Tíminn - 30.12.1986, Qupperneq 8

Tíminn - 30.12.1986, Qupperneq 8
8 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarf lokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjóri: NíelsÁrniLund Aöstoðarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGislason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.- Hörmuleg sjóslys Hörmuleg sjóslys vörpuðu skugga á jólin að þessu sinni. Pau gerðu ekki boð á undan sér frekar en önnur slys og skilja eftir sig djúp sár hjá þjóðinni allri. Mestur er þó söknuður ástvina þeirra sem fórust; megi góður Guð styrkja þá og varðveita. Fáum dögum fyrir jól fórst rækjubáturinn Tjaldur frá ísafirði við mynni Jökulfjarða og með honum þrír vaskir sjómenn. En oft er „skammt stórra högga á milli“. Nokkrum klukkustundum eftir að jólin voru gengin í garð við fögnuð landsmanna barst sú fregn til Slysavarnafélags íslands að flutningaskipið Suðurland væri í hættu statt, lengst norður í hafi og skömmu síðar var staðfest að skipið væri að sökkva og áhöfnin farin frá borði. Óvissa og hræðileg skelfing tók við enda kraftaverk ef nokkur kæmist lífs af. Fjarlægð á slysstað mjög löng, vont veður og myrkur. Vonir kviknuðu þegar björgunarbáturinn fannst og greina mátti menn um borð. Ljóst var þó að tími til björgunar var naumur, og hver mínúta gat ráðið úrslitum. Leitað var til annarra þjóða um aðstoð. í tilvikum sem þessum eru allir tilbúnir til hjálpar og af eigin raun þekkja þær þjóðir sem leitað var til nauðsyn þess að fljótt sé við brugðið. Aðstoð þeirra réð úrslitum. Frá breskri Nimrodþotu var kastað niður björgunarbáti og þyrla af danska herskipinu Vædderen bjargaði síðan þeim sem komust af. Með Suðurlandi fórust 6 dugmiklir íslenskir sjómenn sem voru að sinna mikilvægum störfum fyrir íslensku þjóðina. 5 komust lífs af eftir að hafa staðist meiri þolraun en við getum áttað okkur á að hægt sé að lifa af. Fyrir snarræði og dugnað áhafnar danska herskipsins Vædderens var þeim bjargað á síðustu stundu. Sú áhöfn á miklar þakkir skildar frá íslensku þjóðinni. Á jóladagskvöld strandaði svo tankskipið Syneta við Skrúð, í mynni Fáskrúðsfjarðar. Áhöfnin, 12 manns sem var bresk og frá Grænhöfðaeyjum fórst öll. Allt er í heiminum hverfult og þrátt fyrir alla tæknina verðum við að viðurkenna að náttúruöflin eru okkur ofviða þegar svo ber við að horfa. Sjómennska og sjósókn hafa löngum heimtað sinn toll af íslensku þjóðinni, og svo hefur gerst nú. Eftir slík slys sem þessi er það skylda okkar að kanna hverjar orsakirnar eru, ef af þeim mætti læra. Pá ber okkur einnig skylda til að athuga hvort ekki megi af þeim draga lærdóm varðandi bætt öryggi sjómanna, og fullkomnari björgunartæki. Mannslíf verða ekki metin til fj ár og því má kostnaður vegna öryggismála sjómanna sem annarra aldrei verða til þess að björgunarútbúnaður sé ekki sá fullkomnasti sem völ er á. Pá vakna líka þær spurningar hvort nægilega vel sé búið að þeim aðilum sem ætlað er að koma til aðstoðar þegar slys hafa orðið, og hvort þeir hafi yfirleitt möguleika á að framkvæma þau verkefni sem þeim eru ætluð. Pessi mál þarfnast athugana. Tíminn færir þeim mörgu sem misst hafa eiginmenn, feður, syni og ástvini, innilegustu samúðarkveðjur og biður þeim blessunar Guðs. Þriðjudagur 30. desember 1986 lllllllllllllllllllllllll VÍTTOG BREITT lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllilllil Hæstiréttur hefur úrskurðað að okur sé löglegt, eða að minnsta kosti ekki ólöglegt, ef það hefur verið ástundað á tilteknu tímabili. Þetta kemur auðvitað engum á óvart þar sem okur er, og hefur lengi verið, landlægt. Söluaðilar margs kyns vörutegunda okra hver sem betur getur á viðskiptavinum sínum og kannast allir við mörg hundruð prósent álagningu á varn- ingi sem hægt er að prakka út með góðum hagnaði. Okur á þjónustu sumri hverri er ekki minni. Húsa- leiguokur er vel þekkt og þykir engum mikið. En það eru vextir af peningum þar sem réttvísin þarf að úrskurða um hvort verið er að okra eða ekki. Annað okur kemur framkvæmda- eða peningavaldi ekki við. Skil- greining um okur virðist ekki ná nema til leigu á peningum. Pen- ingastofnanir virðast mega taka átölulaust þær upphæðir sem þeim sýnist ef það er gert í hegningar- skyni. Refsivextir mega ná út fyrir allan þjófabálk. Ef viðskiptamanni banka verður það á að skrifa litla ávísun á innistæðu sem ekki er innistæða til fyrir að fullu getur peningastofnunin upp á eindæmi tekið sér jafnvel tvöfalda upphæð- ina á einum sólarhring og brýtur ekki í bága við nokkurn lagabók- staf eða siðferðiskennd umsjón- armanna auðsins. Löglegt og siðlegt Allt síðan á vordögum hefur rannsóknarlögregla ríkisins, nokk- ur fógetaembætti, sakadómur og ríkissaksóknari staðið á haus í einhverju sem menn í fávisku sinni kölluðu okurmál. Fjölmiðlar létu ekki sitt eftir liggja og blésu út frásagnir af siðlausu og ólöglegu athæfi Hermanns Björgvinssonar og þeirra sem lánuðu honum fé gegn háum vöxtum, svo að hann gæti lánað öðrum á enn hærri vöxtum. Svo var móraliserað út af öllu saman, og átti undirritaður þar sinn hlut að máli og gerði sig að fífli eins og sumir aðrir, sem héldu að einhver okurlög væru í gildi í lýðveldinu. Svo rammt kvað að þessum mis- skilningi, að nokkrir undirréttar- dómarar kváðu upp sektardóma yfir örfáum þeirra sem okruðu á Hermanni athafnamanni. Auðvitað lá í augum uppi að þar sem vaxtafrelsi ríkir er ekkert okur til og okurlög dauður bókstafur. Og því skyldi ekki mega okra með peninga eins og flesta hluti aðra? Úrskurður Hæstaréttar um löglegt okur þarf engum að koma á óvart þegar betur er að gætt. Allt frjálst og allir saklausir Mörgum hnykkti við þegar hæsta- réttarúrskurðurinn var gerður lýð- um ljós rétt fyrir jólin. Fórnarlamb 123 aðila sem lánuðu honum fé gegn háu vöxtunum sagðist aldrei hafa fengið betri jólagjöf en þenn- an salómonsdóm. Ástæðan er sú að hann lá undir ámæli um að hafa gert enn betur í vaxtamálunum, en þeir sem af góðsemd sinni lánuðu honum fjárupphæðir. Aðrir töldu fréttirnar dapurleg- ar. Þeirra á meðal er forsætisráð- herra, sem taldi hið mesta hneyksli að Seðlabankinn hafði látið undir höfuð leggjast að auglýsa hæstu löglega vexti frá því tímabili er vextir voru gefnir frjálsir, en það hafði stofnunin gert fram að þeim tfma um eitthvert árabil samkvæmt lögum. En Seðlabankanum tókst að velta tilkynningaskyldunni yfir á viðskiptabankana, sem aldrei virðast hafa frétt af þessari ábyrgð sinni. Eftir þessa ádrepu lagðist banka- stjórn Seðlabankans undir feld og setti saman fréttatilkynningu, sem send var út á Þorláksmessu. Stofn- unin vísar allri ábyrgð frá sér og vitnar í margar lagagreinar með númerum og dagsetningum og er þetta hið læsilegasta plagg fyrir þá sem hafa gaman af slíku og geta dregið saman fróðleik af. Seðlabankinn segist hafa skyld- að innlánsstofnanir, þ.e. hina bankana, til að auglýsa á áberandi hátt í afgreiðslum sínum þá vexti, sem hver stofnun bauð. Svo aug- lýstu þær líka vexti sína í Lögbirt- ingablaðinu. Svoleiðis uppfylltu peningapassararnir skyldur sínar. Að öðru leyti vísar Seðlabank- inn öllum ásökunum um að hann hafi átt að hafa hemil á okurkörl- um, til föðurhúsanna, og segir að það sé hlutverk löggjafans en ekki Seðlabankans að tryggja það, að refsiheimildir séu jafnan í samræmi við þá stjórnsýslulöggjöf, sem bankanum er ætlað að starfa eftir. Að lokum gefur stofnunin Al- þingi og ríkisstjórn föðurlega á- minningu: „Dómur Hæstaréttar leið- ir í ljós verulega réttaróvissu við beitingu okurlaga samhliða hinni nýju bankalöggjöf, sem miðast við gjörbreyttar forsendur. Er af þeim ástæðum fyllilega tímabært að móta heilstæða löggjöf um vaxta- mál og refsiheimildir til samræmis við réttarþróun síðari ára og eyða þar með umræddri réttaróvissu." Það er kannski of sterkt að orði kveðið að réttaróvissa ríki við beitingu okurlaga. Hæstaréttar- dómurinn tekur af öll tvímæli. Okur er ekki ólöglegt, að minnsta kosti ekki það vaxtaokur sem hefur verið stundað síðan vextir voru gefnir frjálsir. Hins vegar má taka undir þá frómu ósk Seðlabankans, að það er tímabært að móta heil- stæða löggjöf um vaxtamál. Enginn ábyrgur Hæstaréttardómurinn varð til þess að augu manna opnuðust fyrir því að okur er ekki til í landi og öll löggjöf um slíkt fyrir löngu úr gildi fallin. Nú kennir hver öðrum um að peningaokur er ekki refsivert at- hæfi. Að venju er enginn aðili ábyrgur. En ljóst er að Seðlabankinn er til óþurftar í máli þessu. Ekki endilega vegna þess að hann hafi ekki auglýst hæstu löglega vexti, heldur vegna hins, að aðrir aðilar, þ.e. ríkisstjórn og Alþingi, stóðu í þeirri trú að honum bæri að gera það. Þarna skapaðist óvissa um hvaða aðili átti að sjá til þess að heill lagabálkur um mikilsvert atr- iði í stjórn fjármála héldi gildi sínu sem lög í landi. Seðlabankinn áleit aftur á móti að löggjafinn ætti að sjá um að okurlög væru fram- kvæmanleg og einhvers konar þak sett á löglega vexti. Sameining banka Til eru lög um Seðlabanka fslands, skyldur hans og hlutverk. Ekki hafa borist spurnir um annað en sá lagabálkur sé í gildi. Hins vegar er ljóst að ágreiningur er um hvaða lagaskyldur stofnunin ber að uppfylla. Þegar svo er má spyrja hvort yfirleitt sé nokkur þörf á þessari stofnun. Nú er mikið talað um að fækka bönkum og sameina þá. Enginn vegur virðist að ná samkomulagi um hvernig að þeim málum skuli staðið og hvaða banka á að sam- eina og með hvaða hætti. Einn er sá ríkisbanki sem er utanveltu við umræðuna. Það er sjálfur Seðla- bankinn. Á sínum tíma óx hann út úr Landsbankanum og hefur eflst mjög að öllu umfangi síðan. Þar eru stundaðir merkilegir útreikn- ingar, gjaldeyrir geymdur og gengi skráð. Þaðan fer fram bankaeftirlit og svo hefur stofnunin milligöngu með peningaprentun. Þar sem öllum kemur saman um, líka Seðlabankanum, að ríkis- bankarnir séu alltof margir, væri vel athugandi hvort ekki mætti fækka þeim með því að Lands- bankinn tæki á ný við umsvifum Seðlabankans. f leiðinni mætti vel létta nokkrum lagaskyldum af ríkisbankakerfinu, að minnsta kosti í þeim mæli að það lægi ljóst fyrir hvert er hlutverk banka og hvert löggjafavalds. Eins og mál standa þvælist þetta aðeins hvert fyrir öðru. Á tfmum frjálsræðis í vaxta- og gjaldeyrismálum, fjölmargra hag- deilda og fjármagnsfyrirtækja í einkaeign og mikilla gjaldþrota sýnist bankaeftirlit lítils virði og lagaskyldur Seðlabankans í þoku- móðu. Um leið og okurlögin verða endurreist mætti vel hyggja að því hvort lög um Seðlabanka séu ekki orðin úrelt og hvort báknið mætti ekki missa sig án teljanlegs skaða fyrir þjóðfélagið. OO

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.