnubrögð sé að ræða varðandi úthlutun fullvirðisréttar. „Það er víðar ólga heldur en hér, hún er alls staðar. Síðan fréttist af fundinum hér hafa margir haft samband við mig og lýst yfir óánægju sinni með þá stöðu sem bændur eru nú komnir í. Það eru bæði bændur og forystumenn bænda sem hafa lýst yfir stuðningi við þessa tillögu og þar skipta stjórnmálaskoðanir ekki máli,“ sagði Sveinn. Bændur hafa nú þegar leitað álits lögfræðinga á því hvernig túlka ber fullvirðisrétt landbúnað- arafurða. „Niðurstaða lögfræðing- anna var á þá leið að ef fullvirðis- rétturinn væri bara hugmynd þá stæðist hann en ef fullvirðisréttur- inn verður túlkaður sem framkvæmd, þá stæðist hann ekki. Mín skoðun er sú'að fullvirðisrétt- ur sé raunveruleiki en ekki hugtak. í því sainbandi má taka sem dæmi að ef lijón sem búsett eru í sveit skilja og annað hjóna vill selja fullvirðisréttinn, þá er það um leið að gera hinu ógerlegt að búa á jörðinni. Mér sýnist að það sé tími fram á næsta haust til að komast til botns í þessum málum og mér finnst að eigi að nota þann tíma vel til að komast að raunverulegum niður- stöðum um það hvernig á að haga framleiðslunni og hvernig er best aö skipuleggja hana. Það á að skipulcggja allt landið með tilliti til byggðar því þær jarðir mega fara í eyði sem skipta ekki máli hvort eru í byggð með tilliti til byggðarinnar í kring, en aðrar jarðir eiga ekki að fara í eyði“ sagði Sveinn. ABS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.