Tíminn - 10.12.1986, Qupperneq 9

Tíminn - 10.12.1986, Qupperneq 9
Miðvikudagur 10. desember 1986 Tíminn 9 VETTVANGUR lllllllillllllll llllllllllllll llllilll lllíllllllllllllllllllllllllll Þórarinn Þórarinsson: Er ekki ráð að gera Seðla- bankann að hlutabréfabanka? Jóhannes Nordal er stórgáfaður maður eins og hann á ættir til. Auk þess er hann hámenntaður hag- fræðingur. Þjóðin hlustar með mikilli athygli, þegar Jóhannes læt- ur heyra til sín. Einkum leggja foringjar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins vel við eyrun, en á sínum tíma stóð nokkur metingur um, hvor flokkanna hefði átt meiri þátt í því, að Jóhannes Nordal var valinn aðalleiðtogi Seðlabankans. Jóhannes Nordal lét Ijós sitt skína í Morgunblaðinu á sunnu- daginn var. Þar var birt við hann viðtal, sem náði yfir tvær síður í blaðinu. Þannig vildu þeir Matthí- as og Styrmir árétta, að Jóhannes hefði mikinn boðskap að flytja. Sennilega hafa þeir einnig viljað auglýsa á þann hátt, að boðskapur Jóhannesar nyti stuðnings Morg- unblaðsins, en oft gildir það, sem Morgunblaðið segir, eins og lög fyrir Sjálfstæðisflokkinn, enda flokkurinn háður áróðursmætti þess. Eðlilegt er, að þeir Matthías og Styrmir finni til þess, að þeir eru ekki alveg valdalausir menn, þótt þeir láti ekki mikið á sér bera, einkum þó Styrmir. Boðskapur Jóhannesar að þessu sinni var í stuttu máli þessi: Breytið öllum ríkisbönkunum í hlutabréfa- banka. Það er ekki nóg að leggja Útvegsbankann undir Iðnaðar- bankann og Verslunarbankann og láta þá fá nokkurhundruðmilljónjr króna í meðgjöf frá ríkinu. Það á einnig að brcyta Búnaðarbankan- um og Landsbankanum í hluta- bréfabanka. Vafalítið stafar þessi boðskapur Jóhannesar af því, að hann telur Búnaðarbankann og Landsbank- ann ekki nógu vel rekna. Þeir lána t.d. til sjávarútvegs, fiskvinnslu og landbúnaðar, sem einkabankarnir sneiða hjá að mestu. Þá eiga þar sæti bankaráðsmenn og banka- stjórar með pólitískar skoðanir og pólitíska hagsmuni. Það er víst nokkuð annað en hjá Iðnaðar- banka og Verslunarbanka, þar sem hlutabréfaeigendur ráða vali bankaráðsmanna og bankastjóra. Jóhannes Nordal Þeir eru valdir án tillits til pólitískra skoðana og sérhagsmuna. A.m.k. virðist Jóhannes Nordal álíta, að hjá einkabönkum séu öll pólitísk sjónarmið og sérhagsmunir útilok- uð. En fyrst það er talið hyggilegt af jafn greindum og lærðum manni og Jóhannes Nordal er, að breyta viðskiptabönkum ríkisins í hluta- bréfabanka hlýtur sú spurning að vakna, hvort það sé ekki einnig hyggilegt að breyta Seðlabankan- um í hlutabréfabanka og fjarlægja þaðan á þann hátt öll pólitísk áhrif eins og í Iðnaðarbankanum og Verslunarbankanum. Það ýtir undir þessa hugsun, að færasti fjármálamaðurinn í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins, Eyjólf- ur Konráð Jónsson, hefur rnjög ákveðið deilt á fjárbindinguna í Seðlabankanum. Þeim rökum Eyj- ólfs Konráðs hefur ekki verið hnekkt að þessi fjárbinding hafi átt þátt í því, að íslensk fyrirtæki hafa búið við óeðlilegan lánsfjárskort og skuldasöfnunin við útlönd hafi orðið mun meiri en hún hefði annars orðið. Aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa að vísu ekki tekið undir þetta, cnda þarf kjarkmann á þeim bæ til að standa upp í hárinu á Jóhannesi Nordal. Þá hefur því einnig heyrst hreyft, að hefði það fjármagn, sem Seðla- bankinn hefur tekið af Útvegs- bankanum í dráttarvexti í gegnum árin, verið ávaxtað með hæstu sparifjárvöxtum viðskipta- bankanna, næmi það orðið fjárhæð, sem væri ekki miklu lægri, en skuld Útvegsbankans við Seðla- bankann. Bæði þetta og margt fleira, vekur þá spurningu, hvort ekki eigi að framfylgja kenningum Jóhannesar Nordal til fulls og gera ekki aðeins Útvegsbankann, Búnaðarbankann og Landsbankann að hlutabréfa- bönkum, heldur einnig Seðlabank- ann og reyna þannig að koma í veg fyrir þau miklu mistök, sem að dómi Eyjólfs Konráðs hafa átt sér þar stað. Myndi það ekki leysa mikinn vanda þjóðarinnar að gera Seðlabankann að hlutabréfa- banka? SAMTININGUR lllllllllllllllll Jólasveinar einn og átta ofan komu affjöllunum. í fyrrakvöld égfór að hátta, þeir fundu hann Jón á völlunum. ísleifur stóð utan gátta, þeir ætluðu að fœrann tröllunum En hann beiddist af þeim sátta, óliýrustu köllunum. Þá var hringt öllum jólabjöllunum! Ekki veit ég aldur þessarar vísu, en lífseig er hún og fróðleg um forna háttu. Ekki var laust við að ævaforn beygur við hulda vætti sæti í okkur aldamótabörnunum. Oghannmagn- aðist í skammdeginu, þegar myrkur grúfði yfir öllu mikinn hluta sólar- hringsins. Nú er skjannabjart í borg og bæ og kynjaverur forðast birtuna. í gömlu bæjunum voru litlir olíulampar í baðstofu einu ljósfærin, en í eldhúsi og fjósi lýsislampar og litlar olíutýrur, þegar þar var verið að vinna, en allt ljósmeti sparað. Sjaldan nein ljós í fjárhúsum uns olíuluktir komu til sögunnar. Oft prjónað og spunnið í rökkrinu og stundum sagðar sögur. Kyrrðin miklu meiri þá en nú úti og inni. Heimili oft mannmörg og einmana- leiki síst meiri en í fjölmenni borg- anna, þó einkennilegt kunni að virðast. Breytingar hægfara öld eftir öld og fólk rólegra af þeim sökum og þurfti lítið til að gleðja það, sbr. vísuna: Þá skal gefa börnum brauð að bíta í á jólunum, kertaljós og klœðin rauð, að komist þau úr bólunum. Vœna flís affeitum sauð, sem til fjalla gekk í hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð, gafst hún upp á rólunum! Já, Grýla er dauð, og gleymd að mestu, en jólasveinar eru ljóslifandi í hugarheimi okkar og börnum nú- tímans fagnaðarefni, síðan Sankti Nikulás kom til sögunnar. Fyrir- mynd hans talin góðgerðasamur biskup í Litlu-Asíu fyrir 1700 árum. Gott þótti að heita á svo helgan mann, ef vanda bar að höndum. Nú er Nikulás allsráðandi sem jóla- sveinn og gleður börn með gjöfum, söng og skringilegheitum. Gömlu jólasveinarnir 9 eða 13 voru aftur á móti viðsjálsgripir, smáhrekkjóttir, jafnvel áþekkir hálf- tröllum. Best að verða ekki á vegi þeirra eftir að skyggja tók. Heldur herfulega klæddir, sumir með skegg niður á tær. í þjóðtrúnni voru þeir engin flón, en í íslenskum fjölmiðl- um nú eru þeir oft gerðir heimskir, klaufskir og hlægilegir, jafnvel hálf- gerðir „Bakkabræður". Ingólfur Davíösson: Um jólaleytið Ekki trúðu börn á raunverulega tilveru jólasveina, en höfðu gaman af að gera sér ýmsar hugmyndir um þá, t.d. að þeir ættu hcima bak við „Sólarfjöllin“ langt burtu, en kæmu svo með poka sína fyrir jólin. Sá fyrsti 9 dögum fyrir jól og síðan einn á dag, sá síðasti á aðfangadag. Ekki voru gjafir í pokum þeirra, heldur reyndu þeir að hnupla ýmsu í þá, jafnvel stinga niður í þá óþægum börnum! Þeir fóru á kreik þegar dimma tók og voru sannarlega mannlegir grcyin. Nöfnin segja hvað þeir girntust hver um sig, eða hvar þeir héldu sig: Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur eða Pönnusleikir, Þvörusleikir, Potta- sleikir, Askasleikir, Faldafeykir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Ket- krókur, Gluggagægir, Gáttaþefur og Kertasníkir. Sumir bæta við: Hurða- skelli, Flórsleiki og Þvengjaleysi! Margt var um jólasveina kveðið og raulað í rökkrinu: Gáttaþefur, gáttaþefur gríðar-nef rak inn. Gapir gufu yfir, greyið af því lifir. Hann er magur, haus ófagur, hrukkótt gamalt skinn. Faldafeykir, faldafeykir fötin undir blœs. Gleypir skyrið Gámur, gelti að honum Sámur. Bjúgnakrœkir, bjúgnakrœkir beit í jólagœs. Sagnir um jólasveina munu æva- fornar, trúin á þá hefur kannski borist frá Norðurlöndum, t.d. Nor- egi, en þar var til áþekk þjóðtrú. Guðmundur garðastaur hinn norski æti verið fyrirmynd Stekkjarstaurs. Sunnfjord í Noregi áttu þeir að vera á ferð um jólin fimm saman og öllu illvígari en hinir íslensku. Ýmsir fleiri vættir eru tengdir skammdeginu og jólunum erlendis frá fornu fari, en „innfluttir" hingað í seinni tíð, t.d. jólakötturinn. Allir áttu að fá einhverja gjöf fyrir jólin til að fara ekki í jólaköttinn, kolsvart illþýði, sem annars gat gleypt þá. Jólahafur er líka útlent fyrirbæri, sem borist hefur hingað. Það er hafurlíkan úr hálmi, sett upp fyrir jólin. Oft fylgir kornvisk með. Jóla- hafurinn átti að milda kornguðina svo uppskera yrði góð næsta sumar. Innfluttur er einnig sá siður að setja skó út í glugga fyrir jólin til að fá gjöf í hann. Skepnur fengu jafnan ríku- lega gjöf í jötuna á jólunum og gæfumerki þótti að dreifa út moði handa snjótittlingunum. Sjálfsagt var að baka laufabrauð fyrir jólin, allt heimilisfólkið vann saman við að gera laufabrauð og skera það út sem fagurlegast. Það voru ánægjulegar stundir og eru enn, þó gerð laufabrauðs sé víða orðin vélræn. Jólabrauð með rúsín- um og randalínstertu þótti sjálfsagt að baka, einnig kleinur, gyðingakök- ur, smérlausar kökur o.fl. Jólamatur var einhæfari en nú víðast hvar, en kröftugur var hann ef efni leyfðu. Bornir voru á borð vel reyktir feitir magálar og bringukollar, rjúpur stundum og oftast sperðlar, þ.e. bjúgu sem lengi höfðu hangið uppi í eldhússreyknum. Þetta voru langar með smásöxuðu feitu og mögru keti til helminga minnir mig. Þetta var hið mesta hnossgæti. K jólaföstunni fór Davíð faðir minn jafnan yfir hið mikla grasasafn sitt, tók það uppúr kössum og sýndi okkur. Það var hátíðarstund, við söfnuðumst í kringum hann, horfð- um á þurrkaðar, upplímdar jurtirnar og hlustuðum á frásögn hans, en hann hafði sitthvað að segja uin hverja tegund og sagði frá af lífi og sál. Betra að koma ekki við hana þessa! sagði hann og brá upp brenni- netlu. Kúmen! Það er frá Möðruvöll- um, kannski hafa amtmennirnir sáð til þess? Hérna eru nykrur úr Dauða- tjörn, Hjalteyrartjörn og Reistarár- tjörn! Dauðatjörn var mjög djúp og í kíl þar nálægt lifðu blóðsugur, sem sugu sig fastar, ef maður buslaði þar berfættur. Reistarártjörn er nú horfin, en þar var áður sundpollur, sem Jón Kjærnested mun fyrstur hafa kennt sund í. Eggjasafn átti Davíð einnig. Um hann var kveðið: Þrifabóndi þekkir sitt fé, þingmaður kjósendum kœr. En Davíð gekk sjáandi um grasa- heim og nefndi hvert blóm með nafni! Vanalega var lesið hátt úr ein- hverri bók á kvöldvökunni, og á sunnudögum las María móðir mín húslestur úr Péturs og Vídalínspost- illum. Hversdagslega var unnið á kvöldin, prjónað, kembt og spunnið, fléttuð reipi o.s.frv. Skólabækur lás- um við börnin í baðstofunni og létum hávaða ekki trufla okkur. Brugðum okkur oft út á skíði og ekki skorti snjó né skíðabrekkur rétt við bæina á Árskógsströnd. Milli þúfnanna, sem stóðu upp úr mýra- svellunum, fórum við í ýmsa leiki á skautum. Þreifuðum okkur inn dimm bæjargöngin til baðstofu þegar heim kom, hálfhrædd við að draugar eltu okkur! „Mér heyrðist eitthvað murra, bak við byrgðar dyr, stend því stífur kyrr. Herði loks upp hugann og hendist móður inn. Þar sat hún Ranka við rokkinn sinn! Hvaða ósköp eru á þér með opinn hníf í hendi? Það var eins og hornagassi á hurðina renndi! Fyrirgefðu frœnka mín, ég flýði undan draug! Vissi varla hvort ég sagði satt, eða laug!“ Já, hræðsla við myrkur og drauga gat verið mögnuð. Lýsislampinn var að kalla eina ljósfærið í þúsund ár. „Ljósið kolunnar lék um Snorra, lýsti sagnaheim feðra vorra". Snorri gat þó líka brugðið upp kertaljósi og jafnvel tendrað log á norskum íuruteinum. Hinir harpix- ríku furuteinar brunnu hægt með þægilegu Ijósi. Olíulampinn hclt velli nokkra áratugi, hvc lengi ræður rafmagnsljósið ríkjum? Hér á landi sáust varla jólatré fyrr en á þessari öld. Þau voru lengi flest heimasmíðuð, en nú eru lifandi jólatré á flestum heimilum. Grenitré eru falleg og tiltölulega ódýr, en þeim hættir til að fella barrnálarnar fljótlega inni í heitri stofu. Best að geyma þau úti meðan hægt er. Saga síðan sneið neðan af stofninum og " setja í vatn, t.d. í skál á jólatrésfæti. Þinur (eðalgrein) og fura haldast miklu lengur án þess að fella barrið, en eru eitthvað dýrari. Eru nú margir farnir að nota furujólatré. Jólagreinar eru flestar af þin eða af furu. Nokkuð einnig af kýpris (Tuju)-greinum. Þær eru flatar og með sérkennilegri lykt. Endast prýðilega eins og furan og þinurinn. Þinur er auðþekktur frá greni á flötum, fremur mjúkum nálum. Lengi voru nær eingöngu innflutt jólatré á markaðinum, en nú er talsvert af þeim, þ.e. greni og fura ræktuð innanlands í vaxandi mæli og geta vonandi bráðum annað eftir- spurninni. Kerti voru sett á öll jólatré fyrr á tíð og var það mikil stund fyrir börnin þegar kveikt var á kertunum. Nú hafa smáar rafljósaperur að mestu leyst kertin af hólmi. Það er minni eldhætta af þeim, en auðvitað sakna margir hinna „lifandi“ ljósa. Stór lifandi jólatré eru nú sett upp á torgum og víðar, hið stærsta á Aust- urvelli. Afarstórt grenitré lýsir á Ráðhús- torginu í Kaupmannahöfn. í ár er það að vísu eitt tré á að sjá, en er raunverulega sett saman af 21 greni- tré, segja þeir í dönskum blöðum. Sumar stærstu greinar og toppur eru sérstök tré. Mynd sýnir jólahafur, köngul og korn. Hafurinn átti að milda guði korns og trjáa sumarið eftir. Köttur- inn er meinleysislegri en jólaköttur þjóðsagnanna. Önnur sýnir jóla- svein í dvergslíki og spáfugl austur- lenskan. Einhver góður listamaður ætti að gera nýjar teikningar af gömlu íslensku jólasveinunum 9 eða 13. Það væri vel til fallið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.