Tíminn - 30.12.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn Þriðjudagur 30. desember 1986
Anton Sigþórsson, skipbrotsmaöur af Suðurlandi:
Björgunarvestislaus
í jökulköldum sjónum
Mikil orka fór í vonlausan vatnsaustur úr bátnum
Ráðherra ber saman bækur sínar við nýráðinn framkvæmdastjóra LÍN,
Þorbjörn Guðjónsson. Tímamynd Sverrir
Menntamálaráöherra:
Námslán frá 1982/
’83 ofreiknuð
um 25 milljónir
Fastar afborganir 339 kr. of háar á þessu ári
„Heilsan er furðanlega góð.
Lappirnar dálítið kalnar, en maður
er farinn að geta staulast um. Það
voru kalblöðrur komnar á tærnar,
en þetta á allt saman að lagast,"
sagði Anton Sigþórsson, einn
fimmmenninganna sem björguðust
af Suðurlandinu, í samtali við Tím-
ann í gær.
„Þetta gerðist allt nokkuð
snöggt. Ég var kominn í koju
þegar ég finn skipið halla á bak-
borðssíðuna. Þá dreif ég mig í létt
föt og inniskó og hljóp upp í brú.
Þá er þetta bara farið að gerast og
atburðarásin eftir það hröð,“ sagði
Anton, þegar hann var inntur eftir
aðdraganda slyssins.
Hallinn á skipinu var þá orðinn
yfir 45 gráður og við fórum út á
næsta dekk fyrir neðan brúna. Þar
útbýtti 2. stýrimaður björgunar-
vestunum sem allir fóru í. Þá var
gúmmíbáturinn blásinn upp, en
hann rak til hlés við skipið. Menn
voru að bíða eftir að hann kæmi að
þegar skipið dettur bara yfir og
allur mannskapurinn fer í sjóinn.
Það gerðist alveg eldsnöggt.
Mjög góð afkoma varð hjá Hrað-
frystihúsi Hofsóss hf. á síðasta ári.
Hagnaður af rekstri félagsins nam
rúmum 6 milljónum króna og var
það þriðja árið í röð sem fyrirtækið
er rekið með hagnaði.
Á aðalfundi Hraðfrystihússins
sem haldinn var fyrir skömmu var
samþykkt að greiða hluthöfum eina
milljón króna í arð.
Hraðfrystihúsið tók á síðasta ári á
móti um 3000 tonnum af fiski og var
framleiðsluverðmæti þess afla tæpar
100 milljónir króna.
í desember á síðasta ári var ein
milljón króna greidd starfsfólki
frystihússins sem launauppbót á árið
1985.
Þessi góða afkoma hjá frystihús-
inu er mjög athyglisverð, ekki síst
fyrir það að árið 1985 var mörgum
frystihúsum mjög erfitt fjárhagslega.
Mikinn þátt í þessari góðu afkomu
taldi Gísli Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri vera góða eiginfjár-
stöðu fyrirtækisins, sem væri með
lítið af erfiðum lánum og hefði auk
þess ágætu starfsfólki á að skipa.
Hinsvegar er ljóst að afkoma
frystihússins verður mun lakari á
yfirstandandi ári, enda um 1000
Þegar ég kem í sjóinn þá hefur
tæst af mér björgunarvestið. Ég sá
einhverja ljóstýru á sjónum dálítið
langt frá mér svo það var ekkert
annað að gera en synda þangað.
Það var náttúrlega björgunarbátur-
inn.
Við reyndum að ausa bátinn en
eftir allt of mikið erfiði þá kom-
umst við að því að það var gat á
botninum, það lækkaði aldrei í
honum.
Það þýddi ekkert annað en að
standa uppréttur. Manni var í
fyrstu kalt á löppunum. en cftir
það var maður bara dofinn. Maður
var alltaf í sjó upp á mið læri og
upp í klof, jafnvel ofar þegar sjór
gekk yfir bátinn. Það var nafnakall
mcð stuttu millibili og menn
reyndu að hughreysta hver annan."
- Hvenær urðu þið varir við
leitarvélar?
„Við heyrðum fyrst í Nimrodin-
um um klukkan 4 og urðum þá
náttúrlega bjartsýnir því við héld-
um að þetta myndi fara að ganga
svona fljótlega. Þá skýtur l.stýri-
maður upp rakettu og þegar Nim-
tonnum minna af fiski sem þar var
unnið í ár en árið 1985.
Allt frá árinu 1976 hafa staðið yfir
miklar breytingar og endurbætur á
húsakynnum og tækjabúnaði frysti-
hússins á Hofsósi, meðal annars
voru 9 milljónir notaðar til fram-
kvæmda á síðasta ári. Er nú svo
komið að húsið er vel útbúið til að
taka á móti miklu hráefni, komnar
eru tvær vinnslurásir óháðar hvor
annarri, t.d. er nú hægt að vinna
samtímis fyrir Bandaríkjamarkað og
Evrópumarkað.
Hraðfrystihúsið er stærsti vinnu-
veitandi á Hofsósi, að jafnaði vinna
þar 50-60 manns, en nú er svo komið
að þar gætu unnið mun fleiri. Á
þessu ári hefur hinsvegar skort hrá-
efni. Kemur það til af bilunum á
togurum útgerðarfélags Skagfirð-
inga og sérlega óstilltu tíðarfari í
haust, sem hefur tafið togarana veru-
lega frá veiðum.
Hluthafar í Hraðfrystihúsinu á
Hofsósi eru um 100. Þeir stærstu eru
Hof, Fells og Hofsóshreppar. Tals-
vert af fólki úr nærliggjandi sveitum
sækir vinnu til Hofsóss og hefur gert
um árabil. Stafar það nokkuð af
samdrætti í hefðbundnum búskap,
sem hefur orðið undanfarin ár. -ÖÞ
rodinn kemur til baka þá kveikti
hann á blysinu. Þá henda þeir
niður grænu merki og þá vitum við
að við erum fundnir. Þeir voru
alltaf að fljúga yfir okkur, nema á
milli klukkan 8 og 10 heyrðum við
ekki í neinni vél. Þá kom Nimrod-
inn sem henti niður nýjum björg-
unarbát. Okkur fannst í fyrstu
hann helst til langt frá okkur, en
þeir hentu honum þannig að okkur
rak að honum, auk þess sem við
rérum að honum. Við náðum þó
bátnum og vorum að vonum mjög
fegnir að komast í þurran bát.“
Það var síðan um klukkan eitt að
þyrla frá danska varðskipinu
Vædderen bjargaði skipsbrots-
mönnunum úr bátnum.
„Ég vil sérstaklega þakka þess-
um dönsku mönnum í Væddcren.
Þeir tóku okkur alveg eins og
kóngum. Það var allt gert fyrir
okkur, sama hvað það var. Þá vil
ég þakka öllum þeim sem áttu hlut
að máli í að koma okkur í land,"
sagði Anton að lokum.
Eldur laus í
barnaherbergi
Siökkviliðið í Reykjavík var
kallað út vegna elds í fbúð að
Vesturbergi 99, um klukkan
23.00 sl. laugardagskvöld. Hafði
kviknað í gluggatjöldum í barna-
herbergi, út frá logandi kerti og
höfðu gluggatjöldin síðan fallið
ofan í rúm og kviknað í rúmdýn-
unni.
Sendi slökkviliðið tvo reykkaf-
ara inn í íbúðina sem réðu niður-
lögum cldsins á skömmum tíma.
Var lítilsháttar reykur t íbúðinni,
cn allir íbúar höfðu komið sér út
úr íbúðinni áður cn slökkviliðið
kom á staðinn. Enginn slys urðu
á fólki.
Um 25 milljónir króna, miðað við
vísitölu nú í desember, er sú upphæð
að mati Lánasjóðs ísl, námsmanna
sem lán sjóðsins hafa verið ofreikn-
uð vegna þess að tilskipun ríkis-
stjórnarinnar frá í september 1983 -
um að reikna þá með 5,1% hækkun
lánskjaravísitölu í stað 8,1% hækk-
un hefur ekki verið hlítt. Mjög lítið
hefur verið greitt af þessum lánum,
þannig að bcinar endurgreiðslur nú
yrðu lítil upphæð, en fyrst og fremst
er um að ræða að uppfærður 874
milljóna króna höfuðstóll þessara
lána ætti að vera um 25 millj. kr.
lægri.
Þess má geta að þessar 25 millj.
króna eru innan við þriðjungur
þeirrar upphæðar sem fyrrverandi
framkvæmdastjóri LÍN hefur látið
fjölmiðla hafa eftir sér að um væri að
ræða, bannig að cnn virðast menn
reikna þetta vísitöludæmi út frá
mismunandi forsendum, ekki síður
en húsnæðismálalánadæminu.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
3% vísitölulækkun náði til lána verð-
tryggðra með lánskjaravísitölu, sem
aðeins hafði verið notuð á námslán
skólaárið 1982/83, þegar ákvörðunin
var tekin. Heildarlánin sem veitt
voru það skólaár námu um 298 millj.
að nafnverði til 4.256 námsmanna.
Uppfærður höfuðstóll þeirra í sept-
ember 1983 var um 457 millj. kr., en
hefði þá átt að vera um 444 millj. kr.
miðað við 3% vísitölulækkun. Mun-
urinn var tæpar 13 millj., sem fram-
reiknað til desember 1986 væri um
25,1 millj. króna sem fyrr segir.
Fyrstu greiðslur af þessum lánum
- þ.e. hjá þeim sem luku námi vorið
1983 - hófust í mars nú á þessu ári.
Föst afborgun var þá 12.124 kr. en
hefði verið 339 kr. lægri ef 3%
lækkunin frá september 1983 hefði
verið látin hafa áhrif. September-
greiðslurnar af þessum lánum miðast
hins vegar við laun greiðenda, þann-
ig að umrædd 3% hefði ekki haft
áhrif á þær.
Um það hvort þessar 339 krónur
sem ofteknar voru af lánunum í
mars s.l. verða endurgreiddar eða
dregnar frá höfuðstól lánanna vildi
Sverrir Hermannsson, menntamála-
ráðherra og talsmenn LÍN ekkert
fullyrða á fundi með fréttamönnum
í gær - né heldur með hvaða hætti
3% vísitölulækkunin verður
framkvæmd. Hins vegar kvaðst ráð-
herra ákveðinn að komast til botns í
þessu máli og sjá til þess að lántak-
endur LÍN yrðu ekki látnir bera
skaða af því þótt dráttur hafi orðið
á framkvæmd tilskipunarinnar frá
1983.
Ekki kvaðst ráðherra kunna að
gefa neinar skýringar á þessum 3ja
ára drætti. Fram kom að ráðuneytið
hafði sent LÍN fyrirmæli um þessa
3% lækkun á sínum tíma - LÍN
síðan óskað nánari skýringa í bréfi
til ráðuneytisins nokkru síðar og að
þar með virtist málið hafa sofnað þar
til nú. HEI
Fjölda fólks dreif að þegar barist var við eldinn í Vesturbergi. Tímamynd: Svenír
Hraöfrystihús Hofsóss hf.:
Rekstrarhagnaður
þriðja árið í röð
Urvalið aldrei
fjölbreyttara
Ananaustum Grandagarði
Símar 28855 og 13605