Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 16

Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 16
46 Tíminn Þriöjudagur 30. desember 1986 IIIIIIIHII.Ipróttaannall .......IIIHIIIIIIHI.Illllllllllll.. ÍÞRÓTTAANNÁLL JANÚAR Einar Vilhjálmsson var kjör- inn íþróttamaður ársins og hlaut hann fullt hús stiga hjá Samtökum íþróttafrcttamanna sem gengust fyr- ir kjörinu. Þetta er í annað sinn sem Einar cr kjörinn íþróttamaður ársins, árið 1983 hlaut hann einnig fullt hús stiga. Einar keppti á 22 alþjóöamótum íspjótkasti árið 1985, var á vcrölaunapalli í 20 þeirra og sigraði í 12. Hann átti 8. besta heimsárangurinn í spjótkasti. Víkingar tryggðu sér íslands- mcistaratitilinn í handknattlcik, enduðu mótiö mcð stæl, unnu KR 34-24 í síðasta leik. Valsmenn urðu í 2. sæti. ísland hafnaði í 4. sæti í Baltic keppninni í handknattleik, sigruðu A og B lið Dana en töpuðu fyrir Austur-Þjóðverjum sem sigr- uðu, Sovétmönnum og Pólverjum. Leif Mikkelsen landsliðsþjálfari Dana sagðist eftir leikinn ekki hafa munað eftir að Þorbergur Aðal- steinsson væri til og þar væri komin skýringin á tapinu því gleymst heföi að hafa gæturá honum! Skarp- ur strákur, Tobbi hefur ekki leikið nenta 130 htndsleiki og marga gegn Dönum. Eðvarð Þór Eðvarðs- son varð í 3. sæti í 100 og 200 m baksundum á Gullbikarkeppninni í sundi í Frakklandi og sannaöi enn að hann er fremsti baksundsmaður Norðurlanda og í heimsklassa. Tím- ar hans voru mun betri en á sama tíma árið áður. Sigurður Jóns- SOn var lánaður frá Sheffield Wednesday til Barnsley í einn mán- uðaðminnsta kosti. Fimleikafélagið Björk sigraði í A-flokki kvenna á bikarmeistaramóti íslands í fimleik- um og Ármenningar urðu hlutskarp- astir í A-flokki karla. Gunnlaugur Grettisson bætti 25 ára gamalt Islandsmet í þrístökki án atrennu. stökk 10.17 m á íslandsmótinu í atrennulausum stökkum. ÍK, Vík- ingur, HSÞ-b og ÍR fluttu sig um set upp í 1. deild í innanhússknatt- spyrnu eftir gott gcngi á íslandsmót- inu og Njarðvík, Stjarnan, ÍBV og Einherji fóru upp í 2. deild. Framar- ar urðu Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu í karlaflokki en Valur í kvennaflokki. Körfuknattleikssamband íslands varð 25 ára í mánuðinum, þann 29. nánar til tekið. Mark Huges ákvað að keppa með Barcelona í knattspyrnu og fékk Manchester United stjarnfræði- lega upphæðfyrirhann. Hcimsmetin féllu í stríðum straumum á innan- hússmóti bandarískra í frjálsum og Billy Olson bætti heimsmetið í stöng skömmu síðar um einn sentimetra, 5.89. Tennisleikarinn skapstóri John McEnroe ákvað að taka sér frí til að hressa upp á sálina. FEBRÚAR íslendingar sigruðu á Flugleiða- mótinu í handknattleik, unnu Pól- verja 22-19 í úrslitaleik. Frakkar urðu í 3. sæti og Bandaríkjamenn ráku lestina. Sigurður Jónsson lék með Barnsley og gekk vel. Bjarni Friðriksson sigraði á Afmælismóti JSÍ. Preben ElkjærLarsen varvalinn íbróttamaður Norðurlanda 1985. Ámundi Sigmundsson ákvað að ganga til liðs við Valsmenn í knatt- spyrnunm en liann lék með Víking- um í fyrrasumar. Einar Ólafsson stóð sig vel á sænska mcistaramótinu í skíðagöngu. Ásgeir Sigurvinsson átti góða leiki rneð Stuttgart. Fimm heimsmet voru sett í frjálsum íþrótt- um innanhúss. Ingibjörg Arnardóttir sctti telpnamet í 400 m skriðsundi, 4:39,80 mín. A-lið TBR vann 1. deildina í badminton. Kuwait var vikið úr Alþjóða knattspyrnusam- bandinu í 15 daga þar sem þeir svikust um að halda aðalfund. Ju- ventus féll úr ítölsku bikarkeppninni strax í 2. umferð, tapaði fyrirComo. íslenska landsliðið í handknattleik vann Norðmenn tvisvar í Laugar- dalshöll. ÞorgilsÓttar spilaði mcð spelkur og sagðist vanta sncrpu með þær. Hnémeiðsli höfðu hrjáð hann um skcið. íslendingar drógust í riðil mcð Frökkum, Sovétmönnum, Norðmönnum og Austur-Þjóðverj- um í undankeppni Evrópukeppninar í knattspyrnu. Sigfried Held var ráðinn landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu næstu tvö árin að minnsta kosti. Um 20 umsóknir bárust um starfið. Fjögur íslandsmet voru sett á NM innanhúss í frjálsum íþróttum. Þórdís Jónsdóttir frá ísafirði varð Noregsmcistari í alpatvíkeppni á skíðum og Marita Koch bætti heimsmetiö í 200 m innanhúss. Bogdan Kowalczyk landsliðs- þjálfari í handknattlcik fékk gull- merki ÍSÍ fyrir störf að handknatt- leiksmálum. Sigurður Pétursson golfmaður var kosinn íþróttamaður Reykjavíkur 1985. Höskuldur Höskuldsson setti íslandsmet í keilu, fékk 257 stig í einum leik. Hæst er hægt að ná 300. Haukar og Njarðvíkingar tryggðu sérsæti í úrslitaleik bikarkcppninnar í körfu. Sergei Bubka setti 7. heimsmetið í stöng síðan í desemb- er, 5,94 m. KR-ingar urðu íslands- meistarar í innanhússknattspyrnu en Blikastúlkur unnu kvennaflokkinn. Framarar uröu íslandsmeistarar í I. deild kvenna í handknattleik, tryggöu sér titilinn þó tvær umferðir væru cftir. Ólafur H. Ólafsson KR-ingur varð sigurvegari í Bikar- glímu lslands. íslendingar steinlágu fyrir Kór- eumönnum í fyrsta leiknum á HM í handknattleik. Þorgils Óttar sem nú hafði fengiö viðurnefnið Snældublesi cftir hestinum sem fór í gips lék ekki nteð. Furöuleg ákvörðun. Liðið bætti um bctur og sigraði Tékka í næsta leik. MARS íslendingar unnu Rúmena á HM, 25-23 með stórgóðum leik, Einar Þorvarðarson varði víti á úrslita- stundu og Bogdan brosti! Þeir töp- uðu síðan fyrir Ungverjum, 20-21. Kristján Arason átti enn einn stórleikinn á mótinu.Danirnir fengu stóran skell, 25-16. Einar fór á kostum og varði tvö víti og Atli var frábær. Rúmenski markmaðurinn var dæmdur ólöglegur vegna lyfjaáts og dæmdust Svíar hafa unnið leik sinn gegn þeirn 10-0. Það bitnaði á fslendingum sem þarmeð þurftu að sigra Svía með 7 marka mun til að leika um bronsið. Þeir töpuðu leikn- um 23-27 og áttu aldrei glætu. Þar með var ljóst að leikurinn um 5. sætið yrði íslendinga og það gegn Spanjólum. Sá lcikur tapaðist að fslandsmótinu í kraftlyftingum. Islenska landsliðið í sundi vann yfirburðasigur á Kalottmótinu í Finnlandi og setti 13 ný íslandsmet. Broddi Kristjánsson varð stærsti sigurvegarinn á íslandsmót- inu íbadminton, vann þrefalt. Elísa- bet Þórðardóttir vann tvöfalt. Fram varð bikarmeistari í kvenna- flokki í handknattleik. Barcelona, Real Madrid og Atlet- ico Madrid, spænsku stórliðin þrjú komust öll í úrslit á Evrópumótun- um í knattspyrnu. Piltalandsliðið í handknattleik tapaði illa fvrir Svíum á Norður- landamótinu. íris Grönfeldt setti fslandsmet í spjótkasti á móti í Florida, kastaði 59,12 m. Einar Vilhjálmsson kastaði nýja spjótinu 78,60 m og Sigurður Einarsson bætti sinn árangur í 79,24 m. Þá kastaði Vésteinn Hafsteinson kringlunni 61,78 m. Sigrún Bjarna- dóttir varð þrefaldur fslandsmeistari í borðtcnnis og Tómas Guðjónsson tvöfaldur. Einar Vilhjálmsson var kjörinn íþróttamaður ársins 1985. Það var faðir hans, Vilhjálmur Einarsson sem afhenti honum verðlaunagripinn. Vilhjálmur hefur sjálfur hlotið þessa viðurkenningu 5 sinnum. Handknattleikslandsliðið varð í 6. sæti á Heimsmeistaramótinu. Kristján Arason skoraði grimmt og lék mjög vel. Körfuknattleikslandsliðið sigraði í C-heimsmeistarakeppninni í körfu sem haldin var hér á landi. Landsliðsþjálfararnir Gunnar Þorvarðarson og Einar Bollason voru að vonum kátir að leikslokum. vísu 22-24 en engu að síður frábær árangur og Ólympíusæti í höfn. Austur-Þjóöverjar uröu í 3. sæti og Svíar í 4. Sovétmenn urðu í 10. sæti og Danir í 8. það voru svo Júggarnir sem urðu meistarar en Ungverjar fengu silfrið töpuðu 22-24. Bubka bætti heimsmetið í stöng rétt eina ferðina, nú 5,95 m og Ásgeir Sigurvinsson skoraði fallegt mark fyrir Stuttgart cn þeir töpuðu samt. Ragnheiður Runólfsdótt- ir setti íslandsmet í 200 m bringu- sundi í Kanada, 2:43.55 mín. og í 200 m fjórsundi fauk metið líka, 2:27,93 mín. Njarðvíkingar urðu íslandsmcistarar í körfuknattleik, unnu Hauka í tveimur úrslitaleikj- um. Dæmið snérist við í bikarnum, Haukar unnu Njarðvík 93-92 eftir æsispennandi leik. KR varð bikar- meistari kvcnna, sigruðu ÍS í úrslita- lcik. íslenska knattspyrnulandsliðið tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Sigfried Held, 1-2 gegn Bahrein. Liðin léku aftur og þá vanh ísland 2- l.Bogdan var ráðinn aftur, fram yfir .ÓL '88. Atli Hilmarsson sleit hásin .og verður frá í 3 mánuði. Þróttarar urðu íslands- og bikarineistarar í blaki, unnu ÍS í úrslitaleikjunum. ÍS varð bikarmeistari kvenna í blaki. Kristján Arason gerði samning við Gummersbach en Juventus féll úr Evrópukeppninni í knattspyrnu, tapaði fyrir Barcelona. Lárus Guð- mundsson skoraði fyrir Uerdingen. Sigurður Einarsson kastaði nýja spjótinu 75,88 m í Alabama og náði lágmarkinu á háskólameistaramót- ið. Fimmtán ný íslandsmet voru sett á innanhússmeistaramótinu í sundi sem fram fór í Vestmannaeyjum. Davíð Ingason og Hanna Lóa Frið- jónsdóttir urðu íslandsmeistarar í fimleikum. Real Madrid varð spænskur meist- ari í knattspyrnu fjórum umferðunr áður en mótinu lauk. Hearts settu mct í skosku knattspyrnunni, töp- uðu ekki 22 leikjum í röð. Jónína Olsen og Árni Eínars- son urðu íslandsmeistarar í kata á íslandsmeistaramótinu í karate. Kristín Einarsdóttir vann kumite kvenna og Atli Erlendsson vann opna flokkinn. Pétur Guðmundsson gerði samning við Los Angeles Lakers í bandarísku NBA deildinni í körfu- knattleik. APRÍL íslendingar unnu tvo fyrstu leiki sína á C-riðli Evróþumeistaramóts- ins í körfuknattleik en voru rass- skelltir í þeim þriðja. Fjórða leikn- um sem var á móti Norðmönnum lauk með sögulcgri þriggja stiga körfu Pálmars Sigurðssonar á síð- ustu sekúndunni. hún tryggði íslend- ingum sigur í leiknum og C-riðlin- um. Einar Ólafsson varð fjórfaldur meistari í göngu á skíðalandsmót- inu. Daníel Hilmarsson og Tinna Traustadóttir stóðu uppúr í alpa- greinunum. Pétur Guðmundsson lék með Lakcrs. skoraöi að vísu ckki mikið, en gerði ekki mistök. Liverp- ool og Everton voru santhliða á toppi 1. deildar ensku knattspyrn- unnar og börðust af hörku. íslenska landsliðið í badminton sigraði í 3. deild Evrópukeppninnar en tapaði fyrir írum sem urðu neðstir í 2. deild. Þeir halda því sæti sínu. Herbert Arnarson og Jón Arnar Ingvarsson voru valdir leikmenn Norðurlandamóts unglinga í körfu- knattleik, Scania-Cup. Haukar og ÍR náðu góðum árangri á mótinu. Kári Elísson vann bestu afrekin á Bayern Miinchen varð þýskur meistari í knattspyrnu, Juventus ít- alskur og Paris SG franskur. Andrésar Andarleikarnir á skíð- um heppnuðust vel og voru kepp- endur yfir 400 talsins á aldrinum 8-12 ára. MAÍ Víkingar unnu Stjörnuna í úr- slitaieik bikarkeppni HSÍ og unnu þarmeð tvöfalt. Dynamo Kiev rúst- aði Atletico Madrid í úrslitaleiknum í Evrópukcppni bikarhafa í knatt- spyrnu og vann 3-0. Stcaua Búkarest varð Evrópumeistari meistaraliða, vann Barcelona eftir vítaspyrnu- keppni. Markvörður Steaua varði fjórar spyrnur og varð hetja liðsins. Liverpool tryggði sér cnska mcist- aratitilinn í knattspyrnu en Celtic stal skoska titlinum á elleftu stundu. þeir þurftu að vinna 3-0 og Hearts að tapa og viti menn. það gerðist. Arnór Guðjohnscn og félagar í Anderlecht urðu belgískir meistarar í knattspyrnu. Ásta Urbancic varð önnur á bandaríska háskólamótinu í borð- tcnnis. Framarar urðu Reykjavík- urmeistarar í knattspyrnu, unnu KR 3-1 í framlengdum úrslitaleik. Vals- stúlkursigruðu KR 1-0 í úrslitaleikn- um í kvennaflokknum. Framarar unnu líka meistarakcppni KSI og þar voru það Valsmenn sem lágu. 2-1. Liverpool varð enskur bikar- meistari og sagðist Kcnny Dalglish sem var framkvæmdastjóri í fyrsta skipti vera í draumi. Liðið vann tvöfalt. PSV Eindhoven varð hollenskur meistari í knattspyrnu. Svíar urðu Norðurlandameistarar í blaki cn niótið fór fram hér á landi. íslendingar urðu í 5. sæti. Kristján Arason skoraði 13 mörk í þýska handboltanum og sagði eftir leikinn að þetta væri einn af þessum dögum sem allt gengi upp.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.