Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 15

Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 30. desember 1986 Tíminn 15 Átak til Skjóls Það fer ekki framhjá mörgum að um þessar mundir stendur yfir fjár- söfnunin Atak til Skjóls. Verið er að safna fé til að ljúka byggingu umönnunar og hjúkrunar- heimilis fyrir aldraða á Laugarási í Reykjavík. Eggert Ásgeirsson sent er í fram- kvæmdanefnd átaksins hafði þetta að segja Tímanum. Stofnendur Skjóls eru stórir aðilar í íslcnsku samfélagi, einkunt þeir sem sérstaklega hafa í starfi sínu kynnst hversu alvarleg vistunarþörf- in er fyrir aldraða nú. Ekki aðeins um þessar ntundir heldur er fyrirsjá- anlegt að hún muni aukast mjög í framtíðinni þar sem öldruðum fer mjög fjölgandi. Breytingar á atvinnuháttum gera það að verkum að erfiðara er nú en áður að annast hina öldruðu í heimahúsum, þótt að sjálfsögðu hljóti að vera markmiðið að þeir dveljist þar sem lengst. Til þess að svo megi verða þarf að sjálfsögðu að veita heimilunum margvíslega hjálp. Hún þarf ekki alltaf að vera mikil en þýðingarmikið er að við höfum það á tilfinningunni að við verðunt ekki skilin eftir með óleysanlegan vanda þegar harðnar. Hækkaður meðalaldur íslendinga hefur það í för með sér að fólk heldur lengur heilsu en áður þannig að oft fer ekki að halla undan fyrr en fólk er komið á mjög háan aldur og eru þá börnin komin á háan aldur einnig, þeim fækkað og heilsa þeirra ekki þannig að leggja á þau að annast hina öldruðu. Margir þekkja hin verstu dæmi úr sínum fjölskyld- um. T.d. þar sem tvær kynslóðir aldraðra eru mikillar hjálpar þurfi. Það er staðreynd í umönnunar- málum aldraðra að fólk hefur vegna forsjálni getað búið vel í haginn fyrir sig, tryggt sér pláss á elliheimili og þannig komist framúr þeim sem lengur hafa reynt að þrauka heima. Þegar svo sjúkdómar valda skyndi- legum breytingum á högum þeirra vakna fjölskyldurnar upp við þá óþægilegu staðreynd að hvergi er rými fyrir hinn aldraða. Við hugsum um vandamálið eins og það væri eitthvað sem gæti komið fyrir aðra, vandinn sé langt undan. Raunveruleikinn er samt sá að bæði getum við orðið illa úti sjálf og einnig þurft að leysa vanda okkar nánustu. Þetta er vandi okkar allra. Við getum ekki ætlast til að aðrir leysi mál sem við látum eins og ekki komi okkur við. Hvað getum við gert? Við getum lagt okkar skerf fram með því að leggja fram fé, nreð því að sýna áhuga okkar á þessu máli og með þvf að leggja okkur fram um að leysa vandamál okkar sjálfra og annarra. Til að reyna að bæta úr vistunar- málum aldraðra sjúklinga bar Félag lífeyrisþega ríkis og bæja upp tillögu í öldrunarráði íslands þar um bygg- ingu hjúkrunarheimilis. Varð það úr að ásamt félaginu tóku ASÍ, Reykjavíkurborg, Sjómannadags- ráð, Þjóðkirkjan og Stéttarsamband bænda höndum saman um stofnun Sameignarfélagsins Skjóls og eru nú að reisa hjúkrunarheimili fyrir allt að 111 sjúklinga á Laugarási í Reykjavík. Byggingin gengur furðuvel og hef- ur tekist bærilega við öflun fram- kvæmdafjár. Þó er enn nokkuð langt í land. Nokkrir einstaklingar sáu að þörf var á átaki til að byggingin tefðist ekki og hafa nú gengist fyrir fjársöfnunni Átaki til Skjóls nú í árslokin. Hefur verið sent bréf á öll heimili í landinu ásamt gíróseðlum þar sem fólk er beðið að láta eitthvað af hendi rakna til þessa stóra bygg- ingarátaks. 111 pláss eru ekki nægileg en vonast er til að áfram verði haldið og fleiri slík heimili reist. Reksturþessa heimilis á að verða mjög hagkvæm- ur. Tókst samkomulag við Hrafnistu um að nota lóð sem hún hafði yfir að ráða við hliðina á þeirra dvalar- heimili á Laugarási og að þvottahús og eldhús þess verði samnýtt væntan- lega til hagræðingarfyrirbáða. Síðar er stefnt að fleiri sameiginlegum þáttum sem hugsanlega geta haft góð áhrif á rekstur þeirra beggja. Við sem erum í forystu fyrir þessu átaki leggjum áherslu á að þarfir skuli ráða hverjir komist inn á Skjól. Þannig séu allir jafnir hvaðan sem þeir eru af landinu. Að vísu er þörfin mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem hcr búa svo margir og hér hafa safnast margir öldungar af öllu land- inu. Til að tryggja samband aðstand- enda sem fjarri búa við skyldmenni á heimilinu er gert ráð fyrir skamm- tíma gistirými sem hægt er að fá þegar menn vilja dveljast nærri þeini. Þá verður hér veitt sérhæfð hjálp sem ekki hefur verið hægt að veita úti um landið. Viðbrögð hafa verið góð til þessa. Að vísu eru bréf ekki enn komin til allra, en allt bendir til að þessu átaki verði vel tckið. Það sent inn kemur verður notað þegar í stað til að kaupa innréttingar og hreinlætis- tæki. Ekki aðeins hafa borist peninga- gjafir. Nokkrir hafa heitið stuðningi MINNING 111! Ilillll 111 Ragnhildur Runólfsdóttir Fædd 27. október 1889 Dáin 5. desember 198A Nú er hún amma mín horfin sjónum okkar. Hún var einstök kona og til hennar mun verða hugsað með hlýju og þakklæti. Ég var svo lánsöm að fá að lifa mín bernskuár með henni en hún og afi dvöldu á heintili foreldra minna þar til ég var um fermingu. Hann var svo orð- heppinn að um var talað og snyrti- mcnni hið mesta og allt varð að vera svo hundrað prósent hjá honum að jaðraði við smámunasemi. Ég bar ákaflega mikla virðingu fyrir afa. Hún var alltaf svo hlý og mild og skapgóð, og var ávallt tilbúin að gefa af mildi sinni. Það er ómetanlegt fyrir barn að vera meðal slíks fólks, sem margt hefur lært í lífinu og hefur þroska og vilja til að miðla af reynslu sinni án alls yfirlætis. Það lýsir ömmu minni vel það svar sem ég fékk í þau fjölntörgu skipti, sem ég tók um hálsinn á henni og sagði af minni innstu sannfæringu: „Amma mín, þú ert best í heimi'". Þá sagði hún alltaf: „Þetta máttu aldrei segja elsku barn, auðvitað er mamma alltaf best.“ Ég fann að andmæli áttu ekki við, þarna hefur henni fundist hún vera í því sæti sem hún átti ekki rétt á. Hún vissi líka hvað var að vera móðurlaus því hún missti móð- ur sína sjö ára gömul. Þá var hún ein átta systkina og heimilinu var tvístr- að eins og svo oft á þeim tímum ef annað foreldrið féll frá. Hún fór á bæ með systur sinni sem hét Guð- laug. Hún var aðeins eldri og hennar besta vinkona. Guðlaug dó um tveimur árum seinna. Þetta var mik- ill missir fyrir ömmu ntína og talaði hún ennþá um þessa atburði með söknuði undir það síðasta. frá Hólmi Amma mín ætlaði aldrei að giftast en þegar hún kynntist afa breyttist það áform hennar. Hún sagði sjálf: „Hann var vandaður maður til orðs og æðis.“ Og hún vildi að hann yrði faðir barnanna sinna. Þau hófu bú- skap í Vestamannaeyjum og þar eignuðust þau sína fyrstu syni. í Vestmannaeyjum lcið henni vel en afi þráði sveitina sína og var það henni mikil fórn þegar hún lét það eftir honum, að fíytjast að Hólmi í hlóðareldhús og allsleysi, en alltaf varð eitthvað til bjargar aðsteðjandi vandamálum og oft talaði hún um „blessunina hana Arnýju sína“ sem var nágrannakona hennar og besta vinkona og virtist alltaf koma þcgar ömntu lá á, í það minnsta talaði hún þannig. Þarna í Hólmi bjuggu þau allan sinn búskap og cignuðust alls sex börn, fimm drengi og eina stúlku, sem öll eru á lífi nema eitt, en það var faðir minn sem lést af slysförum þegar ég var unglingur. Amma mín var mjög trúuð kona og oft scttist hún á rúmstokkinn hjá okkur á kvöldin og fór nteð kvöld- bænirnar með okkur. Það var gott fyrir litla barnssál að róast fyrir svefninn við þýðan róm og bænir, sem fluttar voru af látleysi. Mér finnst ég rík að hafa átt hana fyrir ömmu og kynnst henni og hennar | góða innræti. Hún var alltaf gefand- inn og hennar mesta gleði var að gleðja aðra og gera öðrum gott. Það streymdi svo mikil hlýja og góðvild frá henni að það var eins og maður fylltist friði af návist hennar. Það var mannbætandi að kynnast hcnni og mörg gullkorn lagði hún á minn lífsveg. Um sextugt gekkst hún undir aðgerð á mjöðmum sem mistókst og gekk hún síðan við tvær hækjur lengi vel og síðar við hækju og staf. Þctta háði hcnni mjög mikið og olli henni miklum þjáningum en breytti ekki skapgerð hennar og aldrei örlaði á biturð. Hún saumaði mikið og marg- an íslenskan búning gerði hún en mest saumaði hún á litla drcngi og gerði það þar til hún var níræð. Hún dvaldi hjá dóttur sinni á Húsavík í um átján ár cftir að afi lést, og þar leiö henni vel. Hún fluttist að Vífils- stöðum fyrir um fjórum árum og þar andaðist hún þann 5. desember sl. Ég er þakklát öllum þeim sem stuðluðu að vellíðan hennar og glöddu hana á einhvern hátt, og að lokum fer ég með kvöldbæn, sem hún flutti svo oft við rúmið mitt þegar ég var barn: Vertu yfir og allt urn kring í eilífri blessun þinni. Silji Guðsenglar sarnan í liring, sœnginni yfir rninn. Erla R. Guðmundsdóttir með öðrum hætti. T.d. hefur Almar Grímsson lyfsali í Hafnarfjarðar- apóteki heitið að gefa innréttingar í lyfjabúr Skjóls og að hjálpa til við skipulag þess. Gísli J. Johnsen s.f. hefur gefið tölvu til heimilisins. Þá hefur verið haft samband viö stjórn Skjóls og tilkynnt að heimilinu hafi verið ánafnað stórgjöfum í erfðaskrám. Viðbrögð benda til þess að fólk hafi ekki gefist upp á sam- hjálpinni þótt því sé ekki að leyna að mjög er leitað í vasa fólks og það svo mjög að hætt er við að fólk þreytist. En þörfin er mikil og það ekki síður mikilvægt að fólk sýni vilja sinn í verki. Sjálfboðin þjónusta og gjafir ásamt fruntkvæði í hugmyndum og öðru er ntjög mikilvægt fyrir þróun velferðarmála og framfaramála. Ef fólk sýnir ekki yfirvöldunum að það hafi jákvæðan hug til verkefna af þessu tagi er hætt við að dragi úr frumkvæði þeirra og fjárveitingum. Fátt er jafn hættuiegt á þessu sviði sem öðru og að safna fyrir óleystum vandamálum, t.d. með því að leysa ekki vistunarþörfina jafnóðum. Að öðrum kosti er hætt við að mönnum lítist á óleyst vandamál sem óyfir- stíganleg. Við sem erum í þeim áhuga- mannahópi sem vill styðja Skjól von- umst til þess að allir sem áhuga hafa á eða áhyggjur af vistunarmálum aldraðra sýni jákvæðan hug sinn með því að leggja sitt af mörkum í santeiginlegan sjóð, Átak til Skjóls. Eggert Ásgeirsson. VINNINGSNÚMER í Happdrætti Krabbameinsfélagsins --------Dregið 24. desember 1986 SUBARU STATION GL: 63924 80481 89945 FORD SIERRA1600: 115514 155964 161885 VÖRUR AÐ EIGIN VALI FYRIR KR. 50.000: 184 22716 42295 90620 102282 126229 130827 158838 179821 16933 38082 59961 98316 102392 127409 138317 166534 21945 41524 67814 102102 115410 128386 156783 168086 VÖRUR AÐ EIGIN VALI FYRIR KR. 25.000: 2223 22071 43234 3859 22478 57034 4582 36080 57486 5576 38446 57724 12848 38571 59161 14038 39396 59422 15348 40902 63139 20822 41232 63169 63196 76507 87249 63640 79423 87258 64126 82441 94245 67472 83082 94696 67975 83156 97722 69197 85033 98440 72796 86781 102729 75031 86803 108275 115257 144097 172848 116292 145933 175521 117982 150579 175719 119983 156468 177988 138578 156740 181775 139338 158428 139627 161849 143414 168801 Handhafar vinningsmiöa framvisi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins aö Skógarhlíö 8, simi 62 14 14. Krabbameinsfélagiö þakkar landsmönnum veittan stuöning. Krabbameinsfélagið Ritari Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanríkisþjónustunni. Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu. Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands erlendis. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneyt- inu, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar nk. Utanríkisráðuneytið. RfR rafmagnseftirl.it ríkisins Orðsending til rafvirkja Nám til löggildingar á rafvirkjun samkvæmt nýjum reglum er fyrirhugað í fyrsta sinn á vorönn 1987. Umsækjendur skulu hafa sveinspróf í rafvirkjun eða rafvélavirkjun og lokapróf frá iðnfræðsluskóla og auk þess uppfylla inntökuskilyrði samkvæmt Stjórnartíðindum nr. 372, 31. júlí 1986. Nánari upplýsingar um námið fást hjá Rafmagns- eftirliti ríkisins í síma 91-84133. Rafmagnseftirlit ríkisins Fjármálastjóri Rannsóknarstofnun landbúnaðarins óskar að ráða fjármálastjóra. í starfinu felst meðal annars: Fjármálastjórn, áætlanagerð, eftirlit með bókhaldi stofnunarinnar auk daglegrar umsjónar með rekstri. Nánari upplýsingar um starfið veitir forstjóri. Umsóknarfrestur er til 15. janúar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.