Tíminn - 10.12.1986, Page 13

Tíminn - 10.12.1986, Page 13
Miðvikudagur 10. desember 1986 BÓKMENNTIR iill!!! Gagnlegar heimildir, en ekki margt nýstárlegt „og það citt sæmir guði" eins og allir ættu að geta verið á einu máli um. I’á vekur það athygli hér að nokkuð víða í þessum skrifum kemur frarn tilhneiging til bölsýni og lífsleiða hjá l’órbergi. !>etta er þveröfugt við það sem við þekkjum hjá honum síðar og getur vissulega stafað að stórum hluta til af fátækt hans á þessum Þórbergur Þórðarson: Ljóri sálar minnar, úr dagbókum, bréfum og öðrum óprentuðum ritsmiðum frá árunum 1909-1917, Helgi M. Sigurðsson bjó til prentunar, Mái og menn- ing 1986. Á löngum rithöfundarferli sínum var Þórbergur Pórðarson sískrif- andi. Telja má að eiginleg ritstörf hafi hann byrjað 1909, þcgar hann kom til Reykjavíkur 21 árs að aldri og settist í Kennaraskólann. Pórbergur var sérstakur hirðu- maður um ritverk sín, þótt að vísu megi ráða af formála Helga M. Sigurðssonar að efnið, sem hér birtist, hafi í banalegu hans verið kornið ískyggilega nálægt ruslatunn- unni. Þá var vandvirknin Pórbergi líka í blóð borin, og þess vegna má margt af því, sem hann skrifaði á þcssum fyrstu árum, heita fullfrá- gengið til prentunar, þótt hann hafi máski ekki ætlað það allt til langlífis sjálfur. Efnið, scm sett er á prent í þessari bók, er úr ýmsum áttuni. Þarna eru meðal annars brot úr dagbókum Þórbergs, sem hann færði af mikilli elju og stakri samviskuscmi árurn saman. Líka er þarna nokkuð af sendibréfum, m.a. allmörg til Þor- leifs Gunnarssonar, og gefa þau öll töluvert glögga mynd af höfundi sínum á þessum árum. Loks eru þarna nokkrar greinar, sem aldrei hafa verið prentaðar, en komu á sínum tíma í handskrifuðum blöðum sem Ungniennafélag Reykjavíkur gaf út. Má því segja að þar hafi verið um hálfopinbera birt- ingu að ræða. Þá er þarna ýmislegt fleira, svo sem Ijóð og áður óþekkt útgáfa af lífsreglum Þórbergs sem aðdáendur hans þekkja vel. Það verður þó að segjast eins og er að heldur ólíklegt er að harðir Þórbergslesendur muni telja sig finna margt nýstárlegt í þessari bók. Hann er þarna að byrja ritfcril sinn, og hann er þar greinilega strax kominn í það farið sem einkenndi ritstörf hans jafnan síðan. En eigi að síður er alls ekki hægt að neita því að það er býsna margt fróðlegt í þessu nýja safni. Meðal annars kemur háðfuglinn Þórbergur nieð óheftum ærslagangi sínum þarna allvíða vel fram. Má ég sem dæmi grípa upp nokkrar línur úr grein, sem kom 1910 eða 1911 í handskrifuöu blaði UMFR er hét Bragi, en greinin nefnist Ræða spek- ingsins: „Pcgar eg er búinn að stúdera 4. bekkjar-kúrsus cr eg áð hugsa um að sigla til the university cða höjskole ogstúdéra þarh rossalæk n inga r. Síð- an kem eg heim og hugsa eg til að setjast að sem praktiscrandi hrossa- læknir uppi í sveit. Pað vantar alveg þesskonar lækna í sveitirnar, enda hrynur búpeningur bænda niður eins og hráviði og ekkert er að gert. I sveitinni minni dóu í fyrravetur 10 kýr af báshellu, og 16 sauðir full- orðnir könnuðu æðri hcima vegna þess að þeir misstu jórtur, þrír hundar lctu lífið af doðasótt og nágranni minn einn átti Ijómandi fallegt merhryssi og hún dó í sumar ímiðjum cngjaslætti afklususi. Voru þó reynd við hana ýmis meðul, t.a.m. kökukefli ogmargt fleira. En öll urðu þau til ónýtis því að enginn var til staðar sem kunni að beita þeim eftir reglum læknisfræðinnar. “ (bls 32-33.) Hér er ærslabelgurinn Þórbergur í essinu sínu líkt og svo oft síðar. En spekingurinn í honum kemur þarna líka fram, m.a. í litlu broti sem þarna mun konia í fyrsta sinn á prent, er frá 1913 og nefnist Rök- leiðsla: „Annaðhvort vill guð stemma stigu fyrir hinu illa og getur það ekki; eða hann getur það og vill það ckki; cða hvorki getur hann það nc vill það; eða hann bæði getur það og vill. Ef hann vill það og getur það ekki er hann ómáttugur, en það hæfir ckki guði; ef hann getur það og vill það ckki, er hann öfundsjúk- ur, en það er guði ekki sæmandi; ef hann hvorki geturþað né vill það, er hann bxði ómáttugur og öfundsjúk- ur, og þá er hann enginn guð; en ef hann bxði vill það og getur, og það eitt sæmirguði - hvaðan stafar þá alt hið illa og hvers vegna stemmir hann ekki stigu fyrir því?“ (bls. 131.) Hér er að vísu dálítið hart sótt að guði almáttugum, en ætli okkur sé ekki óhætt að treysta því að hann hafi nægilega traustan bókmennta- smekk til að hafa gaman af þessu, árum og þeim stöðugu erfiöleikum sem hann átti í með að hafa í sig og á. En hér vcrður líka að hafa það í liuga að hann var á þessum árum undir mjög sterkum áhrifum frá nýrómantíkinni. Eitt helsta einkenni hennar var einmitt einhvers konar lífsleiði og bölsýni, samfara nánast ofsatrú á ofurmcnniö og séníið. Þá voru ásíin og ástarsorgin stöðugt viðfangsefni nýrómantíkcra á þess- um árum. Þessu hcfur Þórbergur einmitt lýst manna best sjálfur í einu af nieginverkum sínum, íslcnskum aðli. Og talandi um íslenskan aðal, þá fer það ekki á milli mála að megin- gildi þessarar nýju bókar felst í því hve þar er mikið af efni dregið fram sem nota má til þess aö skýra íslenskan aðal. Þarna koma mikið við sögu ýnisir af þeim félögum Tíminn 13 Þórbergs, sem sumarið 1912 lentu í þeim ævintýruni sem seinna urðu einmitt uppistaðan í þeirri bók. Þá er þarna ýmsar. að vísu stuttorðar, frásagnir að finna um Arndísi Jóns- dóttur, sem seinna varð ódauðleg í bókmenntunum sem elskan hans Þórbergs. Margt af þessu efni greinir frá atburðum sem segir frá í Islenskum aðli, en þó með öðru orðalagi en þar. Einnig cru þetta samtímaheim- ildir, skrifaðar áður en blámi endur- minninganna hafði náð að leggjast yfir ævintýri íslensku aðalsmann- anna sumarið 1912. Því má vænta þcss að ýmsum þyki að því vænlcgur fróðleiksauki að fá þarna tækifæri til að bera þetta tvennt saman. En þó eru þarna göt. Stærst er það að þarna er engu orði minnst á hina frægu göngu Þórbergs norðan af Ströndum og suður til Reykjavíkur þetta sumar. Ég fann ekki að á þetta væri cinu sinni minnst í bókinni. Eru ekki til neinar dagbækur, bréf eða aðrar frásagnir hans þar sem minnst er á þetta ferðalag? Það er alltaf dálítið álitamál hversu langt eigi að ganga í því að draga fram einkabréf og önnur nán- ustu prívatmál látinna manna og setja þau á prcnt. Má raunar segja að á si'ðustu árum hafi Þórbergur orðið töluvert fyrir barðinu á slíku, og kannski meir en góðu hófi gegnir. En á móti kemur að hann var tvímælalaust einn allramesti stílsnill- ingur sern þjóðin hefur eignast á þessari öld. Allt það, seni viðkemur slíkum mönnum, hlýtur að vekja forvitni, sem þó má ckki leiðast út í ógcðuga hnýsni um einkamál. Og hér má segja að fróðleikurinn um baksvið lslensks aðals, sem þessi bók gefur, hafi veriö næg réttlæting þess að setja þetta efni á prent. Um frágang bókarinnar kann ég ekki nema gott eitt að segja. Hún er prýdd mörgum myndum, sem falla vel að efni hennar, og vinna Helga M. Sigurðssonar viö frágang tcxtans er ekki annað að sjá en að sc samviskusamlega af hendi leyst í alla staði. -esig LESENDUR SKRIFA Hér er mynd af tveggja mánaða gömlu fóstri. Engum getur blandast hugur um það, að á þessum stutta tíma sem liðinn er frá frjóvgun, hefur fóstrið þegar tekið á sig greinilcg einkenni manns hið ytra, en sama er að segja um alla helstu hluta líkamans hiö innra. Enn eru um sjö mánuöir cftir af dvöl þess í líkama móður og á þeim tíma þroskast öll lífTæri uns barniö verður fullburða og tilbúið til að fæðast. - Svo skyldi búið vera að hverri veröandi móður, að hcnni væri tilhlökkunarefni að ala og annast hcilbrigt barn. Frclsi til fóstureydinga miðar síst af öllu til farsældar, licldur til hins gagnstæda. I*aö cr citt hið vcrsta helstcfnueinkenni að tortíma börnum vitandi vits, hvað svo scm misvitrir og lítt hugsandi stjórnmálamenn leyfa mcð setningu la|ja. Bannað er með lögum að drepa fólk á íslandi. Þessi lög eru þó ekki algild í raun, því drepa má fólk meðan það er ungt og dvelur enn í líkama móður, eða a.m.k. á fyrri hluta þess dvalar- og þroskatíma. Á því aldursskeiði er fólk alger- Nú er ár liðið síðan nýju Fram- leiðsluráðslögin tóku gildi og fer nú að sjást fyrir endann á fyrsta verðlags- árinu. Staðan er hörmuleg og kemur í ljós eins og svo margir óttuðust að Seðlabanki, landbúnaðar- og fjár- málaráðuneyti sem og viðskipta- bankar standa ekki við sinn hlut eins og þeim ber samkvæmt lögum, held- ur velta ábyrgðinni á mjólkursamlög og sláturleyfishafa. Ríkissjóður stendur heldur ekki við verðábyrgð- ina á dilkakjöti og mjólkurvörum sem óseldar eru. Nú ætti Vs hlutar staðgreiðslulán- anna til sláturleyfishafa út á sauð- fjárafurðirnar að vera komin frá ríkissjóði þar sem sláturleyfishafarn- ir eru þegar búnir að greiða 75% af grundvallarverði til bænda nú í lega varnarlaust fyrir þeim utanað- komandi öflum, sem sitja um líf þess. Það er annað fólk, sem hefur líf þess í hendi sér: Mæður, feður og svo vitanlega læknar, sem fram- kvæma eyðingarathöfnina eftir pönt- un og þykjast víst ekki menn að minni. Nálægt tveir menn að mcðaltali eru drepnir á degi hverjum með þessum hætti á sjúkrahúsum landsins. Hlutverk sjúkrahúsanna og starfs- haust. Viðskiptabankar eru búnir að lána 58% af óniðurgreiddu heild- söluverði á kjötinu. Vegna þess að Seðlabankinn stendur ekki við lof- orð um að hlaupa undir bagga með þeim bönkum sem sjá um afurðalán eins og lofað var er hætt var að lána þau beint, vantar viðskiptabankana fé til þess að lána áfram. Heildarvöntun til sláturleyfishafa og mjólkursamlaga frá þessum aðil- um til að þeirra lagaskyldu sé fram- fylgt nálgast nú einn milljarð króna. Ef ekki verður hér breyting á, og þetta verður ekki lagfært verður spurning hvort greitt verður fullt verð fyrir sauðfjárafurðir eða mjólk til bænda í desember. 28. nóvember 1986 Þorsteinn Sveinsson Egilsstöðum liðs þeirra virðist því vera tvíþætt: Annarsvegar það göfuga hlutverk að stuðla að vellíðan og heilbrigði fólks, og vernda líf þess (og eins þótt um örvasa gamalmcnni sé að ræða, sem í raun getur vart lifað). Hinsveg- ar að eyða í hundraðatali lífi upp- rennandi, algerlega heilbrigðs fólks, sem þegar hefur hafið sitt fyrsta þróunarskeið á lífsbrautinni, og á aðeins fleiri eða færri mánuði ófarna að þeim áfanga, að fæðast af mæðrum sínum. Hvernig stendur á þeirri sálar- deyfð bæði yfirvalda og að hluta almennings, að láta þcssa óhæfu, fóstureyðingarnar, óátaldar að mestu? Hvað veldur því, að fóstureyðing- ar eru nú taldar lausn á félagslegum vandamálum? Hví eru félagsleg vandamál ekki leyst (það væri áreiðanlega hægt) og jafnframt komið í veg fyrir fóstur- eyðingar? II. Ég hygg að hér sé það cinkurn viljann sem vantar. Þjóð, sem gerir þcssa tegund manndrápa löglega, er á mikilli hættubraut. Utanaðstreymandi áhrifaöfl munu eiga hér hlut að máli, og koma fram sem slæving hugarfars og dómgreindar lærðra sem leikra. Að mannsmorð í miklum mæli skuli látin hér viðgangast, átölulítið af flestum vitnar um þá mengun hug- arfars, sem þegar er orðin, en sú mengun er allri annarri rnengun háskalegri. Hér þarf að stinga við fótum. Þessari hugarfarsmengun þarf að eyða. Allir þurfa að skilja, að ófædd börn eru menn, og að þau eiga fullan lífsrétt ekki síður en allir þeir seni eldri eru. Almenn virðing fyrir lífsrétti hinna getnu en ófæddu barna, gæti orðið fyrsta skrefið gegn vaxandi óöld , en í átt til öryggis og batnandi mannlífs öllum til handa. Ingvar Agnarsson VERTU I TAKT VIÐ Tímann ÁSKRIFTASÍMI 68 63 00 Staða afurðar og staðgreiðslulána -afuröa og staögreiðslulán fást ekki út á landbúnaðarafurðir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.