Tíminn - 10.12.1986, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 10. desember 1986
llllillllllllllllllllllllllllllilllllll ÚTLÖND lilllllllllllllllllllllllilIW
Tíminn 7
Hermann, Eysteinn og Bjarni í sextugsafmæli Eysteins
Sókn og sigrar
Ann^ð bindi sögu Framsóknarflokksins,
skráð af Þórarni Þórarinssyni,
er komið út. Það nær til
áranna 1937-1956 og er jafnframt
stjórnmálasaga landsins.
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, snúi
sér til Magðalenu Thoroddsen á
skrifstofu Framsóknarflokksins
milli klukkan 13.00 og 17.00.
Bókin er seld á lægra verði til áskrifenda.
Bókin er 280 lesmálssíður og
32 myndasíður.
Mótmælendur á Norður-írlandi hafa ekki getað fyrirgefið Thatcher að gera
samning við stjórn kaþólikka á írlandi um stjómun Norður-írlands. Einn af
leiðtogum þeirra, presturinn Paisley, kom því svo sannarlega á framfæri í gær.
Evrópuþingiö í Strassborg:
Paisley truf I-
aði Thatcher
Á árunum 1937-1956 varð mesta
þjóðlífsbreytingin á íslandi.
Pöntunarsími 91-24480
Jólahátíöin varla gleðileg hjá fjölmörgum Suður-Afríkubúum:
Stjórnvöld hvött til
að leysa börn úr haldi
Reuter-
Stjórnvöld í Vestur-Þýskalandi
kröfðust þess í gær að Suður-Afríku-
stjórn léti strax laus börn sem gista
fangaklefa þar í landi. Var fangelsun
barnanna sögð sýna hreint skelfilega
lítisvirðingu fyrir mannréttindum.
Lögreglan í Suður-Afríku viður-
kenndi í vikunni að 256 börn á
aldrinum ellefu til fimmtán ára hefðu
verið handtekin frá því neyðar-
ástandslögin tóku gildi í júní á þessu
ári.
Talsmaður vestur-þýska utanrík-
isráðuneytisins sagði þó stjórn sína
taka alvarlega til greina tölur frá
hinum ýmsu mannréttindasamtök-
um sem eru sammála um að fleiri en
þúsund börn hafi mátt gista fanga-
geymslur á þessum tíma.
„Fjöldahandtökur á unglingum og
börnum í Suður-Afríku er skelfileg-
ur vitnisburður um lítilsvirðingu
stjórnvalda á mannréttindum og lög-
fræðilegum grundvallaratriðum",
sagði talsmaðurinn og bætti við:
„Við hvetjum alla þá í Suður-Afríku
sem bera stjórnmálalega ábyrgð að
aflétta fangavist barnanna“.
Baráttusamtök svartra kvenna
fyrir borgaralegum réttindum
(SASH) hófu í síðasta mánuði her-
ferð fyrir því að börnin yrðu leyst úr
haldi fyrir jól.
Margt bendir þó til að stjórnvöld
hyggist síður en svo ætla að slaka á
taumunum þrátt fyrir að jólahátíðin
sé að ganga í garð. Fréttir herma
nefnilega að yfirvöld hyggist láta
hneppa fjölmarga einstaklinga í
gæsluvarðhald yfir hátíðina og hafa
reyndar margir stjórnarandstæðing-
ar þegar farið í felur vegna þessa
orðróms.
í gær sendu svo ýmis kristin
kirkjusamtök í landinu frá sér til-
kynningu þar sem neyðarástandslög-
in voru sögð setja svartan blett á alla
hátíðarstemmingu yfir jólin.
„Hvernig getum við litið framhjá
því að þúsundir hermanna gæta
hverfa blökkumanna, að gífurleg
takmörk eru á fréttum og upplýsing-
um, að fólki er ekki leyft að koma
saman og setja fram skoðanir sínar
og að mikill ótti leynist í hjörtum svo
fjölmargra okkar“, sagði í tilkynn-
ingunni.
- Noröur-írski stjórnmálamaöurinn kallaði
Thatcher svikara er hún hélt ræðu á Evrópuþinginu
Zhao Ziyang forsætisráðherra Kína talaði um aukið fjármálafrelsi í gær.
Hér sést Zhao ásamt Richard von Weizacker forseta V-Þýskalands
Forsætisráðherra Kína:
Frelsi í fjármálastefnu
Pekíng - Reuter
Kínverjar verða að endurskipu-
leggja fjármagnskerfi sitt en vantar
til þess hæfa sérfræðinga. Það var
fréttastofan Nýja Kína sem hafði
þetta eftir Zhao Ziyang forsætis-
ráðherra.
Zhao talaði í gær á alþjóðlegri
ráðstefnu og sagði þar að auka
þyrfti frjálsræði smærri atvinnufyr-
irtækja jafnframt sem skipuleggja
þyrfti rekstur stærri fyrirtækja
betur.
„Kínverjar þurfa góðar áætlanir,
hagnýtar aðferðir og fjármálasér-
fræðinga til að breyta fjármagns-
kerfinu“, sagði forsætisráðherrann
en bætti þó við að skortur væri á
hæfu fólki í landinu til þessa verks.
Stjórnvöld í Kína hafa á undan-
förum árum gert nokkrar mikils-
verðar breytingar á fjármálastarf-
seminni og má þar nefna aukningu
á starfssviði banka og alþjóðlegra
fjármálastofnana í Iandinu.
Erlendir viðskiptaaðilar hafa þó
sagt að framfarir í þessum málum
séu frekar hægar.
Chen Muhua, bankastjóri Seðla-
bankans, sagði í siðasta mánuði að
breytingar á fjárhagskerfinu ættu
að miðast við aukið frjálsræði í
stjórnun fjármagns og setja ætti
upp gjaldeyrismarkaði til að hvetja
til samvinnu milli héraða landsins.
Strassborg - Reuter
Presturinn Ian Paisley, einn af
leiðtogum mótmælenda á Norður-
írlandi, hafði sig mjög í frammi á
Evrópuþinginu í Strassborg í gær.
Margrét Thatcher forsætisráðherra
Bretlands ávarpaði þá þingið og
truflaði presturinn hana tvívegis í
ræðu sinni.
Paisley notaði tækifærið í gær til
að mótmæla ensk-írska sáttmálanum
er veitir írsku stjórninni nokkra
hlutdeild í stjórnun Norður- írlands.
Thatcher þurfti eins og áður sagði
tvívegis að gera hlé á ræðu sinni eftir
að Paisley hafa lýst henni sem.„svik-
ara við stuðningsfólk breskra yfir-
ráða á Norður-írlandi".
Breska ríkisstjórnin hefur mátt
sæta mikilli gagnrýni frá mótmæl-
endameirihlutanum á Norður-ír-
landi eftir að hún skrifaði undir
ensk-írska sáttmálann við stjórn ír-
lands fyrir rúmu ári.
Sáttmálinn umdeildi gerir ráð fyrir
að írlandsstjórn geti verið ráðgef-
andi í málefnum bresku stjórnsýslu-
einingarinnar. Andstæðingar sátt-
málans óttast þó að hann sé aðeins
upphafið á því að stjórnin í Dyflinni
fái full yfirráð yfir málefnum Norð-
ur-frlands.
Paisley, sem aðeins stóð fáeina
metra frá breska forsætisráðherran-
um, sakaði Thatcher um að neita
íbúum Norður-írlands að greiða at-
kvæði um sáttmálann.
Presturinn og annar norður-írskur
stjórnmálamaður, John Taylor, voru
hvað eftir annað beðnir um að færa
sig í burt frá ræðupallinum en þeir
neituðu og veifuðu í staðinn bækl-
ingum með árituninni „Ulster segir
nei“.
Thatcher var í ræðu sinni að tala
um vandamál og framtíðaráform
Evrópubandalagsríkjanna en að lok-
um þurfti hún að hætta á meðan
öryggisverðir fylgdu Paisley út úr
þingsalnum.
ÚTLÖND
. UMSJÓN:
Heimir
BLAÐAMAÐUR