Tíminn - 10.12.1986, Síða 10

Tíminn - 10.12.1986, Síða 10
10 Tíminn Miðvikudagur 10. desember 1986 Fjórða bindi endurútgáfu Cöngur og réttir. Skagatjaröarsýsla - Eyjafjarð- arsýsla, Suöur-Þingeyjarsýsla vestanverð. Bragi Sigurjónsson bjó til prentunar. IV. bindi. Önnur prentun aukin og cndurbætt. Skjaldborg 1986. 389 bls. Eins og fram kemur í bókartitli tekur fjórða bindi ritsafnsins Göngur og réttir til svæðisins frá Skagafirði og til Suður-Þingeyjarsýslu að Skjálfandafljóti. Frásögninni erhag- að með líku móti og í fyrri bindum að því leyti, að kunnugir menn segja frá afréttum viðkomandi sveita, fjallskilum, réttum og öðru sem því tilheyrir. Eru þær frásagnir allar skilmerkilegar og fróðlegar, ekki síst fyrir þá sök, að hér er greint frá víðáttumiklum afréttarlöndum og f hita æskunnar Ilelga Ágústsdóttir. Ef þú bara vissir. löunn. Hér segir frá menntaskólastúlku sem Sigrún heitir, ástum hennar og áhyggjum. Raunir hennar eiga sér mjög rætur í sambandsleysi við for- eldrana. Einangrun heima fyrirgerir þörf hennar fyrir annað samband meiri og þrána ákafari en skóla- bróðirinn, sem hún þráir, hefur ekki áhuga. Þetta allt veldur Sigrúnu hugstríði og gcrist fátt annað sem til tíðinda má teljast lengi vel. En þegar á Iíður gerist ýmislegt sem umtalsvert má þykja, og skal þó alls ekki gera lítið úr sálarstríði og hugraun unglingsins. Víst er það söguefni sem gaumur er gefandi. Sigrúnu verður félagsskapur ölv- aðra skólasystkinanna ofraun þar sem henni finnst sér engin athygli veitt og allt gleðivana og tilgangs- laust svo að í kæruleysi fer hún heim með Kobba hálffullum og legst með honum en því fylgir ógleði þegar vímunni léttir. Atvikin haga því svo að Sigrún hefur sumardvöl suður á Mallorka. Hún er þar í vist hjá heimamönnum. Ferðamenn og þjónusta við þá er mest áberandi, og nú kemur til sögu breskur maður, sem vinnur í hljóm- sveit, og sparar hvergi faguryrðin um glæsileika og yndisþokka Sigrún- ar og er það miklu meira en hún þolir. En ánægjan verður endaslepp og eftirköstin slæm. Hitt er þó meira söguefni að Sigrún kynnist spönskum unglingum sem henni finnst hafa annan lífsstíl en jafnaldrarnir í Reykjavík. „Hún gat ekki annað en dáðst að þeint; svo opin, óspillt og glöð.“ Þessu fólki og félagslífi þess er lýst líkt og gerðist hér á landi fyrir „kynlífsbyltinguna“ þegar almennt var álitið að kynlíf heyrði einkum til hjónabandi. Þetta vekur eðlilega ýmsar spurningar án þess að þeim sé svarað beinlínis. En ekki er allt fcngið með hömluleys- inu. Þessi saga er í flokki þeirra sem hafa tilfinningalíf unglinga að uppi- stöðu. Þar er jafnan samband við fullorðna veigamikill þáttur. Og það er örlagaríkt á hverju heimili hvernig til tekst. Sigrún er góðum hæfilcikum gædd og ástæður foreldranna eru góðar að því er virðist. Þetta er þó ekki nóg til farsældar. Og þá er ómaksins vert að gera sér grein fyrir því hvað sé að. Helga Ágústsdóttir vill leiða huga lesenda sinna að því og fá þá til að glíma við þær þrautir. Sögu hennar mun verða vel tekið og væntanlega um hana hugsað svo að einhverjum verði að liði. H.Kr. Helga Ágústsdóttir. fögrum, sem mörg gátu reynst bæði harðsótt og langsótt. Gefur og að lesa skemmtilegar minningar úr gangnaferðum, sumar nokkuð róm- antískar, en aðrar er greina frá mannraunum og eftirminnilegum leitum. Göngur og réttir hafa um langan aldur verið fastur þáttur íslensks sveitalífs, ef til vill sá þátturinn, sem fæstir vildu missa af. í margra augum voru gangnaferðir blandaðar róm- antík og dulúð öræfaferðanna og það að fara í göngur í fyrsta skipti var eins konar manndómsvígsla. Eiga margir skemmtilegar minning- ar úr göngum. í þessari bók er samankominn mik- ill fróðleikur um landið og búskapar- hætti. Hverri afrétt, sem um er fjallað, er lýst nákvæmlega, ýtarlega er greint frá fjallskilum á hverju svæði og sagt frá tilhögun gangna og rétta. Margir eru til sögu nefndir og margar skemmtilegar frásagnir eru af göngum og eftirminnilegum leit- um. Góður fengur er að ritgerð Braga Sigurjónssonar um fráfærur, en hann hefur viðað að sér ýmsum heimildum um þá fornu búskapar- hætti, sem nú eru hvarvetna aflagðir og flestum gleymdir. f bókarlok eru nafnaskrár, flokk- aðar eftir sýslum, bókin er prýdd Bragi Sigurjónsson. allmörgum myndum og er allur frá- gangur hennar með ágætum. Full ástæða er til að hvetja yngra fólk til að lesa ritsafnið Göngur og réttir. í því erlýst veröld, sem núer aðmiklu leyti horfin, svo mjög sem göngur eru víðast orðnar með öðrum hætti en áður var. Flestir þættir safnsins eru ágætlega skrifaðir og geyma merkilegan fróðleik um líf og starf fyrri manna og kvenna í landinu. Jón Þ. Þór. Bernskuástir Eövarð Ingólfsson: Ástarbréf tll Ara Skáldsaga Æskan Frá því farið var að skrifa skáld- sögur á seinni öldum á íslenska tungu hefur verið sagt frá ástamálum unglinga og þá jafnvel rakið til bernsku svo sem Jón Thoroddsen gerir í Pilti og stúlku. Þá var það fyrirmynd að ástin entist frá barn- æsku til æviloka í hárri elli enda voru þess dæmi úr riddarasögum fyrri alda. En tímarnir breytast og mennirnir með. Nú vita menn að (úKA . kAUPFELAÖ Ð enda þótt seint fyrnist fornar ástir gildir oft það sem Þorsteinn Erlings- son kvað um fýrstu ástirnar að það er góugróður, vinur minn, sem grær oft fljótt en stendur sjaldan lengi. Á síðustu tímum hefur verið mikil gróska í frásögum af ástum unglinga. Það er þáttur í því að beina athygli að þroskavegi unglinga frá bernsku til æsku og margskonar átökum og sviptingum æskuáranna. Þar kemur það og til að unglingum þyikir gott að lesa sögur af jafnöldrum sínum og tilfinningum sem þeir þekkja meira eða minna af sjálfum sér. Eðvarð Ingólfsson er höfundur sem unnið hefur sér vinsældir með sögum af ungu fólki. Sumum þykir sem þar hafi verið minni átök en æskileg séu í sögum. Víst eru það sögur af hversdagslegu fólki, eðlileg- um unglingum, en gild rök eru til þess að telja það til kosta. Viðbrögð lesenda eru líka alltaf rök í máli þó að ekki sé víst að bestu verkin vinni sér alltaf mesta hylli á fyrsta spretti. Hér segir frá krökkum sem eru bæði ung og barnaleg eins og verður að vera, en hafa sínar tilfinningar og verða ástfangin. Hvort tveggja er til að því fólki finnist að það sé kornið Eðvarð Ingólfsson. svo á aldur að því hæfi eða jafnvel beri að stofna til ástarsambanda og svo hitt, að vöknuð sé öflug þrá eftir félagsskap, eftirtekt og hylli sérstaks ástvinar. Þetta hvort tveggja skilur Eðvarð Ingólfsson og kann að segja frá því. Það sýnir þessi nýja saga hans. Þessi bók mun naumast marka sérstök spor á ferli höfundar síns en hún ber þau einkenni sem aflað hafa honum vinsælda með fyrri sögum. H.Kr. Gestur Gils 295.- Guðmundssonar DÓMUS — MIKLiGARÐUR OG KAUPFEL9GIN I LANDINU ...EIN14IG- FYRR K?TAKK7\ Gestur. Islcnskur fróðleikur gamall og nýr. III. Gils Gudmundsson safnadi cfninu. Iðunn. Hér er komið þriðja bindi þessa samtínings og mun ekki valda von- brigðum. Byrjað er á ritgerð þeirri sem Klemens Jónsson birti í Blöndu 1922 og þótti þá ágætur skemmti- lestur. Hún er um einkennilegt fólk í Reykjavík og sumt af því var hlægilegt fremur en brjóstumkenn- anlegt. Fátt er hér af efni sem ekki hefur komið á prent áður. Þó eru tveir þættir eftir Valgeir Sigurðsson og einn eftir Ágúst Vigfússon og enn er einn eftir Þuríði frá Bæ. Svo er þáttur sem Gils Guðmundsson hefur tekið saman um Gísla biskup Magn- ússon á Hólum og þrautseiga baráttu hans fyrir Hólastað. Þannig verður þessi útgáfa árlegur vettvangur fyrir fróðlega þætti um menn og þætti úr þjóðarsögu sem vert er að muna. En þó að margt af efni þessa bindis hafi áður komið á prent er það flest í fárra manna höndum. Jólablað Alþýðublaðsins 1937 mun t.d. ekki liggja á lausu fyrir flestum. Árbók Landsbókasafnsins 1979 mun Gils Guðmundsson. heldur ekki á hverjum bæ. Og svo mætti lengi telja. Bókin er kynnt með fullum sanni þegar sagt er: fslenskur fróðleikur gamall og nýr. H.Kr.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.